Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 68
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 36
LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR
Þeir sem fram koma eru:
Doddi trymbill *
Þorvaldur Þór Þorvaldsson
JFM , fimbulorganisti og söngvari
Andri Hightower Ólafsson
bassaleikari og söngvari
Arnar Ingi Richardsson
slagverksleikari & söngvari
Steinar ´Hönk´ Sigurðsson
saxisti
´Sr.´ Hjörtur Stephensen
gítarleikari
Jack Magnet og félagar fagna
þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna
4.júlí með sérstakri hátíðar-
tileinkun til þeirrar miklu
uppsprettu fönks, jazz - og
blústónlistar sem Bandaríkin eru.
Rósenberg,
Klapparstíg 27, 101 Reykjavík
laugardaginn 4.júlí kl. 22:00
Miðaverð kr. 2.200
forsala á midi.is og tix.is og við
innganginn
Borðapantanir í síma 511 2442
„Ég var að klára Listaháskólann
og er með tonn af skuldum á bak-
inu svo ég verð hér alla helgina
að selja utan af mér,“ segir Vikt-
oría Blöndal, sem stendur fyrir
allsherjar flóamarkaði á Kaffi-
stofunni, nemendagalleríi LHÍ
ásamt vinkonu sinni Söru Björg
Bjarnadóttur.
„Ég ætla að flytja af landi
brott og þessi námslán eru ekk-
ert lamb að leika sér við, svo nú
verður allt til sölu, nema nær-
buxurnar og tannburstinn,“ segir
Viktoría ansi borubrött. Mun hún
leggja Ósló að fótum sér, en sjálf
er hún leikstjóri, skáld, rithöf-
undur og ýmislegt fleira, sem
hún mun vinna með þar ytra.
Meðal þess sem þær stöllur
ætla að bjóða upp á er sjálfsævi-
saga Viktoríu. „Ég varð nýlega
þrítug svo ég hef verið að skrifa
ævisöguna og tek tíu ár fyrir í
hverju bindi,“ segir Viktoría en
hún hefur gefið bækurnar út í
þrjú þúsund eintökum, sem þó
hafa ekki farið í almenna sölu
fyrr en nú. „Ég hef aðallega
verið að selja vinum og vanda-
mönnum, en nú verð ég að eiga
fyrir flutningunum.“
Þá munu þær bjóða upp á glás
af Jesústyttum og eftirlíking-
um af Maríu mey, sem Viktoría
reyndi lengi að samsama sig í
æsku, en hefur nú ákveðið að
láta lönd og leið, og geta aðrir nú
notið góðs af þeim. Einnig verða
málverk eftir Söru til sölu. „Hún
er reyndar ekki að fara neitt,
en verður að fjármagna næsta
Cocoa Puffs-skammtinn. Einu
sinni var neysla veisla, en nú
þarf að harka.
Til að gera góðan markað enn
betri mun leynigestur kíkja við,
sem ég get ómögulega sagt hver
er, en ég get sagt að sjón er sögu
ríkari,“ bendir Viktoría á og
laumar því að, að þarna sé um
tónlistaratriði að ræða.
Munu Viktoría og Sara taka
á móti gestum og gangandi á
Hverfisgötu, og segjast hafa
fengið vilyrði frá sjálfri sólinni
fyrir að láta sjá sig. „Ég lofa tutt-
ugu og átta gráðum og nógu af
útfjólubláum geislum. En auð-
vitað bara til þeirra sem versla
fyrir fimm þúsund krónur eða
meira,“ segir Viktoría skellihlæj-
andi að lokum.
gudrun@frettabladid.is
Allt falt nema nær-
brækur og tannbursti
Listakonurnar Viktoría og Sara standa fyrir lífl egum fl óamarkaði á Kaffi stofunni
alla helgina til að eiga fyrir skuldum sem hlaðast hratt upp á námsárunum.
NÓG TIL Það kennir ýmissa grasa hjá þessum listaspírum, en þær lofa til að mynda
bongóblíðu og sól handa öllum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
Til að gera góðan
markað enn betri mun
leynigestur kíkja við, sem
ég get ómögulega sagt
hver er, en ég get sagt að
sjón er sögu ríkari.
Tónleikar
12.00 Hin pólska Elzbieta Karolak leikur
á tvennum tónleikum á Alþjóðlegu orgel-
sumri í Hallgrímskirkju um helgina. Fyrri
tónleikarnir eru á laugardaginn kl. 12 og
miðaverð 2.000 kr. Síðari tónleikarnir eru á
sunnudaginn kl. 17 og miðaverð 2.500 kr.
22.00 Jack Magnet og félagar munu fönka
og fagna á Rósenberg á þjóðhátíðardegi
Bandaríkjanna. Aðgangseyrir kr. 2.200. For-
sala á tix.is og midi.is.
23.00 Hljómsveitin Autonomous leikur og
syngur á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangur er ókeypis.
Sýningar
12.00 Sirkus Íslands er með þrjár sýningar
í Vestmannaeyjum í dag. Fjölskyldusýn-
inguna Heima er best, krakkasýninguna
S.I.R.K.U.S. og fullorðinskabarettinn Skinn-
semi. Sirkusinn sýnir í sirkustjaldinu Jöklu,
sem verður staðsett miðsvæðis, og mun
fjórtán metra háa rauða og hvíta sirku-
stjaldið ekki fara fram hjá neinum.
14.00 Breski listamaðurinn Nikhil Nathan
Kirsh opnar sýninguna Endurfæðingu í
Gallerí Fold.
Markaðir
13.00 Krás götumatarmarkaður verður
opnaður á ný í Fógetagarðinum eftir að
hafa legið í vetrardvala (fyrir utan nátt-
úrulega Jólakrásina sem var frábær). Á
Krás finna allir eitthvað við sitt hæfi.
Tónleikar
15.00 Hljómsveitin Dalí spilar á Pikknikk
tónleikum Norræna hússins í gróðurhús-
inu. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Söfn
14.00 Kínasafn Unnar, Njálsgötu 33a, er
opið öllum, yngri sem eldri. Boðið upp
á te og piparkökur. Safninu er lokað kl.
16.00.
Sýningarspjall
15.00 Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur
mun leiða gesti Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar um sýninguna Samspil eftir
Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl. Ásamt
Birgittu Spur er Æsa sýningarstjóri og
hefur hún rannsakað áður ókönnuð
tengsl milli þessara tveggja listamanna
og ritað áhugaverða grein í sýningarskrá.
Uppákomur
13.00 Hin árvissa og vinsæla forn-
bílasýning Fornbílaklúbbs Íslands verður
á Árbæjarsafni fer fram á sunnudag.
Félagsmenn verða til skrafs og ráðagerða
og sýna bíla sína sem margir eiga merka
sögu. Þeir verða jafnframt upp á klæddir
í takt við árgerð bílana og við hvetjum
gesti safnsins til þess að klæða sig upp á
eftir sínu uppáhaldstímabili.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá
inni á visir.is
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
7
-8
E
6
C
1
7
5
7
-8
D
3
0
1
7
5
7
-8
B
F
4
1
7
5
7
-8
A
B
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K