Fréttablaðið - 04.07.2015, Qupperneq 70
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 38
SÝND KL. 2
SÝND KL. 2
SÝND
Í 2D
SÝND
Í 2DSÝND KL. 1:45
ÍSL
TAL
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
bio. siSAM
SPARBÍÓ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
VARIETY
THE TELEGRAPH
CHICAGO SUN TIMES
MÖGNUÐ GRÍNMYND SEM
ALLIR VERÐA AÐ SJÁ.
CINEMABLEND
JAMES CAMERON
Arnold Scwarzenegger er mættur í hörðustu
stórmynd sumarsins.
TERMINATOR GENISYS 5, 8, 10:30(P)
TED 2 1:45, 8, 10:20
JURASSIC WORLD 2D 2, 8, 10:35
INSIDE OUT 2D - ÍSL TAL 2, 5
HRÚTAR 4, 6
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 1:45
POWERSÝNING
KL. 10:30
FRÁ LEIKSTJÓRA
BRIDESMAIDS OG THE HEAT
-H.S., MBL
4000 M
ANNS
„Ég hef ekki séð neitt af Íslandi
nema Hótel Keflavík,“ svaraði El-P
er hann var inntur eftir því hvað
honum þætti um Ísland. El-P er
listamannsnafn rapparans og pródú-
sentsins Jaimes Meline, en hann
myndar annan helming sveitarinn-
ar Run the Jewels. Sveitin lokaði
fimmtudagskvöldinu á All Tomorr-
ow’s Parties á Ásbrú.
„Við konan kíktum í Bláa lónið og
mér finnst ég vera nýr maður eftir
það,“ sagði Michael Render, Kill-
er Mike, og hló. „Á leiðinni hingað
sagði hún mér að hana hefði dreymt
um Ísland og Bláa lónið síðan hún
var sautján ára.“
Á tónleikum sveitarinnar var
boðið upp á efni af fyrstu tveimur
plötum sveitarinnar sem báðar eru
samnefndar henni. Það er engum
vafa undirorpið að síðari platan var
ein allra besta plata ársins 2014.
Listamennirnir efndu til söfnunar
á Kickstarter til þess að fjármagna
útgáfu plötunnar og gátu aðdáend-
ur keypt mismunandi pakka til að
styrkja sveitina. Meðal þess sem
boðið var upp á var að fyrir 46
milljónir myndu þeir þykjast hafa
áhuga á einhverju sem skiptir þig
máli. Annað sem var í boði var að
greiða fimm milljónir og í staðinn
lofuðu þeir því að endurútgefa plöt-
una með kattahljóðum í stað venju-
legra hljóðfæra. Hópur fólks safnaði
fénu saman og er Meow the Jewels
væntanleg með haustinu.
„Ég skil ekki hvers vegna fólk er
spennt fyrir þessu. Ég meina, þetta
er rappplata með kattahljóðum. Hún
verður aldrei góð,“ segir El-P sem
hefur lagt mikla vinnu í að finna
réttu kattahljóðin í ýmsum kattaat-
hvörfum. „Allir stærstu pakkarn-
ir sem við buðum upp á voru grín
og við bjuggumst aldrei við því að
nokkur þeirra yrði fjármagnaður.“
Mest þrjú símtöl í grasið
Það er alkunna að þið neytið mari-
júana og farið ekkert leynt með
það. „Laukrétt,“ svarar Killer Mike
snögglega. „Við komum hingað frá
Amsterdam þar sem við gerðum fátt
annað en að reykja.“
Hefur það einhvern tíma komið
ykkur í klandur? „Alls ekki. Við
pössum okkur. Það er ekkert sama-
semmerki milli þess að neyta fíkni-
efna og vera vitlaus,“ segir Killer
Mike og félagarnir skella upp úr.
„Okkur dettur ekki í hug að ögra
með þessu. Við reykjum þar sem
við vitum að það er í lagi að reykja.“
El-P skýtur því inn að það skipti
engu máli hvar maður sé staddur í
heiminum, gras sé aldrei meira en
þremur símtölum frá þér.
„Ég hef aldrei ferðast með neitt
slíkt með mér. Allt er keypt á staðn-
um. Nema eftir að rafretturnar
komu. Stundum laumast ég til að
setja smá olíu í þær og taka með í
flugið. Skynjararnir á klósettinu
nema nefnilega reyk en þeir kunna
ekki enn þá á gufu,“ og glottið leikur
um andlit hans.
Fjörgamlir hipphopparar
Nú standið þið báðir á fertugu,
sjáið þið ykkur á sviði að spila
eftir tuttugu ár? „Vonandi,“ svar-
ar El-P. „Fyrir mörgum árum
voru gömlu rokkararnir spurðir
svipaðra spurninga. Rolling Sto-
nes, Iggy Pop, AC/DC og þú sérð
þá enn á fullu. Það styttist í að við
sjáum aldraða hipphoppara gera
hið sama.“
„Sjáðu bara Public Enemy sem
spilar á undan okkur,“ bætir Mike
við. „Þeir eru margfaldir afar en eru
enn með þetta. Ég sá þá fyrst á sviði
þegar ég var sautján ára. Ég vona að
við getum haldið áfram svona lengi,
en þori ekki að lofa því.“
Þið hafið gefið út að næsta plata
sé væntanleg 2016. Hvað er á döf-
inni þangað til? „Við ætlum að taka
smá pásu til að ná okkur. Við höfum
ferðast um heiminn án afláts frá
fyrri plötunni og nú er kominn tími
á smá frí,“ segja þeir. „Það er aldrei
að vita nema ég komi aftur hingað í
fríinu. Ég verð að sjá meira af land-
inu en bölvað hótelið,“ segir El-P og
Mike bætir við: „Konan er ástfangin
af landinu þannig að ég er væntan-
legur hingað á ný.“
ATP-hátíðinni lýkur í kvöld en
meðal þeirra sem koma fram eru
Swans, Lightning Bolt, Ham, Pink
Street Boys og Kiasmos.
johannoli@frettabladid.is
Rafrettur í fl ugvélinni
Dúettinn Run the Jewels lokaði fi mmtudeginum á ATP-hátíðinni. Þeir ræddu
mjálm, marijúana og framtíðina við Fréttablaðið. Hátíðinni lýkur á Ásbrú í kvöld.
Í FLUGSKÝLINU „Þegar við erum á sviði þá gefum við okkur alla í verkið.“ Það voru orð að sönnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Góða skemmtun í bíó
Það er ekkert
samasemmerki milli þess
að neyta fíkniefna og
vera vitlaus.
Killer Mike
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
7
-D
8
7
C
1
7
5
7
-D
7
4
0
1
7
5
7
-D
6
0
4
1
7
5
7
-D
4
C
8
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K