Fréttablaðið - 04.07.2015, Side 78
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Þetta er hreint út sagt óvirðing
við konurnar sem hann hefur beitt
ofbeldi og ákveðin tegund af þöggun
á þeirra upplifun. Hans upphafning
er þeirra þöggun. Þess vegna varð
þessi undirskriftalisti til,“ segir
Elísabet Ýr Atladóttir, einn meðlima
hópsins Aktivistar gegn nauðgunar-
menningu, sem stendur að baki und-
irskriftalista gegn komu boxarans
Mikes Tyson til landsins með sýn-
inguna The Und isp u ted Truth.
Í vikunni sem leið birtust fréttir
þess efnis að þessi umdeildi íþrótta-
maður, sem jafnframt er dæmd-
ur nauðgari, væri væntanlegur til
landsins með haustinu, þar sem
hann mun standa fyrir sýningu sem
byggð er á ferli hans frá upphafi og
verður ekkert látið ósagt.
„Þegar konur hafa loks rofið
þögnina og talað opinskátt um kyn-
bundið ofbeldi af öllum toga er
óásættanlegt að dæmdur nauðg-
ari og ofbeldismaður fái slíka heið-
ursmeðferð,“ segir meðal annars í
yfirlýsingu hópsins á vefsíðu undir-
skriftalistans.
Þykir heldur undarlegt að maður
með nauðgunardóm á bakinu og
ríkulega forsögu um ofbeldi í garð
kvenna skuli upphafinn með þess-
um hætti og boðinn velkominn til
landsins.
Vonast Elísabet til að með und-
irskriftalistanum verði hægt að
vekja fólk til umhugsunar: „Því
það er ómögulegt að maður eins
og Mike Tyson sé
kynntur sem ein-
hvers konar fyrir-
mynd fyrir karla. Við
berum öll ábyrgð
á því að menn
geti ekki sópað
brotum sínum
undir
teppið. Með því að gefa pláss fyrir
þessa sýningu værum við í raun að
gefa samþykki fyrir því að hann
tæki aldrei ábyrgð. Við værum
að gefa í skyn að brot hans gegn
þessum konum sé ekki nógu mikil-
vægt, ekki nógu alvarlegt, að okkur
finnist hans ferill mikilvægari en
þeirra réttlæti. Sem samfélag verð-
um við að gefa skýr skilaboð til
ofbeldismanna að við tökum ekki
þátt í þögguninni lengur.“
Nú þegar hafa rúmlega
hund rað og fimmtíu skráð
sig á listann sem fór í loftið
á miðvikudag. „Við komumst
vonandi í samband við skipu-
leggjendur fljótt svo við getum
komið listanum áleiðis þegar söfn-
un lýkur,“ segir Elísabet að lokum.
gudrun@frettabladid.is
Tyson er óvelkominn
Hópurinn Aktivistar gegn nauðgunarmenningu hefur hafi ð undirskrift asöfnun
gegn fyrirhugaðri sýningu Mikes Tyson, sem væntanlegur er til landsins í haust.
NEI, TAKK „Í dag er kominn tími fyrir „zero tolerance“, það er komið nóg af því
að leyfa mönnum að njóta vafans trekk í trekk þegar þeir sýna engin merki um
betrun.“ MYND/AÐSEND
Því það er ómögu-
legt að maður eins og
Mike Tyson sé kynntur-
sem einhvers konar
fyrirmynd fyrir karla. Við
berum öll ábyrgð á því
að menn geti ekki sópað
brotum sínum undir
teppið.
Hljómsveitin Of Monsters and Men
á lag á plötu sem gefin er út í tilefni
áttræðisafmælis Dalai Lama. Lagið
King and Lionheart verður á plöt-
unni en á henni er einnig að finna
lög eftir nokkra af þekktustu tón-
listarmönnum sögunnar, eins og
Peter Gabriel, Sting og Kate Bush
svo nokkur nöfn séu nefnd.
„Það er okkur mikill heiður að
eiga lag á plötu til heiðurs áttræðis-
afmæli Dalai Lama. Við stukkum á
tækifærið til að geta stutt starfsemi
The Art Of Peace Foundation. Það er
ekki slæmt að fá að gefa Dalai Lama
King and Lionheart í afmælisgjöf!“
segir Ragnar Þórhallsson, annar
söngvara hljómsveitarinnar.
Platan ber titilinn The Art of
Peace: Songs for Tibet II og kemur
út á mánudaginn, sem er afmælis-
dagur Dalai Lama.
Í von um að platan nái athygli
yngri hlustendahóps og breiði út
friðarboðskap Dalai Lama víðar,
eru nýrri hljómsveitir með efni á
plötunni eins og Lorde sem söng eitt
vinsælasta lag ársins 2013, Royals.
Ágóði af sölu plötunnar mun
renna til starfsemi góðgerðarsam-
takanna Art of Peace sem byggð er
á hugsjón Dalai Lama. - glp
OMAM á afmælisplötu Dalai Lama
Hljómsveitin er í hópi með nokkrum af þekktustu tónlistarmönnum heims.
VINSÆL Of Monsters and Men er um þessar mundir á tónleikaferð um Evrópu.
Stephan Stephensen
einnig þekktur sem President Bongo
Tónlistarmaður
ALDUR: 44 ára
Stephan Stephensen, einnig þekktur sem
President Bongo, kvaddi á dögunum
hljómsveitina GusGus en hann
hefur verið meðlimur í sveitinni
undanfarin 20 ár. Hann greindi
frá brotthvarfi sínu í kveðjubréfi
sem hann birti á Facebook-síðu
sinni. Tónlistarmaðurinn hefur
því sagt skilið við þessa vinsælu
sveit og þakkar hann öllum
fyrir stuðninginn og gleðina sem
hann upplifði öll þessi ár.
Helgi Björnsson
vinur
Hann er bara algjört yndi.
Hann er lífsglaður og er mikill
framkvæmdamaður og ævintýra-
maður. Hann kann að lifa lífinu og
er góður vinur vinna sinna og mikill
listamaður einnig.
Biggi Veira
samstarfsfélagi og vinur
Hann er mikill höfðingi í alla
staði sem elskar að láta fólki
í kringum sig líða vel. Hann getur
auðvitað líka verið óþolandi eins og
allir geta verið. Hann er algjör „prima
alpha male“.
Ásta Sveinsdóttir
fyrrverandi samstarfsfélagi
Hann er skemmtilegur,
ákveðinn og örlítið dulur. Eng-
inn betri til að peppa hóp saman og
hefur mjög skýra sýn á hvernig hann
vill hafa hlutina. Fáir hafa jafn sterkan
presens og Presidentinn!
NÆRMYND
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
6
-A
1
6
C
1
7
5
6
-A
0
3
0
1
7
5
6
-9
E
F
4
1
7
5
6
-9
D
B
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K