Fréttablaðið - 04.07.2015, Side 80
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur kvenna
á tölublað, 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,3%
18%
FB
L
M
BL
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
BAKÞANKAR
Pawels
Bartoszek
Vorið 2009 sat ég landsfund Sjálf-stæðisflokksins. Ég man hvern-
ig, í miðri ræðunni þar sem einhver
sagði að Jóhanna Sigurðardóttir
væri eins og álfur í framan, að tutt-
ugu lögreglumenn ruddust inn í sal-
inn með hunda og gengu rösklega á
milli borða í leit að hassi. Af og til
drógu þeir einn landsfundarfull-
trúa út og tóku hann afsíðis. Sumir
mótmæltu, aðrir hlýddu. Sumir
komu aftur eftir nokkrar mínútur.
Aðrir komu ekki til baka þá helgina.
Þetta dró aðeins úr stemningunni
en hvað getur maður gert?
SKIPULEG eiturlyfjaleit á opin-
berum samkomum er líklegast
komin til að vera. Ég man þegar
okkur stærðfræðingum var orðið
nóg boðið eftir enn eina rassíuna
á Norrænu stærðfræðiráðstefn-
unni og við fengum Snarrótina til
að halda fund: „Þekktu þinn rétt á
stærðfræðiráðstefnum.“ Þar var
kennt hvenær á að samþykkja leit
og svona. Það er auðvitað bagalegt
að þurfa að standa í svona mann-
réttindastappi en hvað getur maður
gert?
ÉG fór nýlega á árshátíð í banka
þar sem konan mín vinnur. Mér er
sérstaklega minnisstætt hvernig
sýnileg viðvera fíkniefnalögregl-
unnar setti svip sinn á skemmti-
haldið. Bæði stóðu lögreglumenn
með hunda við innganginn og
leituðu á fólki þegar það mætti til
borðhalds, en einnig voru margir
vatnsgreiddir leynilögreglumenn í
Dressmann-jakkafötum sem fylgd-
ust grannt með hvort nokkur væri
að selja „bankabygg“. Þetta dró
aðeins úr stuðinu en hvað getur
maður svo sem gert?
OG svo auðvitað tónlistarhátíð-
irnar. Handahófskennd líkams-
leit. Fíkniefnahundar. Löggur á
hverju strái. Fólk í móðursýkiskasti
að ásaka hvert annað um að vera
„undercover“. Endalaus dópum-
ræða í fjölmiðlum. Þetta dregur
vissulega úr gleðinni. En hvað
getur maður svo sem gert?
ÞÓTT fyrstu þrjú dæmin séu upp-
spuni þykist ég vita að á öllum þess-
um stöðum hefðu eiturlyf fundist
ef þeirra hefði verið leitað. Þar sem
nokkur hundruð manns koma saman
til að lyfta sér upp muntu finna eitt-
hvað ólöglegt ef þú leitar nógu vel.
En á þremur fyrstu stöðunum er, af
einhverjum ástæðum, aldrei leitað.
Þetta er dálítið asnalegt. En hvað
getur maður svo sem gert …
Þegar löggan
böstaði landsfund
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
6
-2
F
D
C
1
7
5
6
-2
E
A
0
1
7
5
6
-2
D
6
4
1
7
5
6
-2
C
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K