Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 80

Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 80
Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Allt sem þú þarft ... Höfuðborgarsvæðið, meðallestur kvenna á tölublað, 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, jan.– mar. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 53,3% 18% FB L M BL VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja BAKÞANKAR Pawels Bartoszek Vorið 2009 sat ég landsfund Sjálf-stæðisflokksins. Ég man hvern- ig, í miðri ræðunni þar sem einhver sagði að Jóhanna Sigurðardóttir væri eins og álfur í framan, að tutt- ugu lögreglumenn ruddust inn í sal- inn með hunda og gengu rösklega á milli borða í leit að hassi. Af og til drógu þeir einn landsfundarfull- trúa út og tóku hann afsíðis. Sumir mótmæltu, aðrir hlýddu. Sumir komu aftur eftir nokkrar mínútur. Aðrir komu ekki til baka þá helgina. Þetta dró aðeins úr stemningunni en hvað getur maður gert? SKIPULEG eiturlyfjaleit á opin- berum samkomum er líklegast komin til að vera. Ég man þegar okkur stærðfræðingum var orðið nóg boðið eftir enn eina rassíuna á Norrænu stærðfræðiráðstefn- unni og við fengum Snarrótina til að halda fund: „Þekktu þinn rétt á stærðfræðiráðstefnum.“ Þar var kennt hvenær á að samþykkja leit og svona. Það er auðvitað bagalegt að þurfa að standa í svona mann- réttindastappi en hvað getur maður gert? ÉG fór nýlega á árshátíð í banka þar sem konan mín vinnur. Mér er sérstaklega minnisstætt hvernig sýnileg viðvera fíkniefnalögregl- unnar setti svip sinn á skemmti- haldið. Bæði stóðu lögreglumenn með hunda við innganginn og leituðu á fólki þegar það mætti til borðhalds, en einnig voru margir vatnsgreiddir leynilögreglumenn í Dressmann-jakkafötum sem fylgd- ust grannt með hvort nokkur væri að selja „bankabygg“. Þetta dró aðeins úr stuðinu en hvað getur maður svo sem gert? OG svo auðvitað tónlistarhátíð- irnar. Handahófskennd líkams- leit. Fíkniefnahundar. Löggur á hverju strái. Fólk í móðursýkiskasti að ásaka hvert annað um að vera „undercover“. Endalaus dópum- ræða í fjölmiðlum. Þetta dregur vissulega úr gleðinni. En hvað getur maður svo sem gert? ÞÓTT fyrstu þrjú dæmin séu upp- spuni þykist ég vita að á öllum þess- um stöðum hefðu eiturlyf fundist ef þeirra hefði verið leitað. Þar sem nokkur hundruð manns koma saman til að lyfta sér upp muntu finna eitt- hvað ólöglegt ef þú leitar nógu vel. En á þremur fyrstu stöðunum er, af einhverjum ástæðum, aldrei leitað. Þetta er dálítið asnalegt. En hvað getur maður svo sem gert … Þegar löggan böstaði landsfund 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 6 -2 F D C 1 7 5 6 -2 E A 0 1 7 5 6 -2 D 6 4 1 7 5 6 -2 C 2 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 8 0 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.