Fréttablaðið - 26.01.2015, Síða 20
KYNNING − AUGLÝSINGRekstrarráðgjöf MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 20154
Einn þeirra mörgu Íslendinga sem starfað hafa við rekstrarráðgjöf erlendis er Birgir Örn Brynjólfs-
son. Hann hefur starfað í Bandaríkjun-
um undanfarin ár eftir að hafa lokið MBA-
námi við Thunderbird School of Global
Management árið 2011. Upphaflega starf-
aði hann hjá dótturfyrirtæki Íslands-
banka í New York sem sérhæfði sig í fyrir-
tækjaráðgjöf í sjávarútvegi og endurnýj-
anlegri orku. Árið 2013 stofnuðu hann og
nokkrir fyrrverandi samstarfsaðilar hans
fyrir tækið Antarctica Advisors sem sér-
hæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf í sjávarútvegi
í Norður- og Suður-Am-
eríku. „Við erum í Miami
á Flórída og viðskipta-
vinir okkar eru fyrst og
fremst meðalstór sjávar-
útvegsfyrirtæki í Norð-
ur- og Suður-Ameríku.
Við skilgreinum þjón-
ustuframboð okkar í þrjá
flokka. Í fyrsta lagi í sam-
runa og yfirtökur þar sem við sjáum um
söluferli fyrir fyrirtækjaeigendur eða veit-
um ráðgjöf til kaupanda við yfirtöku á
fyrir tækjum. Í öðru lagi er það fjármögn-
un þar sem við aðstoðum fyrirtæki við að
sækja fjármögnun á markaði, hvort sem
um ræðir lánsfé eða hlutafé. Að lokum er
það stefnumótun en þar veitum við sér-
hæfða ráðgjöf við ýmis þróunar- og endur-
skipulagningarverkefni.“
Mikill vöxtur
Birgir segir starfsemi þeirra vera í grund-
vallaratriðum sambærilega þeirri ráðgjaf-
arþjónustu sem fyrirfinnst innan fyrir-
tækjaráðgjafar hjá íslensku bönkunum
að því undanskildu að þeir hafi ekki við-
skiptabankastarfsemi til þess að styðja
við ráðgjafarþjónustu. „Vinnuumhverfið í
Norður- og Suður-Ameríku er þó frábrugð-
ið því íslenska á margan hátt. Í Bandaríkj-
unum er til að mynda ríkari eftirlitsskylda
með starfsemi okkar og hæfniskröfur á
einstaklinga eru strangari en víðast hvar
annars staðar. Að sama skapi eru ein-
staka lönd í Suður-Ameríku ekki eins langt
komin í regluverki og eftirliti.“
Horfurnar í alþjóðlegum sjávarútvegi
eru þokkalega jákvæðar til lengri tíma
litið að sögn Birgis og sjá þeir fram á stöð-
ugan vöxt í eftirspurn eftir sjávarafurð-
um. „Það hefur verið umtalsverður vöxtur
í fisk eldisframleiðslu sem má rekja beint
til þessa ójafnvægis í framboð og eftir-
spurn og ég á frekar von á því að fiskeldi
muni halda áfram að vaxa á heimsvísu.
Það er einnig hægt að færa rök fyrir því að
alþjóðlegur sjávarútvegur sé mun sundur-
skiptari en margar aðrar greinar í mat-
vælaiðnaði, sem skapar vissulega tækifæri
fyrir fyrirtæki eins og okkar sem vinnur að
sameiningu innan greinarinnar.“
Starfsmenn fyrirtækisins finna einnig
á viðskiptavinum að þeir sækjast eftir sér-
þekkingu og tengslaneti þeirra í sjávar-
útvegi og á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum. „Sjávarútvegur er að mörgu leyti
flóknari atvinnugrein en margan grunar
þar sem mismunandi markaðir og tegund-
ir hafa ólíka eiginleika og regluverk. Með
sérþekkingu okkar hefur okkur tekist að
aðgreina okkur frá stærri ráðgjafarfyrir-
tækjum sem starfa á sama markaði.“
Golfsettið safnar ryki
Birgir er giftur Kiley Larson og saman eiga
þau tvo unga drengi. „Við búum miðsvæð-
is í Miami og í göngufæri frá skrifstofunni.
Dagurinn er tekinn snemma og hefst yfir-
leitt á að fæða og klæða drengina og koma
þeim í skólann á réttum tíma. Vinnudag-
arnir geta oft verið langir, ekki síst þar sem
viðskiptavinir okkar eru staðsettir á ólík-
um tímabeltum. Frítíminn fer í samveru-
stundir með fjölskyldunni enda fátt sem
gefur mér meiri ánægju í lífinu en að sjá
drengina okkar þroskast og takast á við
lífið. Á meðan verður golfsettið og veiði-
stöngin að fá að safna ryki inní geymslu.“
Sjávarútvegur og sólskin á Miami
Eftir að hafa lokið MBA-námi í Bandaríkjunum settist Birgir Örn þar að og hóf störf við ráðgjöf til fyrirtækja í sjávarútvegi.
Horfurnar eru góðar í greininni og viðskiptavinir fyrirtækisins sækjast eftir sérþekkingu starfsmanna og sterku tengslaneti þeirra.
Skrifstofubygging Birgis
og félaga hans í Miami.
Fyrirtækið hefur aðsetur
á 19. hæð.
Birgir Örn Brynjólfs-
son hjá Antarctica
Advisors.
Birgir ásamt eiginkonu
sinni, Kiley Larson, og
tveimur sonum þeirra.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir
fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
E
-4
3
F
C
1
7
7
E
-4
2
C
0
1
7
7
E
-4
1
8
4
1
7
7
E
-4
0
4
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K