Fréttablaðið - 26.01.2015, Qupperneq 38
KYNNING − AUGLÝSINGRekstrarráðgjöf MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 20156
Endurmenntun Háskóla Íslands
Grunnatriði fjármála
Á námskeiðinu verður farið yfir
grundvallaratriði fjármála út frá
hagnýtu sjónarhorni. Námskeið-
ið er sérstaklega ætlað stjórnend-
um sem hafa ekki menntun á sviði
viðskiptafræði og vilja ná betri
tökum á helstu hugtökum og að-
ferðafræði reksturs og fjármála.
Farið verður yfir einstaka þætti
í ársreikningum fyrirtækja, þ.e.
efnahagsreikning, rekstrarreikn-
ing og yfirlit eiginfjár og sjóð-
streymis fyrirtækja ásamt helstu
kennitölum.
Gefið verður stutt yfirlit yfir ein-
staka þætti í samspili fjármögn-
unar og fjármálamarkaða og rætt
verður um samband áhættu og
ávöxtunar. Einnig verður fjallað
um verðmat fyrirtækja og hvern-
ig hægt er að meta fjárfestingar-
kosti innan þeirra. Loks verður
farið í grunnatriði í rekstrarhag-
fræði, sumsé sambandið á milli
framboðs og eftirspurnar og áhrif
verðbreytinga á ólíkar vörur og
markaði.
Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg.
Kennari námskeiðsins er Hauk-
ur Skúlason sem hefur starfað á
fjármálamarkaði síðan 2005 og er
með B.A.-, B.Sc.- og MBA-gráður.
Hann starfar í dag sem verkefna-
stjóri framtaksfjárfestinga hjá Ís-
landssjóðum, dótturfyrirtæki Ís-
landsbanka.
Námskeiðið hefst 10. mars
Nánar á www.endurmenntun.is
Opni háskólinn
Innsýn í heim fjármálastjórn-
unar – Fjármál fyrir „ekki fjár-
málastjóra“
Á námskeiðinu er fjallað um ýmsa
þætti rekstrar og fjármála. Nám-
skeiðinu er ætlað að veita innsýn
í undirstöðuatriði fjármálastjórn-
unar og er ætlað stjórnendum
sem ekki hafa fjármálabakgrunn,
en þurfa starfsins vegna að hafa
grunnskilning á stjórnun fjármála.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
● Áætlanir og kostnaðargreiningu
● Ársreikninginn
● Lestur ársreiknings og helstu
kennitölur
● Fjármögnun og fjárstýringu
● Verðmat fyrirtækja og fjárfest-
ingarkosta
Að námskeiði loknu er gert
ráð fyrir að þátttakendur hafi al-
menna og hagnýta þekkingu á
helstu þáttum í stjórnun fjármála.
Kennari námskeiðsins er Hrönn
Greipsdóttir, viðskiptafræðingur
frá HÍ og MBA frá City University
í London. Hrönn starfar sem fjár-
festingastjóri hjá Arev verðbréfa-
fyrirtæki.
Skráningarfrestur er til 12.
febrúar.
Nánar á www.ru.is/opnihaskol-
inn
Nýsköpunarmiðstöð
Stofnun og rekstur smáfyrirtækja
Námskeiðið snýst um þau grund-
vallaratriði sem varða stofnun og
rekstur fyrirtækis. M.a. er fjallað
um sölu- og markaðsmál, fjár-
hagsáætlanir, form fyrirtækja og
skattamál. Áhersla er lögð á gerð
viðskiptaáætlana.
Í byrjun námskeiðsins leggur
hver þátttakandi fram sína við-
skiptahugmynd sem hann síðan
vinnur að meðan á námskeiðinu
stendur. Sú hugmynd getur verið
viðskiptahugmynd fyrirtækis
sem þegar er stofnað eða ný hug-
mynd.
Í lokaáfanga námskeiðsins
eru gerð drög að viðskiptaáætl-
un. Þannig kemur í ljós hvort við-
skiptahugmyndin sé raunhæf.
Námskeiðið fer fram í lok mars.
Nánar á www.nmi.is
Námskeið um fjármál og rekstur
Hægt er að finna ýmis námskeið sem tengjast stofnun, rekstri og fjármálum fyrirtækja. Sem dæmi bjóða Endurmenntun Háskóla
Íslands, Opni háskólinn og Nýsköpunarmiðstöð upp á áhugaverð námskeið. Ýmis stéttarfélög bjóða félagsmönnum sínum námsstyrki
þegar slík námskeið eru sótt og er vert að athuga slíkt. Hér má sjá dæmi um þrjú námskeið sem eru í boði á þessari önn.
Rekstur og fjármál geta vaxið mörgum í augum. Þá getur verið hjálplegt að skella sér á námskeið sem útskýrir grunnhugmyndirnar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hefur fyrirtæki þitt
prófað hádegisverðinn
frá okkur?
Veitingasvið ISS eldar
fyrir tugi fyrirtækja á
degi hverjum.
5 800 600 sala@iss www.iss.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
7
E
-3
0
3
C
1
7
7
E
-2
F
0
0
1
7
7
E
-2
D
C
4
1
7
7
E
-2
C
8
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K