Fréttablaðið - 10.07.2015, Síða 10

Fréttablaðið - 10.07.2015, Síða 10
10. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 FÖSTUDAGSVIÐTALIÐ Píratar mælast nú stærstir allra stjórnmálaflokka í skoðanakönn- unum en sjálfum finnst honum tími til að snúa sér aftur að mal- biksvinnu sem hann vann við áður en hann fór á þing. Þar fær hann tíma til að hugsa. En af hverju að hætta á þingi? „Það er gott að þekkja sinn vitj- unartíma. Ég veit hvar styrkleik- ar mínir liggja og ég veit að Ásta Helgadóttir er til í að bjóða sig fram næst, varaþingmaður minn. Ég sagði þetta í blaðaviðtali fyrir tveimur árum að ef hún væri til- búin til að halda áfram með starf- ið, þá væri ég tilbúinn að stíga til hliðar. Styrkleikar mínir felast í því að koma verkefnum af stað og gera þau sjálfbær, hluti af því er að gera það aðgengilegt fyrir aðra að ganga inn í starfið. Það er eitthvað sem ég ætla að gera í sumar, taka allt saman. Hvernig þetta raun- verulega virkar, hvar völdin liggja og svo framvegis. Það er gott fyrir komandi þingmenn og ekki síst almenning,“ segir Jón Þór. Spjallaði við ráðherra á klósettinu Hann segist hafa lært margt á þingi undanfarin ár, hvernig hinn pólitíski leikur virkar þó að það hafi reyndar verið eitthvað sem hann spáði mikið í áður. Hann hefur meðal annars gefið út bók um leikreglur í stjórnmálum. „Það sem kom mér mest á óvart er að ef ég var að gera eitthvað sem virk- aði óþægilega fyrir ráðherrana þá voru þeir hvað mest kammó. Þá spjölluðu þeir við mann á kló- settinu og allur pakkinn. Um leið og slíkt gerðist vissi ég að ég var að gera eitthvað rétt. En heilinn á mér var vel smurður fyrir starfið. Ég skrifaði bók 2008, The Game of politics, þar sem ég tók saman um hvað þessi heimur er. Ég verð alltaf að gera það – ná utanum við- fangsefnið,“ segir hann. Píratar komu inn á þing með látum. Þeir hafa boðað breytt- ar áherslur í stjórnmálum og má segja að þeir hafi hrist upp í þing- heimi. Áherslur þeirra virðast höfða til landsmanna samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum en ef gengið yrði til kosninga núna myndu þeir ná 26 þingmönnum inn. En hvernig hefur þeim verið tekið á þingi? Störfum með hverjum sem er „Okkur hefur verið tekið vel, við vorum alltaf tilbúin að starfa með hverjum sem er. Fyrsti kafl- inn í okkar grunnstefnu fjallar um hvernig við eigum að starfa – við eigum að taka vel upplýst- ar ákvarðanir, byggðar á rök- réttri hugsun. Við eigum að taka upp hugmyndir sama hverjir for- talsmennirnir eru ef þær eru góðar. Þetta setur strax tóninn, að starfa undir slíkri stefnu og í umboði slíkrar stefnu. Við gerð- um þetta strax þegar við töluðum við Kristján Þór Júlíusson heil- brigðis ráðherra um þessa þings- ályktunar tillögu að líta á fíkni- efnaneyslu sem heil brigðis- og félagsmál en ekki dóms- og lög- gæsluvandamál. Við störfuðum vel með honum. Hann á heiður skilinn. Við munum brátt sjá hvað kemur út úr því. Svo starfaði ég með Ragnheiði Elínu, hún skipaði strax starfshóp þegar ég fór að tala um mikilvægi internetsins og verðmætasköpun í kringum það,“ segir hann. Jón Þór er fæddur og uppalinn í Breiðholtinu með stuttri viðkomu í Árbænum. Hann segist hafa verið svolítið nörd sem rímar ágætlega við það að velgengni Pírata hefur stundum verið kölluð uppreisn nörd anna. „Ég var bæði nörd og ekki, í nördahópi að spila og ról- pleyja. Nördar eru æðislegir, þeir þurfa svo lítið að þykjast. Það er svo þægilegt andrúmsloft þegar þess þarf ekki. En svo var ég líka í töffarahópum,“ segir hann. Kynntist ástinni á Hot or not Á unglingsárum var hann leitandi. „Ég var tvítugur þegar ég próf- aði hugleiðslu og datt inn í það. Ég upplifði svona stutt uppljómunar- augnablik. Það er hægt að verða fíkinn í það – mjög háður. Þú vilt alltaf komast aftur í þetta ástand, því meira sem þú reynir að grípa það þeim mun fljótar rennur það úr greipum þér.“ Var hann þá með hugleiðslufíkn? „Já. Fíkinn í að komast í þetta ástand, þennan frið og sátt. Þetta er þekkt fyrirbæri. Ég fór að lesa í öllum trúarbrögðunum og reyna að finna hvað þetta væri. En ég endaði á stað þar sem ég var orð- inn ofboðslega þurr. Ef það sem þú miðar allt lífið við er uppljóm- unarástand, þá er allt annað hel- víti þurrt og leiðinlegt.“ Með hjálp geðhjúkrunarfræðings komst hann úr því ástandi. „Ég sleppti tökun- um og varð sáttari við lífið og til- veruna. Ég varð tilbúinn til þess að verða ástfanginn.“ Hann kynntist konu sinni, Zarelu Castro frá Perú, á internetinu eins og sönnum píröt- um sæmir. Þau eiga í dag tvö börn. „Þá var ég búinn að sjá þessa síðu Hot or not, sem er forveri Tinder. Ég póstaði mynd af mér og spjallaði við fullt af stelpum. Svo tjattaði ég við eina og hafði svona gaman af því,“ segir hann og hlær. Á þessum tíma ferðaðist hann mikið um heiminn og ákvað að fara til Perú að hitta Zarelu. „Við urðum ástfangin.“ Börnin þeirra eru tveggja og hálfs og fimm ára. „Að verða faðir er dásamlegt, það breytti lífinu þannig að forgangs- röðunin er allt önnur. Það er ekkert yndislegra en að halda á barninu sínu og elska barnið sitt.“ Valdhrokinn kallar á gagnsæi Jón Þór segir velgengni Pírata skýrast af ýmsu. „Undanfarna mánuði hefur gerræðið verið mikið, spillingarmál að koma upp. Þegar fólk sér það, valdhrokann, þá vill það meira gagnsæi og að fá að koma að málunum. Þetta er grunnstefna Pírata.“ Hann segir að við munum örugglega sjá breyt- ingar samhliða forsetakosningum á næsta ári. „Það er uppi hávær krafa um beint lýðræði og þá ligg- ur beinast við að almenningur geti kallað eftir atkvæðagreiðslu. Menn eru byrjaðir að átta sig á því að þetta er það sem koma skal. Í strategísku fræðunum er þetta kallað að búa til framtíðina, það er ekki nóg að bregðast við. Til dæmis, Bjarni Ben kallar eftir þessu núna – haldið þið að hann vilji þetta? Nei, auðvitað ekki. Haldið þið að hann vilji afsala sér völdum svo fólk geti stöðvað að hann fái sínu framgengt? Nei. Hann vill það ekki neitt. Aftur á móti er það ákjósanlegra að hann fái að stjórna ferlinu. Hann minnkar um leið þrýstinginn á heildarendurskoðun á stjórnar- skránni. Þetta er mjög snjallt hjá honum,“ segir Jón Þór og hlær. Menn munu tala Þá hafa Píratar vakið athygli fyrir hvernig þeir koma fram í fjöl- miðlum og í ræðustól. „Það að þú segir ekki hluti eða að þú segir hálfsannleik getur þýtt að það er ekki hægt að herma eitthvað upp á þig seinna. Ef þú ert í stjórnmála- menningu og væntingar innan þíns flokks eru að þú hafir aldrei rangt fyrir þér, þarftu alltaf að vera að passa þig á svona hlutum. Við segjum að það sé allt í lagi að hafa rangt fyrir sér. Þú mátt skipta um skoðun. Þú átt að skipta um skoðun ef nýjar upplýsingar koma í ljós.“ Jón Þór segir þó umræðuhefð- inni ekki hafa verið breytt með tilkomu Pírata inn á þing. „Menn tala um að maður þurfi að breyta menningunni og samtölunum, en það gerist ekki því kerfið býður ekki upp á það. Málþófið til dæmis er kerfislægt vandamál. Meðan meirihlutinn hefur hundrað pró- sent dagskrárvald og minnihlut- inn hefur þetta bara, að tala, og forsetinn heldur áfram að setja á dagskrá mál sem eru gegn vilja þjóðarinnar þá að sjálfsögðu munu menn tala. Svo setur forsetinn kannski dagskrána í gang klukk- an tíu að morgni og hefur hana til miðnættis. Það er verið að reyna að þreyta mannskapinn. Svona virkar þetta, í alvöru. Á meðan ramminn er svona, þá verður þetta svona. En um leið og þjóðin fær málskotsrétt- inn, það mun strax bæta þetta.“ Lukkuriddarar nenna ekki ferlinu En eiga Píratar mannskap í það ef næstu kosningar fara eins og skoð- anakannanir segja til um? Eruð þið ekkert hrædd við tækifæris- sinnana? „Ég veit það ekki. Við viljum einhvern sem er Pírati inn að beini, setur í forgang verndun og eflingu borgararéttinda og lýð- ræðisumbætur. Svo viltu einstak- ling sem getur komið skilaboðun- um á framfæri og átt rökræðu. Það þarf að gera ferlið langt og ítar- legt, svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um hverjir fara á lista. Á sama tíma held ég að lukkuridd- arar nenni ekki að taka þátt í löngu ferli þar sem þeir þurfa að vera að svara spurningum og mæta.“ Þingmenn Pírata hafa verið gagn- rýndir fyrir að sitja mikið hjá í atkvæðagreiðslum og Jón Þór sast hjá í 66% mála á þessu þingi, hvað kemur til? „Við eigum að taka upplýstar ákvarðanir, það er ekki hægt að taka upplýstar ákvarðarnir um öll mál. Það eru ofboðslega mörg mál sem eru þannig að það eru krók- ar og kimar sem maður hreinlega getur ekki sett sig inn í því það eru bara 24 tímar í sólarhringn- um. Maður hefur ekki aðgang að því sem er að gerast í þeim nefnd- um sem maður er ekki í, sem er brjálæði ef þú pælir í því. Ég hef forgangsraðað þannig: hvaða mál varða grunnstefnu Pírata? Hvaða mál hafa áhrif til að styrkja eða veikja borgararéttindi og hvaða mál hafa áhrif á valddreifingu eða lýðræðisumbætur? Ég byrja á þeim. Ég ákveð frekar að setja fókus á færri mál og gera það vel í stað þess að reyna að skoða yfir- borðið á öllum málum.“ Aftur í malbikið Jón Þór yfirgefur þingflokk Pírata sáttur, er kominn aftur í gömlu vinn- una sína í malbikinu og vonast til að kraftar sínir nýtist vel. Líklega hefðu flestir talið að starf þingmannsins væri eftirsóknarverðara? „Hugur- inn er frjáls í þessu starfi, starfið er sjálfvirkt. Það krefst einskis af huganum á mér, þannig að hann er galopinn og ferskur. Það hentar mér rosalega vel að vera með hugann frjálsan, þá kemur alltaf eitthvað upp, strategískt og skemmtilegt. Ég fyllist orku og framkvæmi eitthvað.“ Allt í lagi að hafa rangt fyrir sér Jón Þór Ólafsson er hættur á þingi. Hann segir valdhroka og spillingarmál vera ástæður velgengni Pírata í skoðanakönnunum um þessar mundir. Jón Þór segir fjármálaráðherra ekki vilja að almenningur hafi málskotsrétt í raun og veru þótt hann boði breytingar í þeim efnum. - með þér alla leið - 569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is Jason Guðmundsson hdl. og löggiltur fasteignasali Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir sölufulltrúi sími: 845 8958 jorunn@miklaborg.is 17,9 millj.Verð: Sumarhús að stærð 57,0 m² Eignarland 1,0 hektari / útsýni, kjarrland Tengiréttur við hitaveitu Hæðargarði Húsið upphitað með rafmagni Hús sem hefur hugsað vel um Baulurimi 28 (lóð 28) - sumarhús Klausturhólar Ítarlegra og lengra viðtal við Jón Þór má hlusta á í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið á Vísir.is visir.is Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is Í MALBIKIÐ Á NÝ Jón Þór vill hafa hugann frjálsan svo hann geti einbeitt sér að grasrótarstarfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ef ég var að gera eitthvað sem virkaði óþægilega fyrir ráð- herrana þá voru þeir hvað mest kammó. Þá spjölluðu þeir við mann á klósettinu og allur pakkinn. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 5 -9 1 D C 1 7 5 5 -9 0 A 0 1 7 5 5 -8 F 6 4 1 7 5 5 -8 E 2 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.