Fréttablaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 21
Verður sárt saknað Tískuhönnuðurinn Donna Karan hefur verið ákaf- lega vinsæl hjá konum um allan heim. Hennar verður sárt saknað nú þegar hún hættir. SÍÐA 4 Kennir á orf og ljá Örnámskeið í orf- slætti er eitt af því fjölmarga sem er í boði á Hvanneyrarhátíð á morgun. SÍÐA 2 Þegar Tinna var beðin um að gefa lesendum góða helgaruppskrift stakk hún upp á nautasteik með bernaise-sósu. Sá réttur er alltaf vinsæll á sumrin þegar hægt er að grilla úti. Tinna hefur haldið úti matarbloggi í rúm tvö ár og hefur fengið mjög góð viðbrögð við síðunni. Hún hefur verið dugleg að baka kökur fyrir löggurnar á vaktinni og hefur fengið mörg stig fyrir það. Tinna á ættir að rekja til Ísafjarðar en býr annars á höfuðborgarsvæðinu. NAUTASTEIK MEÐ BERNAISE Fyrir 4 Nautasteikur 1 kg nautalund eða nautafilet 3-4 msk. smjör Sjávarsalt Svartur pipar Skerið nautakjöt í 250 g steikur og brúnið báðar hliðar upp úr smjöri á mjög heitri pönnu þar til stökk húð hefur myndast. Eldið nautasteikurnar í ofni við 160°C í 20-30 mínútur eða þar til réttum kjarnhita hefur verið náð. Ég kýs að hafa steikina mína vel eldaða og hef kjarnhitann um 68-70°C. Kryddið nautakjötið með sjávarsalti og pipar og látið standa í nokkrar mínútur. Bernaise-sósa 4 eggjarauður 2 msk. vatn 425 g brætt smjör 2½ msk. ferskt tarragon 1½ til 2 msk. bernaise-essence 2-3 tsk. nautakraftur Sjávarsalt Svartur pipar Setjið eggjarauður og vatn í skál og þeytið með pískara yfir heitu vatnsbaði þar til blandan verður létt og ljós. Athugið þó að eggjarauðurnar mega alls ekki eldast heldur bara þykkna örlítið. Gott er að nota skál úr stáli því hún leiðir hitann vel. Hellið bræddu smjöri út í eggjarauðurnar í mjórri bunu og þeytið vel á meðan. Saxið ferskt tarragon smátt og hrærið saman við. Smakkið sósuna til með bernaise-essence, nautakrafti, sjávarsalti og svörtum pipar. Farið varlega í saltið því smjörið og kjötkraft- urinn gera sósuna salta. Ég nota nautakraft í duftformi frá Oscar. SUMARSALAT 1 poki blandað salat ½ mangó 1 lárpera 1 lítil askja jarðarber 1 appelsínugul paprika ½ agúrka 120 g kasjúhnetur ½ til 1 krukka fetaostur Setjið blandað salat í fallega salatskál. Afhýðið mangó og lárperu og fjarlægið steininn. Skerið í hæfilega stóra bita ásamt jarðarberjum, papriku og agúrku. Setjið niðurskorna ávextina og grænmetið í salat- skálina og sáldrið kasjúhnetum og fetaosti yfir. Veltið öllu saman við salatblöðin og berið fram. elin@365.is LÖGREGLUKONA BÝÐUR UPP Á STEIK MATGÆÐINGUR Tinna Björg Friðþórsdóttir er mikill matgæðingur og bloggar um mat. Hún stundar nám í lögfræði en starfar nú sem lögreglumaður á Ísafirði. GIRNILEGT Hvað er betra en góð nautasteik á sumarkvöldi? LÖGGAN Tinna Björg starfar sem lögreglumaður á Ísafirði í sumar. Löggurnar þar eru heppnar því Tinna hefur líka gaman af því að baka og kemur stundum með góðar kökur í vinnuna. MYNDIR/EINKASAFN SUMARSALAT Mjög ljúffengt sumarsalat úr smiðju Tinnu Bjargar. BETRI NÆRING HREIN GÆÐI EINSTÖK VIRKNI Vítamín og bætiefni sem næringarþerapistar mæla með. Solaray Ísland á Facebook HLUSTAÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER #BYLGJANBYLGJAN989 ÍVAR GUÐMUNDS ER Í LOFTINU MILLI KL. 10:00 - 13:00ALLA VIRKA DAGA 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -D B E C 1 7 5 5 -D A B 0 1 7 5 5 -D 9 7 4 1 7 5 5 -D 8 3 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.