Fréttablaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 42
10. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
FÖSTUDAGUR
FULLUR GÁMUR AF
MONGOOSE HJÓLUM
SEM VIÐ ÞURFUM A
Ð LOSNA VIÐ - STR
AX!
SÖLUMENN OKKA
R VERÐA Í SAMNIN
GSSTUÐI!
SÍÐASTI SÉNS AÐ T
RYGGJA
SÉR HJÓL Á FÁ
RÁNLEGU VERÐI!
FYRSTUR
KEMUR
FYRSTUR
FÆR!
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN
FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
ALLT AÐ50%
AFSLÁTTUR
LOKADAGUR Á MOR
GUN!
OPIÐ FRÁ 10 - 16
GÁMA-SALA
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
10. JÚLÍ 2015
Tónleikar
11.00 Íslensk tónlistarsaga í tali og
tónum. Söngdagskrá í Hannesarholti,
Grundarstíg 10, á ensku og þýsku.
Kynnir og píanóleikari er Júlíana Rún
Indriðadóttir. Halldóra Eyjólfsdóttir
messósópran syngur. Tvennir tónleikar
fara fram í dag, klukkan 11.00 á ensku
og klukkan 13.00 á þýsku.
14.00 Elfa Dröfn Stefánsdóttir messó-
sópran og Sólborg Valdimarsdóttir
píanóleikari koma fram á tónleikum
í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Tónleikarnir hefjast klukkan 14.00 og
kostar 2.900 krónur inn.
20.00 Sætabrauðsdrengirnir, þeir Gissur
Páll Gissurarson, Bergþór Pálsson, Hlöð-
ver Sigurðsson og Viðar Gunnarsson,
ásamt Halldóri Smárasyni, útsetjara og
píanóleikara, koma fram á tónleikum í
Borgarneskirkju í kvöld klukkan 20.00.
Það er alltaf stutt í glens og gaman hjá
þessum Sætabrauðsdrengjum. Allt frá
ljúflingslögum Fúsa Halldórs yfir í Stína
ó Stína og Hæ Mambó!
21.00 DJ Atli Kanill þeytir skífum á
Boston í kvöld og hefur leik klukkan
21.00.
21.00 DJ Styrmir Dansson ætlar að
skemmta gestum á Bar Ananas og hefst
gleðin klukkan 21.00.
21.00 DJ Ísar Logi kemur fram á Bravó
í kvöld og hefst skemmtunin klukkan
21.00.
22.00 Hljómsveitin Kiriyama Family
kemur fram á tónleikum á Gauknum í
kvöld og hefjast þeir klukkan 22.00.
22.00 DJ CasaNova ætlar að skemmta
fólki á Kaffibarnum í kvöld og hefst
gleðin klukkan 22.00.
22.00 Altostratous og Par Ðar koma
fram á tónleikum á Bar 11 í kvöld og
hefjast þeir klukkan 22.00.
22.00 Rokksveitina HAM ætti að vera
óþarft að kynna enda er hljómsveitin
löngu orðin að goðsögn í lifanda lífi
meðal íslenskra rokkunnenda. HAM
lék á Græna hattinum í kjölfar útkomu
plötunnar en síðan eru liðin nokkur
ár og hafa norðanmenn lengi beðið
óþreyjufullir eftir næstu heimsókn.
Þeirri bið lýkur þann 10. júlí en þá mun
hljómsveitin halda tónleika á Græna
hattinum. Aðeins flón leyfa sér að
missa af þessu gullna tækifæri til að
berja eina helstu rokkgoðsögn Íslands
augum. Tónleikarnir á Græna hattinum
í kvöld hefjast klukkan 22.00 og kostar
3.000 krónur inn.
23.00 Sváfnir Sigurðarson og félagar
leika og syngja á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8 í kvöld klukkan 23.00.
Aðgangur er ókeypis!
Sýningar
16.00 Sirkus Íslands ferðast um landið
í sumar og verður á Klambratúni í
Reykjavík 9.-12. júlí og 7.-23. ágúst.
Í Reykjavík sýnir sirkusinn þrjár mis-
munandi sýningar: Fjölskyldusýninguna
Heima er best, krakkasýninguna
S.I.R.K.U.S. og fullorðinskabarettinn
Skinnsemi. Sirkusinn sýnir í sirkustjald-
inu Jöklu sem verður tjaldað á Klambra-
túni. Hér fyrir neðan eru nánari upp-
lýsingar um hverja sýningu fyrir sig.
Sýningarnar í dag fara fram klukkan
16.00 og klukkan 20.00.
20.00 Let’s talk Arctic er nýr íslenskur
einleikur sem segir sögu Íslands, Íslend-
inga og þá sérstaklega Eyfirðinga á
aðeins einni klukkustund. Benedikt Karl
Gröndal er eini leikari sýningarinnar
og bregður hann sér í hlutverk meðal
annars Danakonunga, Helga magra,
Þórunnar Hyrnu, heimsskautarefs og
auk fjölda annarra persóna. Leikstjórn
er í höndum Jóns Páls Eyjólfssonar
og handritið skrifa Anna Bergljót
Thorarensen, Benedikt Gröndal og Jón
Páll Eyjólfsson. Sýningin hefst klukkan
20.00 og fer fram í menningarhúsinu
Hofi á Akureyri.
Uppákomur
23.00 Blaz Roca gefur gestum Austur
og Priksins miða á Snoop Dogg. Miða-
gjöfin fer fram á milli klukkan 23.00 og
02.00 á áðurgreindum stöðum.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
„Það var pínu erfitt fyrir okkur að
klára þetta ferli. Það var ekkert
erfitt að semja þessi lög en það var
eiginlega erfiðara að muna þau því
þetta var á svolítið löngum tíma.
Við þurftum bara að eignast fullt af
börnum og skoða heiminn betur á
sama tíma. Það dró þetta svolítið á
langinn,” segir Hallbjörn V. Rúnars-
son, betur þekktur sem Halli Valli,
gítarleikari og söngvari hljómsveit-
arinnar Ælu, en sveitin gaf á dögun-
um út plötu sem kallast Vettlingatök.
Æla sendir í kjölfarið frá sér
myndband við lagið Your Head
is my Ground og hefur það vakið
talsverða athygli. „Hugmyndin að
myndbandinu kviknaði þegar við
Óskar félagi minn vorum að horfa
á þetta nýja Of Monsters and Men-
myndband með Sigga Sigurjóns.
Við vildum gera svona grín mynd-
band af því, sem væri í svart-
hvítu og færi svo yfir í lit þegar
hann fer að æla, okkar fannst það
mjög sniðugt,“ segir Halli Valli um
myndbandið. Myndbandið einkenn-
ist einmitt af glæsilegum litum og
vígalegri ælu. Emil Ásgrímsson
leikstýrir myndbandinu og Óskar
Þór Arngrímsson framleiðir, ásamt
því að leika í því.
Fyrsta plata hljómsveit arinnar,
Sýnið tillitssemi, ég er frávik,
kom út í júlí 2006 og hefur sveit-
in verið fastur liður í dagskrá Ice-
land Airwaves öll ár síðan 2005.
Ælu skipa ásamt Halla þeir Hafþór
Skúlason á trommur, Sveinn Helgi
Hafþórsson á bassa og Ævar Péturs-
son á gítar. Sveitin kemur fram á
Paddys í Keflavík 16. júlí næstkom-
andi og þá eru fleiri tónleikar á döf-
inni. - glp
Vildu láta Sigga Sigurjóns æla
Hljómsveitin Æla sendir frá sér plötu og nýtt myndband sem vakið hefur athygli.
FLOTTIR Hljómsveitin Æla ætlar að koma fram á nokkrum tónleikum á næstunni.
„Ótrúlegt en satt, þá er þetta
í fyrsta sinn sem við spilum á
Rosenberg en það hefur samt
verið á planinu í svona tíu ár,“
segir Haukur Heiðar Hauksson,
söngvari hljómsveitarinnar Diktu.
Sveitin kemur fram á tónleikum á
Café Rosenberg í kvöld og er það í
fyrsta sinn sem Dikta kemur fram
á þessum vinsæla tónleikastað.
„Það var meira að segja áður en
staðurinn flutti sem við ákváðum
að spila þarna en það hefur dregist
aðeins,“ bætir Haukur Heiðar við
léttur í lundu.
Allir meðlimir sveitarinnar eru
miklir aðdáendur staðarins og
því mikil tilhlökkun í herbúðum
Diktu. „Við höfum allir reglulega
farið á tónleika þarna, þetta er frá-
bær og í raun einstakur tónleika-
staður.“
Hljómsveitin ætlar að leika lög
af sínum langa ferli og setja þau í
nýjan sparibúning enda verða tón-
leikarnir að ákveðnu leyti óraf-
magnaðir. „Það verður alveg raf-
magn, það verða ljós og svona. Ég
verð með rafmagnspíanó en þetta
verður tónað niður. Við drögum
rokkið aðeins úr þessu,“ útskýrir
Haukur Heiðar.
Dikta sendir frá sér sína fimmtu
breiðskífu í september og ætlar
meðal annars að leika lög af þeirri
plötu. „Það eru nokkur lög af nýju
plötunni sem eru komin í rólegri
sparibúning og fólk fær því að
heyra rólegu útgáfuna áður en
það heyrir alvöru útgáfuna sem
er á plötunni.“
Haukur Heiðar gerir ráð fyrir
að nýja platan komi út snemma í
september.
Dikta hefur verið á ferð og flugi
í allt sumar og er sveitin bókuð
allar helgar í sumar. „Við förum
svo um næstu helgi til Akur eyrar
og spilum á Græna hattinum næsta
föstudagskvöld og á Siglufirði dag-
inn eftir. Við erum bókaðir allar
helgar í sumar og verðum í bænum
um verslunarmannahelgina,“
útskýrir Haukur Heiðar. Hann
gerir ráð fyrir að útgáfutónleik-
arnir fari fram í september og
að sveitin verði á fullu í tónleika-
haldi eftir að platan kemur út. Tón-
leikarnir í kvöld hefjast klukkan
22.00. - glp
Dikta spilar á Café Rosenberg í fyrsta sinn í kvöld
Sveitin hefur síðastliðin tíu ár verið með það í sínum plönum að spila á staðnum en það hefur aðeins dregist á langinn.
SPENNTIR Meðlimir Diktu eru spenntir
fyrir kvöldinu og lofa frábærum tón-
leikum. MYND/FLORIAN TRYKOWSKI
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-B
C
C
C
1
7
5
3
-B
B
9
0
1
7
5
3
-B
A
5
4
1
7
5
3
-B
9
1
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K