Fréttablaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 28
4 • LÍFIÐ 10. JÚLÍ 2015 Sigga Dögg blaðamaður siggadogg@365.is Þ yrí Huld er dansari hjá Ís- lenska dansflokknum og hlaut hún Grímuna á þessu ári fyrir hlutverk sitt í verkinu Sin með Íslenska dansflokknum. Hún hefur dansað frá því hún man eftir sér og skipt- ir litlu máli hvort um ræðir salsa, samba eða hipphopp, Þyrí getur tekið hvern einasta dansstíl og gert að sínum. Stundum fá meira að segja skemmtistaðagestir að njóta sýningarinnar. „Þegar ég gleymi mér og er í stuði myndast stundum hringur í kringum mig,“ segir Þyrí hlæjandi með roða í kinnum. 90 kíló í hnébeygju Dansinn hefur alltaf blundað í Þyrí en staðalmyndina af fíngerðu ballerínunni er ekki að finna hér. Þyrí segir það vera nauðsynlegt fyrir góðan dansara að vera sterk- ur. „Hér á Íslandi krefjast dans- hlutverkin mikils styrkleika svo hægt sé að fara í beygjur og lyft- ur og því var ég í kraftlyft ingum í smá tíma og var orðin frekar mikið sterk,“ segir Þyrí og klapp- ar sér á kraftmikil lærin. „Ég þarf að passa að halda mér í formi og frekar en að vera alltaf að dansa og teygja þá fer ég mikið út að hlaupa, geng mikið um landið, fer í jóga og í ræktina,“ segir Þyrí með ákafa. „Í nútímadansi er í raun sama hver dansar hlutverkið, hvort það er kona eða karl, það fer frekar eftir styrk dansarans en kyni og ekki er gert ráð fyrir því að dans sem krefst vöðvamassa og styrks sé sjálfkrafa hlutverk karlsins,“ segir Þyrí sem veltir kynjahlutverkum mikið fyrir sér. Hún segir dansumhverfið vera gott á Íslandi og að dansflokk- urinn sé ein stór fjölskylda. „Við eyðum svo miklum tíma saman og auðvitað verður þetta mjög náinn hópur en um leið og manni finnst þetta verða að kvöð, eins og leiðin- leg vinna, þá er tími til að hætta,“ segir Þyrí, sem enn brennur af ástríðu fyrir dansinum. Hún segir mikið vera að gerast. „Ég get ekki sleppt því að dansa, það er það skemmtilegasta sem ég geri og ég gæti ekki gert eitthvað sem ekki tengist honum á einn eða annan hátt,“ segir Þyrí um þessa köllun sína. Ástarsaga í Ameríku Kærasti Þyríar heitir Hrafnkell, er ævintýramaður mikill og fimur dansari. Þau búa í miðbæ Reykja- víkur og hafa verið saman í fjögur ár. Ástin bankaði upp á fyrir til- stilli vinafólks sem grunaði að þau gætu átt samleið. „Vinkona mín kynnti okkur og við vorum með svona leynimerki, settu þumal- inn upp ef þér finnst hann sætur en niður ef ekki,“ segir Þyrí og hlær að þessum skipulagða ástar- hittingi. Þumallinn hefur haldist á lofti síðan þau hittust og segir Þyrí þau vera „skemmtilega ólík“ en þó hafa svipuð áhugamál. „Ég er mjög skipulögð og gæti auð- veldlega gleymt mér í dansinum og að vera bara heima að fara yfir tækni í nýju dansverki, en hann fær mig til að slaka á og horfa með sér á mynd og borða góðan mat,“ segir Þyrí með gleðiglampa í augunum. Parið eyðir töluverð- um tíma í eldhúsinu og þar ræður skipulag og góð næring ríkjum. „Ég hef horfi mikið á heimildar- myndir sem fjalla um mat og nær- ingu og sem dansari þá þarf ég að passa upp á að borða reglulega og borða orkuríkan mat og því eldum við mikið heima og tökum með okkur nesti,“ segir Þyrí, sem hvet- ur alla til að elda fyrir vikuna á sunnudagskvöldum. Nýlega lagði parið land undir fót og ferðaðist í sex mánuði um Suður-Ameríku. „Þetta var bara ótrúleg ferð og fórum við um Brasilíu, Bólivíu, Perú, Argent- ínu og Ekvador. Mér fannst Bóliv- ía alveg frábær og það var magn- að að sjá aðra lifnaðarhætti. Þar er fólk enn bara eins og í gamla daga, engar verslanir heldur allt á mörkuðunum og konurnar í hefð- bundnum klæðnaði og það var mjög gaman að sjá það,“ segir Þyrí sem er þó glöð yfir að vera komin heim. Aðspurð hvort ekki sé erfitt að taka sér hlé frá dansi til að ferðast kemur skipu lagið upp í Þyrí, sem svarar um hæl: „Ég þefa dansinn uppi hvar sem ég er og passa að halda mér allt- af í formi.“ Til allrar lukku er Hrafnkell einnig góður dansari. „Við dönsuðum tangó í Argentínu en ég átti mjög erfitt með að leyfa honum að stýra því mér finnst ég betri dansari en hann og ég vil stjórna, en það er erfitt í tangó. Ætli það hafi ekki endað með því að ég bara stjórnaði þessu,“ segir Þyrí skellihlæjandi. Það er greini- legt að alltaf er stutt í húmorinn hjá þessari kraftmiklu ungu konu. Dans, dans, dans? Þyrí segir dansinn skipta sig höfuð máli, sama hvort það er heima, á skemmtistað eða í sýn- ingu. Hún er einn af sjö atvinnu- dönsurum hjá Íslenska dans- flokknum og segist þakklát fyrir tækifærið en bendir jafnframt á að kjör dansara séu ekki með besta móti. „Ég er í fullri vinnu sem dansari auk þess að þurfa að halda mér í formi utan formlegs vinnutíma og stúdera danstækni í frítíma og eru byrjendalaun dans- ara um 240 þúsund krónur á mán- uði, en margir eru í aukavinnu samhliða dansinum,“ segir Þyrí hissa. „Við fáum greidd að auki sýningarlaun en oft eru kannski bara þrjár sýningar á hverju verki svo það telur takmarkað,“ segir Þyrí og hvetur til opnari umræðu um kjör listamanna. Að vera dansari er ekki lang- líf atvinna og hætta flestir fyrir fertugt að dansa. „Það að vera dansari felst oft líka í því að semja dansverk og það er ein- mitt það sem ég er að gera núna, LÍFIÐ ER KYNLAUS DANS Þyrí Huld er dansari af lífi og sál og segist ekki geta hugsað sér lífið án hans. Hún er einn af sjö fastráðnum dönsurum hjá Íslenska dansflokknum og hlaut nýverið Grímuna fyrir verk sín. Við eyðum svo miklum tíma saman og auð- vitað verður þetta mjög náinn hópur en um leið og manni finnst þetta verða að kvöð, eins og leið- inleg vinna, þá er tími til að hætta. Skipholti 29b • S. 551 0770 Útsala! ALLAR YFIRHAFNIR KOMNAR Á 50% AFSLÁTT 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 4 -6 9 9 C 1 7 5 4 -6 8 6 0 1 7 5 4 -6 7 2 4 1 7 5 4 -6 5 E 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.