Fréttablaðið - 10.07.2015, Side 28
4 • LÍFIÐ 10. JÚLÍ 2015
Sigga Dögg
blaðamaður
siggadogg@365.is
Þ
yrí Huld er dansari hjá Ís-
lenska dansflokknum og
hlaut hún Grímuna á þessu
ári fyrir hlutverk sitt í
verkinu Sin með Íslenska
dansflokknum. Hún hefur dansað
frá því hún man eftir sér og skipt-
ir litlu máli hvort um ræðir salsa,
samba eða hipphopp, Þyrí getur
tekið hvern einasta dansstíl og
gert að sínum. Stundum fá meira
að segja skemmtistaðagestir að
njóta sýningarinnar. „Þegar ég
gleymi mér og er í stuði myndast
stundum hringur í kringum mig,“
segir Þyrí hlæjandi með roða í
kinnum.
90 kíló í hnébeygju
Dansinn hefur alltaf blundað í
Þyrí en staðalmyndina af fíngerðu
ballerínunni er ekki að finna hér.
Þyrí segir það vera nauðsynlegt
fyrir góðan dansara að vera sterk-
ur. „Hér á Íslandi krefjast dans-
hlutverkin mikils styrkleika svo
hægt sé að fara í beygjur og lyft-
ur og því var ég í kraftlyft ingum
í smá tíma og var orðin frekar
mikið sterk,“ segir Þyrí og klapp-
ar sér á kraftmikil lærin. „Ég
þarf að passa að halda mér í formi
og frekar en að vera alltaf að
dansa og teygja þá fer ég mikið út
að hlaupa, geng mikið um landið,
fer í jóga og í ræktina,“ segir Þyrí
með ákafa. „Í nútímadansi er í
raun sama hver dansar hlutverkið,
hvort það er kona eða karl, það fer
frekar eftir styrk dansarans en
kyni og ekki er gert ráð fyrir því
að dans sem krefst vöðvamassa
og styrks sé sjálfkrafa hlutverk
karlsins,“ segir Þyrí sem veltir
kynjahlutverkum mikið fyrir sér.
Hún segir dansumhverfið vera
gott á Íslandi og að dansflokk-
urinn sé ein stór fjölskylda. „Við
eyðum svo miklum tíma saman og
auðvitað verður þetta mjög náinn
hópur en um leið og manni finnst
þetta verða að kvöð, eins og leiðin-
leg vinna, þá er tími til að hætta,“
segir Þyrí, sem enn brennur af
ástríðu fyrir dansinum. Hún segir
mikið vera að gerast. „Ég get ekki
sleppt því að dansa, það er það
skemmtilegasta sem ég geri og ég
gæti ekki gert eitthvað sem ekki
tengist honum á einn eða annan
hátt,“ segir Þyrí um þessa köllun
sína.
Ástarsaga í Ameríku
Kærasti Þyríar heitir Hrafnkell,
er ævintýramaður mikill og fimur
dansari. Þau búa í miðbæ Reykja-
víkur og hafa verið saman í fjögur
ár. Ástin bankaði upp á fyrir til-
stilli vinafólks sem grunaði að þau
gætu átt samleið. „Vinkona mín
kynnti okkur og við vorum með
svona leynimerki, settu þumal-
inn upp ef þér finnst hann sætur
en niður ef ekki,“ segir Þyrí og
hlær að þessum skipulagða ástar-
hittingi. Þumallinn hefur haldist
á lofti síðan þau hittust og segir
Þyrí þau vera „skemmtilega ólík“
en þó hafa svipuð áhugamál. „Ég
er mjög skipulögð og gæti auð-
veldlega gleymt mér í dansinum
og að vera bara heima að fara yfir
tækni í nýju dansverki, en hann
fær mig til að slaka á og horfa
með sér á mynd og borða góðan
mat,“ segir Þyrí með gleðiglampa
í augunum. Parið eyðir töluverð-
um tíma í eldhúsinu og þar ræður
skipulag og góð næring ríkjum.
„Ég hef horfi mikið á heimildar-
myndir sem fjalla um mat og nær-
ingu og sem dansari þá þarf ég að
passa upp á að borða reglulega og
borða orkuríkan mat og því eldum
við mikið heima og tökum með
okkur nesti,“ segir Þyrí, sem hvet-
ur alla til að elda fyrir vikuna á
sunnudagskvöldum.
Nýlega lagði parið land undir
fót og ferðaðist í sex mánuði um
Suður-Ameríku. „Þetta var bara
ótrúleg ferð og fórum við um
Brasilíu, Bólivíu, Perú, Argent-
ínu og Ekvador. Mér fannst Bóliv-
ía alveg frábær og það var magn-
að að sjá aðra lifnaðarhætti. Þar
er fólk enn bara eins og í gamla
daga, engar verslanir heldur allt á
mörkuðunum og konurnar í hefð-
bundnum klæðnaði og það var
mjög gaman að sjá það,“ segir
Þyrí sem er þó glöð yfir að vera
komin heim. Aðspurð hvort ekki
sé erfitt að taka sér hlé frá dansi
til að ferðast kemur skipu lagið
upp í Þyrí, sem svarar um hæl:
„Ég þefa dansinn uppi hvar sem
ég er og passa að halda mér allt-
af í formi.“ Til allrar lukku er
Hrafnkell einnig góður dansari.
„Við dönsuðum tangó í Argentínu
en ég átti mjög erfitt með að leyfa
honum að stýra því mér finnst ég
betri dansari en hann og ég vil
stjórna, en það er erfitt í tangó.
Ætli það hafi ekki endað með því
að ég bara stjórnaði þessu,“ segir
Þyrí skellihlæjandi. Það er greini-
legt að alltaf er stutt í húmorinn
hjá þessari kraftmiklu ungu konu.
Dans, dans, dans?
Þyrí segir dansinn skipta sig
höfuð máli, sama hvort það er
heima, á skemmtistað eða í sýn-
ingu. Hún er einn af sjö atvinnu-
dönsurum hjá Íslenska dans-
flokknum og segist þakklát fyrir
tækifærið en bendir jafnframt
á að kjör dansara séu ekki með
besta móti. „Ég er í fullri vinnu
sem dansari auk þess að þurfa að
halda mér í formi utan formlegs
vinnutíma og stúdera danstækni í
frítíma og eru byrjendalaun dans-
ara um 240 þúsund krónur á mán-
uði, en margir eru í aukavinnu
samhliða dansinum,“ segir Þyrí
hissa. „Við fáum greidd að auki
sýningarlaun en oft eru kannski
bara þrjár sýningar á hverju verki
svo það telur takmarkað,“ segir
Þyrí og hvetur til opnari umræðu
um kjör listamanna.
Að vera dansari er ekki lang-
líf atvinna og hætta flestir fyrir
fertugt að dansa. „Það að vera
dansari felst oft líka í því að
semja dansverk og það er ein-
mitt það sem ég er að gera núna,
LÍFIÐ ER
KYNLAUS
DANS
Þyrí Huld er dansari af lífi og sál og segist ekki
geta hugsað sér lífið án hans. Hún er einn af sjö
fastráðnum dönsurum hjá Íslenska dansflokknum
og hlaut nýverið Grímuna fyrir verk sín.
Við eyðum svo
miklum tíma
saman og auð-
vitað verður
þetta mjög náinn
hópur en um leið
og manni finnst
þetta verða að
kvöð, eins og leið-
inleg vinna, þá er
tími til að hætta.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Útsala!
ALLAR YFIRHAFNIR
KOMNAR Á 50% AFSLÁTT
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
4
-6
9
9
C
1
7
5
4
-6
8
6
0
1
7
5
4
-6
7
2
4
1
7
5
4
-6
5
E
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K