Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 40
Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur 11. nóvember 2015 Fundir Hvað? Ljósmyndabókaklúbbur Reykja- víkur IV: BEHIND THE WATERFALL Hvenær? 18.00 Hvar? Ljósmyndasafn Reykjavíkur Opinn fundur á vegum Ljós­ myndabókaklúbbs Reykjavíkur. Sérstakur gestur verður spænski ljósmyndarinn David Barreiro sem kynnir ljósmyndabók sína Behind the Waterfall með myndum sem teknar eru á Suðurlandi árin 2013 og 2014. Barreiro ræðir þemu bók­ arinnar og heimspekina að baki hennar. Einnig ræðir hann kveikj­ una að verkinu og reynslu sína af ferðamannaiðnaðnum. Fundurinn er öllum opinn, aðgangur ókeypis. Uppákomur Hvað? Skrímslasetur – Frá hugmynd til opnunar Hvenær? 12.00 Hvar? Þjóðminjasafnið Valdimar Gunnarsson, formaður Félags áhugamanna um skrímsla­ setur, fjallar um sögu og uppbygg­ ingu skrímslasetursins í Bíldudal. Allir velkomnir. Hvað? Útgáfuhóf Eydísar Hvenær? 17.00 Hvar? Eymundsson, Austurstræti Útgáfuhóf í tilefni af nýútkominni skáldsögu Oddbjargar Ragnars­ dóttur, Eydís. Hvað? Frelsi til að vera allskonar Hvenær? 20.00 Hvar? Menningarhús, Gerðubergi Reykjavíkurdætur koma á Sagna­ kaffi í Gerðubergi. Þar munu þær segja sögur sem tengjast frelsis­ hugtakinu. Það að hafa frelsi til að láta drauma sína rætast, eiga rödd í samfélaginu, taka pláss, vera allskonar og hafa frelsi til að gera mistök. Gestir kvöldsins fá að stíga á svið og spreyta sig undir stjórn leikkonunnar Ólafar Sverrisdóttur sem staðið hefur fyrir námskeið­ um í sagnamennsku. Sagnakaffi er ný viðburðaröð í Gerðubergi. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Hvað? Bókakonfekt Forlagsins 2015 Hvenær? 20.00 Hvar? Café Rosenberg Árleg upplestrarkvöld Forlagsins. Bækur höfunda eru seldar á staðn­ um og í kvöld munu þau Sigrún Eldjárn, Halldór Guðmundsson, Ólafur Gunnarsson, Auður Jóns­ dóttir, Gunnar Helgason, Sjón og Kristín Helga Gunnarsdóttir lesa upp úr verkum sínum. Hvað? Leiktu betur Hvenær? 20.00 Hvar? Nýja sviðið, Borgarleikhúsinu Framhaldsskólar landsins keppa í leikhússporti. Viðburðurinn er hluti af listahátíðinni Unglist. Aðgangur er ókeypis. Fyrirlestrar Hvað? Útmeða – fræðslukvöld Hvenær? 19.30 Hvar? Laugarneskirkja Laugarneskirkja efnir til Útmeða fræðslukvölds í samstarfi við Geð­ hjálp. Linda Hólm, sálfræðingur hjá Geðhjálp, flytur fyrirlestur í tengslum við Útmeða og fjallar um sjálfsvíg, orsakir þeirra, forvarnir og úrræði. Með Lindu verður maður sem deila mun persónu­ legri reynslu sinni af því að hafa reynt að svipta sig lífi. Fræðslu­ kvöldið er liður í átaksviku Laugar­ neskirkju, Næmni, enga væmni. Kaffi og te í boði hússins og allir velkomnir. Hvað? Skaðaminnkandi hugmynda- fræði – Umræðukvöld Hvenær? 20.00 Hvar? Rótin, kvennaheimili, Túngötu 14 Svala Jóhannesdóttir, verkefna­ stjóri hjá Rauða krossinum, verður á fyrsta haustumræðukvöldi Rótarinnar. Í fyrirlestrinum mun hún meðal annars fjalla um skaða­ minnkandi hugmyndafræði og segir frá starfsemi Frú Ragnheiðar, færan­ legrar heilsuverndar­ og nálaskipta­ þjónustu sem hefur þann tilgang að ná til jaðarsettra einstaklinga í sam­ félaginu. Allir velkomnir. Uppistand Hvað? Hí á Húrra Hvenær? 20.30 Hvar? Húrra Á uppistandinu koma fram Ragnar Hansson, Þórdís Nadia Semichat, Bylgja Babýlons, Andri Ívarsson, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Hug­ leikur Dagsson. Miðaverð er 1.000 krónur. Opnanir Hvað? Saga um von Hvenær? 18.00 Hvar? Spaksmannsspjarir, Bankastræti Myndlistaropnun og létt kok­ teilspjall. Myndlistarkonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir opnar sýningu og flytur nýjan gjörning. Hugrún Jónsdóttir, nemi í lýðheilsufræði við Háskólann í Kaupmannahöfn, deilir sögu um von þar sem hún veltir fyrir sér gildum lífvænlegs samfélags en hún vinnur að rann­ sóknarverkefni um tengsl heims­ sýnar og sjálfbærrar þróunar. Pub Quiz Hvað? ’90s Pub Quiz Hvenær? 20.00 Hvar? Stúdentakjallarinn Pub Quiz í tilefni af alþjóðadögum í Háskóla Íslands. Spurningarnar munu eiga það sameiginlegt að tengjast 10. áratug síðustu aldar. Þrír til fjórir saman í liði. Tónlist Hvað? Háskólatónleikar: Hið íslenska gítartríó Hvenær? 12.30 Hvar? Kapellan, Háskólatorgi Hið íslenska gítartríó skipa Svanur Vilbergsson, Þórarinn Sigurbergs­ son og Þröstur Þorbjörnsson. Tríó­ ið mun flytja ný íslensk verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Hróð­ mar Inga Sigurbjörnsson. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Hvað? Klassík í Vatnsmýrinni – Ástir og draumar kvenna Hvenær? 20.00 Hvar? Norræna húsið Síðustu tónleikar tónleika­ raðarinnar Klassík í Vatns­ mýrinni á þessu starfsári. Sópransöngkonan Auður Gunnarsdóttir og píanó­ leikarinn Helga Bryndís Magnúsdóttir munu flytja sönglög eftir Hjálmar Helga Ragnarsson, Robert Schumann, Ermano Wolf­ Ferrari og Joaquin Turina. Aðgangs­ eyrir á tónleikana er 2.000 krónur en 1.000 krónur fyrir eldri borgara, öryrkja og félagsmenn FÍT. Hvað? Útgáfutónleikar Vorljóð á ýli Hvenær? 20.00 Hvar? Safnahúsið Útgáfu geisladisksins Vorljóð á ýli verður fagnað í kvöld. Á geisla­ diskinum má heyra lög Ingibjargar Azima við ljóð Jakobínu Sigurðar­ dóttur. Miðaverð á tónleikana er 2.000 krónur. Hvað? Múlinn Jazzklúbbur: Tríó Sunnu Gunnlaugs Hvenær? 21.00 Hvar? Björtuloft, Hörpu Tríó Sunnu Gunnlaugs hitar upp fyrir stuttan Evróputúr og leikur lög af nýútkomnum diski, Cielito lindo. Miðaverð er 2.000 krónur. Námskeið Hvað? Konfektnámskeið Hagkaups Hvenær? 18.00 Hvar? Hagkaup, Holtagörðum Á námskeiðinu verður farið í grunnþætti konfektgerðar og fá þátttakendur að búa til sína eigin mola og taka með heim. Hráefni er innifalið í námskeiðsgjaldi. Miða­ verð er 4.990 krónur. Dans Hvað? This conversation is missing a point Hvenær? 20.30 Hvar? Tjarnarbíó Ný danssýning eftir This Con­ versation is Missing a Point. Í sýningunni er brugðið á leik með mannleg sam­ skipti og misskilning. Sjón er meðal þeirra rit- höfunda sem verða á Café Rosenberg á Bókakonfekti Forlagsins í kvöld. FR ét ta Bl að ið /E Rn iR Bylgja Babýlons og Snjólaug lúðvíks- dóttir eru meðal þeirra uppistandara sem koma frá á Hí á Húrra í kvöld. Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is - MBL - DAILY MIRROR - TELEGRAPH - GUARDIAN - THE TIMES KVIKMYND EFTIR JACQUES AUDIARD LEIKSTJÓRA RUST AND BONE OG A PROPHET DHEEPAN GULLPÁLMINN SIGURVEGARI CANNES 2015 bio. siAS M KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKA SCOUTS GUIDE KL. 8 - 10:10 JEM AND THE HOLOGRAMS KL. 5:30 - 8 THE LAST WITCH HUNTER KL. 10:30 PAN ÍSLTAL 3D KL. 5:30 SCOUTS GUIDE KL. 5:50 - 8 - 10:10 SCOUTS GUIDE VIP KL. 8 - 10:10 THE LAST WITCH HUNTER KL. 5:30 - 8 - 10:20 PAN ÍSLTAL 2D KL. 5:30 PAN ÍSLTAL 3D KL. 5:30 PAN ENSKT TAL 2D KL. 8 LEGEND KL. 10:30 BLACK MASS KL. 8 - 10:30 EVEREST 2D KL. 5:30 - 8 - 10:30 SPECTRE KL. 6 - 7:30 - 8 - 9 - 10:35 SCOUTS GUIDE KL. 5:50 - 8 - 10:10 PAN ÍSLTAL 2D KL. 5:30 SPECTRE KL. 5:20 - 6:50 - 8:30 - 10 THE LAST WITCH HUNTER KL. 10:30 PAN ÍSLTAL 2D KL. 5:30 THE INTERN KL. 8 SPECTRE KL. 8 - 10:10 SCOUTS GUIDE KL. 8 SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND Í 2D OG 3D EGILSHÖLL  THE NEW YORKER  ROGER EBERT  DEN OF GEEK V I N D I E S E L Ó L A F U R D A R R I  TIME OUT LONDON  DAILY MIRROR  GUARDIAN  THE TIMES  THE TELEGRAPH Stúlkurnar á Kleppj. 18:00 Sparrows / Þrestir ENG SUB 18:00 Glænýja testamentið IS SUB 20:00 Virgin mountain ENG SUB 20:00 Rams/Hrútar ENG SUB 22:00 Love 3d 22:15 Pawn sacrifice IS SUB 22:15 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-20 SPECTRE 6, 9, 10(P) JEM AND THE HOLOGRAMS 5:30 CRIMSON PEAK 10:30 SICARIO 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 10 SÝND Í 4K! -The Times -The Gaussian -Telegraph 1 1 . N ó v e m b e r 2 0 1 5 m I Ð v I K U D A G U r24 m e N N I N G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 E E -5 A D 4 1 6 E E -5 9 9 8 1 6 E E -5 8 5 C 1 6 E E -5 7 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.