Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 44
Caitlyn kona ársins bíó Dheepan HHHHH Dheepan eftir franska leikstjórann Jaques Audiard vann gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor en hún segir frá þremur flóttamönnum frá Srí Lanka; manni, konu og ungri stúlku, sem þekkjast ekkert en þykjast vera fjölskylda til að geta flúið ástandið í heimalandinu og setjast að í Frakk- landi. Þau fá íbúð í innflytjendagettói en vandamálin halda áfram að elta þau. Þótt Dheepan virðist í fyrstu vera einhvers konar vandamálamynd er hún í raun fyrst og fremst bæði saga um útlendinga sem eru að reyna að aðlagast nýju landi og saga um þrjár manneskjur sem þekkjast ekkert og eru að læra á hver aðra. Pólitíkin er í bakgrunninum og áherslan á hið mannlega. Hér er tekist á við kunnugleg stef og sagan í grunninn svo sem ekki að segja neitt nýtt. En það sem gerir þessa mynd sérstaka er sjónarhornið þar sem lítið hefur verið fjallað um fólk frá Srí Lanka í vestrænni kvikmyndagerð, fæstir Vesturlandabúar vita mikið um landið nema að þeir hafa e.t.v. heyrt minnst á tamíltígrana. Titilpersónan Dheepan var ein- mitt einn af tamíltígrunum en núna er hann að reyna að fjarlægjast þessa myrku fortíð sína, hann er ánægður í Frakklandi þrátt fyrir að eiga erfitt með að skilja samfélagið. En þótt myndin sé nefnd eftir honum er aðalkven- persónan, Yalini, alveg jafn mikilvæg og myndin jafn mikið að segja hennar sögu og hans. Þykjustudóttir þeirra fær minna vægi en þó er gefin ágæt til- finning fyrir því sem hún þarf að ganga í gegnum. Það hefði samt vel mátt gefa henni meira vægi þar sem hún er engu minna áhugaverð persóna en hin. Leikstjórinn Audiard hefur sýnt áður að hann kann að gera myndir sem fjalla um dramatísk málefni en ná engu að síður að skemmta áhorfandanum. Hann nær rétta tóninum í Dheepan sem þrátt fyrir grafalvarlegan efnivið verður sjaldan of þung og þótt myndin sé ekki beinlínis hröð er stígandin stöðug og lítið verið að dvelja við hlut- ina eða eyða tíma í óþarfa. Dheepan er mynd sem heldur áhorfandanum en fær hann um leið til að hugsa. En Audiard missir þó aðeins tökin í seinni hlutanum þar sem myndin umhverfist í hálfgerða spennumynd. Það er eins og hann hafi ekki alveg treyst því að mynd um gervifjölskyldu að fást við líf sem innflytjendur í Frakk- landi væri nóg til að heilla áhorfendur og fundist hann þurfa að setja smá hasar í myndina svo hún væri sölu- vænni. Seint í myndinni fer af stað gengjastríð í innflytjendahverfinu og Dheepan og Yalini flækjast inn í málin. Við það fær myndin á sig hálfgerðan Hollywoodblæ sem passar ekki nógu vel við restina og dregur heildarmynd- ina niður. Það hefði í raun verið feikinóg að Dheepan Mannleg flóttamannasaga fylgjast með vandamálum fjölskyld- unnar í tvo klukkutíma og láta ofbeld- ið og pólitíkina vera í bakgrunninum og undirliggjandi frekar en að flækjast um á yfirborðinu og fyrir vikið verður myndin ekki eins sterk og hún hefði geta orðið. En þrátt fyrir það er hægt að mæla með henni fyrir fyrstu 90 mínúturnar eða svo. Atli Sigurjónsson Niðurstaða: Áhrifarík mynd sem fær mann til að hugsa og skemmtir manni í senn en missir flugið í loka- kaflanum. Caitlyn Jenner var heiðruð sem kona ársins og hér er hún með yngstu dóttur sinni, Kylie Jenner. NordiCphotoS/ Getty Síðastliðið mánudagskvöld voru hin árlegu Glamour Women of the Year-verð- laun veitt þar sem þær konur sem þykja hafa skarað fram úr í heimi íþrótta, kvikmynda, tísku og fleira eru verð- launaðar. Verðlaunin voru nú veitt í tuttug- asta og fimmta sinn og fór afhending þeirra fram í Carnegie Hall í New York. Jared Leto lét sig ekki vanta og hér er hann með Victoriu Beck- ham sem var ein þeirra sem fengu verðlaun fyrr um kvöldið. Leikkonurnar Viola davis og reese Witherspoon skelltu í eina sjálfu saman í eftirpartíi eftir hátíðina en Witherspoon hlaut verð- laun á hátíðinni. Brooklyn, elsti sonur Victoriu og davids Beckham, afhenti móður sinni verðlaun en mæðginin mættu saman á hátíðina. LOKA ÆFING eftir Svövu Jakobsdóttur í uppsetningu Háaloftsins MIÐASALA Midi.is/Tjarnarbio.is/S. 527 2100 Föstudaginn 13. nóv. kl. 20.30 „Leikhús eins og það best gerist.“ (D.K/hugras.is) „Grípandi, áleitin, spennandi! Sjáið Lokaæfingu!“ (J.J/Kvennablaðið) ALLRA SÍÐASTA SÝNING! Verðlaunin Glamour Women of the Year voru veitt í tuttugasta og fimmta sinn í New York síðastliðið mánudags- kvöld við mikinn fögnuð. 1 1 . N ó v e m b e r 2 0 1 5 m i ð v i K u D a G u r28 L í f i ð ∙ f r É t t a b L a ð i ð Lífið Jesuthasan Antonythasan, Jacques Audiard og Kalieaswari Srinivasan með gullpálmann í Cannes. NordiCphotoS/Getty 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 E E -9 F F 4 1 6 E E -9 E B 8 1 6 E E -9 D 7 C 1 6 E E -9 C 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.