Fréttablaðið - 11.11.2015, Side 44
Caitlyn kona ársins
bíó
Dheepan
HHHHH
Dheepan eftir franska leikstjórann
Jaques Audiard vann gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor en
hún segir frá þremur flóttamönnum
frá Srí Lanka; manni, konu og ungri
stúlku, sem þekkjast ekkert en þykjast
vera fjölskylda til að geta flúið ástandið
í heimalandinu og setjast að í Frakk-
landi. Þau fá íbúð í innflytjendagettói
en vandamálin halda áfram að elta
þau.
Þótt Dheepan virðist í fyrstu vera
einhvers konar vandamálamynd er
hún í raun fyrst og fremst bæði saga
um útlendinga sem eru að reyna að
aðlagast nýju landi og saga um þrjár
manneskjur sem þekkjast ekkert og
eru að læra á hver aðra. Pólitíkin er
í bakgrunninum og áherslan á hið
mannlega.
Hér er tekist á við kunnugleg stef
og sagan í grunninn svo sem ekki að
segja neitt nýtt. En það sem gerir þessa
mynd sérstaka er sjónarhornið þar
sem lítið hefur verið fjallað um fólk frá
Srí Lanka í vestrænni kvikmyndagerð,
fæstir Vesturlandabúar vita mikið um
landið nema að þeir hafa e.t.v. heyrt
minnst á tamíltígrana.
Titilpersónan Dheepan var ein-
mitt einn af tamíltígrunum en núna
er hann að reyna að fjarlægjast þessa
myrku fortíð sína, hann er ánægður í
Frakklandi þrátt fyrir að eiga erfitt með
að skilja samfélagið. En þótt myndin
sé nefnd eftir honum er aðalkven-
persónan, Yalini, alveg jafn mikilvæg
og myndin jafn mikið að segja hennar
sögu og hans. Þykjustudóttir þeirra
fær minna vægi en þó er gefin ágæt til-
finning fyrir því sem hún þarf að ganga
í gegnum. Það hefði samt vel mátt gefa
henni meira vægi þar sem hún er engu
minna áhugaverð persóna en hin.
Leikstjórinn Audiard hefur sýnt
áður að hann kann að gera myndir sem
fjalla um dramatísk málefni en ná engu
að síður að skemmta áhorfandanum.
Hann nær rétta tóninum í Dheepan
sem þrátt fyrir grafalvarlegan efnivið
verður sjaldan of þung og þótt myndin
sé ekki beinlínis hröð er stígandin
stöðug og lítið verið að dvelja við hlut-
ina eða eyða tíma í óþarfa. Dheepan er
mynd sem heldur áhorfandanum en
fær hann um leið til að hugsa.
En Audiard missir þó aðeins tökin
í seinni hlutanum þar sem myndin
umhverfist í hálfgerða spennumynd.
Það er eins og hann hafi ekki alveg
treyst því að mynd um gervifjölskyldu
að fást við líf sem innflytjendur í Frakk-
landi væri nóg til að heilla áhorfendur
og fundist hann þurfa að setja smá
hasar í myndina svo hún væri sölu-
vænni. Seint í myndinni fer af stað
gengjastríð í innflytjendahverfinu og
Dheepan og Yalini flækjast inn í málin.
Við það fær myndin á sig hálfgerðan
Hollywoodblæ sem passar ekki nógu
vel við restina og dregur heildarmynd-
ina niður.
Það hefði í raun verið feikinóg að
Dheepan Mannleg flóttamannasaga
fylgjast með vandamálum fjölskyld-
unnar í tvo klukkutíma og láta ofbeld-
ið og pólitíkina vera í bakgrunninum
og undirliggjandi frekar en að flækjast
um á yfirborðinu og fyrir vikið verður
myndin ekki eins sterk og hún hefði
geta orðið. En þrátt fyrir það er hægt
að mæla með henni fyrir fyrstu 90
mínúturnar eða svo. Atli Sigurjónsson
Niðurstaða: Áhrifarík mynd sem
fær mann til að hugsa og skemmtir
manni í senn en missir flugið í loka-
kaflanum.
Caitlyn Jenner
var heiðruð sem
kona ársins og
hér er hún með
yngstu dóttur
sinni, Kylie
Jenner.
NordiCphotoS/
Getty Síðastliðið mánudagskvöld
voru hin árlegu Glamour
Women of the Year-verð-
laun veitt þar sem þær
konur sem þykja
hafa skarað fram
úr í heimi íþrótta,
kvikmynda, tísku og fleira eru verð-
launaðar.
Verðlaunin voru nú veitt í tuttug-
asta og fimmta sinn og fór
afhending þeirra fram í
Carnegie Hall í New
York.
Jared Leto lét sig ekki vanta og
hér er hann með Victoriu Beck-
ham sem var ein þeirra sem fengu
verðlaun fyrr um kvöldið.
Leikkonurnar Viola davis
og reese Witherspoon
skelltu í eina sjálfu saman í
eftirpartíi eftir hátíðina en
Witherspoon hlaut verð-
laun á hátíðinni.
Brooklyn, elsti sonur
Victoriu og davids
Beckham, afhenti
móður sinni verðlaun
en mæðginin mættu
saman á hátíðina.
LOKA
ÆFING
eftir Svövu Jakobsdóttur
í uppsetningu Háaloftsins
MIÐASALA
Midi.is/Tjarnarbio.is/S. 527 2100
Föstudaginn 13. nóv. kl. 20.30
„Leikhús eins og það
best gerist.“
(D.K/hugras.is)
„Grípandi, áleitin, spennandi!
Sjáið Lokaæfingu!“
(J.J/Kvennablaðið)
ALLRA SÍÐASTA SÝNING!
Verðlaunin Glamour Women of the
Year voru veitt í tuttugasta og fimmta
sinn í New York síðastliðið mánudags-
kvöld við mikinn fögnuð.
1 1 . N ó v e m b e r 2 0 1 5 m i ð v i K u D a G u r28 L í f i ð ∙ f r É t t a b L a ð i ð
Lífið
Jesuthasan Antonythasan, Jacques
Audiard og Kalieaswari Srinivasan með
gullpálmann í Cannes.
NordiCphotoS/Getty
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
E
-9
F
F
4
1
6
E
E
-9
E
B
8
1
6
E
E
-9
D
7
C
1
6
E
E
-9
C
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K