Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 34
Elsku eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bára Sigurbergsdóttir
lést á Landspítalanum 6. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 16. nóvember kl. 13.
Ragnar Leví Jónsson
Ingibergur Helgason Gitte Bruhn Carstens
Sóley Ragnarsdóttir
Bogey Ragnarsdóttir Sipho Mbatha
Bára Björk, Óðinn, Sif, Ragnar Leví, Alda Líf,
Mbali, Zandile, Júlíana, Hólmfríður og Brynhildur.
Þökkum innilega fyrir
auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, fósturföður,
tengdaföður, afa og langafa,
Baldurs Jónassonar
Dvergabakka 16,
áður bónda að
Klungurbrekku, Skógarströnd,
sem lést 16. október 2015. Jarðsett var í kyrrþey að ósk
hins látna þann 30. október sl. í Gufuneskirkjugarði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á krabbameinsdeild
Landspítala og til séra Braga Skúlasonar.
Brynhildur Sigtryggsdóttir
Guðrún Lára Baldursdóttir
Inga Fjóla Baldursdóttir Óskar Jósef Óskarsson
Kristjana S. Pálsdóttir Sigurður Pétur Harðarson
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir mín,
tengdamóðir, amma og langamma,
Helga Sigurjónsdóttir
áður til heimilis að Kirkjuvegi 1,
Keflavík,
lést á dvalarheimilinu
Hrafnistu, Hlévangi, þann 4. nóvember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 17. nóvember kl. 13.00.
Jónína Guðmundsdóttir Oddur Sæmundsson
Helga Jóhanna Oddsdóttir Einar Jónsson
Guðmundur J. Oddsson Guðrún Mjöll Ólafsdóttir
Sæmundur Jón Oddsson Edda Björk Pétursdóttir
Hulda Sóllilja, Oddur Fannar, Tómas Ingi,
Ólafur Oddur, Jónína Sóley,
Saga Björk og Oddur Logi.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Sveinbjörn Blöndal
bóndi,
Laugarholti, Bæjarsveit,
andaðist á dvalarheimilinu Brákarhlíð í
Borgarnesi 6. nóvember sl.
Útför hans fer fram í Bæjarkirkju
laugardaginn 14. nóvember kl. 14.
Fyrir hönd vandamanna,
Borghildur Garðarsdóttir
Þórarinn Blöndal Vera Guðmundsdóttir
Þorvaldur Blöndal Maren Albertsdóttir
Þórmundur Blöndal Brynja Björk Hinriksdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helga Margrét
Sigurjónsdóttir
Hríseyjargötu 17, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 13. nóvember kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Sigríður Jóna Þorvaldsdóttir Eyjólfur Einarsson
Sigurjón Þorvaldsson Daníela Guðmundsdóttir
Ellen Margrét Þorvaldsdóttir Ármann Þórir Björnsson
og ömmubörnin.
Okkar elskulega móðir,
tengdamóðir og amma,
Svanhildur Ágústa
Sigurðardóttir
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut aðfaranótt
laugardagsins 7. nóvember 2015.
Útför fer fram frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn
14. nóvember 2015 kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast Svanhildar er bent á að styrkja
Krabbameinsfélagið, 0301-26-000706, kt. 7001692789.
Aðstandendur þakka auðsýndan samhug.
Halldóra M. Árnadóttir Brynjar Klemensson
Þóra G. Árnadóttir
Svava Árnadóttir Júlíus Helgason
Sif Árnadóttir Sigurður R. Baldursson
Alma D. Árnadóttir Árni R. Karlsson
börn og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Sigurður Bjarnason
frá Hlemmiskeiði,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
laugardaginn 14. nóvember kl. 13.00.
Jarðsett verður að Ólafsvöllum.
Jóhann Stefánsson
Bjarni Sigurðsson Hanna Björk Hálfdánardóttir
Björn Sigurðsson Jóhanna Björk Helgadóttir
Yngvi Sigurðsson Sigríður Bergsdóttir
Þráinn Sigurðsson Ingibjörg María Guðmundsdóttir
og afabörn.
„Ljóðið fór svo bara að syngja sig sjálft,“
segir Ingibjörg Azima, tónskáld og
básúnuleikari, sem í dag fagnar útgáfu
geisladisksins Vorljóð á ýli, en tón-
listina samdi Ingibjörg við ljóð ömmu
sinnar, Jakobínu Sigurðardóttur. Lagði
Ingibjörg upp í söfnunarleiðangur á
Karolina Fund og nú hefur platan litið
dagsins ljós.
„Amma var alltaf þekkt sem rithöf-
undur en ekki sem ljóðskáld, sem hún
sannarlega var líka,“ segir Ingibjörg
sem stendur á því fastar en fótunum að
ljóð ömmu hennar eigi ekki síður við í
dag, en þegar hún orti þau um miðbik
síðustu aldar.
Ingibjörg segir ákveðna tilviljun að
hún hafi byrjað að semja tónlist við
ljóðin. „Einhverra hluta vegna datt lagið
við ljóðið Vorljóð á ýli bara í hausinn á
mér. Á þeim tímapunkti var ég að vinna
mikið með kóra í Stokkhólmi, þar sem
ég bjó og var mikið að horfa í samspil
tónlistar og texta, eða ljóða. Ég var mikið
að hugsa heim, eins og Íslendingar í
útlöndum gera gjarnan,“ útskýrir Ingi-
björg og hlær. „Svo bara rúllaðist þetta
lag upp eitt kvöldið, og svo átti ég þetta
bara.“
Það bar svo til tíðinda að þegar vin-
kona Ingibjargar, Ólöf Sigursveinsdóttir
sellóleikari, var að vinna í Þýskalandi,
með þarlendri söngkonu kom upp sú
hugmynd að Ingibjörg bjargaði þeim um
íslenskt lag. „Þá dró ég þetta fram og þær
bara fara að panta að ég semji fullt,“ segir
hún og skellihlær. Hefur Ingibjörg fengið
til liðs við sig einvalalið tónlistarfólks,
svo sem Margréti Hrafnsdóttur, Gissur
Pál Gissurarson, Grím Helgason og ýmsa
fleiri.
Ingibjörg segir verkið ekki hafa verið
sérlega erfitt, en ljóð ömmu hennar
séu þannig að þau spili hreinlega tón-
listina fyrir mann þegar þau eru lesin.
„Ljóð hennar búa yfir mikilli innri tón-
list og því upplifði ég að þau sendu mér
laglínur miklu frekar en að ég væri að
semja lögin,“ útskýrir Ingibjörg, sem átti
aldeilis ekki von á að hún myndi verða
sú sem kæmi til með að semja lög við
ljóð ömmu sinnar.
„Ég var tuttugu og eins árs þegar
amma deyr, þá rétt ófarin út í tónlistar-
nám. Ég var aldrei þetta skólabókar-
dæmi sem hafði samið verk frá blautu
barnsbeini. Ætli ég hafi ekki bara verið
svona seinþroska?“ spyr Ingibjörg á móti
og rekur aftur upp heillandi hláturroku í
lokin. gudrun@frettabladid.is
Ljóðin hennar ömmu
syngja sig eiginlega sjálf
Ingibjörg Azima átti ekki von á að verða sú sem gæfi ljóðum ömmu sinnar, Jakobínu
Sigurðardóttur, tóna. Í dag fagnar hún hins vegar plötunni Vorljóð á ýli.
Útgáfutónleikarnir verða haldnir í kvöld í Safnahúsinu klukkan 20.00 og mun bókmennta-
fræðingurinn Kristín Ásta Benediktsdóttir flytja erindi um Jakobínu. FréttaBlaðið/Vilhelm
Einhverra hluta vegna
datt lagið við ljóðið
Vorljóð á ýli bara í hausinn á
mér. Á þeim tímapunkti var ég
að vinna mikið með kóra í
Stokkhólmi, þar sem ég bjó og
var mikið að horfa í samspil
tónlistar og texta, eða ljóða,
Merkisatburðir
1918 Fólk fagnar lokum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Á sama
tíma er flaggað í hálfa stöng
í Reykjavík þar sem spænska
veikin geisar.
1920 Matthías Jochumsson
fagnar áttatíu og fimm ára af
mæli sínu, og fær aldeilis gjöf,
þar sem hann er gerður heiðurs
borgari Akureyrar og heiðurs
doktor í guðfræði við Háskóla
Íslands. Hann fellur frá viku síðar.
1943 Pétur Hoffmann Saló
mons son berst einn við banda
ríska hermenn í Selsvör í Reykja
vík og hefur betur, að eigin sögn.
1962 Leikritið Hart í bak eftir
Jökul Jakobsson er frumsýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og upp
sker í framhaldinu miklar vin
sældir. Alls er verkið sýnt tvö hundruð og fimm sinnum eftir það, alltaf
fyrir fullu húsi.
1994 Guðmundur Árni Stefánsson segir af sér. Hann hafði gegnt stöðu
félagsmálaráðherra en lætur af störfum vegna ásakana um mistök í
embætti.
Pétur hoffmann
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m I Ð v I K U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
E
-7
3
8
4
1
6
E
E
-7
2
4
8
1
6
E
E
-7
1
0
C
1
6
E
E
-6
F
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K