Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 27
Ferðaþjónustan hefur leikið lykil- hlutverk í efnahagsuppbyggingunni eftir hrun. Líklegt sé að á næstu árum muni draga úr vextinum í ferðaþjónustunni en „Ísland er á kortinu,“ segir Björgólfur. Það megi meðal annars rekja til eldgossins í Eyjafjallajökli, Holuhrauns og ein- staklinga og fyrirtækja sem séu að markaðssetja Ísland á hverjum degi. Björgólfur segir að lykillinn að því að ná fram framleiðniaukningu í ferðaþjónustu sé að fjölga ferða- mönnum á vetrarmánuðum. Þar er hægt að gera betur. „Reykjavík er í algjörri sérstöðu. Kvosin er fjölsótt- asti ferðamannastaður á landinu. Þar eru hreinlega alltaf ferðamenn. En þú getur talað við fólk víðsvegar út um land sem segir þér að við höfum enn þá fleiri tækifæri til að auka veturinn. Okkar fyrirtæki sem starfa í þjónustu við erlenda ferða- menn, Icelandair Hotels og Iceland Travel, hafa gengið vel undanfarið og fram undan er mikil uppbygging í hótelrekstrinum hjá okkur, meðal annars úti á landi.“ Flugvélum fjölgað Icelandair notar einungis Boeing 757 í rekstrinum núna, en mun byrja að nota tvær 767 breiðþotur í rekstrinum á næsta ári. Árið 2012 var farið í vinnu við að skipuleggja framtíðarflota Icelandair. „Þá ertu ekki að horfa fimm til sex ár fram í tímann heldur áratugi. Þá eru skoðaðir kostirnir Airbus á móti Boeing og eftir verulega mikla vinnuyfirferð og endanleg tilboð þá var niðurstaðan sú að fara í 737 MAX vélar,“ segir Björgólfur. Fyrstu vélarnar koma á fyrri hluta árs 2018 og munu sextán vélar koma allt til ársins 2021. Nýju vélarnar verða svo notaðar með 757 og 767 vélunum. „Svo erum við að fara í endurnýjun hjá Flugfélagi Íslands. Þar erum við að fara að taka inn þrjár Bombar- dier Q400 vélar í stað fimm Fokker- véla, þannig að það eru töluverðar breytingar fram undan hjá Flug- félaginu.“ Með nýju vélunum verður aukið framboð á flugi til Grænlands (þar sem einum áfangastað verður bætt við á næsta ári) og svo bætist við flug í samvinnu við Icelandair til Aberdeen á næsta ári. Ertu sáttur við afkomuna hjá Flugfélagi Íslands? „Afkoman er dálítið snúin, það verður bara að segja það. Í innan- landsfluginu hefur þjónustustigið verið mjög hátt, mikil flugtíðni og ákveðin takmörk á eftirspurn,“ segir Björgólfur. Þá þvertekur hann fyrir að flugfargjöld Flugfélags Íslands séu há. Þetta megi sjá þegar verðskrár flugfélaga á Norðurlönd- unum, þar sem verið er að fljúga svipaðar vegalengdir, eru skoðaðar. Björgólfur segir að ýmislegt hafi orðið til þess að hamla starfsemi Flugfélags Íslands að undanförnu. „Ef þú horfir bara í opinber gjöld sem farþegar og flugfélagið þarf að borga, þá hafa þessi gjöld hækkað mikið á síðustu árum,“ segir Björg- ólfur. Þau hafi verið í kringum 200 milljónir en séu núna komin í um 400 milljónir, þrátt fyrir fækkun farþega. Þá bendir hann á að vaxtar möguleikarnir fyrir Flug- félagið séu ekki síst í Grænlands- flugi og öðru flugi út fyrir land- steinana. Eitt af stóru þrætueplunum sem tengjast ferðaþjónustu er fjármögn- un á viðhaldi ferðamannastaða. Engin sátt virðist um að taka upp náttúrupassa. Björgólfur tekur fram að Icelandair Group hafi verið fylgj- andi náttúrupassa. Í skýrslu sem Boston Consulting vann, meðal annars að beiðni Icelandair Group, U M HV ERFISMERKI Prentgripur 141 825 Suðurhraun 1 Garðabæ Sími: 59 50 300 www.isafold.is Umbúðir • Bækur • Tímarit • Fyrir skrifstofuna • Bæklingar Fjölpóstur • Kynningarefni • Dagblöð • Stafrænt • Allskonar! Á meðan við prentum fyrir þig… var lagt til að náttúrupassaleiðin yrði farin. „Þar er hugsunin að þeir borga sem njóta, það er aðalatriðið og eitthvað sem ég hef talað fyrir frá árinu 2012,“ segir Björgólfur. Hann telur, að fyrst náttúrupassaleiðin verði ekki farin, sé eðlilegast að taka gjald fyrir þá þjónustu sem veitt er á ferðamannastöðunum, til dæmis bílastæðagjöld og þess háttar. „Það þekkja allir þessa gjaldtöku sem hingað koma. Alls staðar sem þú kemur þá sérðu P-merki. Þetta er vel þekkt leið, einföld í framkvæmd og tekju- möguleikar hennar eru ágætir.“ Björgólfur segir bráðnauð- synlegt að farið verði að horfa á náttúruna sem verðmæti í sjálfri sér. Um 80 prósent af gestum Icelandair nefni náttúruna sem ástæðu fyrir komu sinni. „Við þurfum að velta því fyrir okkur hvernig við viljum nýta hana. Við viljum ekki ganga óhóflega á hana. Náttúran er auðlind, ekki síður en fiskimiðin og vatnsorkan. Taka þarf tillit til allra atvinnuvega, þar með talið ferðaþjónustunnar, og áður en ákvarðanir eru teknar um fram- kvæmdir þarf að velta fyrir sér hlut- unum til langs tíma og spyrja hvers virði náttúra er. Mín skoðun er sú að náttúran eigi að njóta vafans.“ Flest bendir til þess að flug- völlurinn í Vatnsmýrinni hverfi, hvort sem það verður árið 2022 eða síðar og stóra spurningin er hvað þá tekur við. Björgólfur segir ekki forsendur fyrir því að starf- rækja innanlandsflug á Keflavíkur- flugvelli. Mögulega væri hægt að halda úti flugi þaðan til Egilsstaða en vegna bættra samgangna á landi væru varla forsendur til að halda úti flugi til Akureyrar, sem er stærsti áfangastaður Flugfélags Íslands. Björgólfur segir Icelandair Group vera fylgjandi því að skoða Hvassahraun sem möguleika eins og Rögnunefndin lagði til. En ef ríkið og sveitarfélögin myndu draga lappirnar með fjár- festingu í Hvassahrauni, mynduð þið hafa frumkvæði að því að keyra það mál áfram? „Það eru svo mörg ef í þessari spurningu. Stærsta ef-ið er Reykja- víkurflugvöllur. Icelandair Group tók þátt í starfi Rögnunefndarinar svokölluðu og þær tillögur sem þar koma fram eru bakkaðar upp af okkur,“ segir Björgólfur. Hann ítrekar að framvinda mála snúist öll um það hvað verði um Reykjavíkur- flugvöll. „Verði Reykjavíkurflugvöll- ur á sínum stað í lítt breyttri mynd er einsýnt að uppbygging í Keflavík er skynsamleg og nauðsynleg for- senda fyrir vexti og viðgangi ferða- mannalandsins Íslands. Verði það niðurstaðan að Reykjavíkurflug- völlur víki þá hefur verið sýnt fram á þjóðhagslega hagkvæmni þess að byggja upp í Hvassahrauni.“ Hann bætir því við að óháð umræðu um staðsetningu innanlandsflugs verði, vegna gríðarlegs vaxtar í flug- og ferðaþjónustu, að fara í fjárfestingu í Keflavík. Þótt vöxtur Icelandair hafi verið mikill að undanförnu og fyrirtækið sé það stærsta á Íslandi í dag segir Björgólfur að samkeppnin á mark- aðnum sé mjög virk enda er félagið í alþjóðlegri samkeppni. Þetta eigi ekki síst við um flugið yfir Atlants- hafið. Icelandair sé með um eins prósents markaðshlutdeild af þeim markaði í heild sinni. Hann segir að þeim flugfélögum sem fljúgi til Íslands fjölgi mikið milli ára. Þetta sýni til dæmis tölur um fjölgun far- þega hjá öðrum flugfélögum en Ice- landair. „Þessi þróun hefur styrkt ferðaþjónustuna á Íslandi.“ Strax á árinu 2009 fjölgum við svo aftur. Síðan þá hefur vöxtur okkar verið um tvær til þrjár vélar á ári, Afkoman er dálítið snúin, það verður bara að segja það. Í innan- landsfluginu hefur þjón- ustustigið verið mjög hátt, mikil flugtíðni og ákveðin takmörk á eftirspurn. Það þekkja allir þessa gjaldtöku sem hingað koma. Alls staðar sem þú kemur þá sérðu P-merki. Þetta er vel þekkt leið, einföld í framkvæmd og tekjumöguleikar hennar eru ágætir. mArkAðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 1 1 . n ó V e M b e R 2 0 1 5 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 E E -7 3 8 4 1 6 E E -7 2 4 8 1 6 E E -7 1 0 C 1 6 E E -6 F D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.