Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Page 12
föstudagur 23. janúar 200912 Fréttir
GÖTUVÍGIN Í MIÐBORGINNI
Komið hefur til átaka milli lögreglu og mótmælenda undanfarna daga sem sett hafa mark sitt á janúar-
byltinguna þrátt fyrir að velflestir mótmælendur hafi verið friðsamlegir. Hörður Torfason, forsvarsmaður
Radda almennings, fordæmir ofbeldið og segir það engu skila nema meira ofbeldi. DV kortleggur hvar helstu
átökin hafa átt sér stað.
„Við verðum með friðsamleg mót-
mæli næsta laugardag eins og venju-
lega,“ segir Hörður Torfason, sem
staðið hefur fyrir mótmælum á Aust-
urvelli síðan 11. október eða nokkr-
um dögum eftir bankahrunið. Á laug-
ardaginn verður mótmælt sextánda
laugardaginn í röð og segir Hörður
að þau mótmæli séu friðsöm. Mót-
mælin á Austurvelli hafa harðnað
mikið síðustu daga og hefur lögregla
beitt kylfum, piparúða og táragasi á
mótmælendur sem hafa beitt hörku
og grýtt steinum og fleiri handbær-
um hlutum í lögreglu og byggingar.
Mikið af ungum krökkum
„Ég fordæmi allt sem heitir ofbeldi,
alveg sama hvaðan það kemur, hvort
sem það er frá lögreglu eða fólki á
götunni. Það hefur ekkert með mót-
mæli að gera,“ segir Hörður. „Ég for-
dæmi ofbeldi því ofbeldi kallar á of-
beldi. Það er bara staðreynd, það er
ekki þjóðfélag sem ég vil lifa í.“ Hann
segir að hann hafi ásamt öðrum reynt
að tala við mótmælendur sem beita
ofbeldi. „Mér er alveg sama hvað það
er, ef það er ofbeldi í mótmælunum
vinn ég gegn því. Þegar við vorum að
byrja mótmælin var heill hópur sem
fór og ræddi við þetta fólk sem var
með læti og það hvarf. Nú er þetta
komið upp aftur, þá er bara að tak-
ast á við það vandamál. Þetta er allt-
af lítill hópur fólks sem veit ekki einu
sinni hverju hann er að mótmæla.“
Hörður segir að mikið af ungum
krökkum sé að kasta í lögregluna. „Sá
hópur kemur og heldur að það eigi
að henda í lögregluna. Það er bara
mótþróaskeið unglinganna og þá er
bara að tala við krakkana því þeir eru
opnir og skemmtilegir,“ segir Hörð-
ur. Hann segir að ekki þurfi að tala
við foreldra krakkanna heldur krakk-
ana sjálfa. „Þegar maður ræðir þetta
við þau og útskýrir málið fyrir þeim
breyta þau hegðun sinni, maður þarf
ekki að fara í þriðja aðila með þetta,“
segir Hörður.
Reyna að stela mótmælunum
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höf-
uðborgarsvæðinu, segir að lögregl-
an reyni að tryggja fyrst og fremst að
mótmælin fari friðsamlega fram. „Við
erum ekki að beita ofbeldi, ég hafna
því alfarið. Við erum hins vegar að
beita valdi, því valdi beitum við ekki
nema það séu skýrar forsendur og
nauðsyn til þess að slíku valdi sé beitt.
Okkar sterkasta vopn í þessum verk-
efnum, sem við höfum verið að tak-
ast á við síðustu vikur og mánuði, er
þolinmæði gagnvart mótmælum og
mótmælendum og góð samvinna við
þá sem skipuleggja friðsæl mótmæli,
til þess að tryggja að þeir komi sjón-
armiðum sínum og viðhorfum á fram-
færi.“ Hann segir að lögreglan verði að
bregðast við eyðileggingu á eigum al-
mennings. „Það sem er að gerast núna
virðist vera það að tiltölulega fámenn-
ur hópur er að taka yfir mótmælin,
stela þeim og nota þetta tækifæri til
þess að slasa lögreglumenn og eyði-
leggja eigur borgarbúa og almennings
í landinu. Það er það sem við okkur
blasir og við því verðum við að bregð-
ast og á því verðum við að taka.“
Ógeðfellt að ógna einstaka
lögreglumönnum
Á síðustu dögum hafa birst blogg-
færslur á netinu þar sem hvatt er til
ónæðis á heimilum lögreglumanna
sem hafa verið í óeirðasveit lögregl-
unnar vegna mótmælanna að und-
anförnu. Stefán er gáttaður á slíkri
framkomu. „Þetta er algjörlega með
ólíkindum að menn leyfi sér að haga
sér með þessum hætti og að beina
þessu gagnvart einstaka lögreglu-
mönnum, ég á ekki orð til að lýsa því
hversu ógeðfellt þetta er.“
Hann segir lögregluna hafa næg-
an mannskap til að taka á aðstæðum
eins og þeim sem hafa verið síðustu
daga. „Við erum alveg undir það bún-
ir að takast á við þau verkefni sem við
okkur blasa og við metum það bara
hverju sinni til hvaða úrræða við
grípum. Við höfum heimildir til að
beita valdi eins og fólk veit og eins og
ég hef ítrekað sagt að það gerum við
ef nauðsynlegt er.“ Hann segir lög-
reglumenn reyna að slökkva í bál-
köstum sem hafa verið tendraðir víða
um miðborgina síðustu daga. „Ef það
er unnt að gera það án þess að skapa
meiri vanda og lenda í hörðum átök-
um við mótmælendur reynum við að
slökkva þessi bál og líka ef þau eru
farin að ógna öryggi. Ef hætta skap-
ast á því að það kvikni í þinghúsinu
þarf engan stjarneðlisfræðing til að
átta sig á því að lögreglan verður að
grípa inn í og tvístra mannfjöldanum
og ná tökum á ástandinu og það var
nákvæmlega sem við gerðum,“ seg-
ir hann um ástæðu þess að lögregla
beitti táragasi í fyrrakvöld.
Kraftaverk að fleiri
slösuðust ekki
Stefán segir að alvarleg staða hafi ver-
ið komin upp þegar ákveðið var að
beita táragasi. Þá hafi ofbeldi gagn-
vart lögreglu verið orðið geigvæn-
legt. Múrsteinum og öðru lauslegu
hafi rignt yfir lögreglu og tveir lög-
reglumenn hafi þá þegar orðið fyrir
meiðslum og verið fluttir á sjúkra-
hús. Að auki hafi eldur verið borinn
að þinghúsinu. „Þá var ekkert annað
hægt að gera heldur en að grípa inn í
með þeim hætti sem við gerðum og
þá var táragasi beitt. Það bar tilætluð
áhrif, fólk fór í burtu og ástandið ró-
aðist í kjölfarið. Ég held að það hljóti
að teljast kraftaverk og vera aðdáun-
arvert gagnvart öllu fólki hér í land-
inu að ekki einn einasti mótmælandi
hafi slasast alvarlega í þessu öllu
saman. Það eru bara lögreglumenn
sem sitja eftir alvarlega slasaðir.“
Boði logason
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
„Ég á ekki orð til að lýsa
því hversu ógeðfellt
þetta er.“
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ársins
mánudagur 10. nóvember 2008 dagblaðið vísir 209. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
skaut upp bónusfána og slapp undan lögreglu:
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Ætlar að slá
út Jordan
Kristrún Ösp stækkar brjóstin
og fer í víking til Englands fólK
fréttir
fréttir
MEira lýðrÆði í ÚKraínu ráðhErrarÆði á íslandi
„Múgurinn
hjálpaði
Mér“
Þjóðin er á
barmi uppþots
Þúsundir mótmæltu
á austurvelli
„ég hrópaði hönd,
og þeir réttu mér
hjálparhönd“
Valdalaust alÞingi í
gíslingu stJórnarinnar
sViptir
rafMagni
fyrir JólalJós
húsbílamönnum fórnað
fyrir jólastemningu
lÆKKaði
laun
og fór
á lEiK
stjórnendur
í 365 á
Emirates
lÖgguhundur
bEit platÞJóf
lífVErðir
daVíðs Eru
ríKislEyndarMál
björn bjarnason
neitar að upplýsa
almennir borgarar
borga brúsann
m
yn
d
ir
J
ó
h
a
n
n
Þ
rö
st
u
r
Pá
lm
a
so
n
hollEndingar
spariféð
handruKKa
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
miðvikudagur 21. janúar 2009 dagblaðið vísir 14. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
BjÖrgÓLFur
thor gegn
krÓnunni
ríkissTJÓrNiN
FELLUr
Fréttir
Fréttir
janúarByLting á
austurveLLi
eLLeFu ára
handtekinn
„ég var Líka
að mÓtmæLa“
kona Barin
með kyLFu
ingiBjÖrg
veikari en
taLið var
„geir er
Búinn að
vera“
m
yn
d
b
jö
rn
b
lö
n
d
a
l
miðvikudagur 21. janúar 20092 Fréttir
Mikil spenna og reiði var á Austur-
velli í gær þegar þúsundir manna
kröfðust þess að ráðamenn þjóðar-
innar segðu af sér umsvifalaust. Al-
þingismenn settu þingið eftir langt
og notalegt jólafrí en hafa ef til vill
ekki verið viðbúnir þeim aðgerðum
sem þeir urðu vitni að langt fram eftir
kvöldi. Í upphafi mótmælanna virtist
allt stefna í friðsöm mótmæli þar
sem mótmælendur fóru eftir tilmæl-
um lögreglunnar og stóðu fyrir aftan
gulan borða í kringum Alþingishús-
ið. Klukkan rúmlega eitt stormuðu
liðsmenn Öskra-hreyfingarinnar inn
Kirkjustrætið með orðinu: „Öskra.
Öskra. Öskra.“ Fljótlega eftir komu
þeirra voru borðarnir klipptir niður
af fólki sem streymdi í átt að Alþing-
ishúsinu með trommum og köllum.
„Vanhæf ríkisstjórn,“ kölluðu mót-
mælendur á meðan alþingismenn
fylgdust með út um glugga. Bak við
glugga hússins sást glitta í óeirða-
sveit lögreglunnar sem var við öllu
búin ef upp úr myndi sjóða.
Þreyttur á að vera kurteis
Sú varð raunin klukkan hálf tvö þeg-
ar mótmælendur streymdu í bak-
garð Alþingishússins og söfnuðust
saman í porti við húsið. Lögreglan
réð ekki við reiða mótmælendur og
var óeirðasveitin kölluð út úr bygg-
ingunni með hjálma og skildi sér
við hlið. Mótmælendur voru með
heimatilbúnar reyksprengjur sem
dreifðu appelsínugulum reyk yfir
allt svæðið og var þá ljóst að fólk var
komið til að láta virkilega í sér heyra.
Grímuklæddur mótmælandi sagði
við blaðamann að hann væri orðinn
þreyttur á að vera kurteis.
Portið fylltist af fólki og á tímabili
leit allt út fyrir að einhverjir mótmæl-
endur myndu verða undir í troðn-
ingnum. Í kjölfarið var piparúða
úðað á fólk sem leitaði aðstoðar hjá
hjálpfúsum tveimur ungum strák-
um sem voru með mjólk og vatn til
að aðstoða þá sem urðu fyrir barðinu
á gasinu. Portið tæmdist á skömm-
um tíma og streymdu mótmælendur
í garðinn sjálfan og kröfðust þess að
ríkisstjórnin myndi víkja.
Barði með gasbrúsa
í höfuð mótmælanda
Á annað hundrað lögreglumanna
myndaði skjaldborg nokkrum metr-
um frá húsinu á meðan fólk krafð-
ist þess að stjórnin skyldi víkja. Allt
var notað til að framkvæma hávaða:
Pönnur, pottar, hjólbörur, flautur,
hækjur og lyklar svo eitthvað sé nefnt.
Flugeldum og eggjum var kastað í átt
að húsinu á meðan lögreglan fjölgaði
í skjaldborginni. Í kringum hundr-
að lögreglumenn voru staddir inni í
garðinum um tíma og restin af liðinu
vítt og breitt í kringum húsið. Súr-
mjólk var kastað yfir óeirðasveitina
sem lét eins og ekkert væri, stóð poll-
róleg og sprautaði piparúða á fólk
sem þótti sýna of mikla hörku. Marg-
ir mótmælendanna stóðu rólegir
fyrir framan skjaldborgina og sumir
beittu kröftum til að ýta á lögregluna.
Ýtt var á hópinn af miklu afli í eitt
skiptið og brást einn lögreglumað-
urinn við með því að berja járnbrúsa
af fullum krafti í höfuð mótmælanda
sem stóð með hendur upp í loftið og
var varnarlaus. Á tímabili leit út fyr-
ir að lögreglan væri að missa stjórn
á ástandinu. Fórnarlömb úðans leit-
uðu hjálpar í sjúkrabílum fyrir utan
garðinn. Að sögn sjúkraflutninga-
manns leitaði þangað á þriðja tug
manns með óþægindi í augum og
húð.
Hrint í jörðina
Einn af mótmælendunum, Hjördís
Þorgeirsdóttir, segir farir sínar ekki
sléttar af samskiptunum við lögregl-
una í Reykjavík. Hún eyddi degin-
um á Austurvelli og mótmælti fram-
göngu ráðamanna þjóðarinnar en
notaðist ekki við trommur né neitt
slíkt heldur klappaði aðeins í takt við
mannfjöldann. Hún segir lögreglu-
mann hafa komið að henni og ráðist
að henni með skildi sem olli því að
hún flaug aftur fyrir sig.
„Það kom kona og hjálpaði mér
upp og síðan labbaði ég aðeins í
burtu. Þá kom hópur lögreglumanna
og einn þeirra lamdi mig í mjöðmina
með kylfu,“ segir Hjördís sem segist
ekkert hafa gert til að reita lögguna
til reiði.
Hjördís varð vitni af því þeg-
ar fleiri mótmælendur voru lamdir
af lögreglunni en hún ætlar að taka
myndir af áverkunum og reyna að
leita réttar síns í málinu.
Blekkingar, lygar og svikar
Hörður Torfason, forsvarsmaður
samtakanna „Raddir fólksins“ segir
að aðgerðirnar komi sér alls ekki á
óvart. „Þetta eru beinar afleiðingar af
gjörðum ríkisstjórnarinnar sem tal-
ar ekki við fólkið í landinu. Það þýð-
ir ekki að fara að snúa blaðinu við
og fara að kenna fólkinu um þetta
ástand hérna, fólk er orðið þreytt á
þessu og reiðin er orðin gríðarleg.“
Hann segir jafnframt að aðgerð-
irnar í gær séu einungis upphafið
af mótmælum komandi daga. „Nú
ætlar fólk að láta ráðamenn heyra
það, það er réttur þinn sem borg-
ari að mótmæla, ef stjórnvöld ætla
að halda áfram heldur fólkið áfram
líka.“ Hann segir það skömm að eng-
inn ráðamaður hafi sagt af sér enn-
þá. „Ég heyri á fólki að það vill halda
áfram næstu daga, sumir vilja koma
hingað með tjöld og hafa umsátur
um Alþingishúsið. Stjórnvöld verða
að skilja að það hefur ekki ein mann-
eskja sagt af sér og þetta er engum að
kenna, á sama tíma er landið að fara
á hausinn þetta er bara blekkingar-
leikur, lygar og svikar, nefndu það
bara.“
Mótmæla fram eftir kvöldi
Undir kvöld virtist ekkert fararsnið á
mótmælendum og taldi lögreglan að
um tvö til þrjú hundruð manns væru
þar samankomnir. Mótmælendur
kveiktu bál um sjöleytið í gærkvöldi
og var öllu lauslegu hent á bálköst-
inn, svo sem viðarbútum, tómum
kaffiílátum og dagblöðum. Lögregl-
an skipti sér ekki af bálkestinum en
stóð vörð við inngang þinghússins.
Mótmælendur tvíefldust þegar
einn þeirra skaut upp flugeldum um
kvöldmatarleytið og stuttu seinna
voru fjölmargir sem kveiktu á rauð-
um handblysum til marks um reið-
ina í þjóðfélaginu.
Um áttaleytið kom stór pitsusend-
ing frá Domino´s í þinghúsið og báru
svangir lögreglumenn þær inn í hús-
ið. Þeir skiptust á að fá sér að borða,
að vonum dauðþreyttir, en ætluðu að
standa vörð á Austurvelli eins lengi
og þörf væri á.
Það er nokkuð ljóst að slík aðgerð
mótmæla hefur ekki sést hér á landi
síðan 1949 þegar Ísland gekk í Atl-
antshafsbandalagið þar sem táragasi
var beitt á Austurvelli og fjöldinn all-
ur af fólki var handtekinn og laminn.
Mótmælin við Austurvöll eru ekki
hætt og munu stigmagnast næstu
daga, að sögn mótmælenda.
JANÚARBYLTINGIN Á AUSTURVELLI
lilja katrín gunnarsdóttir
og Boði logason
blaðamenn skrifa: liljakatrin@dv.is og bodi@dv.is
„Ég heyri á fólki að það
vill halda áfram næstu
daga, sumir vilja koma
hingað með tjöld og
hafa umsátur um Al-
þingishúsið.“
lögregla útötuð í súrmjólk
nokkrir mótmælendur í
þinggarðinum slettu súrmjólk
og skyri á lögreglumenn.
MYnd Heiða Helgadóttir
Mótmælandi bundinn Tveir
lögreglumenn tóku þennan
höndum og sá þriðji fylgdist með.
MYnd gunnar gunnarsson
miðvikudagur 21. janúar 2009 3Fréttir
Mótmælendur handteknir milli 20 og
30 mótmælendur voru handteknir við
alþingishúsið í gær. Lögreglumenn lögðu
mótmælendur í jörðina og bundu hendur
þeirra og fætur svo þeir kæmust ekki á brott.
MYND GuNNar GuNNarssoN
Átök við þinghúsið
Fjölmennt lögreglulið
stóð vörð við þinghúsið.
MYND róbert reYNissoN
Ýtt fram og aftur mikill
troðningur var við viðbyggingu
þinghússins þar sem fjölmennt
lið lögreglumanna og mótmæl-
endur þrýstu hverjir á aðra.
MYND heiða helGaDóttir
miðvikudagur 21. janúar 20094 Fréttir
„Þessi mótmæli sýna bara það sem
mótmæli undanfarnar vikur hafa
sýnt. Það er gríðarleg óánægja í ís-
lensku þjóðfélagi. Bara það að það
skuli koma saman um tvö þúsund
manns á virkum degi til að mótmæla
og standa hálfan daginn sýnir mikla
reiði og óánægju í samfélaginu,“ seg-
ir Einar Már Þórðarson stjórnmála-
fræðingur.
Reiðin eykst
Einar þorir ekki að spá fyrir um hve-
nær efnt verður til kosninga en gerir
ráð fyrir því að mótmæli muni aukast
á næstu vikum og mánuðum.
„Ég geri fastlega ráð fyrir því
að mótmæli muni aukast. Þegar
atvinnuleysi eykst, pyngjan létt-
ist og róðurinn þyngist eykst reið-
in ef engin breyting verður í sam-
félaginu. Mér fannst athyglisvert
að fylgjast með flokksþingi Fram-
sóknarflokksins þrátt fyrir að það
færi friðsamlega fram. Þar var for-
ystunni algjörlega skipt út á einu
bretti og mér finnst það vera speg-
ill af þeirri óánægju sem er í þjóð-
félaginu. Það verður spennandi að
fylgjast með landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins. Ég held að Geir og Þor-
gerður verði ekki kosin með jafnaf-
gerandi hætti og áður.“
Vaxandi örvænting
Björg Eva Erlendsdóttir, ritstjóri
Smugunnar, var viðstödd mótmælin
í gær og segist aldrei hafa fundið fyr-
ir annarri eins stemningu á Austur-
velli. Hún segir loftið hafa einkennst
af örvæntingu.
„Ég þekkti margt fólk á Austurvelli
í gær. Ég þekkti það ekki úr pólitík en
ég þekkti bæði fólk úr félagsskap aldr-
aðra og fólk sem hefur misst vinnuna.
Það er greinilega vaxandi uggur og ég
hef aldrei séð svona stemningu eins
og var í gær. Ég sá fólk sem var hálf-
grátandi. Stundum hefur fólk verið í
baráttuhug en í [gær] á meðan þing-
ið gekk næstum því sinn vanagang
var fólk vonlaust úti. Mín tilfinning
er að það er miklu meiri örvænting
í fólki en áður hefur verið. Ástandið
er óvissara en það hefur áður verið.
Það er alveg á hreinu að mótmæl-
endur gefa sig ekki neitt. Mótmælin
halda áfram að aukast og breiðast út
um land allt.“
Krafa um kosningar
„Mér fannst þetta afskaplega leitt,
það er ekki hægt að segja annað,“
segir Ásta Möller, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins úr Reykjavík, en
hún var, ásamt öðrum þingmönn-
um, stödd á Alþingi í gær þegar
mótmælin áttu sér stað. „Við heyrð-
um hávaðann fyrir utan og þetta
hafði áhrif á umræðuna til að byrja
með,“ segir Ásta.
Aðspurð hvort hún hafi skiln-
ing á málstað mótmælenda segist
hún ekkert hafa á móti því að fólk
láti í sér heyra. „En ofbeldi finnst
mér ekki eitthvað sem við eigum að
líða.“
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður vinstri grænna, var einnig
stödd á þingfundinum í gær og stóð
alls ekki á sama. „Það var verulega
óhugnanlegt að vera inni í þing-
húsinu í gær og heyra þessi læti í
fólkinu. Það skiptir máli hvað rík-
isstjórnin gerir og ef þjóðin fær að
ganga til kosninga er hægt að slá á
mótmælin,“ segir Kolbrún.
„Þolinmæði fólks er á þrotum.
Mótmælin í gær voru krafa um
kosningar og þessi skilaboð komu
afar skýrt yfir til ríkisstjórnar og
þingmanna. Krafan er að lýðræði
fái notið sín. Að stjórnarfarið sé
opið og gagnsætt og ráðamenn átti
sig á því að þeir eru fulltrúar þjóð-
arinnar,“ segir Kolbrún.
KRAFAN ER KOSNINGAR
Kolbrún Halldórsdóttir
Einar Már Þórðarson
„Mín tilfinning er að
það er miklu meiri ör-
vænting í fólki en áður
hefur verið.“
LiLja KatRín GunnaRsdóttiR
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Handteknir mótmælendur
Lögreglan fór með handtekna
mótmælendur í bílakjallara alþingis.
Mynd GunnaR GunnaRsson
Mótmælendur á öllum aldri Þó mótmælendur af yngri
kynslóðinni væru meira áberandi þar sem til átaka kom tók
fólk á öllum aldri þátt í mótmælunum.
Mynd GunnaR GunnaRsson
miðvikudagur 21. janúar 2009 5Fréttir
Rauður loginn brann Þúsundir manna
tóku þátt í mótmælunum. reyksprengja var
sprengd í upphafi mótmælanna og rauður
litur setti sitt mark á atburðina.
Mynd GunnaR GunnaRsson
Piparúðinn hreinsaður burt mót-
mælendur hjálpuðust að við að hreinsa
piparúða úr augum félaga sinna.
Mynd GunnaR GunnaRsson
Fylgst með af brúnni Þingmenn
fylgdust með mótmælunum af brúnni
sem tengir þinghúsið og viðbygginguna.
Mynd RóbeRt Reynisson
„Ég sat á bekk þarna rétt hjá honum
þegar lögreglan fór með hann í burtu,“
segir Pauline McCarthy sem mót-
mælti við Alþingishúsið í gær ásamt
ellefu ára syni sínum, Patrick. Lögregl-
an fór með Patrick upp á lögreglustöð
og þurfti faðir hans að sækja hann
þangað. Pauline segir lögreglu hafa
tilkynnt eiginmanni hennar að atvik-
ið yrði tilkynnt til barnaverndaryfir-
valda.
ellefu ára fréttafíkill
Pauline og Patrick mættu við Alþingi
áður en mótmælin hófust og þar sem
Pauline þjáist illa af gigt aðstoðaði eig-
inmaður hennar hana við að koma sér
fyrir á bekk í Alþingisgarðinum. Þau
mæðgin sátu síðan saman en þegar
mótmælendum fjölgaði fór Patrick að
hafa sig í frammi. Pauline er skosk en
hefur búið á Íslandi í sextán ár.
Patrick segir í samtali við DV að
hann hafi áður mætt á mótmælafundi
með foreldrum sínum og bróður. „Ég
var líka að mótmæla. Allt er orðið svo
dýrt,“ segir Patrick.
Pauline segir son sinn fylgjast mik-
ið með fréttum sem sé í raun ótrúlegt
miðað við ungan aldur hans. „Hann
hefur áhyggjur af því að við missum
húsið og er ósáttur við stjórnvöld,“
segir hún.
Gigtveik í mótmælum
Patrick var samkvæmt fyrirmælum
foreldra sinna vel búinn fyrir mót-
mælin, með bæði hjálm á höfði og
með skíðagleraugu til að vernda sig
fyrir piparúða.
Pauline segist illa hafa getað hreyft
sig vegna gigtarinnar og því hafi hún
ekki getað hlaupið til þegar lögreglan
gekk að syni hennar. Hún segist hafa
séð hann benda til sín og bjóst við að
lögreglumennirnir færu með hann til
hennar en þess í stað gengu þeir með
hann á brott.
„Næst þegar ég sá hann var í sjón-
varpinu þar sem hann var að fara með
lögreglunni,“ segir Pauline sem finnst
undarlegt að lögreglan hafi ekki haft
samband við hana þegar hún var enn
með son hennar við Austurvöll.
ekki settur í fangaklefa
Patrick segist í fyrstu ekki hafa vitað
að lögreglan ætlaði með hann í burtu.
Hann var ekki settur í klefa held-
ur ræddi lögreglumaður við hann.
„Þeir spurðu hvað ég héti og hvar ég
ætti heima. Síðan spurðu þeir hvað
mamma mín héti og hvar hún væri,“
segir hann. Einnig báðu þeir hann
um símanúmer foreldra. Patrick tel-
ur að lögreglan hafi haldið að hann
væri einn síns liðs á mótmælunum.
„Mamma skildi mig ekki eftir,“ segir
hann.
Aðspurður segist Patrick lítið sem
ekkert hafa meitt sig í hamaganginum
við Alþingi. „Ég meiddi mig aðeins í
hnénu,“ segir hann.
Þegar DV hafði samband við lög-
regluna í gærkvöldi fengust þær upp-
lýsingar að lögreglumenn hefðu verið
að vernda drenginn fyrir grjótkasti og
því fært hann brott. Einnig var tekið
fram að alltaf væri tilkynnt til barna-
verndaryfirvalda þegar lögreglan hefði
afskipti af börnum undir 15 ára aldri.
Pauline McCarthy
„MAMMA SKILDI
MIG EKKI EFTIR“
eRla HlynsdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Ég var líka að
mótmæla.“
Færður á lögreglustöðina Lögreglan
fjarlægði Patrick af mótmælunum og fór
með hann á lögreglustöðina þar sem
foreldrum hans var gert að sækja hann.
Mynd bjöRn blöndal
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
fimmtudagur 22. janúar 2009 dagblaðið vísir 15. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
ísland er
stjórnlaust
mótmælendur ruddust inn á samfylkingu
framsókn hugsanlega í rauðgræna stjórn
Ögmundur og Össur funduðu
kjarasamningar í uppnámi
así vill nýja stjórn
leynigÖng frá alþingi
fréttir
Janúarbyltingin setur stJórnarsamstarf í uppnám:
frægir
mótmæla
þorsteinn kragh:
„ég er saklaus“
fólk
landspítali
bannar
facebook
fréttir
Helgi Gunnlaugsson
mánudagur 10. nóvemb
er 2008
2
Fréttir
MótMælin Munu
„Það er rafmögnuð spen
na í loft-
inu og greinileg undirliggj
andi reiði
sem er í gangi í samfélagi
nu,“ segir
Helgi Gunnlaugsson, afb
rotafræð-
ingur og prófessor í félags
fræði við
Háskóla Íslands. „Ástæ
ðan fyr-
ir þessari spennu er fyrst
og fremst
sú að það hefur ekki farið
fram trú-
verðugt uppgjör á því s
em hefur
gerst hér á landinu. Við v
itum ekki
hvert þetta stefnir og þjó
ðin hefur
það á tilfinningunni að þa
ð séu ekki
öll kurl komin til grafar. Á m
eðan al-
menningur fær ekki skýr sv
ör og eft-
ir því sem þessi biðstaða s
em nú er
lengist mun reiðin halda
áfram að
magnast.“
Helgi segir það ekki þu
rfa að
koma á óvart þótt fjölda
mótmæl-
in í miðborginni verði fjö
lmennari
með hverri helginni sem l
íður. „Við
getum búist við því að þet
ta magn-
ist áfram ef þjóðin fær það
á tilfinn-
inguna að hún sitji uppi m
eð skuld-
ir annarra. Þegar við hor
fum fram
á að við blasir fjöldaatv
innuleysi
og vaxandi skuldir heimil
anna þarf
ekki að koma á óvart þótt
það sjóði
upp úr við fjöldamótmælin
.“
Höfum séð óeirðir í
nágrannalöndum
Aðspurður hvort búast me
gi við því
að óeirðir geti brotist út á n
æstu vik-
um eða mánuðum, svarar
Helgi því
að hann voni að stjórnv
öld vinni
vinnuna sína og sefi reiðin
a með því
að gefa fólki skýr svör. „Í D
anmörku,
Frakklandi og víðar hafa
brotist út
götuóeirðir, en maður vill
ekki spá
neinu slíku hér á landi. E
n yfirvöld
verða að horfa framan í
þá miklu
reiði sem geisar núna og þe
tta mikla
högg sem við höfum orðið
fyrir. Yf-
irvöld þurfa að eiga einlæ
gt samtal
við þjóðina um stöðuna, þ
ví ef ekk-
ert er að gert eigum við e
ftir að sjá
meiri læti en við höfum sé
ð hingað
til. Það skiptir máli hvern
ig haldið
verður á spilunum næstu
vikurnar,“
segir hann.
Bónusfáninn á þinghúsinu
„Hugmyndin var sú að sý
na hverj-
ir stjórna landinu í rauni
nni,“ seg-
ir hinn rúmlega tvítugi
fánamað-
ur sem dró Bónusfánann
að húni
á alþingishúsinu á laug
ardaginn
en hann vill ekki koma fr
am undir
nafni. Ástæðuna segir han
n vera þá
að hann sé aðeins einn mó
tmælandi
af þúsundum og vilji ekki
persónu-
gera sig umfram aðra mót
mælend-
ur. Með uppátæki sínu vir
ðist hann
hafa þjappað mótmælen
dum enn
frekar saman og hann se
gist ekk-
ert þekkja það fólk sem
aðstoðaði
hann á flóttanum af þaki þ
inghúss-
ins. Hann komst undan á
frækileg-
an hátt þrátt fyrir nokkurn
viðbún-
að lögreglunnar. Félagi h
ans, sem
hélt við stigann sem fánam
aðurinn
klifraði upp, var hins vega
r ekki svo
heppinn. Honum var ha
ldið fram
eftir degi af lögreglunni.
Undir hælnum á auðmönnu
m
Talið er að um fjögur til se
x þúsund
mótmælendur hafi komið
á Austur-
völl á laugardaginn til þes
s að sýna
andúð sína á ríkjandi stjór
nvöldum.
Í fyrstu var um hefðbund
inn mót-
mælafund að ræða þar se
m meðal
annars Hörður Torfason
hélt tölu.
Mótmælin mögnuðust þó
fljótt upp
þegar mómælendur sýnd
u andúð
sína á stjórnvöldum me
ð því að
henda eggjum og tómötum
í alþing-
ishúsið. Lögreglan stóð hjá
og fylgd-
ist aðgerðalaus með. Fljót
lega náðu
mótmælin þó hámarki þe
gar fána-
maðurinn klifraði upp á þ
inghúsið
og flaggaði Bónusfánanu
m í mót-
mælaskyni. Með því vildi h
ann und-
irstrika að ríkisstjórnin væ
ri undir
hælnum á auðmönnum.
Ósýnilegur viðbúnaður
Jafnvel þótt lögreglumenn
hafi ekki
verið mjög sýnilegir á Aus
turvelli á
laugardag hafði lögreglan
á höfuð-
borgarsvæðinu svokallaða
n ósýni-
legan viðbúnað. Samkvæ
mt heim-
ildum DV ákvaðu lögregluy
firvöld að
hafa minni sýnilega löggæs
lu á laug-
ardag, heldur en var við
mótmæli
vörubílstjóra við Rauðavat
n í vor, af
ótta við að upp úr myndi sj
óða. Hins
vegar var fjöldi lögregluma
nna ýmist
á bakvakt eða samankomi
nn á lög-
reglustöðinni við Hlemm, t
ilbúnir til
þess að vera kallaðir út m
eð litlum
fyrirvara að Austurvelli ef
til átaka
kæmi á milli lögreglumann
a og mót-
mælenda.
Hlutirnir eru ekki
óhreyfanlegir
„Það sem við vonuðum
st til að
myndi gerast var að fólk á
ttaði sig á
því að það geti haft áhrif á u
mhverfið
í kringum sig. Það að skipt
a um fána
í eina mínútu er ekki stór
varanleg
breyting en sýnir engu að
síður að
hlutirnir eru ekki óhreyfan
legir,“ seg-
ir fánamaðurinn en hann
aðhyllist
sjálfur kenningar stjórnleys
ingja.
Sjálfur var fánamaðurinn
með
stúkusæti, það er að se
gja, fast-
ur uppi á þaki, þegar upp
úr sauð á
milli mótmælenda og lögre
glu á bak
við alþingishúsið og seg
ir sjónar-
spilið hafa verið magnað.
Samstaða
mómælenda hafi verið mik
il. Í fyrstu
heyrði hann mótmælend
ur hrópa
slagorð, síðan þéttist hó
purinn í
kringum lögregluna og ge
rði henni
erfitt fyrir.
Gríðarleg samstaða
„Þremur mótmælendum,
sem ég
þekki ekki neitt, tókst að
koma sér
upp á svalirnar þar sem þa
u reyndu
að reisa stigann við,“ segir
fánamað-
urinn sem horfði á mó
tmælend-
urna lenda í átökum við
lögreglu-
mann sem elti þau upp á
svalirnar.
Að lokum á lögreglumað
urinn að
hafa aðstoðað einn mótmæ
landann
við að það reisa stigann og
í kjölfarið
klifraði fánamaðurinn nið
ur. Hon-
um tókst aftur á móti að fo
rðast lög-
reglumanninn og stökk i
nn í bak-
garð þinghússins. Þar hljóp
hann að
alþingisveggnum þar sem
tveir aðrir
mótmælendur aðstoðuðu
hann við
að komast yfir vegginn. „
Ég hróp-
aði hönd, og þeir réttu m
ér hjálp-
arhönd. Ég þekkti þessa m
enn ekki
neitt,“ segir hann en eftir
að hann
komst yfir vegginn hljóp h
ann aftur
inn í þvöguna.
Frækinn flótti
Að sögn fánamannsins
var hon-
um strax hrint í jörðina þe
gar hann
komst inn í þvöguna. Síð
ar heyrði
Fánamaðurinn dró bónusfán
a að húni á
alþingi til þess að sýna fram
á að ríkisstjórnin
væri undir hælnum á auðval
dinu.
Handtekinn vitorðsmaður
fánamannsins, sem hélt stig
anum fyrir
hann, var handtekinn á laug
ardaginn.
Mynd JÓHann ÞröstUr
PálMasonvalUr
Grettisson oG
valGeir örn raGnarsso
n
blaðamenn skrifa: va
lur@dv.is og valgeir@dv.is
mánudagur 10. nóvemb
er 2008 3
Fréttir
Magnast
hann að þar hafi óeinken
niskædd-
ur lögreglumaður verið að
verki.
„Um leið og ég datt kom m
úgur-
inn skyndilega að okkur og
hjálpaði
mér á lappir,“ segir fánam
aðurinn
sem komst á hlaupum í bu
rtu.
Hann segist aldrei hafa
orðið
vitni að öðru eins en sjál
fur hefur
hann margoft mótmælt m
eð þeim
hætti sem hann gerði á la
ugardag-
inn. Meðal annars var h
ann ann-
ar mannanna sem stöðv
uðu flug-
vél á Keflavíkurflugvelli
þar sem
Paul Ramses, flóttamaður
sem var
sendur til Ítalíu vegna D
yflinnar-
samþykktarinnar, var inn
anborðs.
Sú aðgerð var gríðarlega u
mdeild á
sínum tíma.
Hugsa, gera, tala
Að sögn fánamannsins
er hann
ánægður með að alm
enningur
hafi tekið stöðu gegn rík
isvaldinu
á laugardaginn. Hann s
egir það
mestu máli skipta að alm
enningur
sýni hverjir það eru sem r
aunveru-
lega ráða landinu.
Hann gagnrýnir einnig
frétta-
flutning fjölmiðla af mótm
ælum og
segir þá oftar en ekki gefa
þá mynd
sem ríkisvaldinu sé þó
knanleg.
Aðspurður hvað hann vil
ji fá út úr
mótmælunum segist hann
vilja rík-
isstjórnina frá. Núverandi
kerfi hafi
beðið skipbrot og það sé e
kki hægt
að halda áfram á sömu bra
ut án rót-
tækra breytinga.
„Ég vil koma því á framf
æri að
fólk telur að hin þekkta
og viður-
kennda leið við mótmæ
li sé að
hugsa, tala, gera. Ég vil m
eina að
það sé betra að hugsa, g
era, tala,“
segir fánamaðurinn að l
okum en
hann er hvergi hættur og
vonar að
fólk muni fjölmenna í m
ótmælin
næsta laugardag.
Gríðarlegur mannfjöldi mik
ill fjöldi fólks
safnaðist saman á austurvel
li á laugardag-
inn. Talið er að fjöldinn hafi v
erið á bilinu
fjögur til sex þúsund manns
.
Mynd RóbeRt Reynisson
Ægivald Lögreglan var vopnu
ð
heljarinnar kylfum á mótmæ
lunum
sem meðal annars fjölskyldu
fólk sótti.
Mynd JóHann ÞRöstuR
PálMason
Valdbeitingarhundur
sýnir mátt sinn
Fréttavefur dv.is birti um he
lgina myndband sem sýnir n
otkun valdbeitingar-
hunda lögreglunnar. á mynd
bandinu sést sérþjálfaði lögr
egluhundurinn Skolli
sem er í eigu lögreglunnar í
reykjavík. myndbandið er sv
iðsett en í því má sjá
Skolla hlaupa þjóf uppi, sem
nær þó að koma sér inn í bif
reið og loka dyrunum.
glugginn á bílnum er hins ve
gar opinn og stekkur Skolli á
hinn meinta þjóf, bítur í
handlegg hans, dregur hann
út um glugga bílsins og yfir
bugar manninn sem
liggur í jörðinni þar til lögreg
lumaður kemur á vettvang.
ríkislögreglustjóri hefur hin
s vegar sent frá sér yfirlýsing
u vegna fréttar dv um að
lögreglan ætti valdbeitingar
hunda. Í yfirlýsingu ríkislögre
glustjóra, segir að frétt
dv sé uppspuni. Í yfirlýsingu
nni segir orðrétt: „Lögreglan
á ekki valdbeitingar-
hunda né notast hún við raf
byssur í störfum sínum.“
skolli Sýnir mögnuð tilþrif og
yfirbugar þjóf með miklum l
átum.