Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Qupperneq 16
föstudagur 23. janúar 200916 Fréttir
Mótmæli hafa löngum verið eitt af
verkfærum almennings til að sýna
í verki andstöðu sína eða stuðning
við málefni, oftar en ekki af pólitísk-
um toga. Aðgerðir þeirra sem mót-
mæla geta birst í nokkrum myndum;
oft er um fjöldagöngur að ræða, eða
mannsöfnuð þar sem fólk hittist á
fyrirfram ákveðnum stað og hlýðir á
ræður sem fluttar eru málefni þess til
stuðnings.
Þó mótmæli á Íslandi hafi yfir-
leitt farið friðsamlega fram og of-
beldi samfara þeim sé nýlunda, er sú
ekki raunin á erlendri grundu. Ef lit-
ið er til Evrópu seinni tíma má finna
fjölmörg tilfelli aðgerða almennings
sem ekki er á eitt sáttur við ríkisstjórn
lands síns – í heild sinni eða einstaka
ákvarðanir hennar – sem hafa tek-
ið á sig mynd ofbeldisfullra átaka
með meðfylgjandi eyðileggingu. Í
vestrænum ríkjum telst til tíðinda ef
mannfall verður í mótmælaaðgerð-
um, þrátt fyrir að ofbeldi sé beitt af
hálfu beggja, yfirvalda og mótmæl-
enda. Nýlegasta dæmið um mann-
fall í mótmælum átti sér stað á Grikk-
landi, og varð það sem eldur á neista
óánægju íbúa landsins sem þreytt-
ir eru á spillingu og, að þeirra mati,
vanhæfri ríkisstjórn.
Friðsöm mótmæli
Friðsöm mótmæli geta verið árang-
ursríkt tæki til að vekja ríkisstjórn
af Þyrnirósarblundi og gera sýni-
lega óánægju sína og kröfu um nýjan
skipstjóra í brúnni. Áhrif friðsamra
mótmæla verða meiri því fleiri sem
þátttakendurnir eru, en ofbeldisfull
mótmæli fárra vekja gjarna meiri at-
hygli.
Gott dæmi um friðsöm mótmæli
sem báru árangur átti sér stað í Úkra-
ínu frá nóvember 2004 til janúar 2005.
Í þeim var mótmælt úrslitum forseta-
kosninga sem að mati eftirlitsmanna
lituðust meira en góðu hófi gegndi af
spillingu, hótunum í garð kjósenda og
beinu kosningasvindli.
Mótmælin voru runnin undan rifj-
um Viktors Jutsjenkós og stuðnings-
manna hans, enda hafði hann farið
halloka gegn Viktor Janúkovitsj í afar
umdeildum kosningum. Mótmælin
breiddust út til fjölda borga í Úkra-
ínu, en fjölmennust urðu þau í Kænu-
garði, höfuðborg landsins, þar sem
um fimm hundruð þúsund mótmæl-
endur gengu að úkraínska þinghúsinu
og héldu margir á rauðgulum flöggum
sem var litur framboðs Jutsjenkós.
Undir vökulu auga erlendra eft-
irlitsmanna og alþjóðasamfélagsins
var efnt til nýrra kosninga 26. desem-
ber 2004 og stóð Jutsjenkó eftir sem
óvefengjanlegur sigurvegari þeirra
kosninga. Með friðsömum fjölda-
mótmælum hafði almenningur ár-
angur sem erfiði.
Nefskatti mótmælt í Bretlandi
31. mars 1990 brutust út í Lundúnum
verstu óeirðir sem átt höfðu sér stað í
borginni í heila öld. Aðdragandi óeirð-
anna var friðsamleg mótmæli fjölda
Breta sem flykktust út á götur Lund-
úna vegna nefskatts sem breska ríkis-
stjórnin, undir forystu Margrétar That-
cher, skellti á þjóðina.
Að sögn aðstoðarlögreglustjóra
Lundúna á þeim tíma, Davids Meyn-
ell, skyggðu aðgerðir „3.000 til 3.500
einstaklinga minnihlutahópa“ á ann-
ars friðsöm mótmæli. Hvort sem það
var rétt mat eða ekki var þegar upp
var staðið búið að handtaka yfir fjög-
ur hundruð manns, eitt hundrað og
þrettán manns höfðu slasast og tut-
tugu hross að auki.
Bílum var velt og borinn að þeim
eldur og mátti sjá svartan reyk stíga til
himins yfir Trafalgar-torgi.
Fjórum neðanjarðarlestarstöðv-
um var lokað í öryggisskyni og lög-
reglan mátti hafa sig alla við í átök-
um við mótmælendur, sem köstuðu
múrsteinum og dósum að henni. Stór
hluti miðborgarinnar var girtur af og
slökkviliðsmenn sem reyndu að ráða
niðurlögum elda fóru ekki varhluta af
reiði mótmælendanna.
Þegar mest lét voru mótmælendur
um 100.000 talsins, eignatjón var met-
ið á um 400.000 sterlingspund. Mót-
mælunum var fylgt eftir með umfangs-
minni aðgerðum víða um Bretland.
Óvinsældir nefskattsins höfðu áhrif
á fall Margrétar Thatcher, sem sagði
af sér í nóvember 1990 eftir ellefu ár í
embætti.
Eftirmaður Margrétar, John Maj-
or, fyrirskipaði að nefskattinum yrði
kastað fyrir róða. Í hans stað var sett-
ur á staðbundinn skattur sem tengdist
virði fasteigna.
Mótmæli sem mistókust
Gott dæmi um mótmæli sem snerust
í höndum mótmælenda má finna í
atburðum sem áttu sér stað í Chicago
1968 þegar flokksþing demókrata var
haldið dagana 26. til 29. ágúst. Þegar
þar var komið sögu var ekki langt um
liðið síðan Robert F. Kennedy hafði
verið ráðinn af dögum, en hann hafði
viðrað þá hugmynd að sækjast eftir
útnefningu flokksins til forsetakjörs.
Þegar upp var staðið stóð val-
ið á milli Eugenes McCarthy öld-
ungadeildarþingmanns og Huberts
Humphrey varaforseta.
McCarthy fór fyrir þeim sem and-
vígir voru stríðinu í Víetnam, sem
þá var í algleymingi, og Humphrey
var fylgjandi stefnu sitjandi forseta,
Lyndons B. Johnson.
Alþjóðlegi æskulýðsflokkurinn (e.
Youth International Party) hafði árið
fyrr hafið skipulagningu æskulýðs-
hátíðar sem haldin yrði í Chicago á
sama tíma og flokksþing demókrata
KolBeiNN þorsteiNssoN
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Mótmælin breiddust út til fjölda borga í Úkraínu,
en fjölmennust urðu þau í Kænugarði, höfuðborg
landsins, þar sem um fimm hundruð þúsund mót-
mælendur gengu að úkraínska þinghúsinu, og
héldu margir á rauðgulum flöggum, sem var litur
framboðs Jutsjenkós.
MótMæli - leið alMennings
Til að koma afdráttarlausri skoðun sinni á aðgerðum eða aðgerðaleysi stjórnvalda eru mótmæli gjarna
þrautalending almennings. Mótmæli geta verið af mörgu tagi; friðsamar göngur og stöður, þögul eða hávær
eða ofbeldisfull og eyðileggjandi. Ekki er gefið að mótmæli beri árangur og þau geta snúist í höndum mót-
mælenda. Einnig er ekki með góðu hægt að bera saman mótmæli í lýðræðisríki og mótmæli í ríki sem er í
klóm einræðisherra eða valdaklíku.
sofía í Búlgaríu Mótmælendur
krefjast afsagnar ríkisstjórnarinnar.