Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Síða 17
föstudagur 23. janúar 2009 17Fréttir yrði haldið. Fleiri samtök höfðu einn- ig tilkynnt að þau hygðust láta sjá sig á þeim tíma. Borgarstjóra Chicago, Richard J. Daley, var umhugað um að sýna demókrötum og fjölmiðlum hve miklum árangri hann hafði náð í stjórn borgarinnar og hugnaðist ekki að stríðsandstæðingar fjölmenntu til borgarinnar. „Lögregluóeirðir“ „Engar þúsundir fá að koma til borg- ar okkar og taka völdin á strætunum okkar eða í borginni á ráðstefnunni okkar,“ sagði Daley við fjölmiðla þegar hann var spurður um stríðs- andstæðingana. Í tilraun til að koma í veg fyrir fjöldamótmæli neitaði hann að gefa út leyfi sem heimiluðu lögleg mótmæli. Daley bætti um betur því þeg- ar um tíu þúsund mótmælendur komu til Chicago mætti þeim 23.000 manna lið lögreglu og þjóðvarð- liða. Dagurinn, 28. ágúst 1968, hef- ur síðan þá verið kallaður dagurinn þegar „lögregluóeirðirnar“ áttu sér stað. Nafngiftin er fengin úr Walker- skýrslunni þar sem tekið var saman það sem raunverulega átti sér stað, byggt á sjónarvottum og öðrum upplýsingum. Lætin upphófust um miðjan dag þegar ungur maður dró að húni bandaríska fánann í Grant-garði, þar sem þúsundir mótmælenda höfðu safnast saman. Lögreglan ruddist í gegnum hópinn og hóf að berja manninn og yfir hana rigndi mat- arleifum, grjóti, þvagfylltum pokum og múrbrotum. Þetta leiddi til þess að lögreglan slóst við mótmælendur og mótmælendur við lögregluna. Táragasský yfir borginni Leiðtogi einna samtakanna sem mótmæltu i Grant-garði, Tom Hayd- en, hvatti mótmælendur til að yfir- gefa garðinn því ef lögreglan beitti táragasi, þar sem að með því móti yrði tryggt að ef lögreglan beitti tára- gasi yrði borgin einnig fyrir því. Það gekk eftir því svo miklu táragasi var beitt að íbúar á Hilton-hóteli fóru ekki varhluta af því, þótt þeir væru innandyra. Engum var hlíft og vegfarendur jafnt sem mótmælendur fengu sinn skerf af táragasi. Frægasta myndbirt- ing mótmælendanna er þegar lög- reglan barði á mótmælendum fyr- ir framan Hilton-hótel, fyrir framan suðandi myndatökuvélar sjónvarps- stöðvanna. Um kvöldið skipti frétta- stofa NBC á milli mynda af lögregl- unni að lumbra á mótmælendum og sigurgleði Huberts Humphrey sem hafði fengið útnefningu demókrata- flokksins. Þegar upp var staðið voru mót- mælendur sannfærðir um að þjóðin myndi styðja málstað þeirra, ekki síst í ljósi framgöngu lögreglunnar. Mikil varð undrun þeirra þegar skoðana- kannanir sýndu yfirgnæfandi stuðn- ing við aðgerðir Daleys og þrátt fyrir óvinsældir stríðsins í Víetnam nutu andstæðingar þess enn minni vin- sælda. Himneskur friður og blóðbað Mótmælin á Torgi hins himneska friðar, Tiananmen-torgi í Beijing í Kína, fóru fram árið 1989 en það ár féllu nokkrar sósíalistaríkisstjórnir víða um lönd. Tilefni þeirra var dauði Hus Jaobang, embættismanns sem var lýðræðissinni og fylgjandi frjálsu markaðskerfi. Að kvöldi útfarardags Hus höfðu um 100.000 manns safnast saman á torginu eða í grennd við það. Þrátt fyrir að hópurinn hefði ekkert eigin- legt fyrirfram ákveðið markmið, var hann að mestu á móti ægivaldi ríkis- stjórnarinnar og spillingu og krafðist lýðræðislegra endurbóta. Mótmælin stóðu frá 15. apríl til 4. júní og enduðu með blóðbaði þegar kínverski herinn fékk skipun um að rýma torgið. Að kvöldi dags 3. júní hófst áhlaup kínverska hersins. Þá spruttu fram hermenn með brugðna byssustingi, sem skutu af handahófi beint af augum eða til hliðanna. Að sögn Charlies Cole, sem varð vitni að atburðinum, skutu hermenn af sjálf- virkum rifflum inn í mannfjöldann með þeim afleiðingum að margir borgarar féllu og aðrir særðust. Námsmenn, sem leitað höfðu skjóls í strætisvögnum, voru dregnir út og barðir og jafnvel þeir sem gerðu tilraun til að yfirgefa torgið fengu að finna fyrir bareflum hermanna. Að sögn Charlies Cole streymdu skrið- drekar inn á torgið að morgni 4. júní og og var ekið yfir allt sem varð á vegi þeirra; farartæki og fólk voru kramin undir beltum þeirra. Um fimmleyt- ið morguninn eftir var búið að rýma torgið. Tölur um fallna og særða eru mjög á reiki, enda mikill munur á opinber- um tölum og niðurstöðum annarra. Rauði krossinn í Kína sagði í fyrstu að 2.600 hefðu látið lífið, en sú breyttist í 241 í kjölfar þrýstings frá þarlendum stjórnvöldum. Fjöldi látinna er allt frá 241, að sögn kínverskra stjórn- valda, upp í 4.000 til 6.000, að sögn Edwards Timberlake í bókinni Red Dragon Rising. Fjöldi þeirra sem særðust er á bilinu 7.000, að sögn kínverskra stjórnvalda, til 30.000, að sögn ónefnds kínversks embættis- manns í skýrslu sem gefin var út af fulltrúaþingi Bandaríkjanna 2005. Róstusamir tímar fram undan Ef fer sem horfir má vænta þess að víða verði róstusamt á næstu misser- um. Sérfræðingar í málefnum Aust- ur-Evrópu spá því að almennir borg- arar víða í þeim heimshluta eigi eftir að fjölmenna á götum borga og mót- mæla versnandi efnahag og afkomu, niðurskurði hins opinbera og aukn- um álögum. Nú þegar hefur komið til fjölda- mótmæla í Tékklandi þegar róttækir hægrisinnar ætluðu að skeyta skapi sínu á minnihlutahópi sígauna í nóv- ember. Við það tækifæri sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu. Mótmælin á Grikklandi, sem urðu í kjölfar dauða unglings af völdum lögreglu, eru vart yfirstaðin þegar ný mótmæli hefjast og nú í Aþenu gegn innflytjendum og erlendum verka- mönnum. Og til að bæta gráu ofan á svart lokuðu bændur þjóðveginum á milli Aþenu og Þessaloníku til að mótmæla lækkun verðs á landbún- aðarframleiðslu. Sérfræðingar nefna Búlgaríu og Rúmeníu sem lönd þar sem vænta megi rósta í náinni framtíð og Eystra- saltslöndin Litháen og Lettland. 01 Mjanmar – gegn stjórnvöldum, 2007 02 Taíland – gegn stjórnvöldum, desember 2008 03 Norður-Írland – vegna afskipta Breta, 1972 04 Frakkland – gegn niðurskurði í menntamálum, janúar 2009 05 Úkraína – vegna kosningasvindls, 2004 – janúar 2005 06 Bandaríkin, Chicago - stríðsrekstri í Víetnam mótmælt, ágúst 1968 07 Bretland – nýjum nefskatti mótmælt, mars 1990 08 Kína, Beijing – gegn stjórnvöldum, apríl-júní 1989 09 Rússland, Októberbyltingin, 1917 10 Grikkland – stjórnvöldum og spillingu mótmælt, desember 2008 11 Lettland – aðgerðaleysi stjórnvalda mótmælt, janúar 2009 12 Litháen – skattahækkunum mótmælt, janúar 2009 13 Ísland – gegn stjórnvöldum eftir efnahagshrun, október 2008 – 14 Búlgaría – stjórnvöldum mótmælt, janúar 2009 15 Tíbet – kínverskum afskiptum mótmælt, mars 2008 MótMæli - leið alMennings 01 02 03 04 05 06 07 09 08 10 11 12 13 14 15 MiKiL MóTMæLi GeGN sTjóRNvöLduM Barið á munki í Mjanmar Munkar fóru fyrir viðamiklum mótmælum gegn stjórnvöldum í Mjanmar. vilníus í Litháen Mótmælandi leiddur á brott af óeirðalögreglunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.