Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Qupperneq 18
föstudagur 23. janúar 200918 Helgarblað
STRÍÐIÐ Á STÖÐ 2
„Okkur var hent út eins og glæpa-
mönnum. Það eru þakkirnar. Það
lá í loftinu að við hefðum gert eitt-
hvað stórkostlegt af okkur,“ segir Sig-
mundur Ernir Rúnarsson. Honum
var í gær sagt upp störfum sem for-
stöðumanni fréttasviðs Stöðvar tvö.
Elínu Sveinsdóttur var sömuleiðis
sagt upp en hún starfaði sem yfirút-
sendingarstjóri og hefur unnið hjá
Stöð tvö frá því stöðin var sett á lagg-
irnar árið 1986.
Elín hefur því starfað hjá stöð-
inni í 23 ár. Sigmundur hóf þar störf
1987, vann á öðrum fjölmiðlum á ár-
unum 2001 til 2004, en sneri þá aft-
ur og hefur verið þar síðan. Þau Elín
og Sigmundur eru hjón og misstu því
báðar fyrirvinnur heimilisins starfið
sama daginn.
Nafnleynd og launaleynd
Sigmundur segir að næst á dagskrá
hjá honum sé að sinna fjölskyldunni.
„Ég ætla fyrst og fremst að njóta
samvista við fjölskylduna og hlúa
að börnunum mínum, heilbrigðum
og veikum. Ég er reyndar þegar bú-
inn að fá tilboð úr pólitíkinni og stórt
starf, og það á hálfum degi, þannig
að ég kvíði ekki framtíðinni.“
Hann vill þó ekki gefa upp hvaða
stjórnmálaflokkur hefur leitað til
hans: „Nú skulum við gæta nafn-
leyndar,“ segir Sigmundur. Hann fæst
þó til að viðurkenna að starfstilboðið
komi úr fjölmiðlageiranum.
„Ég á annars svo mikið af óskrif-
uðum ljóðum og sögum að ég
hugsa að ég byrji nú á að koma
einhverjum skikk á það,“ seg-
ir Sigmundur.
Spurður hvort þau hjón-
in fái greiddan uppsagnar-
frest segir hann: „Já. Ég vona
það allavega,“ en Sigmundur
telur að uppsagnarfresturinn
sé allt að sex mánuðir. Hann
vill þó ekki gefa upp hvað þau
höfðu í laun hjá 365. „Það rík-
ir launaleynd hjá fyrirtækinu. Ég
er víst enn á launum þannig að
ég má ekki segja til um það. En við
vorum á ágætum launum, eðlilega
eftir öll þessi ár. Ekki síst í ljósi
þess að stjórnendur fyrir-
tækisins hafa allt til
dagsins í dag verið
ánægðir með störf
okkar,“ segir Sig-
mundur.
Tákngervingur
auðjöfrapress-
unnar
Starfsmenn 365
sem blaðamað-
ur ræddi við
sögðu upp-
sögn Sigmund-
ar mögulega
skiljanlega
sparnaðar-
aðgerð enda
væri hann
væntanlega á
himinháum
launum. Annað gilti hins vegar um
Elínu. „Hún er óumdeild og ótrúlega
vel liðin. Þetta er algjörlega óskiljan-
legt,“ segir starfsmaður
fyrirtækisins sem
treysti sér ekki
til að koma
fram undir
nafni.
Sýn Sig-
mundar er af
sama toga.
„Ég held að
uppsögn-
in á henni
hljóti að vera
einhver ósann-
gjarnasta
uppsögn í
sögu
Stöðvar 2. Hún hefur verið hryggjar-
stykkið í fréttastofu Stöðvar 2, límið
og heilinn,“ segir hann.
Sigmundur er hins vegar heldur
sáttur við að vera laus frá Stöð 2. „Ég
fann fljótlega yfir hátíðirnar í hvað
stefndi og í sjálfu sér fagna ég þess-
um málalyktum því ég upplifi mig
sem frjálsan mann í dag og það sama
á við um konuna mína,“ segir hann.
Að mati Sigmundar er hann nú
laus undan oki auðjöfranna. Marg-
ir hafa skilið þau orð hans þannig
að hann hafi verið beittur þrýst-
ingi auðmanna í starfi sínu á Stöð 2.
Hann segir það hins vegar ekki rétt.
„Ég á við að á síðustu dögum hafa
mjög margir mótmælendur Íslands
gert mig að tákngervingi auðjöfra-
pressunnar og það hefur mér fund-
ist ósanngjarnt því ég hef blogg-
að manna mest gegn ríkjandi
ástandi. Í dag fannst mér ég
vera laus undan þessu
oki og geta hallað mér
að nýju íslandi og
uppbyggingu þess,“
segir hann.
Poppaðar fréttir
Spurður hvernig
hann hafi skynjað
að uppsögn hans
hafi verið við-
búin segir Sig-
mundur: „Það
voru bara komn-
ar nýjar áhersl-
ur. Það átti að
poppa fréttirn-
ar upp en ég
er tiltölulega
af gamla skól-
anum í frétta-
mennsku. Það á að reka fréttastofuna
algjörlega í ljósi vinsælda. Ef hlutirn-
ir eru vinsælir á að sýna þá, annars
ekki. Mínar áherslur eru að sýna Ís-
landssöguna og mannkynssöguna
eins og hún kemur fyrir hverju sinni,“
segir Sigmundur.
Honum þykir lítið til nýrra stjórn-
enda á Stöð 2 koma. „Þarna eru
komnir inn reynslulitlir menn sem
vilja engan mótþróta. Þeir eiga erf-
itt með að heyra mótrök reynslu-
meira fólks sem hefur starfað þarna
um áratuga skeið,“ segir Sigmund-
ur. Spurður hvaða menn hann eigi
við vill hann ekki nefna nein nöfn en
segir þó: „Sérstaklega á ég þá við rit-
stjóra opins glugga.“
Innanhússmál
Opni glugginn, svokallaði, á Stöð
2 er samheiti yfir þá dagskrárliði
sem sýndir eru í opinni dagskrá,
utan fréttatíma. Þar á meðal er Ís-
land í dag og Mannamál, þáttur Sig-
mundar sem lagður hefur verið nið-
ur. Freyr Einarsson tók við ritstjórn
opna gluggans nú um áramótin.
Áður hafði hann starfað hjá fyrirtæk-
inu við önnur verkefni.
Blaðamaður DV ræddi við fjöl-
marga bæði núverandi og fyrrver-
andi starfsmenn Stöðvar 2 í gær.
Almenn óánægja virðist ríkja með
starfshætti Freys og samskipti hans,
eða öllu heldur samskiptaleysi, við
samstarfsmenn.
„Þessi maður kann ekki að eiga
samskipti við fólk,“ segir starfsmað-
ur stöðvarinnar sem ekki vildi koma
fram undir nafni af ótta við að missa
starfið. Annar sagði: „Hann kynnti
sig ekki fyrir neinum þegar hann
byrjaði. Hann bara fór inn á skrif-
stofu og sat þar.“
Þegar blaðamaður bar samstarfs-
erfiðleika upp á Frey sagði hann að
samskiptavandi milli hans og ann-
arra starfsmanna stöðvarinnar sé á
misskilningi byggður. Hann vill ekki
tjá sig nánar um hvernig samskiptin
hafa verið og segir að um innanhúss-
mál sé að ræða.
Aldrei ausið úr
viskubrunninum
Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri
Stöðvar tvö, er síður en svo sáttur við
hvernig Sigmundur hefur skilið við
Stöð 2. Allir helstu vefmiðlar fjölluðu
í gær um orð Sigmundar þar sem
hann sagðist feginn að vera laus und-
an oki auðvaldsins. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra er einn þeirra
sem hafa ritað um þessa athugasemd
og skilur hana ekki á annan hátt en
ErlA HlyNsdóTTIr
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Ég held að uppsögnin
á henni hljóti að vera
einhver ósanngjarn-
asta uppsögn í sögu
Stöðvar 2“
sparnaður ari Edwald segir uppsagnir á stöð 2
helgast af skipulagsbreytingum og sparnaði, en
sigmundur Ernir hafi verið dýr starfskraftur.
MyNd GuNNAr GuNNArssoN
samskiptaleysi freyr Einarsson segir alltaf erfitt
að koma á nýjan vinnustað. Hann ætlar að bæta
samskipti sín við aðra starfsmenn stöðvar 2. Hér
er hann ásamt eiginkonu sinni, Ellý Ármannsdótt-
ur, sem vinnur á fréttastofu stöðvar 2 og Vísis.
MyNd EGGErT JóHANNEssoN