Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Page 19
föstudagur 23. janúar 2009 19Helgarblað
STRÍÐIÐ Á STÖÐ 2
eigendavaldið hafi þrýst á Sigmund
Erni við fréttavinnslu.
Óskari Hrafni finnst óbjóðandi
starfsfólki stöðvarinnar að þurfa að
sitja undir því að slíkir starfshættir
séu þar viðhafðir enda sé það fjarri
lagi.
Einnig furðar hann sig á því að
Sigmundur Ernir skuli telja sig hæf-
ari en núverandi stjórnendur á Stöð
2 sem hann kallar reynslulausa.
„Ég hef haft Sigmund Erni sem yfir-
mann. Ég hef líka starfað við hliðina
á honum. Ég hef aldrei lært neitt af
honum. Hann hefur aldrei haft neitt
fram að færa sem hefur gagnast mér
og á þessum fjórum mánuðum sem
ég hef starfað sem fréttastjóri Stöðv-
ar 2 hefur hann aldrei ausið millilítra
út brunni sinnar miklu visku,“ segir
hann.
Vanþakklæti Sigmundar
Aðrir starfsmenn stöðvarinnar, bæði
núverandi og fyrrverandi, hafa geng-
ið lengra og sagt Sigmund Erni ekki
vera mjög virkan í sínu starfi heldur
líti á sem svo að þekkt andlit hans
nægi til að hann haldi vinnunni.
Óskar Hrafn bendir einnig á að á
meðan Sigmundur starfaði hjá Stöð
2 hafi hann fengið rými til að skrifa
tvær metsölubækur en ævisaga
Magneu sem kom út nú fyrir jólin
auk þess sem Sigmundur skrifaði
ævisögu Guðna Ágústssonar, fyrrver-
andi formanns Framsóknarflokks-
ins, meðan hann starfaði hjá stöð-
inni. „Að hann skuli fara frá stöðinni
á þennan hátt er alveg ótrúlegt van-
þakklæti. Ég skora á hann að finna
annað fyrirtæki sem myndi sýna
honum annan eins skilning, annað
eins svigrúm og fara fram á jafnlít-
ið vinnuframlag fyrir þessi laun. Eitt
stykki metsölubók er ekki hrist fram
úr erminni,“ segir hann.
Sagt upp í feðraorlofi
Uppsagnir Sigmundar og Elínar
voru þó ekki þær einu sem tilkynnt-
ar voru hjá Stöð 2 í gær því starfsfólki
fréttaskýringaþáttarins Kompáss var
einnig sagt upp og þátturinn lagður
niður. Jóhannes Kristjánsson, ritjóri
Kompáss, Kristinn Hrafnsson, frétta-
maður þáttarins og Ingi R. Ingason,
framleiðandi hans, misstu því allir
vinnuna í gær.
Jóhannes er reyndar í feðraorlofi
sem stendur en uppsögnin hans tek-
ur gildi um leið og því lýkur. Hann
segist mjög undrandi á því að Komp-
ás hafi verið lagður niður. „Að sjálf-
sögðu erum við svekktir. Við höfum
verið að vinna að mörgum mikil-
vægum málum. Okkur þykir vænt
um þáttinn og við erum stoltir af því
sem við höfum verið að gera,“ segir
hann en þátturinn hefur
fengið Edduverðlaunin
sem besti sjónvarps-
þátturinn. Fyrst var
fjallað um Byrgis-
málið í Kompási
og í kjölfar um-
fjöllunarinnar
komst það í há-
mæli. Í þættin-
um var einnig
fjallað um barn-
aníðinginn
Ágúst Magn-
ússon sem
gekk í flasið á
starfsmönnum
Kompáss eftir
að svara aug-
lýsingu sem
hann taldi vera
frá stúlku undir
lögaldri.
Þunginn farinn
Kristinn Hrafn seg-
ir þá þó engan veg-
inn hætta að sinna þjóðfélagsmál-
unum. „Við ætlum áfram að vera
blaðamenn. Þó þessi vettvangur sé
lagður niður höldum við áfram,“ seg-
ir hann. Kristinn bendir á að áherslu-
breytingar hafi átt sér stað á Stöð
2 að undanförnu. „Áherslan
er á efni sem okkur sýnist á
léttari nótum en þunginn
sem hefur verið í Komp-
ási.“
Jóhannes segir þá
hafa unnið af miklum
heilindum og lagt
mikið á sig til að
fletta ofan af mik-
ilvægum málum.
Hann tekur und-
ir með Kristni
um að þeir
leggi blaða-
mennskuna
ekki á hill-
una. Hann
stefnir á að
þeir haldi
áfram
sam-
bandi
við
sína
heim-
ildamenn. „Þeir hafa treyst okkur og
við ætlum að halda áfram að vinna
með þeim,“ segir hann.
Starfsmenn Kompáss leggja
áherslu á að halda starfi sínu áfram á
öðrum vettvangi og hafa þegar feng-
ið sér netfangið kompas@internet.is
þar sem fólk getur sett sig í samband
við þá.
Kompás heyrði einnig undir opna
gluggann á Stöð 2 en starfsmenn
þáttarins kannast ekki við að hafa
átt mikil samskipti við Frey Einars-
son og segjast því ekki geta tjáð sig
um þau.
Erfiðar uppsagnir
Eftir að tilkynnt hafði verið um þenn-
an fjölda uppsagna á Stöð 2 var boð-
að til starfsmannafundar klukkan
eitt í gær. Óskar Hrafn var þungbú-
inn þegar blaðamaður DV náði tali af
honum stuttu áður en starfsmanna-
fundur hófst skömmu eftir hádegið í
gær. Þá hafði þegar verið tilkynnt um
uppsagnirnar. „Þetta er alvörumál.
Það er ekkert grín hvernig fólk tekur
Kvíða engu sigmundur Ernir rúnarsson segist þegar
hafa fengið boð frá stjórnmálaflokki um að ganga til
liðs við hann og hið sama hafi forsvarsmenn fjölmiðla-
fyrirtækis gert. Elín sveinsdóttir starfaði hjá stöð 2 frá
því stöðin var fyrst sett á laggirnar fyrir 23 árum.
Mynd Gunnar GunnarSSon
Góður fundur Lillý Valgerður Pétursdóttir
segir starfsfólk stöðvar 2 hafa nýtt
starfsmannafundinn í gær til að fá svör við
spurningum sínum en margir eru uggandi
um sinn hag.
Mynd Gunnar GunnarSSon
Framhald á
næstu opnu