Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Síða 47
Það má vel segja að Kaka hafi bjarg-
að knattspyrnunni með því að hafna
ofurtilboði Manchester City. Tilboð-
ið hljóðaði upp á 247 milljónir punda
með launum og öllu sem er auð-
vitað ekkert nema fáránlegt. Ótrú-
legt ríkidæmi City gerir því kleift að
bjóða svona svimandi upphæðir og
er spurningin ekki hvort heldur hver
fær næsta milljarða tilboð.
Árið 2001 blöskraði fótboltaspek-
úlöntum þegar Real Madrid greiddi
tæplega 46 milljónir punda fyrir
Zinedine Zidane. Fannst mönnum þar
hámarki ruglsins náð á árunum 2000-
2001 þar sem fleiri og fleiri tilboð upp
á um og yfir 30 milljónir punda sáust
en sjö af fimmtán dýrustu félagaskipt-
um heims komu á þeim árum. Síðan
þá hefur þessum ofurtilboðum fækk-
að og er það helst Manchester United
sem uppfærir listann reglulega.
Enskir efstir
Listanum yfir 15 dýrustu félagaskiptin
er skipt tiltölulega bróðurlega á milli.
Þökk sé Manchester United og fjór-
um mönnum þeirra á listanum sem
er það hæsta en enska knattspyrnan
er með sex manns á lista, Ítalía með
fimm og Spánn fjóra. Real Madrid
sér um hlutina á Spáni en Galactic-
os-stefna þeirra að næla í eina stór-
stjörnu á hverju ári veldur því að þrír
eru á lista frá þeim.
Zidane „fyrirgefið“
Aldrei hefur verið greitt meira fyrir
leikmann en þegar Zinedine Zidane
gekk í raðir Real Madrid árið 2001.
Tæplega 46 milljóna punda greiðsla
spænska liðsins stöðvaði prentvélar
um allan heim og fannst, eins og áður
segir, mörgum nóg komið. Fjaðrafok-
ið í kringum Zidane fékk tíma til að ró-
ast því á næstu þremur árum gerðist
fátt sem taldist jafnmarkvert og það.
Ekki fyrr en Wayne Rooney var keypt-
ur 18 ára til Man. United á 27 milljónir
punda fór allt af stað aftur.
Real Madrid og Zidane hefur verið
„fyrirgefið“ ef svo má að orði komast í
gegnum árin. Þó aðallega vegna þess
að enginn hefur náð að komast ná-
lægt Zidane í greiðslu og sætta menn
sig vel við að þetta knattspyrnugoð
gnæfi yfir öllum öðrum. Nú sjö árum
síðar gerir enginn tilkall til toppsætis-
ins þegar heimurinn er gjörbreyttur
en fyrir heimskreppuna var sægur af
peningum. Nýjasti maðurinn á listan-
um, Robinho, var þrettán milljónum
punda frá toppnum.
Kaka eygði toppinn
Tilboðið í Kaka upp á 108 milljón-
ir punda hefði auðveldlega komið
honum á toppinn. Meira en helmingi
dýrari en Zidane. Að hann hafi bjarg-
að knattspyrnunni með því að neita
tilboðinu er ekki fjarri lagi. Löng-
um hafa gagnrýnendur sem standa
fyrir utan knattspyrnuna gagnrýnt
peningana í fótboltanum en margir
þeirra skilja ekki hversu stór íþrótt-
in er.
Vissulega er hægt að spyrja sig
hvort einn leikmaður sé 30 milljóna
punda virði og hvort eigi að greiða
honum ríflega 100.000 pund á viku.
Það eru samt orðin viðmiðin fyrir
allra bestu leikmennina. Ólíklegt er
að það hækki í bráð enda aðeins brot
af liðunum í heiminum sem getur
greitt þannig fjárhæðir. Spurningin
er samt alltaf: Hvað gerir City? Þetta
lið sem gerir ekki einu sinni tilkall til
Evrópusætis í ensku deildinni hefur
fjármuni til að senda knattspyrnuna
út fyrir öll velsæmismörk.
Peningarnir eru á Englandi
Árin 2000-2001 var það Ítalía sem
var með peningana. Lazio markvisst
keypti sér titilinn þar í landi 2001
með stórum kaupum og fylgdu Juv-
entus og Inter í kjölfarið. En þetta
fyllirí Ítalanna entist aðeins í þessi
tvö ár. Nú er það England sem ræð-
ur för peningalega. Manchester Un-
ited hefur reglulega eytt fúlgum fjár
og á fjóra menn á listanum. Nú síð-
ast hífði það Dimitar Berbatov upp í
sjöunda sætið.
Chelsea var þó það lið sem hækk-
aði viðmiðin á Englandi með komu
Romans Abramovich. Lundúnaliðið
er kannski aðeins með einn mann á
topp 15 listanum en það hefur ekk-
ert haft fyrir því undanfarin ár að
eyða um og yfir 20 milljónum punda
í leikmenn eins og það væri að kaupa
sælgæti á þriðjudegi.
Chelsea-verðbólgan
Auknir fjármunir Chelsea virkuðu
eins og verðbólga á enskan mark-
að. Lið sem voru að selja Chelsea
leikmann vissu alveg að það gæti
borgað hvað sem var og lét það því
borga upp fyrir haus. Manchester
United fékk til dæmis að finna fyr-
ir þeirri verðbólgu þegar það sóttist
eftir Michael Carrick fyrir tímabilið
2006-2007. Sautján milljónir punda
var verðmiðinn því Tottenham vissi
að United sárvantaði mann og hafði
efni á honum.
Tottenham fékk svo sjálft að
kenna á verðbólgunni þegar það
keypti framherjann Darren Bent frá
Charlton. Þar fóru sautján milljón-
irnar fyrir Carrick allar í framherja
sem ekkert hefur getað.
City-verðbólgan
Nú er komið nýtt lið sem borgar ná-
kvæmlega það verð sem beðið er
um. Manchester City. Liðin á Eng-
landi höfðu áhyggjur og það rétt-
mætar af Chelsea og hvernig það
hækkaði allar greiðslur, bæði félaga-
skiptagreiðslur og launagreiðslur. Nú
skjálfa menn hins vegar á beinun-
um yfir fjármunum City því það sem
gerðist hjá Chelsea er strax byrjað og
það tvöfalt.
Chelsea hefur þó allavega séð
sóma sinn í að kaupa góða og þekkta
leikmenn og borgað vel fyrir þá.
Chelsea hafði grunn til að byggja á
en City hefur gjörsamlega ekkert að-
dráttarafl. Því tókst að kaupa Rob-
inho sem sá ekkert annað en pen-
inga en þurfti strax að kyngja stoltinu
þegar Kaka neitaði liðinu. Í stað-
inn hefur City snúið sér að manni
eins og Craig Bellamy og borgar fyr-
ir hann 14 milljónir punda. Mað-
ur sem keyptur var fyrir ári á 7,5 og
hefur verið meira og minna meiddur
síðan. Átján milljónir síðan í efnileg-
an Hollending, Nigel De Jong, á í ein-
hverjum heimi að teljast eðlilegt og
svo eru það launagreiðslurnar.
Þegar fyrst var rætt um að City
ætlaði að kaupa Bellamy og Scott
Parker af West Ham var talið að laun
þeirra á viku ættu að vera 90.000
pund. Það er í grennd við laun Wa-
ynes Rooney, Ronaldos, Lampards,
Terrys og Gerrards. Hvernig ætlar
City að réttlæta svoleiðis vitleysu? Æ,
já. Það þarf þess ekki. Það á peninga
og því ræður það för.
föstudagur 23. janúar 2009 47Sport
BALLESTEROS Á BATAVEGI golfgoðsögnin seve Ballesteros er bjartsýn
eftir góðar fréttir frá læknum eftir nýafstaðna heilaskurðaðgerð. Þessi fimmfaldi stór-
mótasigurvegari hefur gengist undir fjórar aðgerðir vegna krabbameins í höfði á
síðasta ári. „sem betur fer eru horfurnar góðar,“ segir hinn 51 árs spánverji sem held-
ur áfram í geislameðferð næstu daga. „Læknarnir vinna frábært starf og mér líður
betur og betur á hverjum degi.“ Ballesteros segir á vefsíðu sinni að hann vinni hart
að því að ná heilsu með þolgæði og ákveðni að vopni. Hann segist finna fyrir mikl-
um velvilja og fá hundruð skilaboða frá fólki sem geri hann hrærðan og þakklátan
enda skili þessi stuðningur sér í batanum.
HATTON GEGN DE LA HOYA? Breska hnefaleikastjarnan ricky Hatton er búin
að fá nóg af þófinu í Manny „Pac Man“ Pacquiao sem ekki enn hefur staðfest áætlað-
an súperbardaga þeirra í maí. aðstoðarfólk Hattons er nú í samningaviðræðum við
Oscar de La Hoya og floyd Mayweather jr. um hugsanlega bardaga seinna á árinu.
Pacquiao er sagður vilja stærri hlut en Hatton fyrir bardaga sem myndi gera þá þá
báða talsvert ríkari en þeir eru nú þegar. Helmingurinn virðist ekki duga Pac Man sem
segist þó vilja berjast við Hatton „án milliliða“ hvað sem það þýðir. Ef Hatton mætir
de La Hoya eða Mayweather í staðinn má reikna með hnefaleikaatburði af bestu sort
með tilheyrandi fjölmiðlafári.
TIppAð fYRIR TíkALL
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
BANEITRUÐ BIKARHELGI
Kaka-saga fór ekki framhjá neinum. Brasilíski knattspyrnumaðurinn hafnaði
sannkölluðu ofurtilboði og segja sumir að hann hafi með því bjargað knatt-
spyrnunni. Hefðu félagaskiptin gengið í gegn væri Kaka auðveldlega dýrasti
knattspyrnumaður sögunnar. Þótt fjármunirnir séu orðnir meiri í boltanum
hefur listinn yfir þá 15 dýrustu breyst lítið síðustu sjö árin. Meiri
peningum er varið í miðlungsmenn sökum þess sem má kalla
verðbólgu ríkra liða.
MEÐALMENN
á fúLGUR
fjáR
1. Zinedine Zidane frá juventus til real
Madrid árið 2001 - 45,62 milljónir punda
2. Luís Figo frá Barcelona til real Madrid
árið 2000 - 37 milljónir punda
3. Hernán Crespo frá Parma til Lazio árið
2000 - 35,5 milljónir punda
4. Gianluigi Buffon frá Parma til
juventus árið 2001 - 32,6 milljónir punda
5. Robinho frá real Madrid til Manchest-
er City árið 2008 - 32,5 milljónir punda
6. Christian Vieri frá Lazio til Inter árið
1999 - 32 milljónir punda
7. Dimitar Berbatov frá tottenham til
Man.united árið 2008 - 30,75 milljónir
punda
8. Andriy Schevchenko
frá aC Milan til Chelsea árið 2006 - 30
milljónir punda
9. Rio Ferdinand frá Leeds til Man.
united árið 2002 - 29,1 milljón punda
10. Gaizka Mendieta frá Valencia til
Lazio árið 2001 - 29 milljónir punda
11. Ronaldo frá Inter til real Madrid árið
2002 - 28,49 milljónir punda
12. Juan Sebastian Veron frá Lazio til
Man. united árið 2001 - 28,1 milljón punda
13.Pavel Nedved frá Lazio til juventus
árið 2001 - 27,3 milljónir punda
14. Wayne Rooney frá Everton til Man.
united árið 2004 - 27 milljónir punda
15. Marc Overmars
frá arsenal til Barcelona árið 2000 - 25
milljónir punda
Dýrustu leikmennirnir
Bjargaði boltanum Kaka
neitaði auðjöfrum City.