Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2009, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2009, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 19Sviðsljós Bruce genginn út! Victoria Beckham er heldur betur djörf í nýjustu auglýsingunni frá tískurisanum Armani. Þar er Victoria í efnislitlum undirfötum einum klæða og situr fyrir í ögrandi stellingu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Victoria situr fyrir á undirfötunum fyrir Armani en nýja myndin er töluvert djarfari en þær sem á undan komu. Eiginmaður Victoriu, fótboltahetjan David Beckham, hefur líka setið léttklæddur fyrir hjá Armani en talið er að hjónin hafi gert auglýsinga- samning við tískurisann sem hljóðar upp á 32 milljónir dala, eða 3,6 milljarða króna. Það voru tískuljósmyndararnir Mert Alas og Marcus Piggott sem tóku myndirnar líkt og þær fyrri tvær. Það kom mörgum á óvart þegar Vict- oria ákvað að sitja fyrir á undirfötunum því þriggja barna móðirin hefur margoft kvartað yfir því að líkami hennar sé ekki nægilega fallegur. Djörf á brókinni Beckham á brókinni Nýja auglýsingin frá Armani. Victoria Er þriggja barna móðir. Ættingjar og nánustu vinir leikkonunnar Natöshu Richardson voru viðstaddir jarðarför hennar sem fór fram í New York-fylki nálægt búgarði fjölskyldunnar á sunnudaginn. Létt virtist vera yfir fjölskyldunni þrátt fyrir mikla sorg og mátti sjá bros á vör hjá Liam Neeson og sonum þeirra hjóna, Micheal og Daniel. Nokkur þekkt andlit mátti sjá við athöfnina þar á meðal Meryl Streep, Alan Rickman, Timothy Dalton, Holly Hunter, Uma Thurman og Ralph Fiennes. Natasha kvödd Jarðarför Natöshu Richardson: Natasha kvödd Fjölskyldumeðlimir samankomnir í jarðarför Natöshu Richardson. Meryl Streep Lét sig ekki vanta. Vinkona kvödd Alan Rickman, Holly Hunter og Timothy Dalton voru öll viðstödd jarðarför Natöshu Richardson. Uma og Arpad Busson Voru viðstödd jarðarförina. KOMDU Í ÁSKRIFT Við bjóðum nýjum áskrifendum tilboð; tímaritið allt árið um kring sent heim daginn áður en það kemur í verslanir og það með 20% afslætti. Eina sem þarf að gera er að hafa samband við áskriftardeildina í síma 515 5500 eða senda vefpóst á netfangið askrift@birtingur.is og við göngum frá áskriftinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.