Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Side 2
Guðjón Páll Einarsson, íbúi við Einarsnes, er ekki ánægður með framferði Guðmundar Böðvarssonar, vagnstjóra Strætós, sem hefur stundað það að bakka inn í innkeyrslur í göt- unni til þess að snúa við í stað þess að aka götuna á enda. Guðjón sakar Guðmund um að hafa ekið á hann og kyrrstæðan bíl í göt- unni eftir að lögreglu hafði verið gert viðvart. Guðmundur lýsir atvikinu á annan hátt. föstudagur 15. maí 20092 Fréttir hitt málið Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni Orrustan um byr n Mikil átök brutust út í stofnfjár- eigendahópi Byrs í aðdraganda aðalfundar sjóðsins á miðviku- dag. Skilanefnd Landsbankans, sem fór með 7,6 prósenta hlut en gat aðeins nýtt fimm prósenta hlut í atkvæðagreiðslu vegna laga um sjóði, ætlaði að framselja félagi tengdu Lárusi Finnbogasyni, formanni skilanefndarinn- ar, þriðjung hlutar síns. Jafnframt ræddi skilanefndin við aðra fylkinguna um hverjir skyldu skipa sæti á lista og gætu myndað nýja stjórn í sjóðnum. Sala stofn- fjárhlutarins gekk til baka eftir að greint var frá henni opinberlega. Jóhanna áfram n Jóhanna Guðrún söng sig inn í hjarta Evrópubúa á þriðjudags- kvöld og tryggði Íslandi sæti í lokakeppni Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva. Spenn- an var magnþrungin þegar búið var að tilkynna níu af tíu þjóðum sem komust áfram án þess að Ísland hefði verið nefnt á nafn. Fjölskylda Jóhönnu kom saman til að fylgjast með. Sverrir Helgason, afi Jóhönnu, var spennur og líka 11 barnabörn hans sem fylgdust með. „Þetta eru 10 strákar og ein stelpa, það er Jóhanna Guðrún,“ sagði Sverrir við DV og skellti upp úr. „Hún leggur þá alla sjó- manni,“ bætir hann við stoltur. Lúxusferð kampavínskLúbbs n Eiginkonur nokkurra helstu út- rásarvíkinga íslensku þjóðarinnar héldu í mikla lúxusferð til borgar- innar Muscat í Óman á þriðju- dagskvöld. Þær ætla að dvelja í vellystingum á fimm stjörnu hóteli sem heitir Chedi fram á sunnudag. Um er að ræða svokallaðan kampavínsklúbb sem farið hefur árlega saman í vorferð síðustu árin. Meðal þeirra kvenna sem eru í ferðinni eru Guðrún Eyjólfsdóttir, eiginkona Lýðs Guðmundssonar Bakka- bróður, Þuríður Reynisdóttir, eiginkona Ágústs Guðmundssonar, Arndís Björns- dóttir, eiginkona Sigurðar Einarssonar, Linda Stefánsdóttir, fyrrverandi eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar, og Sigríður Sól Björnsdóttir, eiginkona Heiðars Más Guðjónssonar Novatormanns og dóttir Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmála- ráðherra, auk nokkurra fleiri sterkefnaðra kvenna. ný vinstristJórn n Tveggja vikna löngum stjórnarmyndunarviðræð- um Samfylkingar og vinstri- grænna lauk með því að nýr stjórnarsáttmáli var kynntur til sögunnar síðasta sunnudag. Ráðherrarnir sem héldu fyrsta ríkis- stjórnarfundinn á Akureyri tveimur dögum síðar voru orðnir tveimur fleiri en mynduðu ríkisstjórnina nokkrum dögum áður. Fyrir lá að skera niður í ríkisfjárlögum og koma skikki á efna- hagsmálin. Eitt fyrsta stóra verkefnið er að ákveða hvort Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu eða ekki og tekur þingið ákvörðun um það í sumar. bOLtinn rúLLar á ný n Knattspyrnuáhugamenn tóku gleði sína á ný þegar boltinn byrjaði að rúlla. Eins og alltaf mátti treysta því að óvænt úrslit litu dagsins ljós á meðan úrslit annarra leikja urðu eftir bókinni. Nýliðar Stjörnunnar skelltu sér á toppinn eftir fyrstu umferðina með sigri á spútn- ikliði síðasta árs, Grindvíkingum, í efstu deild karla. Í 1. deild karla töpuðu svo tvö þeirra liða, sem spáð var í toppbaráttu, óvænt fyrir liðum sem fyrirfram voru talin til minni spámanna. Markaregnið varð þó hvergi meira en í efstu deild kvenna þar sem þrjú lið hófu keppni með því að skora sex eða fleiri mörk gegn keppinautum sínum. 2 1 miðvikduagur 13. maí 20098 Fréttir TölvupósTur afhjúpar svein og skilanefndina Sveinn MargeirssonJón Kr. Sólnes Arnari Bjarnasyni Samkvæmt tölvupóstum sem DV hefur undir höndum hefur Sveinn Margeirsson verið í miklum tengsl- um við skilanefnd Landsbankans vegna framboðs síns til stjórnar BYR í dag. Samkvæmt pósti sem Sveinn sendi 1. maí segir hann að fundur- inn með skilanefndinni hafi verið hinn ágætasti og hægt sé að fullyrða það að vilji sé hjá skilanefndinni að verja hagsmuni BYR. „Skilanefnd- in leggur áherslu á að stjórnin verði „vinnustjórn“. Það er lykilmál núna um helgina að finna fólk sem er mjög „bankavant“ til að koma inn í stjórn- ina,“ segir Sveinn í tölvupóstinum og bætir svo við að óskastaða væri að finna konu(r) sem voru á öðru leveli í bönkunum og hafa mikla reynslu af samningaviðræðum við lánardrottna, skuldara og fleiri aðila sem erfitt get- ur verið að umgangast.. „Mat okkar Rakelar er að ef við getum stillt upp stjórn með fólki frá okkur og „ofur-bankavönu“ heið- virðu fólki muni Landsbankinn styðja þann lista án athugasemda og jafnvel vinna í að tryggja stuðning annarra stórra stofnfjáreigenda,“ bætir Sveinn við. Skilanefndin stjórnar hópi Sveins Tveir hópar hafa boðið sig fram til að fara með stjórn BYR. Sveinn Mar- geirsson fer fyrir öðrum þeirra og Jón Kr. Sólnes hinum. Guðmundur Geir Gunnarsson, sem býður sig fram með hópi Jóns Kr. Sólnes, fullyrðir að Hörður Arnarson, Arnar Bjarnason og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir séu fulltrúar skilanefndar Landsbankans. Þau þrjú ásamt Sveini og Ingunni Guðmundsdóttur bjóða sig fram á móti hópi Jóns Kr. Sólnes.Í samtali við DV í gær þrætti Sveinn Margeirs- son fyrir það að þrír fulltrúar í fram- boði hans hefðu verið tilnefndir af skilanefnd Landsbankans. „Það er al- gerlega fráleitt,“ segir Páll Benedikts- son, upplýsingafulltrúi skilanefndar, aðspurður hvort skilanefndin hafi til- nefnt þrjá fulltrúa í stjórn Sveins. Salan gekk til baka Sala skilanefndar Landsbankans á 2,6 prósenta hlut sínum í BYR til Reykja- víkur Invest gekk til baka á mánu- dag. Samkvæmt heimildum DV hafði Lárus Finnbogason, formaður skila- nefndar Landsbankans, samband við Arnar Bjarnason, eigenda Reykjavík- ur Invest, í síðustu viku og bað hann að yfirtaka 2,6 prósenta hlut skila- nefndarinnar í BYR. Söluverð bréf- anna er talið hafa verið nálægt hálfum milljarði króna. Skilanefnd Lands- bankans fundaði síðan á mánudags- kvöld og var salan á BYR-hlutnum til Reykjavíkur Invest dregin til baka. Í samtali við DV hafnar Páll Benedikts- son, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, því alfarið að Lárus hafi haft samband við Arnar. Lárus vék „Í þessu tilfelli var það óheppi- legt að þetta var komið svona langt án þess að skilanefndin hafi veitt samþykki,“ segir Páll. Hann tekur þó fram að ef skilanefndarmenn tengj- ast þeim aðilum sem verið sé að selja til víki þeir. Lárus Finnbogason hafi vikið sæti í þessu máli. Eins og DV greindi frá í gær sagðist Lárentsínus Kristjánsson, sem situr í skilanefnd Landsbankans, ekki hafa komið að þessu máli þar sem hann hafi ver- ið staddur erlendis í síðustu viku. Nokkrum klukkustundum eftir að Lárentsínus hafði tjáð sig um málið kom tilkynning frá skilanefnd Lands- bankans um að skilanefndin hefði hafnað sölunni. Allt falt Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, sagðist í gær ekki hafa rætt við Lárus. Segir Gunnar að starfsmaður skilanefndar hafi farið út fyrir sitt umboð. Nú sé hins vegar búið að vinda ofan af því þar sem sal- an hafi ekki gengið í gegn. Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt að hluturinn sé auglýstur segir Gunnar svo ekki vera. „Það er verið að reyna að fá besta verðið fyrir eignir. Stundum er gengið til samninga um það. Það er ekki allt- af auglýst. Það er allt til sölu og allt falt fyrir rétt verð,“ segir hann. Tengsl milli Arnars og Lárusar Arnar Bjarnason er eigandi Reykja- víkur Invest. Eins og áður var nefnt hafði Lárus Finnbogason samband við Arnar í síðustu viku og bauð hon- um 2,6 prósenta hlut skilanefndar- innar í BYR. Lárus er endurskoðandi Reykjavíkur Invest. Arnar situr í mál- efnanefnd miðstjórnar Framsóknar- flokksins og er sagður náinn trúnað- armaður Guðna Ágústssonar. Arnar starfaði hjá SPRON á árunum 1997 til 2004. Frá árinu 2004 hefur Arnar verið framkvæmdastjóri Reykjavík Capital ehf. Lárus er líka endurskoð- andi þess félags. Lárus ávítti NordVest Um vorið 2007 framkvæmdi Fjár- málaeftirlitið (FME) athugun á starfsháttum NordVest. Athugunin beindist að ýmsum þáttum í rekstri NordVest eins og innra eftirliti, að- skilnaði starfssviða og regluvörslu. Fjármálaeftirlitið gerði síðan alvar- legar athugasemdir við starfsemi NordVest. Þó var málinu ekki vísað til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra. Lárus Finnbogason var á þess- um tíma stjórnarformaður FME. Heimildarmenn sem DV ræddi við sem störfuðu á fjármálamarkaði þeg- ar FME ávítti NordVest segjast hafa furðað sig á því á þeim tíma hversu vel NordVest slapp. Nokkrum mán- uðum síðar keypti Sparisjóður Mýra- sýslu (SPM) NordVest. Var nafni Nor- dVest síðar breytt í Reykjavík Capital og var Arnar Bjarnason gerður að forstjóra félagsins. Samkvæmt frétt í Markaðinum vegna sölunnar segir að rekstur NordVest hafi alla tíð gengið brösuglega. Samkvæmt ársreikningi SPM eru eignir NordVest metnar á 108 milljónir króna. NordVest selt Kaupþingsstjórum Fyrir stuttu sagði Pressan frá því að þrír fyrrverandi Kaupþingsmenn hefðu fest kaup á NordVest. DV fjall- aði síðasta haust um tvo þeirra. Frosti Reyr Rúnarsson var forstöðumað- ur verðbréfamiðlunar Kaupþings og stofnaði einkahlutafélagið FRR ehf. í sömu viku og Kaupþing var þjóðnýtt. Einnig afsalaði hann eiginkonu sinni húseign þeirra. Hinn er Hannes Frí- mann Hrólfsson, fyrrverandi aðstoð- arframkvæmdastjóri fjárstýringar og markaðsviðskipta Kaupþings. Hann afsalaði líkt og Frosti húsi sínu til eig- inkonu sinnar við fall Kaupþings. Tíu hópar voru sagðir koma að kaupunum á NordVest. Helgi S. Guðmundsson, einn af forkólfum S- hópsins og fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans og Seðla- bankans, var sagður einn fjárfest- anna. Einnig var félagið Teton sagt fara með virkan eignarhlut í Nord- Vest. Gunnlaugur M. Sigmundsson, stjórnarformaður Icelandair, er einn eigenda Teton. Salan á NordVest er þó háð samþykki FME. Í samtali við DV sagði Bernhard Þór Bernhardsson, útibússtjóri sam- einaðs útibús SPM og Kaupþings í Borgarnesi, að NordVest hafi verið selt hæstbjóðanda. Lárus tengdur Framsókn Finnur Ingólfsson, þáverandi við- skiptaráðherra, skipaði Lárus í stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) þegar það tók til starfa árið 1999. Lárus er skráð- ur í Framsóknarflokkinn og er talinn hafa tengst S-hópnum. Lárus sat í stjórn Fjármálaeftirlits- ins (FME) frá stofnun árið 1999 og til loka árs 2007 þegar hann óskaði eft- ir að láta af störfum. Hann var jafn- framt stjórnarformaður FME frá byrj- un árs 2007 til loka ársins þegar hann lét af störfum. Landsbankinn byrjaði með Icesave-reikningana 10. október 2006. Hálfu ári síðar voru viðskipta- vinir Icesave orðnir 75 þúsund í Bret- landi. Á þeim tíma var Lárus stjórnar- formaður FME og hefði því átt að geta komið í veg fyrir vöxt Icesave. Auk þess að starfa sem formaður skilanefndar Landsbankans er Lár- us yfirmaður endurskoðendasviðs og eigandi Deloitte á Íslandi. Meðal stærstu viðskiptavina Deloitte eru út- rásarfyrirtækin Alfesca, Össur, Bakka- vör og Exista. Hefur Deloitte séð um ársreikninga þessara fyrirtækja und- anfarin ár. „Mikill árangur hefur orðið í starfi Fjármálaeftirlitsins á liðnu starfsári og hafa stjórnendur og starfsfólk þess sýnt framsýni og frumkvæði til þess að stuðla að öflugu og skilvirku eft- irliti,“ sagði Lárus í ræðu á fundi hjá FME rétt áður en hann lét af störfum í lok árs 2007. Jón Sigurðsson, tók síð- an við stjórn FME, af Lárusi í upphafi árs 2008. ANNAS SigMuNdSSoN blaðamaður skrifar: as@dv.is „Það er lykilmál núna um helgina að finna fólk sem er mjög bankavant.“ Framsóknarmaður arnar situr í málefnanefnd miðstjórnar Fram- sóknarflokksins og er sagður náinn trúnaðarmaður guðna Ágústssonar. Á hálum ís Samkvæmt heimildum dv bauð Lárus Finnbogson, formaður skila- nefdnar Landsbankans, arnari Bjarnasyni 2,6 prósenta hlut skilanefndarinnar í BYr. Lárus var tilnefndur í stjórn Fjármálaeftir- litsins árið 1999 af Finni ingólfssyni. miðvikudagur 13. maí 200954 Fólkið Ljósmyndarinn, tískudrottn- ingin og fagurkerinn Nína Dögg Gunnarsdóttir fetar í fótspor margra Íslendinga um þess- ar mundir og hefur ákveðið að flytjast af landi brott. Ætlar Nína að flytja til Lúxemborgar en ástæða flutninganna ku vera sú að unnusta hennar, Matthí- asi Ásgeirssyni. sem nýlega út- skrifaðist úr Háskólanum, hafi boðist þar starf. Ekki sakar að tengdaforeldrar Nínu eru einnig búsettir í borginni og ætti borg- in því ekki að vera parinu alveg ókunn. Nína selur búslóð sína á Facebook-síðu sinni þessa dag- ana þar sem fólk keppist um að ná einhverju bitastæðu úr búi hennar. „Ég ákvað að gera ævisögu um pabba minn, Sverri Norðfjörð sem lést síðasta sumar. Bókin er í út- klipptum myndum og ljósmyndum og er nokkurs konar „collage“ verk“,“ segir Óttar Norðfjörð rithöfundur. Bókin um föður hans er stórt og mikið verk eða um þrjú hundr- uð blaðsíður og fylgir lífi hans frá barnsaldri alveg fram að síðasta degi. „Bókin var að koma úr prentun fyrir nokkrum dögum og hún kem- ur mjög vel út, “ segir Óttar sem var í meira en hálft ár að klára hana. „Ég sat heima, klippti og límdi í stund- um alveg 12 tíma á dag. Það er óhætt að segja að þetta sé tímafrekasta verk sem ég hef tekið að mér sem er frekar undarlegt því að bókin verður aldrei formlega gefin út.“ Óttar lét prenta 20 eintök af bók- inni sem hann ætlar sér að gefa fjöl- skyldumeðlimum. Sverrir, faðir Ótt- ars, var arkitekt og húmoristi mikill eins og Óttar orðar það sjálfur. Til að heiðra minningu föður síns ætl- ar Óttar að halda sýningu í Grófinni í miðbænum á þjóðhátíðardaginn sjálfan, 17. júní. „Þessi dagur var merkilegur í lífi pabba. Hann átti af- mæli þennan dag og hann dó á þess- um degi þannig að þetta var mjög merkilegur dagur á ævi hans. Á sýn- ingunni getur fólk komið og skoðað fallegustu opnurnar úr bókinni.“ Sýninging byrjar eftir hádegi á lýðveldisdaginn og stendur fram eft- ir degi. hanna@dv.is Ævisaga pabba í úrklippum Flytur til lúx Jóhanna Guðrún: Spurningakeppnin Popppunkt- ur birtist landsmönnum aftur á skjánum 6. júní næstkomandi en að þessu sinni verður keppnin sýnd í Ríkissjónvarpinu. Spyrlar keppninnar eru að sjálfsögðu þeir Dr. Gunni og Felix Bergsson og á bloggi doktorsins má finna hvaða sveitir munu keppa á móti hvor annarri í keppninni sívin- sælu. Í fyrsta þættinum er það stórsveitin Sigur Rós sem mætir Sumargleðinni og ætti enginn að missa af þeirri viðureign. Annars mun Raf/danssveitin Bloodgroup mæta stúlknasveit- inni Elektra og nýjum söngkon- um hennar, en systurnar Rakel og Hildur tilkynntu í Fréttablað- inu í gær að þær væru hættar í sveitinni. Eurobandið keppir á móti Reykjavík! og Spregju- höllin mætir Ljótu hálfvitun- um. Keppnin verður án efa afar spennandi líkt og fyrri ár en þetta er í áttunda sinn sem keppnin er haldin. sigur rós í Fyrsta þÆttinum „Við erum hér komin saman fjöl- skyldan og ætlum að grilla í tilefni kvöldsins, “ segir Sverrir Helgason föðurafi Jóhönnu Guðrúnar sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa í gærkvöldi og tryggði Íslandi sæti í úrslitum Eurovision. Í grillveislunni voru saman- komin systkini föður Jóhönnu og makar þeirra. Barnabörn Sverr- irs létu sig heldur ekki vanta, en hann á 11 barnabörn. „Þetta eru 10 strákar og ein stelpa, það er Jó- hanna Guðrún,“ segir Sverrir og skellir upp úr. „Hún leggur þá alla í sjómann,“ bætir hann við stoltur. Sverrir sagðist í samtali við DV í gær vera lítið stressaður fyrir kvöld- inu. „Við erum ekkert stressuð frek- ar en hún. Jóhanna hefur aldrei verið stressuð, allt frá fyrstu tíð. Hún var alltaf syngjandi og aldrei með neitt vesen, þetta var henni allt saman mjög eðlilegt,“ útskýrir Sverrir og tekur fram að Jóhanna hafi verið í skólum úti um heim all- an og að hún sé enginn nýgræð- ingur á sviði. „Jóhanna hefur ávallt verið mjög balanseruð og er það hún sem segir við mömmu sína: „Mamma, vertu ekki svona stress- uð,“ útskýrir Sverrir hlæjandi. Sverrir og eiginkona hans Jó- hanna Guðfinna heyrðu í Jóhönnu fyrir fáeinum dögum. „Hún hringdi rétt í ömmu sína til þess að segja henni frá því að hún hefði verið í partýi með Grikkjunum. Hún söng fyrir þá og mér skilst að Jóhanna hafi heillað Rússana upp úr skón- um með að syngja á rússnesku, “ Jóhönnu Guðrúnar Sverrir Helgason „HeFur aldrei verið stressuð“ segir Sverrir. „Það sem við vorum að furða okkur á var hvernig hún skyldi syngja á máli sem hún kann ekki, en hún hefur líka sungið á þýsku, frönsku og spænsku.“ Sverrir segist ekki vita hvað- an Jóhanna Guðrún fær hæfileika sína. „Mamma hennar spilaði mikla músík fyrir hana þegar hún var lítil stúlka, og hún söng ávallt mikið fyrir hana. Pabbi henn- ar syngur einnig ágætlega, en Jó- hanna kunni snemma alla texta og var byrjuð að syngja um svipað leyt og hún varð talandi. Ætli það sé ekki óhætt að segja að henni hafi gengið betur að syngja en tala.“ hanna@dv.is Stemning Fjölskylda Jóhönnu guðrúnar var samankomin heima hjá föðurbróður söngkonunnar og fylgdist spennt með forkeppninni. mynd kriStinn Stolt Sverrir Helgason, afi Jóhönnu, og amma hennar, Jóhanna guð- finna, eru stolt af barnabarni sínu. mynd kriStinn Óttar norðfjörð Bjó til ævisögu pabba síns, Sverris Norðfjörð, með ljósmyndum og úrklippum. 3 miðvikudagur 13. maí 20092 Fréttir Eiginkonur nokkurra helstu útrásar- víkinga íslensku þjóðarinnar héldu í mikla lúxusferð til borgarinnar Mus- cat í Óman í gærkvöldi. Þær ætla að dvelja í vellystingum á fimm stjörnu hóteli sem heitir Chedi fram á sunnu- dag. Um er að ræða svokallaðan kampavínsklúbb sem farið hefur ár- lega saman í vorferð síðustu árin. Flestar eru konurnar búsettar í Bret- landi ásamt eiginmönnum sínum. DV hefur undir höndum ítarlega ferðalýsingu, sem send var innan hópsins í fjöldatölvupósti á mánudag, þar sem greint er frá dagskrá ferðar- innar. Af dagskránni er ljóst að krepp- an hefur ekki komið neitt allt of illa við þungar pyngjur margra helstu útrás- víkinga þjóðarinnar því nóttin á lúx- ushótelinu kostar á bilinu 62 til 160 þúsund krónur og konurnar hyggj- ast alls ekki skera við nögl í annarri neyslu í ferðinni. „Skuggalega“ spennt fyrir ferðinni Guðrún Eyjólfsdóttir, eiginkona Lýðs Guðmundssonar Bakkabróður, skrif- ar ferðalýsing- una og er ljóst að mikil spenna ríkti í kampavínsklúbbn- um fyrir ferðina. „Elsku bestu vinkon- ur. Trúi þessu bara ekki, við erum að fara á morgunn (sic). Er núna orð- in skuggalega spennt,“ sagði Guð- rún í tölvupósti til vinkvenna sinna þar sem hún ræddi dagskrána og lýsti yfir gleði sinni með að það væru einungis 24 fjórir tímar til stefnu áður en þær legðu í hann til Óman. Meðal þeirra kvenna sem eru í ferðinni eru áðurnefnd Guðrún, Þur- íður Reynisdóttir, eiginkona Ágústs Guðmundssonar, Arndís Björnsdótt- ir, eiginkona Sigurðar Einarssonar, Linda Stefánsdóttir, fyrrverandi eigin- kona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og Sigríður Sól Björnsdóttir, eiginkona Heiðars Más Guðjónssonar Novator- manns og dóttir Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, auk nokkurra fleiri sterkefnaðra kvenna. Alls eru þær tíu sem ætla í ferðina skemmtilegu til Óman. Vill ekki ræða um einkamál sín Í samtali við DV segist Guðrún Eyj- ólfsdóttir, aðspurð hvort hún sé að fara til Óman, ekki vilja ræða ferðina við blaðamann þar sem hún sé henn- ar einkamál. „Veistu, að ég vil ekkert ræða um mín einkamál, þannig að ég verð bara að fá að kveðja þig,“ seg- ir Guðrún en konurnar flugu frá Heat- hrow-flugvelli í London í gærkvöldi. Samkvæmt ferðalýsingu Guðrúnar ætluðu konurnar hins vegar að nýta tímann á flugvellinum vel áður en haldið yrði til múslímaríkisins Óman þar sem konurnar hylja hár sitt og hörund að múslímskum sið. „Hitt- umst allar á Seafood bar og fáum okk- ur freyðivínsglas og smá snarl áður en við förum um borð. Síðasti séns á að daðra og sýna hné og olnboga :).“ Samkvæmt upplýsingum frá Chedi-hótelinu í Óman eiga íslensku eiginkonurnar pöntuð herbergi á hót- elinu og segir starfsmaður í afgreiðslu hótelsins að búist sé við þeim síðar í dag. Tollurinn keyptur og „chillað“ við sundlaugina Í ferðalýsingu Guðrúnar kemur fram að konurnar eigi að lenda á alþjóða- flugvellinum í Muscat í dag klukkan rúmlega níu að staðartíma. Guðrún hvetur konurnar svo til að „kaupa tollinn“ á flugvellinum. Afganginum af deginum ætla konurnar svo að verja í skoðunarferð um Muscat og í að „chilla“ við sund- laugina. Í kvöld ráðgera konurn- ar svo að borða „laufléttan dinn- er“ - til dæmis sal- at án dressingar - við sundlaugina. „Verðum allar gasa- laga stilltar (grænt te) og förum tiltör- lega (sic). Langur dagur framundan ...“ segir í lýsingunni. Spa, líkamsrækt, tennis og skoðunarferðir Fram á sunnudag munu konurnar svo dvelja í góðu yfirlæti á hótelinu: stunda morgunleikfimi, líkamsrækt, sunset yoga, tennis og fara í skoðunarferðir og skemmta sér á kvöldin. „Arabic af- mælisparty og dinner! Mikið gaman, glans og gleði. Byrjum á að fá okkur fordrykk á hótelbarnum og síðan hefst fjörið,“ segir í umfjöllun Guðrúnar um dagskrána hjá kampavínsklúbbnum næstkomandi fimmtudagskvöld. Þær stöllur ætla síðan að kveðja Óman með „glæsidinner“ á hót- elinu næstkomandi laugardag og ætla að enda nóttina og veru sína í Óman á því að reykja „pínu Shisha“ vatnspípu áður en þær leggjast til hvílu. Útrásareiginkonurnar munu svo fljúga aftur til Lond- on næstkomandi sunnudag og er ljóst af dagskrá ferðar- innar að þær ætla heldur betur að njóta lífsins sam- an í Óman. Bakkavararbræðra Sigurðar Einarssonar Heiðars Más Guðjónsson- ar ÚTRÁSAREIGINKONUR Í LÚXUSFERÐ TIL ÓMAN „Veistu, að ég vil ekkert ræða um mín einkamál, þannig að ég verð bara að fá að kveðja þig.“ KAMpAvÍNSKLÚbbURINN SEM dvELUR Í MUScAT Í ÓMAN: Guðrún Eyjólfsdóttir - Eiginkona Lýðs guðmundssonar hjá Bakkavör Linda Stefánsdóttir - Fyrrverandi eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar, stjórnarformanns Baugs Heiða Magnúsdóttir Sigríður Sól Björnsdóttir - Eiginkona Heiðars más guðjóns- sonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Novators Ása Jónsdóttir Ásta S. Einarsdóttir Arndís Björnsdóttir - Eiginkona Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns kaupþings Þuríður Reynisdóttir - Eiginkona Ágústs guðmundssonar hjá Bakkavör Selma Ágústsdóttir Dóra Björg Marinósdóttir - Eiginkona andra Sveinssonar, fjármálastjóra hjá Novator InGI F. VILHJÁLMSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is HvAÐ ER ÓMAN? Óman er land á suðausturströnd arabíuskagans með landamæri að Sameinuðu arabísku furstadæmun- um í norðvestri, Sádí-arabíu í vestri og Jemen í suðvestri. Óman liggur að arabíuhafi í suðri og Ómanflóa í austri. Borgin sem útrásareiginkon- urnar dvelja í heitir muscat og er hún höfuðborg landsins. um 2,5 milljónir búa í Óman, þar af um milljón í mus- cat. Landið er mikið ferðamannaland og er rómað fyrir náttúrufegurð. Sundlaugin á Chedi-hótelinu í Muscat Eiginkonur útrásarvíkinganna munu dvelja í vellystingum á hótelinu þar til næsta sunnu- dag. Nóttin á hótelinu kostar á bilinu 190 til 490 ómanska ríala eða á bilinu 62 þúsund til 160 þúsund krónur. reikna má með að konurnar tíu dvelji frekar í dýrari herbergjunum en þeim ódýrari. konurnar hyggjast snæða kvöldverð við sundlaugina í kvöld. Eiginkona Sigurðar með í för arndís Björnsdótir, eiginkona Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns kaupþings, er í kampavínsklúbbnum. Allar að kaupa tollinn guðrún Eyjólfsdóttir, eiginkona Lýðs guðmundssonar Bakkabróð- ur, skrifaði ferðalýsinguna sem dv hefur undir höndum. Þar eru konurnar í kampavínsklúbbnum hvattar til að kaupa áfengistollinn á flugvellinum í muscat. Síðasti séns á að daðra Eiginkona Ágústs guðmundssonar, Þuríð- ur reynisdóttir, er í hópnum en mágkona hennar, guðrún Eyjólfsdóttir, segir í ferðalýsingunni að á Seafood barnum á Heathrow fái konurnar sinn síðasta séns á að daðra og sýna hné og olnboga áður en haldið verður til múslímalandsins Óman. Fyrrverandi eiginkona í Óman Linda Stefánsdóttir, fyrrverandi eigin- kona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, er með í för til Óman. 4 Fagráðherrarnir ngylFi Magnússon, viðskiptaráðherra: KR-ingur og dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, kennir einkum fjármál og tengdar greinar. Var meðal annars blaðamaður á Morgunblaðinu frá 1986 til 1990 en vann áður hjá Vegagerðinni. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1986 (eðlisfræðideild I), kandídatspróf í hag- fræði frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 1990, M.A. í hagfræði frá Yale University, Bandaríkjun- um, 1991, M.Phil. sama skóla 1994 og Ph.D. 1997. nragna árnadóttir, dómsmálaráðherra: Stúdent frá MA af málabraut 1986, kandídatspróf í lögfræði frá HÍ 1991, framhaldsnám í Háskólanum í Lundi 1999 til 2000 um Evrópurétt. Lokaritgerð um heilbrigðis- þjónustu án landamæra innan Evrópusambandsins. Margvísleg embættisstörf fyrir Alþingi, Norðurlandaráð og ráðuneyti frá árinu 1992. Skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu frá 2002 og ráðuneytisstjóri frá í apríl í fyrra. Dómsmálaráðherra frá 1. febrúar 2009 og aftur frá 10. maí. sama ár. ÞRIðjUDAgUR 12. MAÍ 20098 Fréttir flugfreyja, bóndi og íþróttakennari Davíðs Oddssonar Innan ríkisstjórnarinnar hafa Gylfi Magnússon, Össur Skarphéðinsson og Ragna Árnadóttir klifið menntastig- ann hvað hæst. Flestir ráðherranna eru skólaðir í lífsins skóla og þar ber forsætisráðherrann og flugfreyjan, Jó- hanna Sigurðardóttir höfuð og herðar yfir aðra enda setið á þingi síðan 1978. Innan ríkisstjórnarinnar er flugfreyja, íþróttakennari, hagfræðidoktor, dokt- or í lífeðlisfræði, lögfræðingar, bú- fræðingur, bókmenntafræðingur og málfræðingur. Þá hafa ráðherrar lagt stund á sagnfræði, frönsku, stjórn- málafræði og mannfræði. Erfitt er að leggja mat á hvort tiltek- in menntun hæfi ráðherraembætti. Nefna má í því sambandi aðalbanka- stjóri Deutsche Bank í Bretlandi er doktor í fornleifafræði og fornsögum. Þó verður ekki framhjá því horft að betra hlýtur að vera fyrir þá sem taka afdrifaríkar ákvarðanair um hagstjórn og peningamál, svo dæmi sé tekið, að hafa góða þekkingu á efnahagsmál- um og fjármálastarfsemi. Á sama hátt er gott fyrir flugstjóra og farþega hans að kunna vel á þá flugvél sem honum hefur verið falið að fljúga. DV fer yfir menntun og fyrri störf ráðherra í ríkistjórn VG og Samfylk- ingarinnar sem tók við á sunnudag 10. maí. Jóhann haukssOn blaðamaður skrifar: johannh@dv.is n steingríMur J. sigFússon (Vg), fjármálaráðherra: Stúdentspróf MA 1976. B.Sc.-próf í jarðfræði HÍ 1981. Próf í kennslu- og uppeldisfræði HÍ 1982. Vörubifreiðarstjóri á sumrum 1978-1982. Við jarðfræðistörf og jafnframt íþróttafréttamaður hjá sjónvarpi 1982-1983. Landbúnaðar og samgönguráðherra frá 1988 til 1991. Fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá 1. febr. 2009 og fjármálaráðherra frá 10. maí 2009. saMFylkingin: lögin, Maðurinn og laxFiskar nárni Páll árnason (S), félags- og tryggingamála- ráðherra: Lögfræðingur frá HÍ 1991, nám í Evrópurétti í Belgíu 1991- 1992, Deildarsérfræðingur á viðskipta- skrifstofu utanríkisráðuneytisins 1994 og lögfræðingur varnarmálaskrifstofu 1994-1995. Sendiráðsritari í fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu og Vestur-Evrópusambandinu í Brussel og fulltrúi Íslands í stjórnmálanefnd Atlantshafsbandalagsins 1995-1998. Lögmaður með eigin rekstur og ráðgjafi síðan 1998. Þingmaður Samfylkingarinnar síðan 2007. nkatrín Júlíusdóttir (S), iðnaðarráðherra: Stúdent MK 1994. Nám í mannfræði við Háskóla Íslands 1995-1999. Námskeið í verkefnastjórn í hugbúnaðargerð hjá Endur- menntunarstofnun Háskóla Íslands 2001. Innkaupastjóri hjá g. Einarsson & co. ehf. 1994-1998, framkvæmdastjóri þar 1999-2000. Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1998-1999. Þingmaður Samfylkingarinnar frá 2003. n Jóhanna sigurðardóttir (S) , forsætisráðherra: Verslunarpróf VÍ 1960. Flugfreyja hjá Loftleiðum 1962-1971. Skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971-1978. Fyrst kjörin þingmaður árið 1978 fyrir Alþýðuflokkinn og varð félagsmálaráðherra fyrst árið 1987. nössur skarPhéðinsson (S), utanríkisráðherra: Stúdentspróf MR 1973. BS-próf í líffræði HÍ 1979. Doktorspróf í lífeðlisfræði með fiskeldi sem sérgrein frá Háskólanum í East Anglia, Englandi, 1983. Styrkþegi British Council við framhaldsrannsóknir 1983-1984. Ritstjóri Þjóðviljans 1984-1987. Lektor við Háskóla Íslands 1987-1988. Aðstoðarforstjóri Reykvískrar endurtrygg- ingar 1989-1991. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1996-1997 og DV 1997-1998. Ráðherra umhverfismála fyrst árið 1993. Iðnaðarráðherra frá árinu 2007. nkristJán l. Möller (S), samgönguráðherra: Próf frá Iðnskóla Siglufjarðar 1971. Kennarapróf frá Íþróttakenn- araskóla Íslands 1976. Ýmis námskeið á sviði félags- og íþróttamála í Noregi og Svíþjóð 1977-1982. Æskulýðs- og íþróttafulltrúi Siglufjarðar 1970-1974. Íþróttakennari í Bolungarvík 1976-1978. Íþróttafulltrúi Siglufjarðar 1978- 1988. Samgönguráðherra frá 2007. Vg: Jörðin, sagan og tungan nkatrín Jakobsdóttir (Vg), menntamálaráðherra: Stúdentspróf MS 1996. BA-próf í íslensku með frönsku sem aukagrein HÍ 1999. Meistarapróf í íslenskum bókmenntum 2004. Málfarsráðunautur á fréttastofum RÚV í hlutastarfi 1999–2003 auk fjölmargra sumarstarfa. Katrín var dagskrár- gerðarmaður fyrir ljósvakamiðla og og stundaði ritstörf fyrir ýmsa prentmiðla 2004–2006 og ritstjórnarstörf fyrir Eddu útgáfu og jPV útgáfu 2005 og 2006. Vann sem stundakennari við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Menntaskólann í Reykjavík 2006–2007. Katrín var skipuð menntamálaráð- herra 1. febrúar 2009 og á ný 10. maí 2009. n sVandís sVaVarsdóttir (Vg), umhverfisráðherra: Stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983. BA í almennum málvísindum og íslensku frá Háskóla Íslands 1989, MA-nám í íslenskri málfræði 1989-1993. Stunda- kennsla í almennum málvísindum og íslensku 1990-1994. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarkskertra við rannsóknir á íslenska táknmálinu 1992-1994 Kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994-1998. Samskiptamiðstöð heyrn- arlausra og heyrnarskertra við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998-2005 Framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2006. Borgarfulltrúi vinstri grænna frá 2006. Umhverfisráðherra frá 10. maí 2009. n Jón bJarnason (Vg), sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra: Stúdentspróf MR 1965. Búfræðipróf Hvann- eyri 1967. Búfræðikandidat frá Landbúnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1970. Kennari við Lækjarskóla í Hafnarfirði 1965-1966. Kennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1970-1974. Bóndi í Bjarnarhöfn 1971-1982. Stundakennari við grunnskóla Stykkishólms 1976-1981. Skólastjóri Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal 1981-1999. Skipaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 10. maí 2009. nögMundur Jónasson (Vg), heilbrigðisráðherra: Stúdentspróf MR 1969. MA-próf í sagnfræði og stjórnmála- fræði frá Edinborgarháskóla, Skotlandi, 1974. Kennari við grunnskóla Reykjavíkur 1971-1972. Rannsóknir við Edin- borgarháskóla og ýmis hlutastörf 1974-1978. Fréttamaður Ríkisútvarpsins, hljóðvarps og síðan sjónvarps, 1978-1988. Stundakennari við Háskóla Íslands síðan 1979. Formaður BSRB síðan 1988. Skipaður heilbrigðisráðherra 1. febrúar 2009 og aftur 10. maí sama ár. sligandi FJöldi ráð- herra og þingManna Ráðgert er að fækka ráðuneytum úr 12 í 9 á kjörtímabilinu og ráðherrum þar af leið andi einn- ig. Ráðherrafjöldi og þingmannafjöldi er mikill hér á landi í samanburðinum við No rðurlönd og önnur ríki Evrópu. land þingMenn íbúaFJöldi íbúar á hVern þingM ann Ísland 63 u.þ.b. 320.000 5.08 0 u.þ.b. Noregur 169 4,8 millj. 28.4 00 u.þ.b. Svíþjóð 349 9,2 millj. 26.3 60 u.þ.b. Danmörk 175 5,4 millj. 30.8 50 u.þ.b. Finnland 200 5,3 millj. 26.5 00 u.þ.b. Holland 225 16,5 millj. 73.3 00 u.þ.b. Spánn 609 46,0 millj. 75.5 00 u.þ.b. 5 MeistaramarkvarslaHaukur Ingi Guðnason var nærri búinn að skora úr aukaspyrnu á 20. mínútu, eftir að Davíð Þór var rekinn út af. Daði Lárusson gerði sér lítið fyrir og varði vel.Mynd Kristinn ÞrIðjuDaGur 12. Maí 2009 17 Sport Meistari 3. árið í röð Ólafur Stefánsson fagnaði þriðja meistaratitilnum í röð með félögum sínum í spænska handknattleiksliðinu Ciudad real á sunnudags-kvöldið. Þá lagði liðið helstu keppinauta sína um titilinn, Barcelona, með 11 marka mun. Lokatölur urðu 37-26 sem þýðir að fyrir síðustu umferðina hefur Ciudad fjögurra stiga forskot. Ólafur hafði hægt um sig í leikn- um og skoraði eitt mark en hann mun ganga til liðs við Guðjón Val Sigurðsson og félaga í þýska liðinu rhein-Neckar Löwen þegar þessari leiktíð lýkur. Hvítliðarnir úr Kópavogi ætla sér beinustu leið upp í efstu deild. Það er ljóst af öruggum 3-1 sigri þeirra á ÍR-ingum í Kórnum í gær. Þeir Hörð- ur Magnússon, Stefán Eggertsson og Þórður Birgisson komu HK í 3-0 áður en Davíð Már Stefánsson minnkaði muninn. Þá var hins vegar ljóst að leikurinn væri tapaður fyrir ÍR-inga. Haukar lögðu unga Leiknismenn að velli í Egilshöllinni í gærkvöldi með tveimur mörkum gegn engu. Bæði mörkin komu snemma í seinni hálfleik. Guðjón Pétur Lýðsson kom Haukum yfir á 51. mínútu og átta mínútum síðar skoraði Andri Janus- son fyrir Hafnarfjarðarliðið. Báðir leikirnir í gærkvöldi fóru fram í knattspyrnuhöllum vegna roks og rigningar. Annars má segja að 1. deildin sé að vissu leyti á hvolfi eftir 1. umferð- ina. Tvö þeirra liða sem spáð hefur verið hvað bestu gengi töpuðu fyrsta leik sínum gegn liðum sem fyrirfram var spáð lakari árangri í deildinni. Reykjavíkur-Víkingar máttu játa sig sigraða þegar Ólafsvíkur-Víkingar sóttu þá heim í Víkinni. Víkingum í Reykjavík hefur verið spáð einu af efstu sætunum í flestum spám og taldir öruggir um að vera í barátt- unni um sæti í úrvalsdeild að ári. Ól- afsvíkingum hefur hins vegar verið spáð öllu lélegri árangri og raunar engu öðru en fallbaráttu. Það breytti þó ekki því að gestirnir unnu 2-1 sig- ur. Skagamenn voru fyrir mót tald- ir næsta öruggir um að komast upp. Þeir mættu Þórsurum á Akureyri í fyrsta leik og sáu aldrei til sólar. Þórs- arar, sem unnu 3-0 í leik sem fór fram í Boganum, hafa verið miðlungslið í 1. deild undanfarin ár og var spáð sæti um og upp úr miðju móts. Leik- urinn á Akureyri gaf hins vegar ekki til kynna að það væru Skagamenn sem væri spáð upp meðan Þórsarar þyrftu að hafa meira fyrir hlutunum. brynjolfur@dv.is Ólíkt gengi þeirra liða sem spáð var baráttu um að komast upp úr 1. deild: HK og HauKar Með örugga sigra BlóðtaKa fyrir ír Frákastakóngur Iceland Express- deildarinnar í körfuknattleik, miðherjinn Ómar Sævarsson, er genginn í raðir Grindavíkur. Ómar, sem hirti 11,5 fráköst að meðaltali í leik, lék lykilhlutverk með liði ír í vetur. Hann skoraði 12,6 stig að meðaltali og því er ljóst að um nokkra blóðtöku er að ræða fyrir ír. Ómari er líklega ætlað að fylla skarð Páls Kristinssonar sem reiknar með að hætta körfuknattleiksiðkun. fletcHer eKKi Með Darren Fletcher, miðjumaðurinn knái hjá Manchester united, mun missa af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Barcelona, sem fram fer í lok mánaðarins. Fletcher fékk, sem kunnugt er, að líta rauða spjaldið eftir tæklingu í síðari viðureign Manchest- er united og arsenal í undanúrslit- um. united áfrýjaði spjaldinu en Knattspyrnusamband Evrópu sá ekki ástæðu til að breyta dómnum, sem sumum þótti orka tvímælis. Tveir leikmenn Barcelona, þeir Eric adial og Daniel alves, verða einnig í banni í leiknum. NorðMeNN prúðastir Noregur hafnaði í efsta sæti á svokölluðum háttvísilista uEFa. Danir og Skotar komu í sætunum þar á eftir. Mælingin nær til allra leikja á vegum uEFa, bæði landsleikja og leikja félagsliða. Eftir miklu er að slægjast þar sem þessar þrjár efstu þjóðir fá aukasæti í undankeppni Evrópudeildar uEFa á næsta keppnistímabili. Framkoma áhorfenda og háttvísi leikmanna, innan og utan vallar, er haft til hliðsjónar við mælinguna. ísland hafnaði í 13. sæti listans að þessu sinni. uMSjÓN: TÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSoN, tomas@dv.is / sport@dv.is Keflvíkingar sigruðu Íslandsmeistara FH í roki og rigningu í Keflavík. Þetta er annað árið í röð sem þeir leggja ríkjandi Íslandsmeistara á heimavelli sínum. FH-ingar verða hins vegar að sætta sig við það í fyrsta skipti frá árinu 2002 að tapa fyrsta leik sínum á Íslandsmóti. Annað árið í röð gerðu Keflvíkingar sér lítið fyrir og sigruðu sitjandi Íslands- meistara í fyrsta leik sínum á Íslands- mótinu. Á sama tíma tryggðu þeir að FH-ingar stóðu í fyrsta skipti í sjö ár uppi stigalausir eftir fyrstu umferðina. Liðin mættust í roki og rigningu. Það var ekki bara veðrið sem gerði lið- unum erfitt fyrir, í það minnsta ekki FH- ingum, því á fyrstu tuttugum mínútum leiksins máttu þeir sætta sig við bæði rautt spjald og að verða af víti sem þeir töldu sig eiga að fá. Snemma leiks fékk einn varnarmanna Keflvíkinga bolt- ann í höndina inni í teig. Kristinn Jak- obsson, dómari leiksins, sá hins vegar ekkert athugavert og dæmdi því ekki. Skömmu seinna var hann öllu betur á verði. Þá virtist Davíð Þór Viðarsson tosa í Hauk Inga Guðnason, sóknar- mann Keflavíkur, sem var að sleppa framhjá honum svo hann féll við. Krist- inn dæmdi umsvifalaust aukaspyrnu og vísaði Davíð Þór af velli. Haukur Ingi var þá að reyna að ná til boltans eftir að hann var sendur inn fyrir vörn FH- inga sem höfðu sótt mikið á Keflvík- inga. Þetta var mikil blóðtaka fyrir FH- liðið sem missti sinn sterkasta mann til þessa af velli og léku Íslandsmeistar- arnir því einum færri þær sjötíu mínút- ur sem lifðu eftir af leiknum. Þrátt fyrir að Keflvíkingar væru ein- um fleiri gekk þeim illa að nýta sér liðsmuninn og var markalaust í hálf- leik. Ekki var langt liðið af seinni hálf- leik þegar Keflvíkingar skoruðu mark- ið sem að lokum réð úrslitum. Símún Samuelsen var með boltann við enda- línuna hægra megin við mark FH-inga og valdaður af einum varnarmanni Ís- landsmeistaranna. Hann lét það ekki stöðva sig heldur lék á varnarmanninn og sendi knöttinn fyrir markið þar sem hann barst fyrir fætur Hólmars Arnar Rúnarssonar. Hólmar Örn var með tvo varnarmenn fyrir framan sig og virt- ist þurfa að hafa fyrir hlutunum en þá opnaðist smuga í vörnina sem gerði Hólmari Erni kleift að skjóta boltanum milli tveggja varnarmanna og í hægra hornið. Daði Lárusson, markvörð- ur FH-inga, var vinstra megin í mark- inu og sá boltann of seint til að koma nokkrum vörnum við. Keflvíkingar voru því komnir með forystuna gegn Íslandsmeisturunum. Þá forystu létu þeir ekki af hendi. Keflvíkingar geta verið ánægðir með sigurinn. Annað árið í röð leggja þeir ríkjandi Íslandsmeistara að velli í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Þeir komu líka fram vissum hefndum á FH- ingum sem stálu Íslandsmeistaratitl- inum af þeim á lokasprettinum í fyrra. Þá reyndar vegna þess að Keflvíkingar gáfu eftir í tveimur síðustu umferðum Íslandsmótsins. FH-ingar hafa hins vegar ástæðu til að vera svekktir. Leikurinn hefði ef til vill þróast á annan veg ef Kristinn Jak- obsson hefði dæmt vítaspyrnu á Kefl- víkinga á upphafsmínútum leiksins. Eins reyndist það FH-ingum erfitt að missa Davíð Þór út af. Hins vegar var ekki annað að sjá en að sá dómur væri réttur. Klaufalegt hjá Davíð, sérstaklega þar sem Haukur Ingi var ekki með bolt- ann þegar Davíð tosaði hann niður. Annars er leikurinn í gær jafnframt merkilegur fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta skipti síðan 2002 sem FH-ingar tapa fyrsta leik sínum á Íslandsmóti og raunar sá fyrsti frá 2003 sem þeir vinna ekki. Langt miLLi ósigra í 1. umferð 2002 FH-Fylkir 0-3 2003 FH-ía 1-1 2004 Kr-FH 0-1 2005 Keflavík-FH 0-3 2006 Kr-FH 0-3 2007 ía-FH 2-3 2008 HK-FH 0-4 2009 Keflavík-FH 1-0 meistaragiLDra FH-ingar hafa hins vegar ástæðu til að vera svekktir. Knattspyrna í Kórnum Þrír af sex leikjum í 1. umferð 1. deildar voru spilaðir innanhúss. Mynd Kristinn „Hann sá að ég stóð tveimur fetum frá vagninum og sneri á hlið. Svo tók hann bara af stað og ég hugsaði með mér að það gæti nú ekki verið að hann ætlaði að keyra á mig. Ég ákvað því að hreyfa mig ekki,“ segir Guð- jón Páll Einarsson, íbúi við Einars- nes, sem segir að vagnstjórinn Guð- mundur Böðvarsson hafi ekið á hann í götunni síðastliðinn föstudag. Bakkar í innkeyrslur DV hefur lögregluskýrslu af atvik- inu undir höndum. Þar kemur fram að Guðjón hafi óskað eftir aðstoð lögreglu vegna aksturs strætisvagns inn í innkeyrslur við hús sem standa við götuna. Ökumaður vagnsins hafi ekið á hann og kyrrstæðan bíl sem stóð þar hjá. Guðjón segir að hon- um hafi ekki orðið meint af en dótt- ur hans, sem hafi orðið vitni að atvik- inu, hafi brugðið illa. Guðjón segir að vagnstjórinn hafi lengi stundað þá iðju að snúa við með því að bakka inn í innkeyrslur í göt- unni í námunda við ysta strætóskýl- ið. Hann hafi áður gert athugasemd- ir við athæfið enda sé stórhættulegt að bakka strætisvagni með þessum hætti, þar sem börn eru oft að leik. „Ég kannast sjálfur við að keyra stóra bíla. Maður bakkar svona tækjum ekki nema maður þurfi þess,“ segir Guðjón. „Það er bara bull“ Lýsingum Guðjóns af atvikinu ber ekki saman við frásögn Guðmund- ar vagnstjóra. „Hann labbaði fyr- ir vagninn hjá mér og ég þurfti að bremsa. Mér rétt tókst að stoppa, eða svona, þá sneri hann upp á sig og setti öxlina í vagninn. Reyndi að láta þetta líta illa út,“ segir Guðmundur í samtali við DV. Hann segir út í hött að halda því fram að hann hafi ekið á Guðjón. „Hann reyndi að stoppa mig. Hann ætlaði að skamma mig fyrir að keyra óvarlega. Það er bara bull,“ segir Guðmundur sem segist ekki hafa vitað til þess að það væri bann- að að snúa við strætó í innkeyrslum í götunni. „Það var enginn á svæðinu og þetta er stórt og gott plan. Hann sagði að ég hefði getað keyrt á ein- hver börn. Það er alltaf hægt að segja svona,“ segir Guðmundur og bæt- ir því við að framkoma Guðjóns sé óheiðarleg. Aðspurður hvort hann hafi ekið á bílinn, líkt og talað er um í skýrsl- unni, segir Guðjón að hann hafi snert bílinn þegar hann reyndi að forðast að keyra á Guðjón. „Þetta var bara smá rispa, sást ekki einu sinni á vagninum,“ útskýrir hann. Hringdi á lögreglu Guðjón segist áður hafa kvartað yfir athæfi mannsins við lögreglu. Þá hafi yfirmenn mannsins talað hann til en að hann hafi ekki látið segjast. Lög- regla hafi því beint því til hans að hringja í sig næst þegar Guðmundur bakkaði inn í innkeyrslur í götunni. Þegar Guðjón varð vitni að þessu á föstudaginn segist hann hafa hringt á lögregluna og lesið yfir manninum, enda hafi honum hitnað í hamsi. Bíl- stjórinn hafi hins vegar ætlað að aka í burtu. „Hann vissi að það væri búið að hringja á lögregluna. Hann var beðinn um að bíða og ég stillti mér upp fyrir framan vagninn svo hann færi ekki fyrr en lögregla væri búinn að tala við hann. Þá keyrði hann á mig,“ segir Guðjón sem ætlar ekki að aðhafast frekar í málinu en segir að íbúar í hverfinu fylgist vel með akstr- inum. Hættur að snúa við í götunni Leiðakerfi strætó gerir ekki ráð fyrir því að strætisvögnum sé snúið við í götunni. Endastöð leiðanna um nes- ið eru við enda Skeljaness, sem er næsta gata við Einarsnes. Samkvæmt lögregluskýrslunni eru einungis 550 metrar frá þeim stað þar sem Guð- mundur viðurkenndi að hafa snú- ið vagninum, til þess staðar þar sem honum ber að snúa við, samkvæmt leiðakerfinu. Lögregla hafi haft sam- band við Guðmund, sem hafi sagt að hann teldi ekki þörf á því að aka út á enda með tóman vagn. Samkvæmt skýrslunni hefur Guðmundur lofað að gera þetta ekki framar og aka þá leið sem honum ber. „Það er allt í lagi að taka tillit til þess, ef menn tala eðlilega við mann. En ég kann ekki við svona framkomu, að labba fyrir vagninn með einhvern morðingjasvip,“ segir Guðmundur hneykslaður að lokum. Strætó við Einarsnes íbúi er ósáttur við að strætóbílstjóri skuli snúa við með því að bakka inn í innkeyrslur í götunni í stað þess að aka leiðina á enda. mynd KriStinn STRÆTÓDEILAN Í SKERJAFIRÐI „Hann sagði að ég hefði getað keyrt á ein- hver börn. Það er alltaf hægt að segja svona.“ BALdUr GUÐmUndSSOn blaðamaður skrifar baldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.