Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 50
Föstudagur 15. maí 200950 Helgarblað
HIN HLIÐIN
Kasólétt á hjóli
Nafn og aldur?
„Regína Ósk Óskarsdóttir,
31árs.“
Atvinna?
„Söngkona og söngleið-
beinandi í Söngskóla Maríu
Bjarkar.“
Hjúskaparstaða?
„Vel gift.“
Fjöldi barna?
„Sex ára stelpa og ein á leið-
inni eftir viku.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Nei.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„Söngtónleika með dóttur
minni.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Hef verið tekin fyrir of hrað-
an akstur af því að ég var
að hlusta svo hátt á Let the
sunshine.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín
og af hverju?
„Á marga uppáhaldskjóla og
þeir tengjast allir einhverjum
góðum minningum.“
Hefur þú farið í megrun?
„Já, já.“
Hefur þú tekið þátt í skipu-
lögðum mótmælum?
„Nei.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já.“
Hvaða lag skammast þú
þín mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Lög með Backstreet Boys.
Var leyndur aðdáandi þegar
þeir voru og hétu.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„She´s Gone með Steelheart.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Úrslitakvöldsins í Eurovision og svo auðvitað fæð-
ingu komandi barns.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Þær eru nokkrar. Dirty dancing, Pretty woman, Ov-
erboard, bara frábær afþreying.“
Afrek vikunnar?
„Fór í tveggja klukkustunda hjólatúr með fjölskyld-
unni. Hef ekki hjólað í 15 ár og
tek upp á því á níunda mánuði
meðgöngunnar.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Blokkflautu og glamra á píanó.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópu-
sambandið?
„Það er ekki spurning að vilja
heldur geta.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Fjölskyldan (og Eurovision).“
Hvaða íslenska ráðamann
mundir þú vilja hella fullan og
fara á trúnó með?
„Ef ég verð að nefna einhvern þá
bara forsetinn. Örugglega fínt að
vera á Bessastöðum og fá góðan
mat og rautt með.“
Hvaða fræga einstakling myndir
þú helst vilja hitta og af hverju?
„Það eru nokkrir sem ég mundi
vilja syngja með, ekkert endi-
lega tala við, það mundi örugg-
lega eyðileggja allt, til dæmis
Karen Carpenter,
Alicia Keys, George Michael og
fleiri og fleiri.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Er voða lítill prakkari í mér. Þeir
vita það sem þekkja mig.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist
þú mest?
„Hef ekki mikið spáð í það, ein-
hverjar hugmyndir?“
Ertu með einhverja leynda
hæfileika?
„Fullt af þeim og það eru alltaf
að koma nýir og nýir í ljós.“
Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Nei, alls ekki. Áfengið gerir alveg nógan skaða.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Heimilið mitt.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að
sofa?
„Ég les nokkrar blaðsíður í góðri bók. Er núna að lesa
Dóttir hennar, dóttir mín.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Eigum við ekki að leyfa öðrum að svara því.“
Regína Ósk ÓskaRsdÓttiR söngkona getuR ekki beðið eftiR euRovision og
nýjasta fjölskyldumeðlimnum sem von eR á eftiR viku.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið