Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Síða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Síða 64
n Það telst vart til tíðinda að Vestur- bæjarstórveldið vinni knattspyrnu- leik, eins og raunin varð í fyrsta leik Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu, þegar KR lagði Fjölni sannfærandi. Athygli vakti að miðar, sem seldir voru við innganginn, voru hagan- lega merktir gömlu Landsbanka- deildinni. Óli Rúnar Jónsson, vöru- merkjastjóri Ölgerðarinnar, sýnir þessu fullan skilning. „Það tekur tíma að koma þessu í „process“,“ segir hann en bætir við að samstarf- ið við félögin hafi gengið vonum framar. Jónas Kristinsson, fram- kvæmdastjóri KR, segir ástæðuna þá að beðið sé eftir nýjum miðum úr prentun. Hann segir fyrirvar- ann á Pepsi-deildinni hafa verið skamman og því hafi ekki tekist að prenta alla miða fyrir fyrsta leik. Stefnt sé að því að allt verði til reiðu fyrir þann næsta sem verður gegn Þrótti 17. maí. Engin bankakreppa í Vesturbænum! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. Mörgum karlmanninum á Alþingi er létt nú þegar karlkyns þingmenn þurfa ekki lengur að prýða háls sinn með bindi. Bindisskyldan hefur á köflum sett mark sitt á þingstörfin. Hlynur Hallsson, fyrrverandi vara- þingmaður vinstri-grænna, lenti í vandræðum því hann átti ekkert bindi en fékk þó eitt lánað af starfsmönn- um þingsins. Eitt sinn krafðist Halldór Blöndal þess að Hlynur setti upp bindi og segist Hlynur hafa misst af atkvæða- greiðslu meðan hann fór að sækja bindi. Síðar mætti hann bindislaus í ræðustól þegar Sólveig Pétursdóttir var þingforseti en þrátt fyrir að Sólveig andmælti í fyrstu bindisleysi Hlyns lét hún hann komast upp með það. Helgi Hjörvar lenti eitt sinn í að ljúka við að hnýta á sig bindið í ræðu- stól Alþingis því hann var bindislaus á skrifstofu sinni þegar kom að honum að flytja ræðu. Eins hafa þingmenn sett það fyrir sig að bindin séu ekki alltaf mjög þægi- leg. Þannig sagðist Kristján L. Möll- er, sem nú er samgönguráðherra, eitt sinn vera heitfengur maður og því gæti verið óþægilegt að vera með bindið bundið um hálsinn á löngum þing- fundum. Fannst honum því sjálfsagt að liðka aðeins á reglunum. Halldór Ásgrímsson var eitt sinn sem ungur þingmaður afskaplega hrifinn af leðurjakka sem hann hafði nýlega fest kaup á. Honum þótti ekki muna um að mæta í þingsal í leð- urjakkanum en varð þess fljótlega var að ekki deildu allir þingmenn hrifn- ingunni á jakkanum. Enda fór svo að einhverjir þingmenn gáfu sig á tal við hann og leðurjakkinn sást ekki aftur í þingsal. Steingrímur J. Sigfús- son segir svo frá vand- ræðum sínum með bindisskylduna í viðtali við helgarblað DV. LandsbankadeiLd í FrostaskjóLi Opið laugardaga 10-14 Hlynur Hallsson missti af atkvæðagreiðslu vegna bindisleysis: bindið víkur aF háLsi þingmanna n „Við vorum búin að ákveða að koma saman á Austurvelli ef það yrði sól og blíða,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar. Hefð er fyrir því að þingmenn sæki guðsþjónustu í Dómkirkjunni fyrir setninguna en Þór, Birgitta Jóns- dóttir og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Borgarahreyfingarinn- ar, ákváðu að hafa annan háttinn á og mæta ekki í guðsþjónustuna. Í fyrsta sinn býður Siðmennt nú þingmönnum að sækja fyrirlest- ur um siðfræði í stað kirkjuathafn- arinnar fyrir setningu Alþingis og sagðist Þór vera að íhuga hvort hann ætlaði að þiggja það boð þegar DV ræddi við hann. Þráinn Bertelsson bjóst aftur á móti við því að fara í Dómkirkj- una. þingmenn rjúFa kirkjuheFð n Friðrik Sophusson og félagar hjá Landsvirkjun fögnuðu sigri í Hæsta- rétti í gær þegar fyrirtækið var sýkn- að í máli sem Daniela Schmitz, bóndi á Skálmholtshrauni, höfðaði gegn Landsvirkjun. Daniela á jörð sem liggur að Þjórsá og sagði hún í stefnu sinni að þar sem Landsvirkj- un hefði ekki nýtt sér vatnsréttindi út frá jörðinni á grunni samninga frá um miðja síðustu öld væri sá vatnsréttur fallinn úr gildi og aftur í hendur jarðeigenda. Þetta hefði getað sett strik í reikninginn fyrir Landsvirkjun, hefði dómari fallist á kröfu Danielu, því hún og maður hennar hafa sett sig upp á móti því að virkjað verði í Þjórsá. En Frið- rik og Landsvirkj- un höfðu sigur og sluppu því fyrir horn. Friðrik Fagnar sigri Uppreisn á þingi hlynur lenti í vandræðum vegna bindisskyldu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.