Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Blaðsíða 4
föstudagur 5. júní 20094 Fréttir
Sandkorn
n Páll Óskar tryllti lýðinn í Herj-
ólfsdal á Þjóðhátíð í Eyjum í fyrra
og nú óttast þeir sem þrá heitt
að fá að tryllast aftur í dalnum í
byrjun ágúst um sinn hag. Þjóð-
hátíðarnefnd er nefnilega ekki
búin að ráða
Pál Óskar
til að troða
upp á Þjóð-
hátíð 2009.
Þar sem
virkt lýðræði
blómstrar
helst á Face-
book þarf
engan að undra að þar sé búið
að stofna þrýstihóp um að Páll
Óskar verði fenginn til að troða
upp á Þjóðhátíð. „Palli stóð upp
úr í fyrra og var hreint út sagt æð-
islegur. Aldrei upplifað jafn mikla
stemningu og þá,“ segir á síð-
unni sem rúmlega þrjú þúsund
manns hafa skráð sig á.
n Lesendur DV stöldruðu við frétt
blaðsins í gær um laxveiðiferð
Gísla Marteins Baldurssonar,
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, til Rússlands á vegum Glitnis
sumarið 2007. Þó vöktu einkum
ummælin
„ég var beð-
inn um að
koma“ kát-
ínu manna,
en einnig
umhugsun.
Þótt margir
viti að Gísli
Marteinn
er glaðvær
og taki að sér veislustjórn spyrja
menn sig hvaða erindi borgar-
fulltrúi eigi með viðskiptavinum
og starfsmönnum Glitnis í einka-
þotu og þyrluferð inn í óbyggðir
Kólaskaga til þess að veiða lax
í einni gjöfulustu laxveiðiá ver-
aldar.
n Nú vill svo til að um svipað
leyti, sumarið 2007, fóru þá-
verandi „Orkuveitumenn“, þeir
Guðlaugur Þór Þórðarson,
Björn Ingi
Hrafnsson,
Vilhjálm-
ur Þ. Vil-
hjálmsson
og Haukur
Leósson,
í laxveiði-
ferð í Mið-
fjarðará í
boði Baugs. Um þetta sama
leyti tengdust FL Group, Geysir
Green Energy, Glitnir og Baugur
með beinum eða óbeinum hætti
áformum um útrás Orkuveitu
Reykjavíkur í nafni REI. Fylgja
má sögunni að borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins, þeirra á
meðal Gísli Marteinn, vildu selja
REI og losa OR úr samkrulli við
einkaframtakið. Voru ekki FL
Group og Glitnir þar skammt
undan með forkaupsrétt?
Tjónaskoðun
– við komum til
þín!
Bæjarflöt 10
Sími: 567-8686
www.kar.is
Brotist var inn hjá fjölskyldu í Hafnarfirði um miðja nótt. Stolið var meðal annars glæ-
nýjum jeppa og svo virðist sem farið hafi verið inn í herbergi hjá 7 ára gömlum syni
húseigandans á meðan hann svaf. Fjölskyldufaðirinn þakkar fyrir að ekkert alvarlegt
kom fyrir börnin á meðan þjófurinn valsaði um íbúðina.
STÁLU JEPPA Á MEÐAN
FJÖLSKYLDAN SVAF
„Maður er ekkert búinn að átta sig á
þessu enn þá,“ segir Sigurður Freyr
Árnason, íbúi í Hafnarfirði, eftir að
innbrotsþjófar brutust inn á heimili
hans aðfaranótt fimmtudags með-
an Sigurður og fjölskylda hans sváfu.
Húsið er einbýlishús í friðsælli götu
í Hafnarfirðinum og svo virðist sem
farið hafi verið inn um svaladyr sem
liggja út á verönd.
Þjófarnir stálu myndavél, húslykl-
um, tölvu, veskjum, tösku og glæsi-
jeppa sem metinn er á annan tug
milljóna. Jeppinn fannst seinna um
daginn í Reykjavík eftir ábendingu
frá vegfaranda.
Jeppinn er af gerðinni Audi Q7
og kostar á annan tug milljóna. „Við
biðum eftir þessum bíl í sjö mánuði
frá Heklu, hann er 4,2 lítra dísil og er
glænýr með öllum aukahlutum,“ seg-
ir Sigurður.
Þjófurinn í barnaherbergi
„Ég fer að sofa klukkan eitt og konan
vaknar hálf sex og þá finnur hún ekki
aðallykilinn að bílnum sem hún er
alltaf með í töskunni sinni, en pælir
ekkert meira í því, og finnur varalyk-
ilinn. Hún opnar dyrnar og skamm-
ast yfir því að ég hafi ekki læst þegar
ég fór að sofa, en ég læsti þegar ég fór
að sofa. Hún kíkir út á hlaðið og þá
er bíllinn bara farinn,“ segir Sigurður
þegar hann lýsir því hvernig innbrot-
ið uppgötvaðist. Sigurður kveðst hafa
hringt umsvifalaust á lögregluna sem
hafi komið á staðinn.
Sigurður og kona hans gengu síð-
an um íbúðina til að athuga hvort
fleiru hefði verið stolið og sáu að
ýmislegt vantaði. „Það eru ummerki
inni í herbergi hjá stráknum að búið
sé að færa naggrísabúrið og komm-
óðu sem er inni í herbergi hjá hon-
um,“ segir Sigurður sem hryllir við
því að ókunnugur maður hafi verið
inni í herbergi hjá stráknum hans á
meðan hann svaf.
Nauðsynlegt að hafa
öryggiskerfi
Sigurður er með þjófavörn í húsinu
sem var ekki í gangi þegar þjófarnir
brutust inn. „Það er líklega í síðasta
skiptið sem við höfum slökkt á henni
á nóttunni.“
Börnum Sigurðar var að vonum
brugðið eftir að fjölskyldan gerði
sér grein fyrir innbrotinu. „Þau fóru
í skólann í morgun (í gær) og voru
voðalega spennt fyrst en þegar þau
uppgötvuðu þetta fóru þau bara að
gráta,“ segir Sigurður. Hann á þrjú
börn á aldrinum 3 ára til 8 ára. Að-
spurður hvaða ráðleggingar hann
hafi fyrir fólk sem vill koma í veg fyr-
ir innbrot á heimili segir Sigurður.
„Að setja kerfið á á nóttunni, það er
það eina sem hægt er að gera.“
Þakkar fyrir að ekkert
alvarlegt gerðist
„Þetta er ömurlegt, ég bara þakka
fyrir að ekkert gerðist miðað við
það sem hefur gerst síðustu daga í
Garðabænum og úti á Seltjarnar-
nesi,“ segir Sigurður. Skemmst er að
minnast þegar grímuklæddir menn
hótuðu eldri hjónum lífláti með
hnífum á meðan þeir fóru ráns-
hendi um íbúðina í Garðabænum.
Svipað atvik átti sér stað á Barða-
ströndinni í síðasta mánuði þegar
tveir menn bundu mann á níræðis-
aldri og lömdu hann á meðan þeir
stálu hátt í 60 úrum og öðrum skart-
gripum. Sigurður vill koma þökkum
til fjölmiðla sem hafa sýnt málinu
mikinn áhuga. „Það þarf að taka á
þessu.“
Þeim sem geta gefið upplýsingar
um málið er bent á að hafa samband
við lögregluna í síma 444-1000.
Boði logasoN
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
„...en þegar þau upp-
götvuðu þetta fóru þau
bara að gráta.“
audi Q7 stolið var glænýjum
jeppa af gerðinni audi Q7.
Mynd tengist frétt ekki beint.
Mjög brugðið sigurður freyr
Árnason ætlar framvegis að hafa
kveikt á þjófavörninni á næturnar.
MyNd Karl PeterseN
Málaferli yfir gunnari stefáni Wathne halda áfram:
Wathne vísað úr landi
Dómstóll í Kaliforníu hefur ákveðið
að vísa Gunnari Stefáni Wathne úr
landi í Bandaríkjunum. Gunnar Stef-
án, sem er erfingi auðæfa Wathne-
systranna, hefur staðið í málaferlum
í tæp tvö ár síðan hann var hand-
tekinn í Indlandi vegna gruns um
að hafa þvættað peninga fyrir LSD-
verksmiðju. Höfuðpaur hennar situr
í ævilöngu fangelsi.
Gunnar Stefán verður að vera
farinn frá Bandaríkjunum 26. júní
næstkomandi, en málaferli hans
hafa verið bæði flókin og kostnað-
arsöm. Hann var handtekinn á Ind-
landi og eftir að hafa dúsað í fangelsi
þar í landi í nokkrar vikur var hann
framseldur til Bandaríkjanna. Dóm-
stóll komst að því að sú krafa hafi
verið ólögleg, enda Gunnar Stefán ís-
lenskur ríkisborgari. Verjendur hans
kröfðust þess að málið yrði látið nið-
ur falla, en dómarinn í málinu féllst
ekki á það. Þess í stað er líklegt að
málið verði jafnvel tekið upp annars
staðar í heiminum. Gunnar Stefán á
hins vegar kost á því að berjast áfram
fyrir dómstólum í Bandaríkjunum.
Málinu verður haldið áfram í þess-
um mánuði.
Gunnari Stefáni er lýst sem leynd-
ardómsfullum yfirstéttarmanni af
fjölmiðlum í Bandaríkjunum. At-
hyglin hefur jafnt beinst að móð-
ur hans og systrum hennar sem eru
kallaðar þríburarnir þar í landi vegna
þess að þær kjósa að klæðast sams
konar fötum þegar þær koma fram.
Þegar Gunnar Stefán kom til Banda-
ríkjanna frá Indlandi var hann sett-
ur í fangelsi, en systurnar lögðu fram
tryggingu sem samsvarar rúmlega
600 milljónum króna á núgildandi
gengi.
stefán Wathne dómari hefur
skipað gunnari stefáni að yfirgefa
Bandaríkin fyrir 26. júní.