Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Blaðsíða 64
n Leikkonan unga, Þóra Karítas Árnadóttir, hefur haft nóg að gera síðustu mánuði. Hún sló í gegn með einleiknum Ég heiti Rachel Corrie í Borgarleikhúsinu en vinna við einleikinn tók marga mánuði. Því hefur Þóra ákveðið að taka sér ærlegt sumarfrí og slappa af. Hún dvelur þessa stundina í London og heimsækir gamla vini. Þóra nefni- lega útskrifaðist úr leiklistarskólanum Webber Dou- glas Academy of Dramatic Art í London árið 2006. Leiklista- runnendur þurfa þó ekki að hafa miklar áhyggjur því þeir geta notið hæfileika hennar í þáttunum Sumar- ást sem verða sýndir á Stöð 2 í sumar. Á hann ekki eftir að hverfa sporlaust? Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. Hjá Strætó BS var ákveðið gera vel við farþega skemmtiferðaskipa og því opnuð ný stoppistöð á Skarfabakka á Reykjavíkurhöfn 20. maí. Voru um- sjónarmenn skemmtiferðaskipa afar ánægðir með þessa þjónustu þar sem sérstakir metan-strætóar ferjuðu ferðalangana á vit ævintýranna. Að auki er hægt að lækka metan-stræt- óana talsvert sem gerir fötluðu fólki auðvelt að komast í og úr vagninum. Áður fyrr þurftu ferðamennirnir að taka rútu frá Reykjavíkurhöfn inn í Reykjavíkurborg og þaðan að kom- ast leiðar sinnar með strætó. Þessi nýja þjónusta var því ódýrari og mun þægilegri fyrir alla aðila og voru um- sjónarmenn skemmtiferðaskipa afar stoltir af henni. Algjör draumur að sögn. En draumurinn breyttist í martröð strax daginn eftir, á sjálfan uppstign- ingardag, þegar þjónustan var aft- urkölluð. Umsjónarmenn skemmti- ferðaskipa fengu þau skilaboð að þjónustan yrði ekki í boði lengur án frekari skýringa. Urðu umsjónar- mennirnir afar vonsviknir þar sem þeir voru stoltir af því að sýna er- lendum ferðamönnum þjónustulund borgarinnar. Telja þeir að pólitík hafi spilað stóra rullu í afturköllun þjón- ustunnar. Telja þeir pottþétt að hér sé um að ræða hagsmunaárekstra og að forráðamönnum rútufyrirtækja hafi ekki líkað þessi nýbreytni. Umsjónarmennirnir halda samt sem áður áfram að þjónusta ferða- menn þó litla hjálp sé að fá frá Reykja- víkurborg og Strætó BS. liljakatrin@dv.is Sumarfrí í London Miklu meiri hollusta Láttu skynsemina ráða. Hreyfðu þig reglulega og njóttu þess að borða heilsusamlega. Þjónusta Strætó BS við farþega skemmtiferðaskipa var afturkölluð eftir einn dag: Bannað að taka upp farþega n Leikarinn og varaborgarfulltrúinn Dofri Hermannsson hefur afráð- ið að leggja Útvarpi Sögu lið sitt í sumar. Hann verður með vikulegan þátt á fimmtudögum milli 17 og 18. Hugmyndin að baki þættinum mun vera sú að nóg sé kom- ið af svartagalls- rausi í samfélag- inu. Dofri mun því leggja mesta áherslu á upp- byggilega umfjöllun og fá til sín í því skyni viðmæl- endur sem eru áhuga- samir um endureisn Íslands. dofri í útvarpið n Partípinninn Andrés Pétur Rún- arsson hefur ákveðið að breyta um lífsstíl og er byrjaður í ströngu heils- uátaki til að losa sig við aukakílóin. Andrés Pétur borðar nú skyr í öll mál og hefur gert í nokkra daga. Segja kunnugir að það stórsjái á kapp- anum og er hann sjálfur handviss um að nokkur kíló séu fokin. Andr- és Pétur er einn af eigendum veitingastaðar- ins Pósthússins sem hefur fallið vel í kramið hjá landanum. Þar stendur hann vaktina hverja einustu helgi og er yfirleitt troð- fullt af lands- þekktum ein- staklingum. andréS pétur í megrun Brostnir draumar metan-strætóarnir voru sem draumur fyrir erlenda ferðamenn. mynd Stefán KarlSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.