Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Blaðsíða 29
Ekki
missa
þig í áti
heilsa
„Það er tvennt sem þarf að huga að þegar mað-
ur ætlar í alvöru átak og það er mataræði og
hreyfing. Ef þú ætlar að ná einhverjum árangri
er frumatriði að fá sér góðan einkaþjálfara til
að hjálpa sér í gegnum þetta ferli,“ segir Sveinn
Andri.
Sveinn Andri fékk sér einkaþjálfara í nóvem-
ber árið 2007 og nýtur enn leiðsagnar þjálfar-
ans. Hann sér svo sannarlega ekki eftir því enda
hefur árangur hans verið ótrúlega góður á þess-
um stutta tíma.
„Þegar ég fékk mér einkaþjálfara byrjaði ég á
því að keyra á mikla brennslu sem felst í tveggja
tíma æfingu á dag, sjö daga vikunnar. Síðan
breytti ég mataræðinu. Ég tók út allt sem heitir
sælgæti, pítsur, fitumikill kjúklingur, kökur, kex
og gos. Matseðlinum var í fyrsta lagi gjörbreytt
og í annan stað fór ég að borða litlar máltíð-
ir á þriggja tíma fresti til að halda brennslunni
gangandi og blóðsykrinum í jafnvægi. Á fjórum
mánuðum fóru 24 kíló. Síðan þá hef ég verið
í því að halda þessu við. Ég hef svissað á milli
hjá þjálfaranum, annars vegar farið í uppbygg-
ingarprógramm þar sem ég byggi upp vöðva og
hins vegar farið aftur í niðurskurð. Þyngdin er
ekki aðalmálið heldur að hafa fituprósentuna í
lagi og samsetninguna á henni. Ég var í þrjátíu
í fituprósentu og er kominn niður í tólf. Þetta er
allt annað líf.“
Margir sem breyta svona um lífsstíl segja
það auka sjálfstraustið. Sveinn Andri segir það
ekki hafa þurft í sínu tilviki en segir hreyfinguna
hafa gífurlega góð áhrif á andlegu hliðina.
„Sjálfstraustið hefur nú aldrei verið neitt
vandmál hjá mér. En mér líður miklu betur. Það
er ekki spurning. Nú er mjög gaman að kaupa
sér föt og annað í þeim dúr,“ segir Sveinn Andri
sem finnst lítið mál að halda þessum góða ár-
angri við.
„Þetta er bara spurning um að breyta um
lífsstíl, gera hreyfinguna að daglegum, regluleg-
um viðburði og ekki missa sig í áti. Ég fer í rækt-
ina á hverjum degi og hef líka stundum farið út
að hlaupa þegar ég er í fríi.“
liljakatrin@dv.is
Lögfræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson hefur náð
undraverðum árangri í ræktinni síðan hann fékk sér
einkaþjálfara fyrir tæpum tveimur árum. Hann ráð-
leggur fólki sem vill ná góðum árangri í líkamsrækt að
fá sér einkaþjálfara til að leiðbeina sér við að breyta
um lífsstíl og öðlast vellíðan.
myndIR RAkel ÓSk SIguRðARdÓttIR
Fer létt með Sveinn Andri
vílar ekki fyrir sér að taka
nokkrar góðar armbeygjur.
duglegur að pumpa
Lögfræðingurinn tekur
á og styrkir leggina.
Ferskur á morgnana Sveinn
Andri mætir oft klukkan sjö á
morgnana í ræktina og kemur
með góða skapið með sér.