Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Side 6
föstudagur 5. júní 20096 Fréttir
Sandkorn
n Valdaklíka Gunnars Páls
Pálssonar, fyrrverandi for-
manns Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, hefur stofnað
eins konar
byltingar-
ráð til að
koma hin-
um nýja
formanni,
Kristni
Erni Jó-
hannes-
syni, og
hans fólki frá völdum. Meg-
inmarkmið gömlu valdaklík-
unnar er að breyta lögum
félagsins svo ekki komi aftur
til „slyss“ á borð við það þegar
nýja fólkið bylti gamla valda-
kjarnanum.
n Herferð sægreifanna gegn
firningarleið stjórnarflokk-
anna er enn í fullum gangi.
Morg-
unblað-
ið leiðir
grátkórinn
en ýms-
ar sveit-
arstjórn-
ir fylgja í
kjölfarið
og heimta
að sægreifar fái að halda sín-
um óveiddu fiskum. Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar, mun hafa ver-
ið áfram um að fá samþykkt
mótmæli í bæjarstjórn við
aðförinni að sægreifunum. En
það gekk ekki þar sem einn
af bæjarfulltrúum hans, Gísli
Halldórsson, er stuðnings-
maður firningarleiðarinnar.
Gísli á reyndar kyn til þess
að hafa óbeit á kvótakerfinu
en hann er sonur Halldórs
Hermannssonar á Ísafirði og
bróðursonur Sverris, stofn-
anda Frjálslynda flokksins.
n Vandræðagangur Karls Sig-
urbjörnssonar biskups vegna
séra Gunnars Björnssonar
á Selfossi á sér lítil takmörk.
Gunnar er
með bisk-
upsbréf upp
á að hann
eigi að snúa
aftur til
kirkju sinnar
frá og með
1. júní. En
nú hefur
biskupinn lengt leyfi Gunn-
ars til 1. ágúst þótt hann hafi
verið sýknaður af ásökunum
um kynferðislega áreitni gegn
unglingsstúlkum. Stór hluti
safnaðarins er hlynntur því
að prestur þeirra snúi aftur og
ólgan innan sóknarinnar er
gríðarleg og vaxandi.
Systursynir Bobbys Fischer hafa höfðað mál gegn ekkju Fischers, Miyoko Watai, og
vilja fá opinber skipti á dánarbúi Fischers. Búið er metið á um 140 milljónir króna og
eru eignirnar mestmegnis erlendis. Enn leikur vafi á um hvort Watai og Fischer hafi
verið gift. Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður systursonanna, segir málið viðamikið
og teygja anga sína um allan heim.
Í MÁL VIÐ „MEINTA“
EKKJU FISCHERS
„Þetta mál hefur staðið yfir síð-
an Fischer dó og er ágeiningur um
arf. Þetta eru sem sagt systursynir
Bobbys Fischer gegn hinni meintu
eiginkonu. Þeir eru að fara fram á
opinber skipti á búinu,“ segir Guð-
jón Ólafur Jónsson, lögfræðingur Al-
exanders og Nicholasar Targ, syst-
ursona skákgoðsagnarinnar heitnu
Bobbys Fischer. Systursynirnir höfða
nú mál gegn ekkju Fischers, Miyoko
Watai, en ekki er enn búið að sanna
hvort þau hafi í raun verið gift. Syst-
ursynirnir eru báðir búsettir í Banda-
ríkjunum, annar í Los Angeles og
hinn í Washington.
Skiptastjóri skipaður
„Ef dómurinn fellst á þessa kröfu
verður væntanlega skipaður skipta-
stjóri. Hann mun þá leysa úr því
hvort þeir eigi erfðarétt eða ekki. Ef
það verður talið að hann hafi ekki
verið kvæntur eiga þeir erfðarétt. Ef
það er talið að það hafi komist á hjú-
skapur þeirra á milli einhvern tím-
ann ætti hún að geta erft hann. Með
þeim fyrirvara að hann hafi ekki átt
dóttur á Filippseyjum eins og var tal-
að um á sínum tíma,“ segir Guðjón.
Dóttir á Filippseyjum
Ágreiningur um arf Fischers hefur
staðið yfir síðan hann lést eftir erf-
ið veikindi 17. janúar á síðasta ári.
Spurningamerki hefur verið sett við
ýmsa þætti í þessu máli, þar á með-
al við það hvort Fischer hafi átt dótt-
urina Jinky Young sem er nú átta ára
og frá Filippseyjum. Lögfræðing-
ur hennar frá Filippseyjum, Samu-
el Estimo, sagðist í samtali við DV í
febrúar í fyrra hafa skotheld gögn því
til sönnunar en enn hefur ekki verið
staðfest fyrir dómstólum hvort Jinky
sé dóttir Fischers.
Voru þau gift?
Ennfremur hefur ekki fengist stað-
fest hvort Fischer var kvæntur Miy-
oko Watai og segir Guðjón það enn
vafamál.
„Það er eitthvað málum blandið.
Á sínum tíma var lagt fram það sem
hún kallaði hjúskaparvottorð en var
í rauninni staðfesting á hjúskapar-
stöðu samkvæmt persónuskrá henn-
ar í Tókýóborg. Síðan hafa verið lögð
fram frekari gögn og báðir aðilar
búnir að skila greinargerðum. Þetta
er allt saman
að þróast.
Þetta tekur
enda eins og öll önn-
ur mál. Þetta er frek-
ar viðamikið því þetta
snýst að hluta til um
einhverja gjörninga í
Japan og hjúskap að
þarlendum lögum. Fyrir
utan það að ef menn vilja
flækja málið enn frekar er
spurning um þessa dótt-
ur á Filippseyjum. Svo eru
eignirnar að megninu til er-
lendis. Þetta teygir anga sína
um víða veröld,“ segir Guð-
jón. Bú Fischers er metið á
um 140 milljónir króna.
LiLJa Katrín GunnarSDÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Þetta er frekar viða-
mikið því þetta snýst að
hluta til um einhverja
gjörninga í Japan og
hjúskap að þarlendum
lögum.“
Hjónabandið vafamál teljist Miyoko Watai
hafa verið gift Bobby fischer erfir hún þær
140 milljónir sem hann skildi eftir sig.
Barist um arfinn
systursynir fischers
fara fram á opinber
skipti á dánarbúinu.
Herbert Guðmundsson vann sigur í Hæstarétti og íhugar skaðabótamál:
„Ég er mjög hamingjusamur, glaður
og frjáls en þetta mál er búið að rústa
fjölskyldunni, hjónabandinu og öllu.
Réttlætið sigraði í þessu máli þar sem
ráðist var á okkur með andlegu og
fjárhagslegu ofbeldi,“ segir Herbert
Guðmundsson.
Herbert og fyrrverandi eiginkona
hans unnu í gær sigur í Hæstarétti í
áfrýjun sinni á dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur vegna deilu við húsfé-
lagið á Prestbakka 11 til 21. Sneri
málið að viðgerðum á þaki raðhúsa-
lengjunnar.
Hæstiréttur vísaði málinu frá hér-
aðsdómi og er húsfélaginu gert að
greiða Herberti og Svölu Guðbjörgu
Jóhannesdóttur 1,2 milljónir króna
málskostnað í héraði og fyrir Hæsta-
rétti.
Herbert var í Héraðsdómi Reykja-
víkur í fyrra dæmdur til að greiða
húsfélaginu á Prestbakka 11 til 21
3,9 milljónir króna. Forsaga máls-
ins er sú að í mars 1991 keypti Her-
bert ásamt eiginkonu sinni húseign
á Prestbakka 15 en hún er hluti af
raðhúsalengju. Í kaupsamningi kom
fram að nauðsynlegt væri að gera við
þakið og luku þau viðgerðunum þá
um sumarið. Ekki fór fram viðgerð á
öðrum hlutum raðhússins.
Í apríl árið 2005 lýsti húsfélag-
ið yfir nauðsyn þess að gera við þök
hinna eignanna. Forsvarsmenn hús-
félagsins lögðu þar fram lagagrein-
ar um fjöleignarhús en samkvæmt
þeim fellur kostnaður af viðgerðum
raðhúsa sem þessara á alla lóðareig-
endur.
Herbert og Svala neituðu að
greiða og þegar greiðslur bárust ekki
til húsfélagsins var þeim stefnt. Her-
bert íhugar nú skaðabótamál.
„Ég ætla að ræða við lögmanninn
minn og kanna skaðabótamál. Ég sit
í súpunni með reikninga og bömmer
út af þessu. En ég bið til Guðs á hverj-
um degi og þar fæ ég styrk. Ég er með
tvær milljónir á mér eftir að ég tapaði
málinu í undirrétti. Ég er búinn að
vera atvinnulaus frá áramótum og nú
er það næsti vandi hvernig ég kemst
út úr þessu. Það er vonandi að Guð
gefi að ég nái að vinna á því núna.“
lilja@dv.is
sækir styrk sinn til guðs
réttlætið sigraði Herbert er í
skýjunum eftir sigurinn í gær.
MynD SiGtryGGur ari JÓHannSSon