Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Page 33
Föstudagur 5. júní 2009 33heilsa
Dásamlegt frí í Hallormstaðarskógi
fyrir einstaklinga og alla fjölskylduna.
Yoga alla morgna og seinnipartinn djúpslökun.
Ljúffengur heilsusamlegur matur.
Yoga í skóginum
Dagana 25.–28. júní
reykjavík
Verð 29.000 kr. – einstaklingar
Fjölskylduafsláttur
Frítt fyrir börn undir 10 ára aldri
Gistiheimilið Grái hundurinn www.graihundurinn.is býður
þátttakendum upp á 25% afslátt af gistingu,
hótel og smáhýsi. Einnig er á staðnum tjaldstæði og sundlaug.
HUGLEIÐSLUGÖNGUFERÐ
VARÐELDUR OG SÖNGUR
NUDD
GÖNGUFERÐIR Í SKÓGINUM
TÝNUM JURTIR OG BÚUM TIL ÚR ÞEIM
GRÆÐANDI GRÆNT KREM
YOGA FYRIR BÖRNIN OG HEILL SKÓGUR
TIL AÐ LEIKA SÉR Í
HREFNA MUN GÆTA ÞEIRRA OG SÝNA ÞEIM TÖFRA HANS
Skráning og upplýsingar á: yoga@yogashala.is
sími 553-0203 – www.yogashala.is/workshop
Rannveig Gissurardóttir
Listakokkur
Ingibjörg Stefánsdóttir
Yogakennari
Skokkhópur FjölniS eftir
Reykjavíkurmaraþon árið 2007.
Erla segir að ekki stefni allir í hópnum á
maraþon. Þó séu margir í hónum sem
hafi æft markvisst í mörg ár og hlaupið
fjöldann allan af maraþonum.
Nýbakaðar mæður leita ýmissa leiða til þess að koma sér í flott form eftir barnsburð. DV
leitaði til Yesmine olsson, einkaþjálfara og matgæðings, sem lumar á góðum og hollum
ráðum fyrir konur sem eru að byrja að æfa eftir fæðingu.
„Það tók mig tvö ár að komast í flott
form eftir barnsburð,“ segir Yesmine
Olsson, einkaþjálfari og matgæðing-
ur, og skellir upp úr. „Ég keppti í fitn-
ess þegar ég var komin einn mánuð á
leið þannig að það tók svolítinn tíma
að komast aftur í það form.“
Yesmine segir engar tvær kon-
ur vera eins og því virki ekki eitthvað
eitt á allar konur sem nýbúnar eru
að eignast barn og langar að komast
í flott form á nýjan leik. „Markmiðið
mitt var ekki fáránlega gott form, ég
vildi heldur fá að hreyfa mig og líða
vel.“
Yesmine byrjaði sjálf að æfa tveim-
ur til þremur vikum eftir barnsburð
en aðeins hægt og rólega með því að
taka létta göngutúra með barnavagn-
inn. „Seinna byrjaði ég á því að labba
ein og mun hraðar til að ná betri ár-
angri. Ég trúi því heilshugar að það
besta sem konur geta gert eftir barns-
burð er að hreyfa sig og ekki gleyma
að því að eiga stundir fyrir sjálfar sig,“
útskýrir Yesmine.
Konur eru oft orkuminni eftir
barnsburð því eins og mæður vita fer
mikil orka í að sinna nýfæddu barni
og mælir Yesmine því með að konur
finni sitt eigið tempó þegar þær byrja
að æfa, flýti sér ekki of mikið og taki
sinn tíma í að komast í fyrra form.
Hún segir það einnig mikilvægt að
konur finni sér æfingar við sitt hæfi.
„Konur verða að finna sér eitthvað
sem þær eiga eftir að halda sér við.“
Yesmine mælir með því að mæð-
ur sem æfðu ekki reglulega áður þær
urðu óléttar fari sér sérstaklega hægt
með auðveldum æfingum. „Þær kon-
ur sem æfðu regulega á meðgöngunni
ættu ekki að vera í neinum vandræð-
um með að byrja að æfa en þær mega
ekki gleyma að byrja hægt,“ ítrekar
Yesmine. Hún tekur það einnig fram
að konur sem gengu í gegnum erfiða
æfingu eða gengust undir keisara-
skurð ættu að hvíla sig lengur og bíða
með að fara í ræktina.
Margar nýbakaðar mæður gera
þau mistök að borða ekki reglulega
og enda þá með því að narta óþarf-
lega mikið. „Konur fá oft lítinn svefn á
nóttinni sem þýðir að þær vantar auka
orku yfir daginn og leita þær þá í mat,“
segir Yesmine og bætir við að góð leið
til þess að koma í veg fyrir ofát sé að
plana daginn og hvað þú lætur ofan í
þig og borða alltaf á þriggja tíma fresti.
Annars er þetta spurning um að borða
hollt eins og alltaf, forðast skyndibita-
mat og borða nóg af grænmeti.
hanna@dv.is
ekki gleyma sjálfri þér
YeSmine olSSon
Veit hvað hún syngur
þegar kemur að
heilbrigðu líferni.