Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Blaðsíða 32
Miðvikudagur 10. júní 200932 norðurland
18:00
www. s n y r t i s t o f a n l i n d . i s
Golden Rose
Mikið úrval af
góðum vörum
á frábæru verði
Gloss frá kr. 1.450,-
Túpugloss frá kr. 1.200,-
Augnskuggar frá kr. 1.450,-
Eyeliner frá kr. 1.310,-
Maskarar frá kr. 1.685,-
Varalitir frá kr. 1.735,-
Naglalökk frá kr. 400,-
Kíktu inn og skoðaðu úrvalið
Sumarlit irnir komnir
Snyrtivörur sem slá í gegn
Það hefur verið breytilegt í gegnum tíðina hvað þessi bransi gefur í tekjum en þetta hefur verið mjög gott
síðustu ár,“ segir Einar Eðvald Ein-
arsson, minkabóndi á bænum
Syðra-Skörðugili, rétt fyrir norð-
an Varmahlíð. Einar hefur rekið
þar minkabú ásamt sambýliskonu
sinni, Sólborgu Unu Pálsdóttur, frá
árinu 2000 og una þau hag sínum
vel með sínar 2600 minkalæður.
„Skinnaverð hefur sveiflast mikið
og krónan ekki minna. Núna í þess-
um þrengingum hefur markaðsverð
í erlendri mynt aðeins lækkað en á
móti hjálpar fallið á krónunni okk-
ur. Skinnaverð í íslenskum krónum
í dag er því mjög ásættanlegt,“ seg-
ir Einar. Þau hjónin selja minka-
skinnin í gegnum uppboðshús í
Danmörku og er verðið á skinni af
meðalstórum mink í kringum tvö
hundruð krónur danskar nú um
stundir.
„Þetta sveiflast í háum tölum
þegar krónan sveiflast eins og hún
gerir en meðalverð er einhvers stað-
ar í kringum 3500 krónur íslenskar.
En hvað gengið verður á morgun
veit ég ekki frekar en þú,“ segir Ein-
ar og hlær. Þess má geta að aðeins
fimm uppboðshús fyrir loðdýra-
skinn eru til í heiminum; auk þess
danska sem Einar og Sólborg skipta
við eru þrjú í Bandaríkjunum og eitt
í Finnlandi.
Loðdýrarækt
á bænum í 30 ár
Loðdýrarækt hefur verið á Syðra-
Skörðugili í tæp þrjátíu ár því fað-
ir Einars byrjaði með refarækt þar
árið 1981. Seinna byrjaði hann líka
með mink og rak minka- og refa-
ræktina þar til Einar tók við búinu
fyrir níu árum. Árið 2001 hætti Ein-
ar svo með refinn.
„Ég tók það pláss sem refurinn
var með og gerði úr því minkahús
og hef eingöngu verið með mink
síðan,“ segir Einar. „Það er léttara
að vera bara með eina tegund upp
á tæki, tól og umhverfi að gera. Svo
er því ekki að leyna að refurinn
hefur verið ennþá sveiflukennd-
ari og erfiðari en minkurinn varð-
andi sölu skinna og verð. Refurinn
fór alltaf hátt upp en hann fór líka
djöfull langt niður og þá langt undir
kostnaðarverð. Hann hefur því ver-
ið voðalega óútreiknanlegur í verði.
Minkurinn er miklu stöðugri.“
SorgLegar forSendur
Eins og margir vita var miklu meira
um loðdýrarækt hér á landi á árum
áður. „Þetta var lausnarorðið hjá
stjórnvöldum á árunum 1985 til ‘88,“
segir Einar.
„Þá var offramleiðsla í sauðfjár-
ræktinni, komin kjötfjöll og kvóta-
kerfið komið á. Þá duttu menn niður
á lausnarorðin sem voru loðdýra-
rækt og fiskeldi. Það sorglega gerð-
ist að greinin var sett á flot á öðrum
forsendum en sínum eigin. Í raun var
ekki verið að hugsa um hvernig væri
hagkvæmast að byggja greinina upp
sem alþjóðlega samkeppnisgrein,“
segir Einar og bendir á að loðdýra-
rækt sé gjörólík öðrum búskap því af-
urðirnar séu seldar við hamarshögg á
erlendum mörkuðum. Ómögulegt sé
að vita hvaða verð fæst þegar hamar-
inn fellur ólíkt því sem er í sauðfjár-
ræktinni þar sem öruggt verð fáist við
dyrnar á sláturhúsinu.
Loðdýrabúin á Íslandi voru tvö
hundruð og fjörutíu talsins þegar
mest var. Í dag eru þau einungis tut-
tugu og tvö. „Á móti hefur meðalbúið
stækkað gríðarlega. Ef þú horfir bara
á fjölda minkalæða í landinu er hann
mjög svipaður og var þegar þær voru
hvað flestar,“ segir Einar sem býst
ekki við öðru en að halda sig við loð-
dýraræktina um ókomin ár.
kristjanh@dv.is
Á bænum Syðra-Skörðugili hefur verið stunduð loðdýrarækt í
bráðum þrjátíu ár. Einar Eðvald Einarsson, sem nú er bóndinn á
bænum, segir sveiflurnar á skinnaverðinu miklar en að síðustu ár
hafi verið mjög góð. Bransinn sé líka erfiður að því leyti að ekki sé
hægt að vita verðið fyrr en við hamarshögg ólíkt því sem er í sauð-
fjárræktinni þar sem öruggt verð fáist við dyrnar á sláturhúsinu.
„refurinn fór
djöfull langt niður“
Minkabóndi Einar Eðvald með nokkra minka á „barnsaldri“. Búið telur 2600
læður. MYND SigtrYggur Ari