Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Blaðsíða 14
Miðvikudagur 10. júní 200914 norðurland Það má segja að lúðueldi sem atvinnugrein sé ennþá á þró-unarstigi. Þetta er það flók-ið ferli að það er ennþá ekki búið að leysa úr öllum flækjum sem menn lenda í,“ segir Arnar Freyr Jóns- son, framkvæmdastjóri Fiskeyjar, fé- lags sem heldur úti lúðueldi á Dalvík og Hjalteyri. Í starfstöðinni á Dalvík eru klakfiskar á fóðrum sem ná allt að áttatíu kílóa stærð. Á Hjalteyri er svo sjálft seiðaeldið, í hluta af húsa- kynnum gömlu síldarbræðslunnar á eyrinni. Níutíu prósent seiðanna eru seld til Noregs í áframeldi en Silfurstjarn- an í Öxarfirði sér um áframeldi á lúðu hér heima. Stærsti hluthafinn í Fiskey er Hafrannsóknastofnun með 29 pró- senta hlut. Aðrir stórir hluthafar eru útgerðarfélögin Samherji, Brim og HB Grandi. Engir sjúkdómar Arnar útskýrir að það taki sex mán- uði að ala seiði sem hægt sé að selja til áframeldis. „Lúðan hefur sérstak- lega langt kviðpokastig, fimmtíu daga. Að því loknu getur hún tekið utanaðkomandi fæðu. Þá þarf að ala seiðin þar til þau hafa náð fimm til tíu gramma stærð.“ Fyrir hvert seiði fást fimm hundruð krónur. Lúðan er einnig lengi að verða kynþroska og klakfiskur þarf að ná allt að tólf ára aldri áður en hann hef- ur náð kynþroska og hægt er að nýta hrogn og svil. „Menn hafa þurft að leysa ýmiskonar vandamál í þessu. Til kosta má telja að lúðan virðist þola vel að vera í þessu umhverfi og hing- að til hafa ekki komið upp sjúkdómar hjá okkur, sem annars eiga það til að koma upp í eldi,“ segir Arnar. rafmEngun drEpur Spurður um fréttir af því að rafmagns- mengun hafi valdið skaða í lúðueld- inu á dögunum, segir Arnar að vissu- lega hafi seiði drepist. „Það eru ekki komnar neinar formlegar niðurstöð- ur, og þess vegna er erfitt að tala um þetta í smáatriðum. Við höllumst að því að þarna hafi verið á ferðinni svokölluð yfirtíðnimengun sem hafi komið frá spennistöð hérna á eyr- inni.“ Það var einmitt þessi sama spennistöð sem talin er hafa valdið hljóðmengun í svonefndu Richards- húsi á Hjalteyri. Eftir ítarlegar rann- sóknir komust menn að þeirri niður- stöðu að loftnet á húsinu hafi náð að magna upp rafmengunina. Í skýrslu sem gerð var er mælst til þess að Rarik taki rafmagn til Hjalteyrar með jarðstreng beint frá Akureyri. ÞEir Halldór og jakob Í einum af fjórum mjöltönkum síld- arbræðslunnar á Hjalteyri hafa Arn- ar og félagar komið upp eldistanki fyrir stærri fiska. „Hugmyndin er að geta alið klakfiska hér á staðnum.“ Klakfiskarnir á Hjalteyri hafa náð allt að sex ára aldri og hafa sumir fisk- anna náð yfir fimmtíu kílóa þyngd. Félagið Fiskey var stofnað árið 1987. Fyrstu seiðin urðu svo til árið 1990, tvö stykki, sem fengu nöfnin Halldór og Jakob. „Það voru fluttar fréttir af þeim félögunum á sínum tíma. Ég er bara ekki alveg klár á af- drifunum, hvort þeir enduðu daga sína í lúðusúpu,“ segir Arnar. Í gömlu síldarbræðslunni á Hjalteyri stundar félagið Fiskey eldi á lúðuseiðum. Hrygningarfiskur er alinn á Dalvík og áframeldi fer fram hjá Silfurstjörnu í Öxarfirði. Níutíu prósent seiðanna eru þó seld til Noregs. Lúðueldi sem atvinnugrein er enn á tilraunastigi. sEiðin eru seld til noregs „Það voru fluttar fréttir af þeim félögunum á sínum tíma. Ég er bara ekki alveg klár á afdrif-unum, hvort þeir enduðu daga sína í lúðusúpu.“ Í seiðaeldinu Fyrir hvert seiði fást fimm hundruð krónur. Lúður í keri Á Hjalteyri ætla menn einnig að ala klakfiska. Sex mánuðir Seiðin þurfa að ná fimm til tíu gramma þyngd. Það tekur þau sex mánuði. Rektor Háskólans á Akureyri um fyrirhugaða fækkun háskóla: Aðför að háskólastarfi á landsbyggðinni Háskólaráð Háskólans á Akureyri mótmælti í síðustu viku harðlega fyrirhugaðri samein- ingu háskóla á Íslandi. Gengið var svo langt að kalla þessar hugmyndir aðför að háskóla- starfi á landsbyggðinni. Þegar DV tók viðtal við Þorstein Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, haustið 2007, spáði hann fækkun háskólanna. „Ég hef greinilega verið sannspár þá, því síðan er búið að sameina Kennaraháskólann Háskóla Íslands auk þess sem nú stendur fyrir dyrum að sameina Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri HÍ,“ segir Þorsteinn Gunnarsson. Andstaða háskólaráðsins liggur þó fyrst og fremst í þeim áhyggjum að útibú frá Há- skóla Íslands á landsbyggðinni verði á end- anum hornreka í rekstrinum. „Það er reynsla manna hér á Akureyri með fyrirtæki sem far- ið hafa í gegnum þetta ferli að þegar kemur að niðurskurði er byrjað á útibúunum,“ segir Þorsteinn. Sú sameining sem nú er stungið upp á í nýrri skýrslu erlendra sérfræðinga felst í því að eftir standi tveir skólar. Listaháskólinn og Háskólinn í Reykjavík sameinist undir merkjum þess síðarnefnda og Háskólinn á Akureyri og Háskólarnir á Hólum og Hvann- eyri verði sameinaðir Háskóla Íslands. „Frá stofnun Háskólans á Akureyri höfum við brautskráð þrjú þúsund kandídata. Af þeim er talið að helmingurinn sé starfandi hér á Eyjafjarðarsvæðinu, 750 vítt og breitt um landið og 750 í Reykjavík. Hins vegar er mun meiri hætta á því að fólk sem fer til náms í Reykjavík skili sér ekki aftur í heima- byggðina,“segir Þorsteinn. Heildarmyndin sé því sú að öflug starfsemi Háskólans á Ak- ureyri sé forsenda fyrir áframhaldandi upp- byggingu á blómlegu atvinnulífi utan höfuð- borgarinnar. „Í þessari skýrslu eru vissulega marg- ar hugmyndir sem eru forvitnilegar, en það er ákaflega mikilvægt að fólk átti sig á því hverju er verið að fórna.“ Rektor „Fólk verður að átta sig á því hverju er verið að fórna,“ segir Þorsteinn Gunnarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.