Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Blaðsíða 18
Miðvikudagur 10. júní 200918 norðurland Milljón tré á Silfrastöðum Skógarbændurnir Jóhann-es Jóhannsson og Þóra Jó-hannesdóttir á Silfrastöð-um í Skagafirði eru í þann mund að stinga niður milljónustu plöntunni í hlíðinni fyrir ofan bæ- inn. Tréð verður gróðursett með viðhöfn, enda verður í sama mund stungið niður tíumilljónustu plöntu Norðurlandsskóga. „Þetta verða stærri plöntur en við erum vön að gróðursetja,“ segir Þóra. Búskapur þeirra hjóna snýst alfarið um skógrækt eins og glöggt má sjá þegar ekið er eftir þjóðveg- inum, fram með Norðurá, áleiðis upp á Öxnadalsheiði. „Við erum með nokkra hesta hér, eins og gengur og gerist, en engan hefð- bundinn búskap.“ lerkið stendur sig Skógurinn við Silfrastaði nær frá Bólugili fram að Kotagili, svo langt upp í hlíðina fyrir ofan bæ- inn að sjá má lerkiplöntur spretta í harðaklettum og skriðum. „Það má segja að skógræktin hafi tekið flugið þegar byrjað var að planta lerkinu, því það virðist festa ræt- ur og dafna á stöðum sem í fljótu bragði virðast ekki einu sinni mjög lífvænlegir,“ heldur Þóra áfram. Lerkið nær þó ekki að sá sér sjálft. „Birkiplöntur hafa þó tekið að spretta villtar hér í grennd við skóginn, eins og oft gerist þar sem hann hefur verið ræktaður.“ Þegar litið er upp í hlíðina má furða sig á því að skógurinn þoli slíkar aðstæður. „Það verður reyndar að hafa í huga að þetta er frekar snjólétt svæði og mér er sagt að svæðið hér sé með því allra þurrasta á láglendi. Lerkið virðist reyndar þola þurrkinn vel.“ Fjörutíu ára áætlun Farið var af stað með Norðurlands- skógaverkefnið í júlí árið 2000. Verkefnið er hugsað til 40 ára og er markmiðið að rækta skóga og skjól- belti á Norðurlandi. Hugmyndin er að treysta byggðina og byggja upp náttúruauðlind sem getur skapað atvinnu til frambúðar. Starfssvæði Norðurlandsskóga nær frá Hrúta- firði austur á Langanes. Skógræktinni er skipt í timb- urskógrækt og landbótaskógrækt. Takmarkið með landbótaskógrækt er fyrst og fremst að skapa skjól og auka fjölbreytni í lífríkinu ásamt því að víkka möguleika til útivistar og ferðaþjónustu. Timburskógrækt- in miðar að því að skapa auðlind sem verður hluti af lífsviðurværi bænda í framtíðinni. Hjá Norður- landsskógum er stefnt að því að rækta skóg á alls 40 þúsund hekt- urum lands. Metið í skagaFirði Í lok síðasta árs höfðu bændur á 152 jörðum gert skógræktarsamn- inga við Norðurlandsskóga. Flest- ir þeirra í Suður-Þingeyjarsýslu, fjörutíu talsins, en 35 í Skagafirði. Skógarbændur í Skagafirðinum áttu þó metið í fjölda gróðursettra plantna í fyrra. Þeir settu niður 274 þúsund tré af þeim ríflega 1,2 milljónum sem gróðursettar voru á snærum Norðurlandsskóga. Lerkið er fyrirferðarmesta trjá- tegundin í þessari skógrækt. Tæp fjörutíu prósent af plöntum Norð- urlandsskóga eru lerkiplöntur. Fast á hæla þess kemur birki. Áætlað er að fjölbreytnin aukist með árun- um og lerkið víki smám saman fyrir öðrum tegundum. „Það verður reyndar að hafa í huga að þetta er frekar snjólétt svæði og mér er sagt að svæðið hér sé með því allra þurrasta á láglendi.“ Skógarbændurnir á Silfrastöðum, þau Þóra Jóhannesdóttir og Jóhannes Jó- hannsson, gróðursetja brátt tvö tré. Annað þeirra verður milljónasta plantan í Silfrastaðalandinu. Hin verður tíumilljónasta plantan sem gróðursett er í Norður- landsskógaverkefninu. Hlúð að nýjum plönt- um Þóra Jóhannesdóttir hlúir að lerkinu sem sáð verður á næstunni. Lerkiskógur í skriðum Lerkið virðist una sér vel í skriðunum í Skagafirði. Milljón plöntur Skógarbændur á Silfrastöðum hafa plantað einum tíunda af allri skógrækt Norðurlandsskóga. Dýrin í skóginum Fuglalíf verður sífellt fjölbreytilegra eftir því sem skógurinn stækkar. Branduglan sést gjarnan á veiðum í grennd við skóginn. MynDir Sigtryggur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.