Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Blaðsíða 10
„Það borgar sig að skoða vel hvort far-
tölvan sé byggð á nýjustu tækni í dag.
Hlið við hlið í verslunum eru tölvur
sem eru með ársgamalli tækni og svo
tölvur sem eru með nýrri tækni,“ seg-
ir Hafþór Helgason, framkvæmda-
stjóri Tölvutek. Hann segir mikilvægt
að fólk sem stendur í tölvukaupum
leiti sér aðstoðar og kynni sér vel
innihald þeirra tölva sem það hefur
augastað á.
Sex sinnum hraðari
Hafþór segir nokkuð mikinn mun
á tölvum sem eru ársgamlar og svo
þeirra sem eru nýjar. „Í nýju tölvun-
um er komin önnur tækni í skjáina,
örgjörvarnir nota minni orku, þráð-
lausu netkortin, svokölluð Draft-N
eru sex sinnum hraðari og hafa þri-
svar sinnum meiri drægni, auk þess
sem rafhlöðurnar eru endingarbetri,“
segir Hafþór og bætir því við að í
Tölvutek fáist til dæmis Acer-tölvur
sem innihaldi rafhlöður sem endist í
níu klukkutíma.
„Nýjasta tæknin í skjám er svo-
kölluð LED-tækni. Í þeim er LED
baklýsing sem gefur dýpri og skarp-
ari mynd. Skjárinn er þynnri og eyð-
ir töluvert minni rafhlöðu en þeir
gömlu,“ segir hann. Hann segir best
að þekkja nýjar tölvur frá gömlum á
skjánum. Nýir skjáir hafi 16:9 hlutföll
en þeir gömlu 16:10. „Gömlu tölvurn-
ar kallast 15,4” en nýju 15,6”. Þetta er
auðveldasta leiðin til að sjá muninn
á milli“ segir Hafþór en bætir því við
að heiðarlegir sölumenn veiti þessar
upplýsingar fúslega. Aðspurður seg-
ir hann nýju tölvurnar alls ekki alltaf
dýrari en þær gömlu.
Packard Bell reynast vel
Fjölmargir aðilar framleiða tölvur
fyrir einstaklinga. Hafþór segir að
vissulega séu merkin misgóð. Sum
þekktustu fyrirtækin, sem séu öflug
á fyrirtækjamarkaði, framleiði ekki
jafn góðar tölvur fyrir einstaklinga
og þau fyrirtæki sem sérhæfi sig í
að búa til tölvur fyrir einstaklinga.
„Þú getur fengið tölvu á 80 þúsund
krónur sem er með endingargóðri
rafhlöðu og allri nýjustu tækninni.
Á sama tíma geturðu keypt tölvu
á 150 þúsund krónur sem bygg-
ist á ársgamalli tækni. Verð er því
miður ekki endilega rétt viðmið-
un um gæði,“ segir Hafþór og bæt-
ir við að tölvukaup snúist um það
hversu endingagóður búnaðurinn
er, hversu lengi skjárinn endist og
hvort fartölvan liðist í sundur á fá-
einum árum eða ekki,“ segir hann.
Hafþór segir að Tölvutek bjóði
upp á mesta úrval landsins á far-
tölvum; Packard Bell, Acer, Tos-
hiba, HP, Sony, MSI, Asus og Le-
vono. Spurður hvaða merki hafi
reynst best segir Hafþór: „Að okk-
ar mati eru Packard Bell-tölvurnar
að koma lang best út hvað varðar
verð, gæði og tækni. Þar erum við
með sjö mismunandi fartölvur, á
verði frá 59.900 krónur. Þær eru all-
ar með nýjustu tækninni sem er í
boði í dag,“ segir hann.
160 gígabæt feikinóg
Nú fást á markaði fjölmargar gerð-
ir fartölva sem eru minni en áður,
eða allt niður í 8,9 tommur. Hafþór
segir að minni tölvurnar séu mjög
vinsælar, sérstaklega tölva frá Acer
sem sé 11,6 tommur. „Hún er kom-
in með sömu upplausn og sú sem
er 15,6 tommur. Það er sami fjöldi
punkta og þú sérð sama magn af
upplýsingum,“ segir hann en bætir
við að þegar tölvurnar séu orðnar
enn minn sjáist minna af upplýs-
ingum á skjánum. Því sé erfiðara
að vinna á þær allra minnstu auk
þess sem þær séu aflminni.
Vinnsluminni, rafhlaða og
stærð harða disksins eru lykil-
þættir þegar til stendur að kaupa
fartölvur. Hafþór segist alltaf mæla
með því að fólk fái sér tölvur sem
hafi tvö gígabæt í vinnsluminni, í
stað eins. Hvað harða diska varði
segir hann að 160 gígabæt, sem er
algeng stærð í ódýrari tölvum, sé
feykinóg pláss til að geyma gögn í
tengslum við nám og leiki. Stærri
diska þurfi ekki nema fólk vilji
geyma heilu seríurnar af þáttaröð-
um eða öðru plássfreku efni inni á
tölvunni.
Verðkönnun Neytendasamtakanna á kartöflum:
Ódýrastar í Fjarðarkaupum
Fjarðarkaup reyndist sejla
ódýrustu íslensku kartöflurnar í
lausu, í verðkönnun Neytendasam-
takanna. Þar er kílóverð 259 krónur.
Verðið reyndist 15 prósent hærra í
Nettó, 35 prósent hærra í Samkaup-
um Strax, 39 prósent hærra í Krón-
unni og 73 prósent hærra í Hag-
kaupum en þar var kílóverðið 449
krónur.
Í Skagfirðingabúð, Melabúðinni
og 10-11 var varan ekki til en versl-
anir á borð við Europris, Bónus og
11-11 voru ekki í könnun Neytenda-
samtakanna.
Sambærileg könnun var gerð
í fyrra. Í Krónunni og Hagkaup
reyndist verð á kartöflum í lausu
hafa hækkað um 34 og 50 prósent.
Athygli vekur hins vegar að í Fjarð-
arkaupum reyndist verðið lægra en
í fyrra. Í fyrra kostuðu kartöflurnar á
sama tíma 289 krónur á kílóið, eða
þrjátíu krónum meira en nú.
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna er tekið fram að upplýsingarn-
ar eru fengnar í gegnum síma eða á
heimasíðum verslana. Símakann-
anir séu ekki alltaf tæmandi og því
beri að taka niðurstöðunum með
fyrirvara.
Hagkaup í
garðabæ
Í síðasta lasti var sagt frá við-
skiptavini Hagkaupa sem sagðist
í fjögur skipti í röð hafa orðið
fyrir því að auglýstur afsláttur
skilaði sér ekki þegar á kassann
væri komið. Sagði hann að þegar
hann benti afgreiðslufólkinu á
mistökin tæki við heljarinnar ferli
þar sem finna þyrfti yfirmann
sem þyrfti að setja afsláttinn inn
í kassann. Fyrir vikið væri við-
skiptavinurinn hættur að versla í
versluninni. Í lastinu stóð að um
væri að ræða Hagkaupsverslun í
Grímsbæ. Hún er ekki til. Þar átti
að standa Hagkaup í Garðabæ og
leiðréttist það hér með.
n Lastið fær Blómaval í
Smáralind. Viðskiptavin-
ur beið talsverða stund
eftir afgreiðslu á meðan
afgreiðslustúlkan
skoðaði visir.is. Þegar
viðskiptavinurinn
kallaði á stúlkuna og bað
um að blómum yrði pakkað inn
fékk hann skömm í hattinn og
var sagt að það kostaði
aukalega. Annað gjald lagðist svo
á blómin þegar beðið var um að
skorið væri
neðan af
blómunum.
n Lofið fær N1 á Blönduósi. Fjöl-
skyldufaðir keypti mat handa sér og
ungri dóttur sinni og fengu frábæra
þjónustu um helgina. Þjónustustúlkan
lét sósurnar sjálf á pylsuna fyrir
stelpuna og kom svo með
veitingarnar að borðinu þar
sem þau höfðu komið sér
fyrir, þrátt fyrir að venjan sé sú
að viðskiptavinirnir sæki
matinn sjálfir.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 191,8 kr. verð á lítra 182,6 kr.
skeifunni verð á lítra 190,3 kr. verð á lítra 181,2 kr.
algengt verð verð á lítra 191,8 kr. verð á lítra 182,6 kr.
bensín
dalvegi verð á lítra 187,5 kr. verð á lítra 178,3 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 190,1 kr. verð á lítra 181,1 kr.
algengt verð verð á lítra 191,8 kr. verð á lítra 182,6 kr.
UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
10 þriðjudagur 18. ágúst 2009 neytendur
ritFöngin
Ódýrust í
griFFli
Verslun Griffils selur ódýrustu A4
blöðin, trélitina og milliblöðin,
sem eru notuð til að flokka blöð,
til dæmis í möppum. Þetta leiðir
verðkönnun Neytendasamtak-
anna í ljós en samtökin könnuðu
verð á algengum skólavörum í
Griffli, A4, Eymundsson, Office1,
Hagkaupum og Félagsstofnun
stúdenta.
Eins og áður sagði reyndust
ritföngin ódýrust hjá Griffli en
gríðarlegur verðmunur reyndist
á þessum vörum, allt að 461 pró-
sent á milliblöðum.
Þá var verð athugað á íslenskri
danskri, danskri íslenskri skóla-
orðabók. Bókin reyndist ódýrust í
A4. Þar kostaði hún 2.595 krónur
en dýrust var hún í Hagkaupum.
Þar kostaði hún 4.999 krónur, eða
nálægt því tvöfalt dýrari.
Mælir með 2 gígabætum í vinnsluminni
Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Tölvutek,
segir miklu máli skipta að kaupa tölvu með
nýjustu tækni. Þær séu ekki alltaf dýrari.
Mynd: Rakel ÓSk SIGURÐaRdÓTTIR
BaldUR GUÐMUndSSOn
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Tölvutek, segir mikilvægt að fólk sem kaupir
fartölvur sé meðvitað um það hvort nýjasti tæknibúnaður sé í tölvunum eða ekki.
Hann segir að því miður fari verð og gæði ekki alltaf saman þegar kemur að fartölvum
og skorar á fólk að kynna sér málin vel.
„Að okkar mati eru
Packard Bell-tölvurnar
að koma lang best út
hvað varðar verð, gæði
og tækni.“
Verð og gæði fara ekki saman