Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Side 4
Sandkorn
n Auglýsingar eru með ýmsu
orðalagi og stundum út úr kú.
Meðal þeirra auglýsinga sem
gengið hafa í vikunni er ein
um frumsýningu barnamynd-
ar Sverris Þór Sverrissonar,
Sveppa, og
Vilhelms
Antonsson-
ar. Þar var
því lýst að
Sveppi yrði
„í hurðinni“
á frumsýn-
ingunni.
Flestir sem
búa að einhverri málvitund
gera sér grein fyrir vitleysunni
og skammirnar hafa dunið á
Sveppa. Faðir hans, Sverrir
Friðþjófsson, var ekki kátur
með auglýsinguna en hann er
málfræðingur.
n Einhverjir gera sér það að
leik að halda til haga gullkorn-
um Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar prófessors þar
sem hann mærði útrásina.
Örskömmu fyrir hrun fjallaði
Hannes Hólmsteinn um auð-
manninn Björgólf Guðmunds-
son sem nú
stendur í
stærsta ein-
staklings-
gjaldþroti
Íslandssög-
unnar. Þar
fagnaði próf-
essorinn því
að auðmað-
urinn hefði mikið „siðferðislegt
áhrifavald“ meðal þjóðarinn-
ar. „Hann er öðrum fyrirmynd,
af því að hann er lifandi dæmi
um að menn geta ratað í mikla
erfiðleika, en brotist út úr þeim
aftur og jafnvel orðið meiri
og betri menn,“ orti Hannes
þremur mánuðum fyrir hrunið
mikla, þar sem Icesave-umsvif
Björgólfs féllu meðal annars á
herðar þjóðarinnar. Upp úr því
hefur sprottið mikil umræða
um siðferði eigenda bankanna.
n Útvarps-
stöðin Kan-
inn, undir
stjórn Ein-
ars Bárðar-
sonar, sem
fór heldur
rólega af
stað þann 1.
september
hefur verið að festa sig í sessi
undanfarið. Risastórt auglýs-
ingaskilti utan á Smáralind ber
þess vott að Kanamenn ætla
sér langt. Meðal þeirra þátta á
Kananum sem hafa gert það
gott er morgunþátturinn Egg
og beikon sem sjálfur útvarps-
stjórinn stýrir af mikilli hörku.
Einar hefur heitið öllum þeim
sem geta bent honum á skjald-
borg heimilanna 100.000 krón-
um í fundarlaun. Enginn hefur
getað svarað kalli útvarpstjór-
ans.
n Gunnlaug-
ur Helga-
son, smiður
og útvarps-
maður,
tók nokkra
áhættu
með því
að yfirgefa
Bylgjuna
og Stöð 2 til að ganga til liðs
við Kanann. Gulli Helga hafn-
aði feitu tilboði 365 og lagði á
Reykjanesbrautina og til liðs
við Kanann í Keflavík. Nú hefur
hlaupið á snærið hjá kappan-
um því Gulli leikur aðalhlut-
verkið í risastórri auglýsinga-
herferð fyrir Byko. Hann er því
ekki á flæðiskeri staddur þrátt
fyrir allt.
4 Föstudagur 25. september 2009 Fréttir
Óvissa ríkir um framhald starfs Jafnréttisvaktarinnar fyrir félagsmálaráðuneytið:
Formaðurinn segir af sér
„Frá því ný ríkisstjórn tók við hef-
ur félagsmálaráðherra ekki tekið
ákvörðun um í hvaða farvegi Jafn-
réttisvaktin á að vera,“ segir Bryndís
Ísfold Hlöðversdóttir sem hefur sagt
af sér sem formaður Jafnréttisvaktar-
innar. Hún staðfestir þetta í samtali
við DV. Bryndís Ísfold starfar einnig
sem varaborgarfulltrúi Samfylking-
arinnar.
Jafnréttisvaktin er vinnuhópur
sem meta á áhrif efnahagsástandsins
á stöðu kynjanna. Síðasta ríkisstjórn
samþykkti á fundi sínum í febrúar
að setja hópinn á laggirnar og var
Bryndís Ísfold skipuð formaður hans
af Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur,
þáverandi félagsmálaráðherra.
Bryndís Ísfold er ósátt við að jafn-
réttismálin hafi ekki verið tekin fast-
ari tökum að undanförnu í ráðuneyt-
inu. Hún segist skilja að nýr ráðherra
hafi viljað fara yfir nefndir ráðuneyt-
isins. „En þrátt fyrir ítrekaðar fyrir-
spurnir mínar um áframhald starfs
nefndarinnar hefur ekki verið tekin
ákvörðun um það. Ég segi mig því frá
starfinu þar sem ég er ekki tilbúin til
að vera í forsvari fyrir nefnd sem ekki
er að störfum,“ segir hún.
Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoð-
armaður Árna Páls Árnasonar, segir
að óvissa hafi verið um hvar jafnréttis-
málum yrði skipað niður í stjórnkerf-
inu þar til nú í sumar að hætt var við að
flytja þau frá félags- og tryggingamála-
ráðuneytinu. „Á þriðjudag í síðustu
viku var svo skipuð ráðherranefnd
þriggja ráðherra um jafnréttismál sem
meðal annars er ætlað að vinna frekar
úr tillögum Jafnréttisvaktarinnar sem
lagðar voru fram í vor. Á fyrsta fundi
þeirra má gera ráð fyrir að ákvörðun
verði tekin um framhald vinnu Jafn-
réttisvaktarinnar,“ segir Anna.
Hún tekur fram að starf Jafnrétt-
isvaktarinnar sé mikils metið í ráðu-
neytinu enda hafi vaktin sérstaklega
mikilvægu hlutverki að gegna á þess-
um tíma þegar búast má við að efna-
hagsþrengingar komi sérstaklega við
ákveðna hópa þar sem konur eru
fjölmennar.
erla@dv.is
Ósátt Bryndís
Ísfold gagnrýnir
að Árni Páll
hafi ekki tekið
jafnréttismálin
fastari tökum eftir
að hann tók við
félagsmálaráðu-
neytinu.
Fjöldauppsögn var hjá Morgunblaðinu í gærmorgun þegar 40 starfsmönnum var sagt
upp. Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri og forsætisráðherra, hefur verið
ráðinn ritstjóri blaðsins auk Haraldar Johannessen. Haraldur er góðvinur Þorsteins,
sonar Davíðs. Davíð mun ekki ritstýra fréttum af efnahagshruninu.
„Tveir ritstjórar með víðtæk tengsl inn í
íslenskt samfélag, athafnalíf og stjórn-
mál hafa verið ráðnir til blaðsins. Þeir
eru Davíð Oddsson og Haraldur Jo-
hannessen,“ sagði Óskar Magnússon
útgefandi þegar hann las upp tilkynn-
ingu vegna tíðindanna hjá Morgun-
blaðinu í gær fyrir utan Morgunblaðs-
húsið. 40 starfsmenn misstu störf sín
hjá Morgunblaðinu í gær í víðtækri
hreinsun innan raða blaðsins.
Ritstýrir ekki hrunfréttum
Samkvæmt heimildum DV var tek-
ið fram á starfsmannafundi Morg-
unblaðsins síðdegis í gær að frétta-
ritstjórn yrði í engu breytt. Davíð
Oddsson myndi ekki hafa afskipti af
fréttaflutningi sem tengist væntan-
legri skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis um orsakir og aðdraganda
hrunsins. Jafnframt hefði Davíð ekki
önnur afskipti af fréttaskrifum blaðs-
ins sem tengjast hruninu.
Umdeildur Davíð
Óskar Magnússon fékk yfir sig margar
spurningar frá fjölmiðlum eftir starfs-
mannafundinn í gær.
Var hann ítrek-
að spurður hvort
hann teldi að jafn
umdeildur mað-
ur og Davíð Odds-
son yrði Morgun-
blaðinu til trafala,
hvort það yrði
nú þröngt
flokks-
málgagn
Sjálf-
stæðis-
flokksins eða hvort ráðning Davíðs
myndi hreinlega skaða blaðið. Út-
gefandinn kvaðst ekki hafa neinar
áhyggjur af því. Starfsmenn höfðu
áhyggjur af trúverðugleika blaðsins
og kom það fram á starfsmannafund-
inum. Óskar var fullviss um að Davíð
yrði til gagns þó umdeildur væri. „En
hver er ekki umdeildur?“ spurði Ósk-
ar blaðamenn. „Davíð Oddsson hefur
um áratugaskeið verið einn af kunn-
ustu stjórnmálaleiðtogum Íslend-
inga. Hann hefur skýra framtíðarsýn
og rödd hans hefur ætíð náð eyrum
þjóðarinnar,“ sagði útgefandinn í til-
kynningu til fjölmiðla. Óskar sagðist
reikna með að Davíð tæki við ritstjórn
blaðsins í dag.
Haraldur góðvinur sonar Davíðs
Haraldur Johannessen sagði upp
störfum sem ritstjóri Viðskiptablaðs-
ins eftir að Morgunblaðið bauð hon-
um starfið. Haraldur er náinn vinur
Þorsteins Davíðssonar héraðsdóm-
ara, sonar Davíðs Oddssonar. Harald-
ur og Þorsteinn
sátu saman í
stjórn Sambands
ungra sjálfstæð-
ismanna á ár-
unum 1997 til
1999. Sigurður
Már Jónsson,
aðstoðarritstjóri
Viðskiptablaðs-
ins, hefur verið
ráðinn ritstjóri
blaðsins.
Blaðamaður
ársins látinn fjúka
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður
Blaðamannafélags Íslands, var einn
þeirra blaðamanna Morgunblaðsins
sem sagt var upp störfum í gær. Þóra
var kjörin blaðamaður ársins 2008 af
Blaðamannafélagi Íslands í haust en
hún fagnar því sjálf að hverfa á braut.
„Ég er glöð að vera í þeim góða hópi
fólks sem þarf að yfirgefa Morgun-
blaðið við þessar aðstæður sem nú eru
uppi,“ sagði Þóra í sam-
tali við visir.is í gær og lét
þess einnig getið að henni
hefði undanfarið fundist
anda köldu í sinn garð.
Stjórn Blaðamannafé-
lagsins sendi frá sér yfir-
lýsingu í gær þar sem full-
yrt var að ráðning Davíðs
„rýrði trúverðugleika Morg-
unblaðsins“.
Guðfaðir Sjálfstæðis-
flokksins
Davíð var forsætisráðherra
Íslands í þrettán ár, lengst allra, frá ár-
inu 1991 til 2004. Hann var formaður
Sjálfstæðisflokksins til 2005. Eftir að
hafa dregið sig í hlé frá stjórnmálum
var Davíð skipaður í embætti aðal-
seðlabankastjóra af Halldóri Ásgríms-
syni árið 2005 og því embætti gegndi
hann þar til hann var látinn fara í kjöl-
far stjórnarskiptanna í vor eftir harð-
vítug mótmæli gegn honum í bús-
áhaldabyltingunni svokölluðu.
DAVÍÐ STÝRIR
MOGGANUM
SiGURðUR Mikael JÓnSSOn
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 27. janúar 2009 dagblaðið vísir 18. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
m
yn
d
h
ei
ð
a
h
el
g
a
d
ó
tt
ir
Geir Haarde vildi ekki reka davíð OddssOn:
DAVÍÐ ÁTTI AÐ
FÁ MOGGANN
deila eftir
stjórnarslit
fréttir
fréttir
leiðBeiningartilstjórnValdalisti neytendasamtakanna um Björgun heimilanna
Ættir
jóhönnu
ÆttfrÆði
Viðskipta-
Blaðið selt
á krónu
RéÐ sON
RITARA
sÍNs
fréttir
fréttir
fOrsetinnBOðar „nÝtt
lÝðVeldi“
neytendur
Góðvinur sonarins Har-
aldur Johannessen ritstýrir
Morgunblaðinu ásamt Davíð
Oddssyni. Hann er góðvinur
Þorsteins, sonar Davíðs.
Átti að fá Moggann í mars DV greindi frá því í janúar að Geir H. Haarde og félagar hefðu vonast til að koma Davíð yfir á Morgunblaðið.
„Davíð Oddsson hefur um
áratugaskeið verið einn af
kunnustu stjórnmálaleið-
togum Íslendinga.“
Orðinn ritstjóri Leiðtogi Sjálfstæðisflokks-
ins til fjölda ára var í gær ráðinn ritstjóri
Morgunblaðsins. Davíð hefur verið nefndur
einn af höfundum íslenska efnahagshruns-
ins. MynD SiGtRyGGUR aRi JÓHannSSOn