Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 6
Sandkorn n Um þrjátíu þúsund manns vilja að reistur verði minnis- varði um Helga Hóseasson og gekk fulltrúi þeirra á fund borg- arstjóra í vikunni til að ræða málið. Aftur á móti er ein leið til að minn- ast Helga sem hefur ekki farið hátt en væri ef til vill nær lagi en stytta eða annar fast- ur minnis- varði. Hver og einn hinna um það bil þrjátíu þúsund Facebook-kappa taki að sér að standa daglangt með eitt af skiltum Helga, eða eftirlík- ingu af þeim, á Langholtsvegi. Ef hver tæki sér stöðu á fætur öðrum (og raðaði í öfuga ald- ursröð) ætti slíkur mannlegur minnisvarði að vara langleiðina að næstu aldamótum. n Davíð Oddsson er sem kunn- ugt er orðinn ritstjóri Morgun- blaðsins, blaðsins sem hann vann hjá um stund sem ungur maður. Þá sá hann um stjórn- málafréttir en núna um leiðara- skrif og stjórn blaðsins. Gár- ungarnir rifja hins vegar upp að Davíð var einhvern tímann ekki talinn áhugasamasti maðurinn um tölvur og lítið fyrir að senda tölvupósta. Þeir telja því sumir að kannski sé nú við hæfi að Davíð taki gamlan félaga sinn úr ríkisstjórnum, Guðna Ágústs- son, sér til fyrirmyndar og fari með honum á tölvunámskeið. Aðrir benda hins vegar á að Davíð hafi að einhverju leyti tek- ið tölvutæknina í sína þágu og spili stundum bridds á netinu. n Jón Bjarnason fær kraftmikla áskorun frá flokkssystur sinni, Snærósu Sindradóttur formanni Ungra vinstri- grænna á höfuðborg- arsvæð- inu, í grein í Fréttablaðinu á fimmtu- dag. Þar rifjar hún upp fyrir honum stefnu Vinstri-grænna sem er fylgjandi fyrningarleiðinni. Jón hefur talað um að víðtækt samstarf skuli haft við útgerðarmenn áður en ráðist verður í breytingar á stjórn fisk- veiða og sumir túlkað orð hans sem svo að honum sé ekki mjög annt um að framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar um fyrningu kvótans á 20 árum. Samt verður að teljast nokkuð óvenjulegt að forystumenn í stjórnmálaflokki sjái ástæðu til að kynna stefnu síns flokks jafn rækilega fyrir ráð- herra síns flokks og Snærós gerir í grein sinni. 6 Föstudagur 25. september 2009 Fréttir „Frá haustinu 2006 hefur starfsmönn- um fjölgað úr einum í tólf. Núna fyrsta september bættum við tveim- ur starfsmönnum við. Þetta gengur því alveg bærilega,“ segir Guðmund- ur Magnússon, framleiðslustjóri Ís- lenska kalkþörungafélagsins ehf. á Bíldudal. Fyrirtækið sérhæfir sig að- allega í útflutningi á kalkþörungi en starfsemin hér á landi hefur farið vaxandi þrátt fyrir samdrátt í efna- hagslífinu. Auðgar atvinnulífið Vorið 2007 hófst framleiðsla á hreinu kalki og magnesíum hjá Íslenska kalkþörungafélaginu eftir áralang- an aðdraganda. Miklar vonir voru bundnar við að félagið myndi auðga atvinnulífið í bæjarfélaginu og hefur það orðið raunin. Kalkþörungnum er dælt upp af hafsbotni í Arnarfirði og er stærst- ur hlutinn fluttur til Írlands þar sem hann er unninn frekar en fyrirtæk- ið er að mestu í eigu írska fyrirtæk- isins Marigot Ltd./Celtic Sea Miner- als Ltd. Ákveðinn hluti er þó fullunninn hér á landi, aðallega sem steinefna- fóður fyrir kýr. Sú vara er síðan seld tilbúin út. Fæðubótarefni fyrir fólk Auk þeirra tólf starfa sem eru hjá Kalkþörungafélaginu hefur skap- ast fjöldi afleiddra starfa. Jörundur Garðarsson, sem starfar hjá Kalk- þörungafélaginu, hefur í tengslum við starfsemina stofnað einkahluta- félagið Hafkalk ehf. Fyrr á þessu ári hóf það sölu og dreifingu innanlands á vörum sem innihalda kalkþörunga, svo sem jarðvegsbæti fyrir garðeig- endur og kúafóður. Nýverið hófst einnig framleiðsla á fæðubótarefni fyrir fólk sem selt er undir nafni Haf- kalks. Fyrirtækið sem Guðmundur starfaði einn hjá í byrjun hefur því teygt sig víða. Af öðrum afleiddum störfum má nefna að hjá fyrirtækinu starfa nú tímabundið vélsmiðir frá Patreksfirði og frágangur á lóð fyrirtækisins er einnig í fullum gangi. Guðmundur er að vonum ánægð- ur með framganginn. „Við stefnum á heimsyfirráð. Þetta hefur verið jafnt og þétt upp á við,“ segir hann gletti- lega. Kalkþörungafélagið framleiðir um 100 tonn á dag og er stefnan sett á að framleiða 2 þúsund tonn á mán- uði. Þannig getur fyrirtækið afkastað 20 þúsund tonnum á ársgrundvelli. Innlendur orkugjafi Guðmundur viðurkennir að eftir bankahrunið hafi komið upp tíma- bundnir erfiðleikar í tengslum við gjaldeyrisflutninga. „Við vorum í vandræðum í einhverjar vikur. En síðan leystist úr því og allt hefur gengið upp síðan,“ segir hann. Næst á dagskrá Kalkþörungafé- lagsins er að nýta innlendan orku- gjafa til að þurrka þörunginn í stað própangass. Samningaviðræður standa nú yfir við Orkubú Vestfjarða og í framhaldinu verður rafmagn nýtt til þurrkunarinnar. Guðmund- ur segir stefnt að því að nýja kerfið verði komið í gagnið um áramótin. Með þessu móti þurfi ekki að nýta gjaldeyri til orkukaupa. Að mati Guðmundar eru kjörað- stæður fyrir starfsemina á Bíldudal, ef frá taldar eru skipasamgöngurnar sem eru af skornum skammti. Fyr- irtækið þarf því að leigja skip sem flytja vöruna út, en skipað er upp á um sex vikna fresti. „Til að við get- um þróast áfram þurfum við að komast í betri skipasamgöngur og reglubundnar gámasiglingar,“ segir hann. Starfsemi Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal eykst með hverju árinu og starfa þar nú tólf manns. Guðmundur Magnússon verksmiðjustjóri er bjartsýnn á fram- haldið. Í tengslum við starfsemina hefur verið stofnað einkahlutafélag sem selur og dreifir fæðubótarefnum fyrir menn jafnt sem dýr. ErlA HlynsdóttIr blaðamaður skrifar: erla@dv.is starfsmönnum fjölgar Guðmundur Magnússon var fyrsti starfsmaður fyrirtæk- isins en þeim hefur fjölgað smátt og smátt. Mynd sIGtryGGur ArI JóHAnnsson Þurrkaðir þörungar Hjá Íslenska kalkþörungafélaginu á Bíldudal er framleitt kalk úr plöntum af hafsbotni. Mynd GuðMundur MAGnússon „VIÐ STEFNUM Á HEIMS- YFIRRÁГ Halldóra Anna Hagalín ritstýrir tímaritinu Júlíu fyrir unglingsstúlkur: Miðar að því að styrkja sjálfsmyndina „Júlía er tímarit fyrir unglingsstúlkur. Okkur fannst vanta tímarit sem væri beint að þessum unga hópi. Ungl- ingsstelpur sækja oft í að lesa tímarit fyrir eldri markhópa og við vildum gefa út tímarit sem hæfði vel þess- um hópi. Við viljum að tímaritið sameini áhugamál, fróðleik og frétt- ir,“ segir Halldóra Anna Hagalín, rit- stjóri tímaritisins Júlíu, sem nýlega hefur verið ýtt úr vör. Halldóra leggur áherslu á að les- endur taki þátt í tímaritinu og að íslenskar stelpur sendi inn efni. „Í blaðinu verður þátturinn Spurt og svarað, fróðleikur um heilsu og húð- ina og í rauninni allt það sem ungar stelpur eru að pæla í,“ segir hún. Í tilefni af útkomu fyrsta tölu- blaðsins var efnt til forsíðukeppni, þar sem stelpum á aldrinum 10 til 15 ára var boðið að taka þátt og eiga möguleika á því að vera á for- síðu blaðsins, auk þess að fá ítarlega kynningu inni í blaðinu. Halldóra segir aðspurð að forsíðukeppnin hafi hvorki verið fyrirsætu- né feg- urðarsamkeppni. Þess í stað hafi verið lögð áhersla á að fá jákvæða fyrirmynd til að prýða forsíðuna. „Við vildum fá stelpu sem væri virk í áhugamálum sínum, dugleg í skól- anum, kæmi vel fram og væri hress og kát. Við vorum með tveggja manna dómnefnd sem spurði um áhugamál stelpnanna, hvað þær gerðu helst á daginn og fleira.“ Sex stúlkur voru valdar til að prýða forsíðuna næstu mánuði, en ætlunin er að hafa íslenskar stelpur og útlenskar stjörnur til skiptis á for- síðunni. Hún segir að efnisvalið miði að því að vera uppbyggjandi.“ Ætlun- in með útgáfu blaðsins er að styrkja sjálfsmynd stelpna á þessum aldri.“ Tímaritið Júlía er gefið út af Birt- íngi útgáfufélagi, sem einnig gefur út DV. ritstjórinn Halldóra Anna Hagalín ritstýrir tímaritinu Júlíu sem er stílað inn á áhugamál unglingsstúlkna. Mynd BrAGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.