Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 8
8 Föstudagur 25. september 2009 Fréttir
henti föngum úr flugvél
Fyrr í vikunni var handtekinn á Spáni flugstjóri hollensks lággjaldaflugfélags. Flugstjórinn, Julio Al-
berto Poch, er talinn hafa átt beinan þátt í alræmdum „dauðaflugferðum“ sem stundaðar voru í tíð her-
foringjastjórnar Argentínu frá árinu 1976 til 1983.
Argentínumenn hafa undanfarin ár
unnið að tiltekt heima fyrir vegna
eins dekksta kafla sögu þjóðarinn-
ar sem fengið hefur heitið Óhreina
stríðið. Á miðvikudaginn var stig-
ið enn eitt skrefið í uppgjöri þjóð-
arinnar við þennan tíma þegar
Julio Alberto Poch, 57 ára flugmað-
ur, var handtekinn, en hann er tal-
inn hafa átt beinan þátt í svonefnd-
um „dauðaflugferðum“ á tímum
Óhreina stríðsins.
Poch er sakaður um að tengjast
dauða um eitt þúsund manna sem
var, að skipan herstjórnar Argent-
ínu frá 1976 til 1983, byrlað ólyfjan
og fleygt lifandi úr flugvél, dæmt til
að enda ævi sína í Suður-Atlantshafi
eða einhverri ánni.
Julio Alberto Poch, sem hefur
starfað sem flugmaður fyrir hollenskt
lággjaldaflugfélag, transavia.com,
var handtekinn fyrir augum farþega
aðeins örfáum mínútum fyrir flugtak
á Manises-flugvellinum í Valencia á
Spáni.
Aðeins einn háttsettur argent-
ínskur foringi hefur verið fangels-
aður fyrir aðild að þessum alræmdu
flugferðum sem nýttar voru til að fyr-
irkoma vinstrisinnum og öðrum sem
ekki voru leiðitamir stjórnvöldum
Argentínu.
Leika enn lausum hala
Ekki eru allir sáttir við hvernig haldið
hefur verið á spöðunum í leitinni að
þeim sem framkvæmdu illvirkin í tíð
Jorges Rafael Videla. Árið 1983, þeg-
ar herstjórnin rann sitt skeið á enda,
var réttað yfir Videla og herforingj-
um hans. Málalyktir urðu þær að þeir
voru sakfelldir fyrir pyntingar, morð
og mannrán, en þrátt fyrir fjölda rétt-
arhalda leika margir „fótgönguliðar“
enn lausum hala.
Jorge Rafael Videla sat aðeins
fimm ár í fangelsi og árið 1990 náð-
aði Carlos Menem, þáverandi for-
seti, Videla og fleiri meðlimi herfor-
ingjastjórnarinnar á þeirri forsendu
að þjóðin yrði að komast yfir þessa
dimmu daga.
Julio Alberto Poch er borið á brýn
að hafa sem flugmaður tengst hinum
alræmda vélskóla sjóhersins í Buen-
os Aires, en þar var til húsa stærsta
pyntinga- og varðhaldsaðstaða her-
foringjastjórnarinnar. Fjöldi stjórnar-
andstæðinga endaði lífdaga sína inn-
an veggja skólans.
Eftir árs rannsókn hefur argent-
ínskur dómari komist að því, meðal
annars, að Poch hafi hreykt sér af því
hvernig hann lét „hryðjuverkamenn“
hverfa og hafi ekki efasemdir um rétt-
mæti aðferða hersins undir hand-
leiðslu herforingjastjórnarinnar.
Frásagnir starfsfélaga
Sergio Torres dómari, sem leiðir rann-
sóknina á þætti Pochs í Óhreina stríð-
inu, fór til Hollands í desember og
skráði niður yfirlýsingar starfsmanna
Pochs þar í landi. Að sögn starfs-
manna flugfélagsins viðurkenndi
Poch að hafa tekið þátt í „dauðaflug-
ferðunum“. Einn viðmælenda Sergio
Torres sagði: „Hann rifjaði upp hvern-
ig föngunum var varpað í hafið.“
Einn flugstjóri flugfélagsins sagði
að Poch hefði sagt þeim „nákvæm-
lega hvernig hann henti lifandi fólki út
því hugmyndin var að taka það af lífi“.
Poch réttlætti drápin með því að segja
„það var stríð“, og að fórnarlömbin
hefðu verið undir áhrifum lyfja.
Julio Alberto Poch er með bæði
hollenskt og argentínskt ríkisfang,
en hann flúði Argentínu í kjölfar falls
herforingjastjórnarinnar. Fastlega er
gert ráð fyrir því að Poch verði fram-
seldur til Argentínu og máli hans
fram haldið þar, en hann er í varð-
haldi á Spáni.
ÓgnarstjÓrn
byggð á Ótta
Jorge Rafael Videla komst til valda
eftir valdarán 1976. Í tíð Videla
jókst ójöfnuður í landinu og sam-
skipti Argentínu við önnur lönd
versnuðu til mikilla muna, en
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
endurnýjaði samband landanna
vegna þjálfunar og stuðnings við
Kontraskæruliða sem börðust
gegn sandinistastjórn Nikaragva.
Eftir fall stjórnar Videla var
réttað yfir honum vegna ýmissa
sakargifta, þeirra á meðal pynt-
inga, mannrána og morða, en
hann var einnig sakfelldur fyr-
ir rán á börnum sem fæddust í
fangabúðum. Börnin voru síð-
an gefin til fjölskyldna sem voru
hliðhollar herforingjastjórninni.
Árið 1981 tók Roberto Viola,
herforingi við völdum. Hann hélt
um stjórnartaumana í innan við
ár og reyndi að snúa við ýmsu
sem forveri hans hafði komið á.
Viola hrökklaðist frá völdum í
valdaráni Leopoldo Galtieri her-
foringja. Dauðasveitir leyniþjón-
ustunnar heyrðu beint undir
Galtieri.
1982 leiddi Galtieri þjóð sína
til styrjaldar gegn Bretlandi eftir
að hafa gert innrás í Falklands-
eyjar. Eftir að Bretar náðu aftur
valdi á eyjunum sagði Galtieri af
sér. Hann var síðar dæmdur til
fangelsisvistar en náðaður eftir
tólf ár.
Í fótspor Galtieris kom Reyn-
aldo Benito Bignone, en hann fór
fyrir síðustu herforingjastjórn Arg-
entínu til 1983. Hann var settur í
stofufangelsi í ár vegna glæpa sem
framdir voru í Óhreina stríðinu.
DÓmar vegna Óhreina stríðsins
Jorge Rafael Videla 1985
Jorge Videla, fyrrverandi forseti
Argentínu, dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir morð, pyntingar og
fleiri sakir. Náðaður eftir fimm ár.
Adolfo Scilingo 2005
Adolfo Scilingo, fyrrverandi sjóliðsfor-
ingi, dæmdur til 640 ára fangelsisvistar
fyrir aðild að „dauðaflugferðunum“.
Hann var sakfelldur fyrir 30 morð þar
sem lyfjagjöf og „dauðaflugferð“ kom
við sögu.
2006 Miguel Etchecolatz,
fyrrverandi lögreglustjóri, afplánar
lífstíðardóm fyrir mannrán, pynt-
ingar og morð.
2009 Santiago Omar
Riveros, fyrrverandi herforingi,
sakfelldur fyrir morð, yfirmaður
leyniþjónustu hans og fjórir að
auki voru fangelsaðir.
KOLbEinn þORStEinSSOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Mikið ber í milli hjá argentínskum
yfirvöldum og mannréttindasam-
tökum hvað varðar heildarfjölda
þeirra sem týndu lífi eða hurfu á
tíma Óhreina stríðsins. Samkvæmt
skýrslu yfirvalda dóu eða hurfu yfir
11.000 manns í tíð herforingjastjór-
na Argentínu.
En mannréttindasamtök telja að
fjöldinn sé nærri 30.000. Þess má
geta að talið er að vinstrisinnaðir
skæruliðar hafi drepið að minnsta
kosti 13.000 á sama tíma.
Erfitt er um vik að fullyrða hve
mörgum var varpað lifandi, en
undir áhrifum lyfja, úr flugvél-
um, en talið er að um eitt þúsund
manns hafi endað líf sitt með þeim
hætti. Samkvæmt vitnisburði Ad-
olfo Scilingos árið 2005 var farið í
180 til 200 „dauðaflugferðir“ árin
1977 og 1978, og sjálfur tók Ad-
olfo þátt í tveimur slíkum. Í annarri
ferðinni var 13 manns kastað úr
vélinni og í hinni 17 manns.
Julio Alberto Poch þá og nú Gumaði af
aðild sinni í „dauðaflugferðunum“.
Einn flugstjóri flugfé-
lagsins sagði að Poch
hefði sagt þeim „ná-
kvæmlega hvernig
hann henti lifandi fólki
út því hugmyndin var
að taka það af lífi“.
Fórnarlömb 30.000 fórnarlömb, að
mati mannréttindasamtaka.