Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Side 11
fréttir 25. september 2009 föstudagur 11 um miðjan dag sem sagðist vera bif- vélavirki og bauðst til að skipta um pústgrein á bílnum mínum á nýju verkstæði sem hann hafði opnað. Ég kvaðst ekkert þurfa á því að halda. Seint að kveldi degi síðar eða svo hringdi hann aftur og bauðst aftur til að skipta um pústgreinina á nið- ursettu verði. Það þykknaði aðeins í mér og endurtók að ég þyrfti ekkert á slíkri þjónustu að halda. Mér var svo öllum lokið þegar hann hringdi svo klukkan 6 að morgni og bauð enn meiri afslátt og lét hann hafa það óþvegið. Þegar gestirnir mættu í veisluna hjá Óskari voru til upptökur af öllum símtölunum og voru þau spiluð sam- viskusamlega fyrir gestina. Ég man líka eftir því að hafa fundið klaka- klump á tröppunum þar sem boðað var til veislu hjá Óskari. Eitt sinn tók hann upp á því að mæta í dulargerfi í samkvæmi hjá Guðnýju Halldórs- dóttur (Dunu). Enginn þekkti hann. Hann gaf sig á tal við gesti og kvaðst hafa kennt þeim í skóla, var áreiðan- lega býsna uppáþrengjandi. En hann komst upp með þetta,“ segir Einar. Gott á milli Óskars og Davíðs Einar segir að Óskar og hann hafi verið pólitískir strax á unglingsárum. „Meðal þeirra sem voru með þeim í bekk í Vogaskóla voru Már Guð- mundsson núverandi seðlabanka- stjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Sigríður Lillý Baldursdóttir forstjóri Tryggingastofnunar, Magnús Már Magnússon snjóflóðafræðingur og Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum svo nokkur þekkt nöfn séu nefnd. „Við Óskar tilheyrðum stuðnings- mannahópi Gunnars Thoroddsen og tilheyrðum þar af leiðandi einskon- ar vinstri armi Sjálfstæðisflokksins á þeim tíma. En ég held að sé hægt að lýsa Óskari sem klassískum sjálfstæð- ismanni. Við studdum Davíð Odds- son strax og hann fór að þreifa fyrir sér í stjórnmálum og höfum gert all- ar götur síðan. Ég held að Davíð hafi aldrei haft neina ástæðu til þess að láta sér mislíka eitthvað við Óskar,“ segir Einar. Skarpur og fljótur að kjarna málsins Annar góður vinur Óskars er Sigurð- ur Valgeirsson sem nú er upplýsinga- fulltrúi Fjármálaeftirlitsins. „Við höf- um verið vinir frá 12 ára aldri eða frá því að ég flutti í 12 hæða blokk í Sól- heimum í Reykjavík þar sem hann var fyrir. Það rifjast upp fyrir mér að Ósk- ar bar þá út Morgunblaðið í blokk- inni. Ég held að það hafi verið þægileg innivinna að bera út Moggann til svo margra í einu og sama húsinu. Ég vann síðar með honum í bygg- ingarvinnu og enn síðar lágu leiðir okkar saman í blaðamennsku á DV á níunda áratugnum. Með fullri virð- ingu fyrir smíðahæfileikum Óskars voru hæfileikar hans meiri sem frétta- stjóra. Óskar er einn skemmtilegasti maður sem ég þekki; duglegur, skarp- ur og fljótur að sjá kjarna málsins. Mér finnst hann þægilegur í samskiptum en veit að hann getur verið harður í horn að taka. Auk þess er hann næm- ur á fólk. Það birtist ágætlega í smá- sagnasafninu Borðaði ég kvöldmat í gær, sem hann sendi frá sér fyrir jól- in 2006. En hann er uppátækjasamur og hrekkjóttur. Eitt sinn á unglingsár- unum gengum við með úrin á fæti en ekki úlnlið. Þegar gáð var hvað tíman- um liði urðum við að lyfta fæti. Mig minnir að þegar hann vann við dag- skrárgerð í útvarpi hafi hann eitt sinn hringt í kaupfélagsstjóra úti á landi og boðið grafalvarlegur gúmmískó til sölu á mjög góðu verði. Þegar hann var búinn að vekja áhuga viðmæl- andans komu strax upp vandamál. Gúmmískórnir voru allir af sömu stærð, númer 47, og loks sagði hann væntanlegum kaupanda að eiginlega væri vandinn meiri því þetta væru allt gúmmískór á vinstri fót en bætti við að þegar þeir væru orðnir svona stór- ir þá væru þetta náttúrlega hálfgerð- ar blöðrur þannig að það skipti ekki máli. Alltaf jafn alvarlegur. Þetta var drepfyndið,“ segir Sigurður. Gott hugarþel Sigurði er hlýtt til vinar síns og rifjar upp sögu í því sambandi. „Ég og kon- an mín vorum að skipta um íbúð og höfðum ekkert annað en dýnuna til að sofa á. Við urðum að vera nálægt síma þar sem konan mín var ófrísk. Einn morguninn mætti Óskar með heitt kaffi og fullkomið meðlæti. Það var hugsað fyrir smáatriðunum líka eins og litlu boxi með sykri út í kaffið. Þannig er Óskar.“ Sigurður kveðst vona að Ósk- ari gangi að reisa við Morgunblað- ið. „Hann er ekki maður sem les yfir manni um stjórnmál en allir vita hvar hann stendur, svona dálítið gamal- dags íhaldsmaður.“ Ólafur Ísleifsson hagfræðingur ber Óskari svipaða sögu. Ólafur flutti um miðjan níunda áratuginn til New York þegar hann var ráðinn til starfa hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum þar vestra. „Við vorum dálítið ráðvillt eins og gengur varðandi húsnæðismarkað- inn, samgöngur og fleira sem snertir daglegt líf í nýju landi. Það var þá sem Óskar Magnússon skaut upp kollin- um og veitti okkur ómetanlega hjálp varðandi húsnæðismál og fleira. Þetta þurfti hann ekkert að gera en gerði samt.“ Viðskiptamaðurinn Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr, hef- ur fylgst með Óskari álengdar og beið lægri hlut gegn honum þegar síma- og fjarskiptafyrirtækin Íslandssími og Tal voru sameinuð. Þá var Óskar gerð- ur að forstjóra en Þórólfur, sem ver- ið hafði vinsæll forstjóri Tals, missti sinn póst. „Það kom í hlut Óskars að skera niður og fækka fólki í fyrirtæk- inu. Þetta virtist ekki koma við hann, en ég hefði fundið fyrir því. Okkar stjórnunarstíll er ólíkur að þessu leyti. Ég held að hann hafi leyst verkefnið á farsælan hátt. Nú blasa erfið verk- efni við honum hjá Árvakri og Morg- unblaðinu. Staðan er þröng, það þarf að tefla djarft og vinna hratt og ég held að þetta láti honum ekkert illa,“ segir Þórólfur. Stjarna Óskars á himni viðskipt- anna tók að rísa undir væng Óla Kr. Sigurðssonar sem keypti 70 prósenta hlut í Olís árið 1986. Á þeim tíma rak Óskar eigin innflutningsverslun. Um 1990 varð Óskar stjórnarformaður Olíss. Í sögu Olís eftir Hall Hallsson er Óskari ekki borin sérlega góð saga og gefið til kynna að hann hafi lagt á ráð- in um að leggja fyrirtækið undir sig eftir að Óli Kr. féll skyndilega frá sum- arið 1992. Fékk á sig siðanefndarúrskurð Upp úr miðjum síðasta áratug, þeg- ar Hafskipsmálið hafði náð hæðum í fjölmiðlum, var Óskar fréttastjóri DV. Þegar hann kvaddi blaðið og hélt til nýrra starfa ritaði hann kveðjugrein þar sem hann tók upp hanskann fyrir Björgólf Guðmundsson, Ragnar heit- inn Kjartansson og fleiri Hafskips- menn. Ingólfur Margeirsson ritstjóri Helgarpóstsins lá þá undir ámæli fyrir að hafa framvísað röngum nótum og sagt ósatt um búslóðarflutninga sína milli landa á vegum Hafskips. Ósk- ar vék orðum að þessu og gaf í skyn að Halldór Halldórsson, sem verið hafði í eldlínunni sem ritstjóri Helg- arpóstsins í Hafskipsmálinu hefði þegið ókeypis farmiða hjá Flugleið- um milli landa hvað eftir annað. Ósk- ar gekk lengra og taldi í greininni að fleiri blaðamenn Helgarpóstsins væru seldir undir sömu sök. Þessu undi Halldór illa og kærði til siðanefndar Blaðamannafélags Ís- lands. Siðanefnd úrskurðaði að Óskar hefði farið yfir strikið. Þannig yfirgaf Óskar blaða- mennskuna á níunda áratugnum með því að brjóta siðareglur blaða- manna í kveðjugrein í DV. „Hann var hjá okkur í nokkur ár“ Síðan þetta var hefur Óskar komið víða við og verið áberandi í viðskipta- lífinu. Hann varð forstjóri Hagkaups þegar það var í eigu barna Pálma Jóns- sar. Eftir að Hagkaup komst í eigu Jó- hannesar Jónssonar og Jóns Ásgeirs, sonar hans, varð Óskar fyrsti stjórnar- formaður Baugs. Jóhannes í Bónus vill lítið ræða við blaðamann DV um Óskar Magnús- son. „Þú segir að hann hafi unnið hjá okkur í nokkur ár. Hann var hjá okkur í nokkur ár. Ég held að lítið hafi reynt á rekstrarhæfni Óskars á lífsleiðinni,“ segir Jóhannes. En hvað segir Jóhannes um þá ráð- stöfun Óskars og meðstjórnenda hans hjá Árvakri að gera Davíð Oddsson að ritstjóra Morgunblaðsins? „Það er veruleikafirring að gera óheilbrigðan mann að ritstjóra Morg- unblaðsins. Menn ættu að minnsta kosti að bíða átekta eftir niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis og dómi hennar um orsakir og aðdraganda bankahrunsins. Ég er ekki viss um að dómurinn yfir Davíð verði honum til framdráttar sem ritstjóra.“ Jóhannes segir að uppstokkun í rekstri Morgunblaðsins hafi fyr- ir löngu verið óhjákvæmileg. „Þarna er mikið af minningargreinum og öðru aðsendu efni og ritstjórnin þarf kannski að skrifa 6 til 8 síður. Þetta er allt of fjölmennur vinnustaður fyrir slíkt. Ég vann eitt sinn á Morgunblað- inu í þrjú ár. Þetta var góður vinnu- staður og ágætir menn við stjórn- völinn. Nú ræður náhirðin ríkjum hjá Árvakri og Morgunblaðinu. Mér finnst blaðinu hafa hrakað verulega og því mun hraka enn undir ritstjórn Davíðs.“ Gulldrengur íhaldsins? Ýmislegt bendir til þess að Óskar hafi á starfsferli sínum notið ríkulega tengsla sinna við Sjálfstæðisflokkinn en ekki goldið fyrir þau. Þessi grun- ur svífur enn yfir vötnunum varðandi skattamál Baugsmanna. Deilt var um það árið 2006 og fram eftir árinu 2007 hvort forsvarsmenn Baugs, eink- um Jón Ásgeir Jóhannesson og Óskar Magnússon, þáverandi stjórnarmað- ur Baugs, hefðu fengið sömu meðferð hjá skattayfirvöldum vegna meintra skattalagabrota. Fullyrt er að skattamál Óskars og Jóns Ásgeirs hafi verið fyllilega sam- bærileg. Upphæðin sem tengdist skattalagabroti Óskars var þó sínu hærri en hjá Jóni Ásgeiri. Skúli Eggert Þórðarson, þáver- andi skattrannsóknarstjóri og núver- andi ríkisskattstjóri, kærði Jón Ásgeir, Kristínu systur hans, Tryggva Jónsson og Stefán Hilmar Hilmarsson til ríkis- lögreglustjóra vegna meintra skatta- brota í nóvember 2004. Lögreglan taldi að um 270 millj- ónir króna hefðu runnið úr sjóðum Baugs til Lúxemborgar og þaðan aft- ur inn á reikninga ofangreindra lyk- ilstarfsmanna. Lögreglan taldi að helmingur greiðslunnar hefði runnið til Óskars. Upp af þessu spruttu síðar deilur milli efnahagsbrotadeildar og skatt- rannsóknastjóra. Mál Óskars hafði verið sent til yfirskattanefndar til úr- skurðar nokkrum mánuðum eftir að ríkislögreglustjóri óskaði eftir gögn- um um mál hans. Eftir úrskurð nefnd- arinnar var ekki um það að ræða að taka málið aftur til lögreglurann- sóknar sem skattalagabrot. Öðru máli gegndi um mál Jóns Ásgeirs, sem þó er fullyrt að hafi í einu og öllu verið sambærilegt. Það var sent rakleiðis til efnahagbrotadeildar og rannsakað sem lögreglumál. Málið snérist með öðrum orðum um jafnræði gagnvart lögunum. Yfirstétt í refsileysi Helgi Magnús Gunnarsson saksókn- ari efnahagsbrotadeildar ritaði rík- issaksóknara að minnsta kosti í tví- gang til þess að fá aðgang að gögnum um Óskar. Helgi Magnús sagði sem svo að þegar eftirlitsaðili kærði ti lög- reglu eða ákæruvalds væri mikilvægt að ákæruvaldið fengi í þágu jafnræðis upplýsingar um þá þætti sem eftirlits- aðilinn héldi eftir til afgreiðslu. Skúli Eggert Þórðarson, skattrann- sóknastjóri og flokksbróðir Óskars, lét sig ekki og í stappi stóð áfram og fékk efnahagsbrotadeildin á endanum húsleitarheimild hjá skattrannsókn- arstjóra til að nálgast gögn um Óskar. Í ofangreindu bréfi Helga Magn- úsar til ríkissaksóknara sagði orð- rétt: „Með skattyfirvöld og sérstak- lega skattrannsóknarstjóra ríkisins sem eftirlitsaðila með framkvæmd skattalaga í huga lýsi ég því að ég tel eðlilegt og rétt að skattayfirvöld veiti ákæruvaldinu... upplýsingar og við- hlítandi gögn um hvernig tiltekin brot á skattalögum hafi verið afgreidd í skattkerfinu eða hvernig stefnt sé að afgreiðslu þeirra, en ekki einungis um að þau hafi verið afgreidd þar eða ver- ið afgreidd þar.“ Þessu fylgdi Helgi Magnús eftir í bréfinu og sagði það mikilvægt fyri ákæruvaldið að geta átt þess kost í þágu jafnræðis að geta afstýrt því að mál sem heima eigi í réttarkerfinu (mál Óskars) yrði afgreitt í skattakerf- inu. Eva Joly, sem veitir sérstökum rík- issaksóknara sérfræðilega aðstoð hef- ur glímt við spillingu í stjórnmálum og viðskiptum í Frakklandi. Hún tal- ar um refsileysi yfirstéttanna. Þannig geti verið um hnútana búið að menn í lykilstöðum í réttar- og dómskerfinu séu af sama sauðahúsi, í sömu flokk- um og klíkum, og forkólfar stjórnmála og viðskipta. Þeir haldi hlífiskildi yfir einstaklingum í þessum stéttum eða klíkum þeir lenda í klandri. Lítill vandi er að álykta af bréfum saksókn- ara efnahagbrotadeildar að meðferð skattamáls Óskars var í hans augum gróf mismunun. Það getur verið einn háttur á að tala um kunningjaveldi, klíkuskap og spillingu. UppátækjasamU g allari „Þú segir að hann hafi unnið hjá okkur í nokkur ár. Hann var hjá okkur í nokkur ár,“ segir Jóhannes Jónsson í Bónus. Einar Hálfdánarson „Ég held að Davíð hafi aldrei haft neina ástæðu til að láta sér mislíka eitthvað við Óskar.“ Sigurður Valgeirsson „Hann er ekki maður sem les yfir manni um stjórnmál en allir vita hvar hann stendur, svona dálítið gamaldags íhaldsmaður.“ Jóhannes Jónsson í Bónus „Það er veruleikafirring að gera óheilbrigðan mann að ritstjóra Morgunblaðsins. Menn ættu að minnsta kosti að bíða átekta eftir niðurstöðu rannsóknar- nefndar Alþingis og dómi hennar um orsakir og aðdraganda bankahrunsins.“ Ritstjórn Morgunblaðsins Þrjátíu blaðamönnum var sagt upp störfum í gær. Á sama tíma var tilkynnt um ráðningu Davíðs Oddssonar og Haraldar Johannesen sem nýrra ritstjóra Morgunblaðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.