Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 15
fréttir 25. september 2009 föstudagur 15 Fjármálastjóranum meinaður aðgangur Björgólfur Thor sá sæng sína upp reidda og telja kunnugir ekki ólíkleqt að hugmyndin um hina frumlegu en örlagaríku eigendabreytingu hafi vaknað í huga Björgólfsfeðga þegar Ijóst var að Björgólfur yngri væri að missa völd innan fyrirtækisins. Þór fjármálastjóri reyndi að tala um fyrir öryggisvörðum fram- kvæmdastjórans, Björgólfs Thors, sem hélt sig í vari á skrifstofu sinni. Þrátt fyrir ítrekuð skilaboð lét hann ekki sjá sig og neitaði fjármálastjór- anum um aðgang að skrifstofu sinni. Þór hafði samband við Bernard J. Lardner í Lundúnum vegna þessara óvæntu tíðinda, en Björgólfur Thor sat við sinn keip. Á þessum tíma, þegar mest reið á viðveru Ingimars, var hann úr leik í um tvo mánuði vegna alvarlegra ba- kveikinda. Einmitt þegar starfsmanni hans var neitað um aðgang að fyrir- tækinu lá Ingimar sárþjáður á Land- spítalanum í Reykjavík. Þannig var þetta hentugur tími fyrir Björgólfs- feðga til að yfirtaka BBP-bruggverk- smiðjuna, athöfn sem Ingimar og fé- lagar hafa kallað „þaulhugsað svindl og þjófnað“, líkt og Ingimar orðaði það í gögnum sem hann sendi frá sér 2002, meðal annars til Fjármálaeftir- litsins. Það var búið að loka dyrum verk- smiðjunnar á eigendur hennar og þannig endanlega búið að stela fyr- irtækinu frá þeim, að þeirra sögn. Líkt og Ingimar segir í gögnum sem hann sendi frá sér. „Þann 25. sept- ember 1995 var öllum hlutunum í Baltic Group Ltd. í AOZT Baltic Bott- ling Plant stolið með skjalafalsi [...] Uppruni Bravo International og nú- verandi tilvist hinna ýmsu Bravo- fyrirtækja virðist vera byggð á þaul- hugsuðu svindli og þjófnaði sem átti sér stað árið 1995. Upphafsmenn og gerendur þessa þjófnaðar voru tveir íslenskir ríkisborgarar, feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og sonur hans Björgólfur Thor.“ Hvorki lögreglan né öryggislög- reglan, sem komu á vettvang, gátu orðið starfsmanni aðaleigendanna að liði. Björgólfur Thor sýndi meint- an kaupsamning með nýjum hlut- höfum. Þar stóð að BGL, eignar- haldsfélag Bernards og Ingimars, hefði afsalað eignarhlutum sínum til Björgólfs Guðmundssonar og ættu ekki einn einasta hlut í fyrirtækinu. Lögreglan neyddist til að hverfa á braut. Skjöl dúkka upp Árið 1993 stofnuðu Bernard J. Lard- ner, breskur athafnamaður, og Ingi- mar Ingimarsson, arkitekt og fjár- festir, ásamt breskum fjárfestum eignarhaldsfélagið Baltic Group Limited í þeim tilgangi að setja á fót, í samstarfi við Rússa, gosdrykkja- verksmiðju í Pétursborg í Rússlandi. Í framhaldi af því var Baltic Bottling Plant- verksmiðjan stofnuð form- lega í Pétursborg þann 4. júní 1993. Hluthafar voru Ingimar og félagar og rússneska fyrirtækið RMZ, sem seldi og gerði við búnað fyrir matvæla- og veitingafyrirtæki. RMZ, varð fyrir valinu samkvæmt tillögu borgaryfir- valda í Pétursborg. Nokkrum mánuðum áður, í desember árið 1992, skrifaði Ingimar undir samning vio Gosan, dótturfyr- irtæki Pharmaco, um kaup á tveim- ur fullbúnum framleiðslulínum fyrir gosdrykkjaverksmiðjuna í Rússlandi. Björgólfur Guðmundsson var þá for- stjóri Gosan og skrifaði undir samn- inginn. Þessi stofnkostnaður hljóð- aði upp á 1,1 milljón dollara auk þess sem 400 þúsund dollarar áttu að renna í vasa Björgólfs Guðmunds- sonar fyrir það sem kallað var stjórn- unarsamningur, sem í raun má kalla verkstjóralaun. Að loknu rösklega tveggja ára samstarfi gerist það að upp dúkka tvö skjöl, samkvæmt Ingimar Ingi- marssyni, bæði dagsett 24. marz 1995, með undirskrift Ingimars, þar sem hann afsalar sér hlutum sínum í BBP. Á skjölunum virðist Ingimar af- sala öllum hlutabréfum aðaleigenda fyrirtækisins (65 prósent) í hendurn- ar á starfsmanni BBP, Björgólfi Guð- mundssyni, auk 10 prósenta sem féllu í hlut Gennady Homsky, full- trúa RMZ, ríkisfyrirtækis, sem var 25 prósenta hluthafi. RMZ var einka- vætt eftir að samstarfið við BBP hófst. Ingimar kannaðist hins vegar ekki við skjölin tvö og að hafa afsalað sér fyrirtækinu. Ingimar og Larnder fengu aldrei greitt Samkvæmt þessu á Ingimar að hafa skrifað undir tvö skjöl, þar sem hann afsalar 65 prósentum fyrirtækisins til Björgólfs Guðmundssonar fyrir 500 þúsund dollara, sem kaupandinn Björgólfur greiddi aldrei, samkvæmt heimildum DV. Í skjölunum sagði jafnframt að BGL væri búið að selja Gennadin Homsky, framkvæmda- stjóra RMZ, 10 prósent í fyrirtækinu, afganginn af eign sinni í BBP. Hin meintu fölsuðu skjöl voru hins vegar ekki gerð opinber fyrr en hálfu ári síðar eða 25. september 1995, sama dag og hluthafafundur var haldinn í fyrirtækinu. Fundurinn var ólöglegur, þar sem eigendur BBP voru ekki boðaðir á fundinn. Á fund- inum, sem Björgólfur Thor boðaði til sem framkvæmdastjóri BBP, greindi hann meðal annars frá meintum eigendaskiptum sem átt hefðu sér stað hálfu ári áður. Kaupverð 65 pró- senta hluta Ingimars og Bernards hefði numið hálfri milljón dollara. Jafnframt hefði Gennadin Homsky, framkvæmdastjóra RMZ, verið seld- ur 10 prósenta hlutur í fyrirtækinu. Þarna greindi Björgólfur Thor frá athyglisverðum tímamótum í sögu Baltic Bottling Plant. Verktakarnir frá Íslandi voru allt í einu orðnir eigend- ur gosdrykkjaverksmiðju án vitundar stofnenda og eigenda BBP. Ingimar og Lardner töldu sig illa svikna. Svo illa vildi til fyrir þá sem út- bjuggu skjölin um breytt eignarhald, að þeir Ingimar og Bernard skiptust á að hafa með höndum löglegt umboð til að skuldbinda fyrirtækið og ein- mitt þegar hin meintu fölsuðu skjöl voru dagsett hafði Ingimar ekki þetta umboð heldur Bernard. Skjölin tvö eru með undirskrift Ingimars. Óháður aðili, fyrirtækið Societe General Strauss Turnbull Securities, mat fyrirtækið á 15-20 milljónir doll- ara hið minnsta árið 1995, þrátt fyrir að fyrirtækið væri vart komið af stað vegna sífelldra tafa „Gosan-hópsins“ og framleiðslan var enn í lágmarki. Spár um reksturinn lofuðu þó góðu. Ingimar vissi ekki af samningnum Ingimar H. Ingimarsson hafði ekki minnstu hugmynd um tilurð þess- ara skjala þar sem hann átti að hafa fært verktaka sínum, Björgólfi Guð- mundssyni, fyrirtæki sitt á silfurfati. Ingimar segir skjölin vera fölsuð og hefur fært haldgóð rök fyrir þeirri staðhæfingu sinni samkvæmt gögn- um, sem DV hefur undir höndum. Af mörgu sérkennilegu í þessu máli vek- ur það athygli að skjölin voru skrifuð á rússnesku en innihaldið sagt lúta íslenskum lögum. Þann 24. mars, sama dag og skjöl- in, sem Ingimar og Lardner segja fölsuð, voru dagsett og dómstól- ar hafa margsinnis dæmt ógild, var haldinn árlegur hluthafafundur og gengið til dagskrár eins og ekk- ert hefði ískorist. Ingimar og Lard- ner voru grandalausir um það sem hafði gerst á bak við tjöldin. Þennan fund sátu jafnframt fulltrúar RMZ, Björgólfur Guðmundsson, Björgólf- ur Thor og Victor Pyatko, aðstoðar- maður Björgólfs Thors. Þessi maður var skráður forstjóri Bravo Heineken (áður Bravo International) í fyrra, en eins og alkunna er keypti Heineken Bravo International og breytti nafn- inu í Bravo Heineken. Fjölmargar sögur eru til þar sem sams konar aðferðir eru notaðar við eignaskipti fyrirtækja. Hið kunna fréttarit The Economist birti árið 2004 athyglisverða grein um eigna- skipti af þessum toga og er margt líkt með frásögnunum og þeirri að- ferð, sem Ingimar og Bernard telja að hafi verið beitt við eignayfirtökuna á Baltic Bottling Plant, líkt og rætt er um í hliðargreininni. Bravo-athafnamennirnir voru gjaldþrota eða nýskriðnir úr skóla Skýring Björgólfsfeðga á hálfsárs þögn um eigendaskiptin var sú að gert hefði verið samkomulag um að halda eigendabreytingunni leyndri í þann tíma. Hvers vegna að halda þessari staðreynd leyndri? Bæði Bernard Lardner og lngimar H. Ingi- marsson voru á fundinum í mars sem fulltrúar 75 prósenta hluthafa í BBP. Meintri sölu þeirra á eigin hlut sín- um í fyrirtækinu var haldið leyndri fyrir þeim á þessum fundi. Aðrir á fundinum, sem Björgólfur Thor boð- aði til sem framkvæmdastjóri, vissu um gjörninginn, en þögðu um eig- endaskiptin. Þegar fjallað hefur verið um það hvernig Björgólfur og félagar hafi haft bolmagn til að kaupa gosdrykkja- og bjórverksmiðju í Rússlandi hefur því verið haldið fram að það gangi ekki upp. Fyrir liggur sú staðreynd að þeir þremenningar höfðu ekki fjárhags- lega getu til að stofna fyrirtækið Balt- ic Bottling Plant í upphafi – og raunar stóð þeim það aldrei til boða. Í héraðsdómsmáli nr. 334 árið 1994 lýsti Björgólfur Guðmundsson því yfir að hann hefði verið lýstur gjaldþrota 11. júlí 1990. Björgólfur Thor, sonur hans, var nýskriðinn úr dýru háskólanámi og dvöl í New York og Magnús Þorsteinsson var eini maðurinn í hópnum á launum sem færibandastjóri hjá Gosan fyrir norð- an. Einungis þessar staðreyndir eru staðfesting þess að Björgólfsfeðgar áttu ekki þá fjármuni, sem til þurfti til að kaupa gosdrykkjaverksmiðju, sem þá var metin á 15-20 milljónir dollara en ekki á hálfa milljón, eins ætla má af meintum samningum Björgólfs og Ingimars. Þegar eigendaskiptin urðu í sept- ember 1995 voru þremenningarn- ir venjulegir launamenn. Megin- hlutverk Björgólfs Guðmundssonar, aldursforseta Samson-hópsins sem að líkindum kenndi sig við götuna Samsonskeyva Prospekt þar sem BBP var upphaflega til húsa í Péturs- borg , var líklega það að hann átti að vera hinn virðulegi fulltrúi hópsins, myndarmaður með grásprengt hár og íklæddur teinóttum jakkafötum. Þetta gat skipt máli þegar þurfti að opna dyr lánastofnana og ná eyrum stjórnmála- og embættismanna. Hér skal því skotið inn að allt frá því að Björgólfur Guðmundsson varð milliliður Pharmaco og BGL, eigenda gosdrykkjaverksmiðjunnar BBP, stóðust samningar illa og upp- haf rekstrarins tafðist í nær því heilt ár samkvæmt heimildum og skjöl- um BBP. Slakri frammistöðu Björ- gólfs Guðmundssonar er um kennt – auk vandamála vegna húsnæðisins í Rússlandi. En þrátt fyrir þetta fór Björgólfur Guðmundsson ítrekað fram á það við Ingimar og Bernard að fá 25 prósenta eignarhlut í fyrirtækinu fyrir framlag sitt og Akureyringanna. Þessari ósk var ávallt hafnað, enda engar for- sendur fyrir því að gera launamann, sem ekki stóð sig einu sinni í stykk- inu, að meðeiganda í fyrirtækinu. . Sindri í Pharmaco seldi Björgólfi verksmiðju Staðreynd málsins er sú að Björ- gólfur Guðmundsson var nýorðinn gjaldþrota á þessum árum og seldi Sindri Sindrason í Pharmaco, sem átti Gosan-verksmiðjuna á Akureyri og var mikill vinur Björgólfs, honum færibönd og framleiðslutæki fyrir táknrænt verð – samtals eitt þúsund íslenskar krónur eða tuttugu doll- ara, samkvæmt heimildum DV. Ingi- mar Ingimarssyni var kunnugt um að leggja ætti verksmiðjuna fyrir norð- an niður og ámálgaði tækjakaup við Björgólf Guðmundsson, sem Sindri hafði í kjölfar dóms í Hafskipsmálinu gert að forstjóra Gosan. Samningar tókust og upp frá því var Björgólfur í raun orðinn verk- taki hjá Ingimar og Bernard Lardner. Stuttu síðar útvegaði Björgólfur syni sínum og Magnúsi Þorsteinssyni, vinnu við rússneska verkefnið. Þess- ir þrír launamenn fóru til Péturs- borgar auk nokkurra tæknimanna til að setja upp verksmiðju fyrir Baltic Bottling Plant. Nokkrum dögum eftir að starfs- manninum Þór Kristjánssyni var meinaður aðgangur að vinnustað sínum í október 1995 og ljóst var að búið var að yfirtaka fyrirtækið. Sam- kvæmt staðhæfingu Ingimars, hittust Bernard J. Lardner og Björgólfur Thor á fundi, sem haldinn var í Péturs- borg. Þar tjáði Björgólfur Thor fyrr- verandi vinnuveitanda sínum Bern- ard frá því að Baltic Group Limited, eignarhaldsfélag Bernards og Ingi- mars, hefði selt föður hans, Björgólfi Guðmundssyni, og fyrirtæki hans, Hansa ehf. (Viking Brugg), alla hluti sína í Baltic Bottling Plant. Bernard lýsti undrun sinn, enda vissi hann sjálfur ekki að hann hefði selt einn BJÖRGÓLFSFEÐGAR, BJÓRINN OG MAFÍAN Sankti Pétursborg Það var í Sankti Pétursborg í Rússlandi sem Björgólfsfeðgar, ásamt Magnúsi Þorsteinssyni, auðguðust á drykkjarvöruverksmiðjunni Bravó sem gerði þeim kleift að kaupa 45,8 prósenta hlut í Landsbankanum árið 2002. „Uppruni Bravo International og núverandi tilvist hinna ýmsu Bravo-fyrirtækja virðist vera byggð á þaulhugsuðu svindli og þjófnaði sem átti sér stað árið 1995.“ Hver er Ingimar H. Ingimarsson? Ingimar H. Ingimarsson er fæddur árið 1943 og er verkfræðingur og arkitekt að mennt frá háskólanum í Braunschweig í Þýskalandi. Á árunum 1972 til 1989 starfaði hann sem verkfræðingur og arkitekt í Þýskalandi, Skandinavíu, Asíu og á Íslandi. Samhliða þessu starfaði hann að fasteignaþróunarverkefn- um í sömu löndum. Hann rak meðal annars arkitektastofuna Vinnustofan Klöpp hér á landi og var framkvæmdastjóri hjá Útvarpi Matthildi. Hann hélt til Rússlands í kringum 1990. Í Rússlandi var hann meðal annars framkvæmdastjóri hjá símafyrirtækinu Peterstar á árunum 1991 til 1992 auk þess að vera eigandi og stjórnarformaður Baltic Bottling Plant. Hann var jafn- framt ræðismaður Íslands í Pétursborg á þessum árum en þar á undan hafði hann verið ræðismaður fyrir Sovétríkin á Íslandi. Björgólfur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteinsson urðu ræðismenn Íslands í Pétursborg á eftir honum. Eftir Rússlandsævintýrið og hinar hatrömmu deilur við Björgólfsfeðga varð Ingimar meðal annars framkvæmdastjóri hjá flugfélaginu MK árið 1997 og stofnandi og forstjóri flugfélagsins JetX/Primera Air. Ingimar er stjórnarfor- maður Primera Air í dag, en félagið hét áður JetX. Hann lét af störfum sem forstjóri hjá flugfélaginu í fyrra og tók Jón Karl Ólafsson við af honum. Ingimar býr í Súlunesi í Garðabænum ásamt konu sinni, Guðrúnu Vilborgu Sverrisdóttur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.