Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 25. september 2009 Fréttir
„Sigurður Lindberg var eyðilagður
á Breiðavík, bæði sem persóna og
sem maður. Hann kom þarna vest-
ur kátur og frískur strákur en þegar
hann fór var hann búinn að vera,“
segir Georg Viðar Björnsson sem
kynntist Sigurði Lindberg Pálssyni á
Breiðavík og hefur verið náinn vin-
ur hans síðan.
Sigurður var vistaður á Breiðavík
í rúm tvö ár, frá apríl 1958 til ágúst
1960, þegar hann var á aldrinum
ellefu til þrettán ára. Hann framdi
sjálfsmorð sunnudaginn 13. sept-
ember eftir langvarandi þunglyndi.
Útför hans fór fram frá Fossvogs-
kirkju í gær.
Strauk af geðdeildinni
Sigurður glímdi lengi við alvar-
legt þunglyndi og skömmu áður en
hann lést var hann vistaður á geð-
deild Landspítalans. Þar hafði hann
leyfi til að fara út að reykja og til-
kynnti starfsfólki um að hann væri
að fara í reykingapásu einn daginn.
Sigurður kom ekki aftur inn. Hann
strauk af geðdeildinni og fór aftur
heim til sín þar sem hann dróst sí-
fellt lengra inn í svartnættið þar til
hann tók ákvörðun um að binda
enda á líf sitt.
Georg Viðar var í miklu sam-
bandi við Sigurð undir það síðasta.
Hann hefur lengi starfað með þeim
sem minna mega sín í þjóðfélaginu
og bauð Sigurði vini sínum að búa
hjá sér um hríð á meðan hann næði
sér upp úr mesta þunglyndinu. „Ég
vonaðist til að hann yrði hérna á
sófanum hjá mér fram að jólum eða
þar til hann næði sér á strik en ég
vildi að hann gerði eitthvað í sínum
málum. Í framhaldinu fór hann inn
á geðdeild sem var gæfuspor. Hann
var hins vegar komnn út í horn í lífi
sínu og vildi enga hjálp. Það er ekki
hægt að neyða menn til að þiggja
hjálp,“ segir Georg Viðar.
Sigurður hringdi mikið í Georg
Viðar þá daga sem hann var heima
eftir að hann fór af geðdeildinni.
„Hann hringdi oft og spurði hvort
þetta færi ekki að koma, hvort við
fengjum ekki bráðum skaðabæt-
urnar. Ég sagðist vona það,“ segir
hann. Sigurður beið þá eftir þeim
bótum sem íslenska ríkið hyggst
greiða Breiðavíkurdrengjunum.
Falleg útför
Ragnheiður Ágústína Pálsdótt-
ir, systir Sigurðar, segir að sér hafi
verið verulega brugðið þegar hún
heyrði af andláti bróður síns. „Ég
tengdi það fljótlega við umræðuna
um Breiðavík sem hefur verið há-
vær í samfélaginu að undanförnu.
Ég held að hann hafi verið að upp-
lifa hörmungarnar þaðan aftur,“
segir hún.
Ragnheiður lýsir bróður sínum
sem indælum dreng sem gekk illa í
skóla. „Í dag yrði hann meðhöndl-
aður sem ofvirkur. Það var aðal-
ástæðan fyrir því að hann var send-
ur á Breiðavík. Hann var mjög ör og
hraður karakter,“ segir hún.
Sigurði varð aldrei barna auðið,
hann var alla tíð ógiftur og mikill
einfari þó að hann væri náinn vin-
um sínum.
Nokkur fjöldi var viðstaddur
jarðarför hans í gær og telur Ragn-
heiður að allt að þrjátíu menn hafi
komið þar sem þekktu Sigurð frá
Breiðavík. Setið var á öllum bekkj-
um Fossvogskirkju þó misjafnlega
þétt væri. „Þetta var falleg athöfn,“
segir Ragnheiður í samtali við DV.
Hún er ánægð með hversu margir
voru við athöfnina.
Edrú í nítján ár
Óli Styff kynntist Sigurði á Breiðavík
og voru þeir miklir vinir. Þó að hann
hafi vitað af þunglyndi Sigurðar kom
honum mjög á óvart að hann hefði
framið sjálfsmorð. „Ég var sleginn,“
segir Óli. Hann er einn þeirra sem
Erla HlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Sigurður lindberg Pálsson lést á heimili sínu þann 13. sept-
ember. Frá ellefu til þrettán ára aldurs var hann vistaður á
Breiðavík. Sigurður er 32. Breiðavíkurdrengurinn sem nú er
dáinn, allt menn á besta aldri. Margir þeirra féllu fyrir eigin
hendi. Nánir vinir Sigurðar eru sammála um að vistin hafi
sett mark sitt á hann til æviloka. Þeir eru reiðir vegna þess
hversu lengi íslenska ríkið hefur dregið að greiða Breiðavík-
urdrengjunum skaðabætur.
„EYÐILAGÐUR Á BREIÐAVÍK“
Sendur á Breiðavík Sigurður
Lindberg Pálsson var sendur ellefu
ára gamall á Breiðavík. Hann bar þess
aldrei bætur og lagðist á endanum í
djúpt þunglyndi. Mynd úr EinkaSaFni
Jarðarförin Sigurður Lindberg Pálsson
var jarðsunginn frá Fossvogskirkju í gær.
Fjöldi Breiðavíkurdrengja var viðstaddur
athöfnina. Mynd rakEl óSk Sigurðardóttir
Fylgt til grafar Ragnheiður Ágúst-ína Pálsdóttir, systir
Sigurðar, segir að þjóðfélagsumræða
um Breiðavík hafi
ýft upp gömul sár
hjá bróður sínum. Hún fylgdi honum
til grafar í gær.
Mynd rakEl óSk
Sigurðardóttir