Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 21
fréttir 25. september 2009 föstudagur 21
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða sendu tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Tveir fyrir einn
DV heim í hlýjuna
DV á netinu frítt!
:::
:::
:::
HAUSTTILBOÐ
báru kistu Sigurðar til grafar í gær.
Sigurður var búinn að vera edrú
í nítján ár þegar hann dó en átti alla
tíð í miklum fjárhagserfiðleikum.
„Hann bjó í leiguíbúð og átti oft ekki
fyrir húsaleigunni. Áður svaf hann
oft bara úti, í stýrihúsum og þar sem
hann fékk smá skjól,“ segir Óli.
Hann er reiður út í starfsmenn
Breiðavíkur og barnaverndaryfir-
valda hér áður fyrr, og þykir sorg-
legt hversu margir af Breiðavíkur-
drengjunum hafa fallið fyrir eigin
hendi. „Þeir skulda þeim eitt stykki
líf,“ segir hann um íslensk yfirvöld.
Óli er orðinn langþreyttur á bið-
inni eftir bótum frá ríkisstjórninni
og telur þær skipta sköpum fyrir þá
sem vistaðir voru á Breiðavík enda
margir illa staddir fjárhagslega.
„Siggi væri enn á lífi hefði hann
fengið þessar bætur. Það hefði get-
að bjargað lífi hans ef það hefði ver-
ið gengið frá þessum bótum eins og
lofað var. Við höfum verið sviknir
alla ævi,“ segir Óli.
Sigurður hringdi í Óla áður en
hann lét til skarar skríða. „Hann
hringdi og kvaddi. Hann sagðist
vera búinn að fá nóg. Hann fannst
svo um morguninn,“ segir Óli.
Ofbeldi og niðurlæging
Ofbeldið sem drengirnir á Breiða-
vík voru beittir var kynferðislegt,
líkamlegt og andlegt. Sigurður varð
aðallega fyrir því andlega, að sögn
Georgs Viðars, og hafði það áhrif
á hann til æviloka. „Ofbeldi birt-
ist í svo mörgum myndum. Þeg-
ar krakkar eru komnir á vestasta
hjara veraldar og hafa ekki pabba
eða mömmu til að hjúfra sig að, þá
er það ofbeldi. Það er ofbeldi þó að
maður sé ekki laminn. Menn þurftu
þarna að þola margs konar niður-
lægingu. Allir fengu að kenna á því.
Siggi var ekki laminn mikið svo ég
viti. Honum var hins vegar þræl-
að út í vinnu eins og okkur hinum.
Margir sáu þarna engin vinveitt
andlit. Þetta markar ævarandi spor
í barnssálina. Ekkert barn á skilið
að lenda á svona stað,“ segir Georg
Viðar.
Fyrstu viðbrögð hans við láti Sig-
urðar voru reiði. „Ég varð bara reið-
ur. Bæði út í hann og út í þessar að-
stæður sem honum var úthlutað í
lífinu. Karlanginn,“ segir hann.
Georg Viðar er líka reiður út í
íslensk stjórnvöld fyrir sinnuleysi í
garð Breiðavíkurdrengja. Það tekur
hann sárt að horfa upp á gamla fé-
laga sína deyja einn af öðrum. „Rík-
ið græðir á hverjum og einum sem
drepur sig. Þannig fækkar þeim
sem þeir þurfa að borga bætur, ef
þær berast nokkurn tímann,“ segir
hann.
Bótagreiðslur dragast
Í ársbyrjun 2007 fór DV af stað með
greinaflokk um upptökuheimilið á
Breiðavík sem hratt af stað miklum
umræðum og hörðum viðbrögðum
í samfélaginu. Helgi Jón Davíðsson
varð fyrstur viðmælenda blaðsins til
að greina frá ömurlegri reynslu sinni
af vistun á Breiðavík. Breiðavíkur-
drengir sögðu svo frá reynslu sinni,
einn af öðrum, í DV. Aðrir miðl-
ar tóku við sér í kjölfarið. Ritstjórn
blaðsins var síðar verðlaunuð af
Blaðamannafélagi Íslands fyrir um-
fjöllunina sem rannsóknarblaða-
mennsku ársins.
Geir Haarde, þáverandi forsæt-
isráðherra, skipaði þá nefnd til að
kryfja málið til mergjar og skilaði hún
skýrslu á síðasta ári. Þar var staðfest
að það ofbeldi og misþyrmingar sem
greint var frá í DV var blákaldur raun-
veruleikinn. Í framhaldinu ákvað
ríkisstjórnin að greiða Breiðavíkur-
drengjunum bætur vegna þeirrar
reynslu sem þeir urðu fyrir þar sem
íslenska ríkið hafði lagt blessun sína
yfir starfsemina á Breiðavík. Enn
hafa bæturnar ekki verið greiddar og
enn hefur ekki náðst samkomulag
um upphæð þeirra.
„EYÐILAGÐUR Á BREIÐAVÍK“
Látnir Breiðavíkurdrengir
Af 126 drengjum sem vOru vistAðir á BreiðAvík á árunum
1952 tiL 1972 eru 32 Látnir, eðA 25,4 prósent.
gylfi j. Axelsson 16. des. 1938 – 21. des. 1963 25 ára
pétur Hraunfjörð pétursson 20. maí 1949 - 9. febrúar 1964 15 ára
sturla Holm kristófersson 23. maí 1947 - 3. des. 1965 18 ára
páll svavarsson 31. júlí 1938 - 18. desember 1967 29 ára
Þórarinn vagn Þórarinsson 25. febrúar 1949 - 23. júlí 1969 20 ára
gunnlaugur trausti gíslason 31. ágúst 1947 - 28. mars 1975 28 ára
Alfreð Hjörtur Alfreðsson 9. nóv. 1952 - 23. apríl 1975 23 ára
runólfur torfason 24. maí 1941 - 3. maí 1975 34 ára
Haraldur ólafsson 19. ágúst 1946 - 17. des. 1978 32 ára
guðfinnur ingvarsson 11. júní 1946 - 19. janúar 1986 40 ára
guðmundur Hafsteinn jónsson 13. júlí 1942 - maí 1986 44 ára
gunnlaugur Hreinn Hansen 25. febrúar 1939 - 21. júní 1988 49 ára
jóhann A. víglundsson 22. janúar 1940 - 10. ágúst 1989 49 ára
Hilmar guðbjörnsson 13. maí 1943 - 18. júlí 1991 48 ára
magnús óskar garðarsson 8. mars 1946 - 31. maí 1994 48 ára
Leifur gunnar jónsson 19. júní 1954 - 23. júlí 1994 40 ára
reynir Bjartmar ragnarsson 20. febrúar 1949 - 28. ágúst 1995 46 ára
sigvaldi jónsson 21. júní 1948 - 28. mars 1997 49 ára
Baldvin guðmundur ragnarsson 30. des. 1953 - 30. október 1997 44 ára
kristján friðrik Þorsteinsson 29. mars 1957 - 23. ágúst 1998 41 árs
rúnar kristjánsson 30. okt. 1955 - 31. des. 2000 45 ára
Þorgeir guðjón jónsson 26. júlí 1954 - 19. nóv. 2002 48 ára
gísli sigurður sigurðsson 3. ágúst 1952 - 29. nóv. 2002 50 ára
sveinn guðfinnur ragnarsson 4. janúar 1956 - 26. febrúar 2003 47 ára
Þorsteinn Axelsson 15. maí 1943 - 21. sept. 2003 60 ára
einar sigurður sigurfinnsson 14. febrúar 1940 - 19. maí 2004 64 ára
eiríkur Örn stefánsson 24. mars 1956 - 5. júlí 2004 48 ára
edvald magnússon 24. sept. 1954 - 13. apríl 2005 51 árs
skúli garðarsson 19. febrúar 1955 - 22. júní 2005 50 ára
eymundur kristjánsson 26. maí 1959 - 5. maí 2007 48 ára
jón vignir sigurmundsson 10. janúar 1952 – 2. janúar 2008 56 ára
sigurður Lindberg pálsson 12. nóv.r 1946 – 13. sept.r 2009 62 ára
- Afdrif eins til þriggja Breiðavíkurdrengja eru ókunn. Hér eru ekki talin með látin
Breiðavíkurbörn sem vistuð voru þar á árunum 1973 til 1980. Af þeim eru tvö eða
þrjú talin látin.
-Heimild:Breiðavíkursamtökin
„Ríkið græðir á hverjum
og einum sem drepur
sig. Þannig fækkar þeim
sem þeir þurfa að borga
bætur.“