Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 26
„Þetta er þrælpólitískt en á gam-
ansömum nótum,“ segir Elfar Logi
Hannesson leikari um verkið Heilsu-
gæsluna sem frumsýnt er næsta
föstudag. Það er Lýður Árnason,
kvikmyndagerðarmaður og læknir,
sem skrifar handritið og leikstýrir en
verkið fjallar um samskipti lækna og
sjúklinga.
Elfar Logi er fæddur og uppal-
inn á Vestfjörðum. Hann settist að í
Reykjavík eftir að hafa lokið leiklist-
arnámi í Danmörku og setti á lagg-
irnar Kómedíuleikhúsið árið 1997.
Um aldamótin fluttist hann aftur
vestur og segir hann að þá hafi hlut-
irnir farið að gerast.
Hann er maðurinn á bak við Act
Alone-einleikjahátíðina sem Eric
Bogosian kom meðal annars fram á
árið 2006.
Byggt á eigin reynslu
„Þarna er verið að stinga á ansi mörg-
um kýlum hvað varðar heilsu og
heilsugæslu almennt,“ heldur Elfar
áfram um leikritið. „Þetta er tvíleik-
ur. Ég og Margrét Sverrisdóttir förum
þarna með öll hlutverkin,“ en hvort
þeirra bregður sér í hlutverk fimm
persóna. „Við erum ýmist í hlutverki
lækna eða sjúklinga.“
Eins og áður kom fram er það Lýð-
ur Árnason sem skrifar og leikstýrir
en handritið er að miklu leyti byggt
á reynslu hans sem læknir. „Þegar ég
fékk þetta handrit í hendurnar fannst
mér það svo geggjað að ég gat bara
ekki sleppt því.“ Ekki er ósennilegt að
eitthvað af því fólki sem persónurn-
ar eru byggðar á muni sjá verkið. Elf-
ar er þó ekki hræddur um að neinn
muni móðgast. „Við pössum okkur
nú að ýkja þetta nægilega mikið svo
að þetta eigi ekki bara við einhvern
ákveðinn einstakling en það er mjög
fyndið samt að skoða sumar týpurn-
ar. Þetta eru oft skrautlegar týpur sem
um helgina
afmælistónleikar ragga Bjarna
Einn dáðasti listamaður þjóðarinnar, Ragnar Bjarnason, varð 75 ára í vikunni.
Af því tilefni verður slegið upp tvennum afmælistónleikum í Höllinni á laugar-
daginn. Ekkert verður til sparað og verður Raggi dyggilega studdur af landsliði
hljóðfæraleikara, strengjasveit, góðvinum og stórstjörnum. Á meðal þeirra
sem fram koma eru Björgvin Halldórsson, Diddú, Hemmi Gunn, Laddi,
Mugison, Páll Óskar, Stefán Hilmarsson og Sumargleðin. Nánar á midi.is.
nordisk
Panorama hefst
Kvikmyndahátíðin Nordisk Pano-
rama hefst í dag, föstudag, og
stendur til 30. september. Af þeim
520 myndum sem sendar voru á
hátíðina í ár var 21 heimildarmynd
og 40 stuttmyndir valdar í keppni.
Til viðbótar voru 11 myndir valdar
í keppnisflokkinn Nýjar norrænar
raddir. Ein íslensk heimildarmynd
keppir til verðlauna, Draumalandið
í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar og
Andra Snæs Magnasonar, og einnig
þrjár íslenskar stuttmyndir: Epic Fail
(leikstj. Ragnar Agnarsson), In the
Crack of the Land (leikstj. Una Lor-
enzen) og Sugarcube (leikstj. Sara
Gunnarsdóttir).
frumsýning
í Borgarleik-
húsinu
Leikritið Heima er best verð-
ur frumsýnt í Borgarleikhúsinu
í kvöld, föstudag. Þar segir frá
tveimur bræðrum sem leika sama
leikritið aftur og aftur undir ógn-
arstjórn föður síns. Innan tveggja
tíma hafa þrír menn drukkið sex
dósir af bjór, borðað slatta af kexi
með smurosti og sporðrennt grill-
uðum kjúklingi með undarlegri
blárri sósu. Innan tveggja klukku-
tíma munu fimm manneskjur týna
lífi. Höfundurinn, Enda Walsh, er
fæddur í Dublin á Írlandi og hafa
verk hans verið sviðsett víða um
heim. Tvö leikrita hans hafa ver-
ið sýnd hérlendis, Disco Pigs og
Misterman. Leikstjóri er Jón Páll
Eyjólfsson og leikarar eru Þröstur
Leó Gunnarsson, Jörundur Ragn-
arsson, Guðjón Davíð Karlsson og
Dóra Jóhannsdóttir.
fjölskyldutón-
leikar í salnum
Fyrstu tónleikar í nýrri röð tónleika
fyrir börn og fjölskyldufólk fara fram
í Salnum í Kópavogi á sunnudag-
inn. Tónleikaröðin hefur yfirskrift-
ina Töfrahurð og á þessum fyrstu
tónleikum verða flutt verkin Karni-
val dýranna eftir C. Saint-Saëns og
Kattadúettinn eftir G. Rossini. Sér-
stakir gestir á tónleikunum verða
sópranarnir Hallveig Rúnarsdóttir
og Hulda Björk Garðarsdóttir. Aðrir
flytjendur eru Kammerhópurinn
Sheherazade ásamt leikurunum
Guðrúnu Ásmundsdóttur og Sigur-
þóri Heimissyni. Tónleikarnir hefjast
klukkan 13 en klukkan 12.30 mæta
fjöllistamenn frá Götuleikhúsinu á
staðinn og boðið verður upp á and-
litsmálun. Miðasala er á salurinn.is.
Verk mánaðarins á Gljúfrasteini hefst á ný á sunnudaginn:
Ræða Kvæðakver Laxness
26 föstudagur 25. september 2009 fókus
Vilborg Dagbjartsdóttir, skáld, rit-
höfundur og kennari, ýtir Verki
mánaðarins á Gljúfrasteini úr vör
þetta haustið með hugrenningum
sínum og upplestri úr Kvæðakveri
Halldórs Laxness á sunnudaginn.
Guðmundur Andri Thorsson rit-
höfundur mun ræða við Vilborgu
um kvæðin og hvetja gesti til að
taka þátt í spjallinu og velta vöng-
um.
Ljóðin í Kvæðakveri Halldórs
Laxness þóttu allnýstárleg á sín-
um tíma en kverið kom fyrst út
árið 1930. Þar komu fram djarfar
tilraunir til að leysa íslenskt ljóð-
mál úr viðjum hins hefðbundna
forms og tónninn var ögrandi. Í
ljóðunum mátti finna háðsádeilu,
stælingar og gamanmál, uppreisn
gegn fáfengilegu orðaprjáli og upp-
blásnum hátíðleik. Meðal ljóð-
anna í Kvæðakveri var Únglíng-
urinn í skóginum en það er fyrsta
súrrealíska kvæðið á íslensku. Al-
þingismenn voru hins vegar ekki
ýkja sáttir við Únglínginn og sviptu
Halldór Laxness skáldalaunum fyr-
ir kveðskapinn.
Verk mánaðarins er opinn les-
hringur sem Gljúfrasteinn stendur
fyrir. Eitt verk eftir Halldór Laxness
er tekið fyrir í hverjum mánuði sem
fólk er hvatt til að lesa. Stofuspjall-
inu stýra ýmsir valinkunnir bók-
menntamenn og -konur. Dagskrá
vetrarins verður auglýst síðar.
Dagskráin á sunnudag hefst
klukkan 16. Aðgangseyrir er 500
krónur og er síður en svo skylda að
hafa nýlokið lestri á viðkomandi
verki.
Spjallað Halldór Laxness glaðbeittur.
á Gljúfrasteini. MYND ANDréS KolBeiNSSoN
elfar logi Hannesson leikur aðalhlutverkið í leikritinu Heilsugæslunni ásamt Margréti
Sverrisdóttur. Verkið er frumsýnt um næstu helgi en það er lýður Árnason sem skrifar
handrit þess og leikstýrir. Verkið er byggt á hans eigin reynslu sem læknir en hann hefur
upplifað ýmislegt skrautlegt í samskiptum sínum við varginn, eins og hann segir sjálfur.
Þrælpólitískt
á Heilsugæslunni
elfar logi Hannesson
Lærði leiklist í Danmörku.