Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 27
m
æ
li
r
m
eð
...
Djúpið
Gagnrýnandi
DV var djúpt
snortinn. Sýnt
hjá Leikfélagi
Akureyrar um
helgina.
District 9
Loksins eitthvað frumlegt.
Konur á rauðum
soKKum
Frábær og
nauðsynleg
heimildamynd
um litla gula
hænu á rauðum sokkum.
the september issue
Þarft ekki að
ganga í Man-
olo Blahnik
Aladdin-
skóm til að
tengja við þessa mynd.
xxx
xxx
Dear Zachary: a Letter
to a son ...
Amatörleg
mynd um
svakalega
sögu.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
fóKus 25. september 2009 föstudagur 27
jóhann G. semur við þýskt útgáfufyrirtæki og Senu:
Endurútgáfa Óðmanna
föstudagur
n réttir á föstudegi
Tónlistarhátíðin Réttir er haldin í
kringum og í samstarfi við RIFF.
Kvöldmiði á Réttir veitir aðgang
að öllum tónleikum kvöldsins en
miða er hægt að kaupa á midi.is. Á
föstudagskvöldið eru meðal tónleika:
Ensími á Sódómu, FM Belfast og
Retro Stefson á Nasa, Bodebrixen á
Batteríinu, Múm á Jacobsen og Peter
& Wolf á Grand rokk. Hægt er að
kaupa miða á alla tónleika seríunnar
á 3.500 kr. á midi.is og í verslunum
Skífunnar.
n muse tribute í hvíta húsinu
Muse tribute-bandið mætir í Hvíta
húsið í kvöld og rokkar og syngur öll
lögin með Muse, hljómsveitinni sem
allir elska. Húsið er opnað klukkan
22.00 en tónleikarnir hefjast klukkan
23.00. Það er átján ára aldurstakmark
og kostar 1000 krónur inn.
laugardagur
n meistaradansleikur í Krikanum
FH-ingar fagna Íslandsmeistaratitli
sínum með sannkölluðum risadans-
leik í Kaplakrika í Hafnarfirði og að
sama skapi fagna Haukamenn sæti í
úrvalsdeild. Það verða einnig sann-
kallaðir ballmeistarar á sviðinu því
Egó og Papar leiða saman hesta sína
og loka samstarfi með yfirskriftinni
„Sumarið er tíminn“ í Kaplakrikanum.
n aukatónleikar ragga bjarna
Einn dáðasti listamaður þjóðarinnar
varð 75 ára
þriðjudaginn
og af því tilefni
verður slegið
upp einstaklega
glæsilegum
tónlistarviðburði
í Laugardals-
öllinni. Ekkert
verður til sparað
í umgjörð og
glæsileika og verður Raggi dyggilega
studdur af landsliði hljóðfæraleik-
ara, strengjasveit, góðvinum og
stórstjörnum. Þar má meðal annars
nefna Bó, Diddú, Guðrúnu Gunnars
og sjálfan Hemma Gunn.
n réttir á laugardegi
Tónlistarhátíðin Réttir er haldin í
kringum og í samstarfi við RIFF.
Kvöldmiði á Réttir veitir aðgang að
öllum tónleikjum kvöldsins en miða
er hægt að kaupa á midi.is. Á laug-
ardagskvöldinu eru meðal tónleika:
Apparat Organ Quartet og Dr. Spock
á Nasa, Mammút á Sódómu, Kleerup
á Batteríinu og Dynamo Fog á Grand
rokk. Hægt er að kaupa miða á alla
tónleika seríunnar á 3.500 kr. á midi.is
og í verslunum Skífunnar.
Hvað er að
GERAST?
the happiest
GirL
in the WorLD
Reynir að vera
bæði drama
og grín en verður eiginlega
Mynd- og tónlistarmaðurinn Jó-
hann G. Jóhannsson gekk nýverið
frá tveimur plötusamningum. Ann-
ar þeirra eru við þýska útgáfufyrir-
tækið Normal Records sem hyggst
endurútgefa tvölfalda plötu Óð-
manna, bæði á vínil og geilsadiski.
Samningurinn er til þriggja ára og
gildir á heimsvísu.
Í dag gekk Jóhann svo frá samn-
ingi við Senu um útgáfu tveggja
platna með eigin efni. Fyrri platan
er komin langt á veg og ætti að vera
tilbúin á næstunni. Aðdáendur Jó-
hanns geta fylgst með gangi mála
með því að skrá sig sem tónlistar-
vini á heimasíðu hans, johanng.is.
Jóhann opnaði fyrir stuttu sýn-
ingu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja-
víkur þar sem hann er með 50
myndir til sýnis og sölu. Jóhann
hefur þegar selt rúmlega fimmtung
myndanna en hann verður á sýn-
ingunni um helgina frá klukkan 14
til 18. Eitt af verkunum sem Jóhann
er með á sýningunni gaf hann Fjöl-
skylduhjálp Íslands en söluágóði
þess rennur til samtakanna að sýn-
ingunni lokinni. asgeir@dv.is
jói G Hefur í nægu að snúast.
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
maður hefur hitt á förnum vegi og
maður sér þetta fólk alveg fyrir sér.“
Dauð tunga
Lýður ákvað í vor að hætta sem
læknir á Flateyri og Þingeyri í kjöl-
far skipulagsbreytinga í heilbrigðis-
kerfinu. Hann sagði í viðtali við DV
á þeim tíma að hann væri of vanur
því að starfa sjálfstætt til að taka þátt
í miðstýringunni sem ætti sér stað.
Lýður einbeitir sér því nær eingöngu
að listinni en hann er einnig kvik-
myndagerðarmaður.
Í viðtali sínu við DV sagði Lýður
nokkrar sögur af skrautlegum kynn-
um sín af sjúklingum. DV ákvað að
endurbirta eina þeirra til að leyfa les-
endum að finna smjörþefinn af þeirri
reynslu sem handritið byggist á.
Lýður minnist þess þegar afdælingur
leitaði til hans með heldur óvanalegt
vandamál. „Til mín kom skjólstæð-
ingur og bað mig um að lappa upp á
sig.“ Afdælingurinn hafði keyrt langa
leið til þess að leita læknishjálpar og
var illskiljanlegur þegar á heilsugæsl-
una var komið. Það kom hins veg-
ar í ljós hvað amaði að þegar hann
dró tunguna upp úr buxnavasan-
um. „Skondnast við þetta tilvik var
að þegar ég tjáði honum að of seint
væri í rassinn gripið tók hann því
með mikilli rósemd, stakk tungunni
aftur í vasann og ók til síns heima. Ég
komst því aldrei svo langt að greina
vandann.“
útibú heilsugæslunnar
Verkið verður frumsýnt föstudag-
inn 2. október en það er Kómedíu-
leikhús Elfars sem setur verkið upp.
„Við sýnum í Arnardal í skemmti-
legu leikhúsi. Það er rétt fyrir utan
Ísafjörð. Þegar við erum svo búin að
sýna hérna í einhvern tíma förum við
á flakk og opnum útibú Heilsugæsl-
unnar hér og þar. Við byrjum á því
að fara á flakk hér á Vestfjörðum og
förum svo norður. Draumurinn er að
komast á endanum til borgarinnar.“
Þó að Kómedíuleikhúsið hafi
verið stofnað í Reykjavík hefur það
lengst af verið fyrir vestan og fór í
raun ekki að ganga vel fyrr en þangað
var komið. „Ég komst ekki inn í leik-
listarskólann hér heima á sínum tíma
og ákvað því að fara til Danmerkur
í nám,“ segir Elfar sem er fæddur og
uppalinn á Bíldudal. Þar bjó hann í
ein 25 ár. „Svo þegar ég kom heim bjó
ég í Reykjavík og stofnaði Kómedíu-
leikhúsið,“ en meðstofnandi Elfars
var Róbert Snorrason. Það var frek-
ar rólegt fyrstu árin og Elfar segir að
annaðhvort hafi borginni ekki líkað
við hann eða honum ekki við borg-
ina. „Við hjónin tókum svo bara þá
ákvörðun að flytja vestur og sjáum
alls ekki eftir því. Þá fóru hlutirnir að
gerast.“
Elfar segir fólk almennt ekki hafa
haft trú á að leikhús gæti yfir höfuð
gengið á Vestfjörðum og að hann
yrði kominn í frystihúsið innan tíð-
ar. Elfar lét það þó ekki stöðva sig
en hann segir ómetanlega hjálp frá
samfélaginu hafa séð til þess að leik-
húsið gengi. „Fólk er alltaf tilbúið að
hjálpa manni hérna. Til dæmis að
hjálpa manni að smíða leikmynd og
allt endurgjaldslaust. Það á nú stóran
þátt í að þetta hafi gengið hingað til.“
Elfar segir menningarlíf fyrir vestan
mjög gott og að yfirleitt sé eitthvað að
gerast. Í mynd-, leik- og tónlist.
Um viss tímamót er að ræða í
sögu Kómedíuleikhússins þar sem
leikurum hefur fjölgað um helming.
„Ég hef verið að einbeita mér að ein-
leik síðan ég kom vestur þannig að
leikhúsið stækkar um helming með
tilkomu Guðrúnar.“
stórstjarna á act alone
Árið 2004 setti Elfar á laggirnar ein-
leikshátíðina Leikur einn sem síðar
fékk nafnið Act Alone. „Þetta kom
þannig til að ég var búinn að vera að
dunda mér í þessum einleik mikið og
vildi sjá aðra sem væru að vinna með
það form. Læra af þeim og stela hug-
myndum,“ segir Elfar í léttum dúr.
Hátíðin í ár var með minna sniði
en vanalega vegna ástandsins en Elf-
ar segir líflíkur hennar þó miklar fyrst
hún var haldin á annað borð. „Það
var annaðhvort að hætta eða reyna
að halda áfram.“ Sjö verk voru sýnd á
hátíðinni að þessu sinni en árið áður
voru þau 25. „Við þurftum að stytta
hana aðeins og sýna færri verk en í
staðinn var haldið í gæðin og öll verk-
in voru mjög sterk að þessu sinni.“
Act Alone var haldin í ár í sjötta
skipti en það vakti mikla athygli þeg-
ar hinn þekkti leikari Eric Bogosian,
sem áhorfendur Skjás eins kannast
vel við sem lögreglustjórann Danny
Ross í þáttunum Law & Order: Crim-
inal Intent, kom óvænt fram á há-
tíðinni árið 2006. „Hann hefur verið
ásamt Whoopi Goldberg aðalmaður-
inn í þessari einleikjaflóru undanfar-
in 20 ár. Það var því mikill heiður að
fá hann hingað og eftir það var mun
auðveldara að fá fólk að utan til að
koma með verk sín hingað.“
Það var lítið um stjörnustæla í
Bogosian þegar Elfar hafði samband
við hann. „Ég sendi honum nú bara
tölvupóst sem hann svaraði fimm
mínútum seinna. Hann vildi endi-
lega kom til Íslands. Heimsþekktur
leikari sem býr á Manhattan setti það
ekki fyrir sig að ferðast til Ísafjarðar.“
ekkert resept
Elfar mun halda áfram að þróa Act
Alone og segir ánægjulegt að hátíð-
ir eins og Lókal og artFart séu líka
komnar á skrið fyrir sunnan. „Það er
bara af hinu góða og það gefur líka
okkur sem eru vanalega alltaf á svið-
inu tækifæri til þess að sjá einhver
verk.“
Elfar hvetur alla til að sjá Heilsu-
gæsluna en hann er nú á fullu við
æfingar. Hann viðurkennir að þó að
leikararnir séu bara tveir séu æfing-
ar strembnar. „Lýður er harður hús-
bóndi. Það þýðir ekkert að mæta
slappur og ætla að fá resept.“
Lýður árnason Skrifar
handritið og leikstýrir.
heilsugæslan Frumsýnd um næstu helgi.