Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 30
30 Föstudagur 25. september 2009 helgarblað
Eftir algjört hugmyndafræðilegt og efnahagslegt hrun er nýtt
Ísland að rísa úr öskustónni.
Útrásarvíkingar og bankamenn eru ekki lengur hetjur hér á la
ndi. DV tók saman yfirlit yfir
nokkrar af hetjum Nýja-Íslands. En þó að Nýja-Ísland sé ungt má
einnig finna þar fallnar hetjur,
uppreisnarseggi, uppvakninga og poppara.
hetjur Nýja-ÍslaNds
Vilhjálmur bjarNasoN
Í kringum hrunið varð Vilhjálmur áberandi og lét skoð-
anir sínar á þeim líklega glæpsamlegu viðskiptaháttum
sem hér höfðu átt sér stað umbúðalaust í ljós. Hann höfð-
aði persónulega mál gegn gamla Glitni og fleiri fyrirtækj-
um þar sem hann leitaði réttar síns sem hluthafi og benti
óhikað á ruglið og vitleysuna sem hafði viðgengist.
hjálparstarF á ÍslaNdi
Aldrei hafa fleiri Íslendingar þurft á aðstoð að halda.
Fjöldinn allur af landsmönnum vinnur óeigingjarnt starf
hjá þeim fjölmörgu hjálparstofnunum og samtökum sem
hér starfa. Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar leggja góð-
um málefnum lið á þessum síðustu og verstu tímum.
ásgerður jóNa Flosadóttir
formaður Fjölskylduhjálpar Íslands
Þó að öll hjálparsamtök hafi staðið sig vel og allt það fólk sem þar er að
finna hefur Ásgerður Jóna verið hvað mest áberandi. Og Fjölskyldu-
hjálpin eru þau samtök sem hvað mest hefur mætt á. Ásgerður og
hennar fólk hjálpar tugum ef ekki hundruðum fjölskyldna að koma
mat á borðið á heimilum sínum.
ÍsleNskir sjómeNN
Eru og hafa alltaf verið hetjur á Íslandi. Fólkið sem vinnur baki brotnu
allan ársins hring við að nýta okkar langmikilvægustu auðlind. Skila í
þjóðarbúið raunverulegum verðmætum sem hafa verið okkar styrkur
um árabil. Misbeiting kvótakerfisins hefur þó sett strik í reikninginn en
ÞorValdur gylFasoN
Ein af aðalhetjunum. Maðurinn sem hafði varað við hruninu, stöðu
efnahagskerfisins og mörgu því sem miður fór á Íslandi. Talaði fyrir
daufum eyrum í mörg ár þar til martröðin varð að veruleika. Enginn
vildi hlusta. Einn snjallasti og núna einn allra virtasti hagfræðiprófess-
or sem Ísland hefur átt.
jóN jóseF bjarNasoN
tölvunarfræðingur
Jón Jósef er einn þeirra sem hefur unnið að því að tengja saman og
greina frá skuggalegum krosseignatengslum í íslensku viðskiptalífi.
Hann hefur búið til gagnagrunn þar sem hægt er að fletta upp
mönnum og fyrirtækjum til að kanna þessi tengsl. Meðal annars
hefur Fjármálaeftirlitið keypt aðgang að gagnagrunninum.
guðjóN már guðjóNssoN
Guðjón í OZ
Sjálfmenntaði tölvusnillingurinn Guðjón Már Guðjónsson, betur
þekktur sem Guðjón í OZ, hefur lagt forritun á hilluna og hefur fyrir
löngu sagt skilið við fyrirtækið sem skapaði honum nafn hér á landi.
En hann getur svo sannarlega orðið ein af hetjum Nýja-Íslands og hef-
ur metnað til þess. Hann undi hag sínum vel í London en þegar aðrir
flúðu út eftir hrunið flutti hann heim í kreppuna til að hjálpa landan-
um að komast í gegnum hana. Hann stofnaði Hugmyndaráðuneytið
þar sem hann skapar ungum og framsýnum mönnum og konum að-
stöðu og hjálp til að skapa eitthvað nýtt. Alþjóðasamtökin JCI völdu
hann einn af tíu mest framúrskarandi ungum einstaklingum í heim-
inum árið 2009.
egill helgasoN
sjónvarpsmaður
Er í framvarðasveit fjölmiðlamanna við að beina kastljósinu að fólki úr
öllum geirum þjóðfélagsins til að reyna að fá svör við því hvað gerðist,
hvað er að gerast og hvað mun gerast. Hefur fengið þungavigtarfólk
að utan í Silfrið til að segja frá sinni sýn á ástandið. Koma Evu Joly í
þáttinn var upphafið að því að hún var ráðin sem ráðgjafi sérstaks sak-
sóknara. Bloggsíða Egils er ein sú vinsælasta á landinu þar sem hrein-
skiptar umræður fara fram um efnahagslífið, skuldir heimilanna, at-
vinnulífið og hvað eina sem snertir framtíð Íslendinga.
guNNar sigurðssoN
leikstjóri
Vakti fyrst athygli fyrir vasklega framgöngu á borgarafund-
unum svokölluðu þar sem pólitíkusar landsins voru teknir
á teppið. Gunnar vinnur nú að heimildarmynd um hrunið
og spillinguna á Íslandi. Hann er jafnframt einn þeirra Ís-
lendinga sem er hættur að borga af lánum sínum.
eVa joly
ráðgjafi sérstaks saksóknara
Var ráðin sem ráðgjafi sérstaks saksóknara um
bankahrunið síðasta vetur. Afrekaskrá Joly ber
þess vitni að þar fer kona sem vill svæla og smúla
spillinguna og skítinn út úr öllum þeim skúma-
skotum sem hún kemst í. Íslendingar bera mikl-
ar væntingar til þessarar norsk-frönsku konu sem
sést til dæmis á því að Joly var langoftast nefnd
þegar DV spurði fjölda álitsgjafa á liðnu sumri
hver væri bjartasta von Íslands.
lára haNNa eiNarsdóttir
bloggari
Hefur varið ótrúlegum tíma og lagt mikla vinnu, launalaust að
auki, í að klippa út fréttir um hrunið á Íslandi og birta á síðu
sinni. Blaðagreinar, myndbrot úr fréttum og fréttaskýringaþátt-
um hafa nú orðið að gagnagrunni um hrunið. Vilji fólk stikla á
stóru um hvað hefur gerst hér á landi og kynna sér hvað hefur
verið í fréttum er hvergi betra að byrja en á síðu hennar.
hilmar Veigar péturssoN
framkvæmdastjóri CCP
Hetja á gamla Íslandi líka. Hefur farið fyrir einu farsælasta fyr-
irtæki Ísland, CCP, um árabil. Vinnur með vöru sem er stórlega
vanmetin og mætti nýta mun betur í staðinn fyrir að leggja ein-
göngu áherslu á stóriðju. Það er íslenskt hugvit. Núna síðast tók
hann þátt í að stofna og styrkja nýja teikninámsbraut í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur.
hagsmuNasamtök heimilaNNa
Samtök sem voru stofnuð í upphafi árs af fólki sem hafði fengið nóg af aðgerðaleysi
stjórnvalda. Samtökin berjast eins og nafnið gefur til kynna fyrir hagsmunum heim-
ilanna. Barist hefur verið fyrir því að fá verðtryggingu lagða niður og að lán heimil-
anna verði tekin til endurskoðunar í ljósi breyttra aðstæðna. Það er mikið og erfitt
starf fram undan hjá samtökunum.