Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 31
helgarblað 25. september 2009 föstudagur 31
hetjur Nýja-ÍslaNds
uPPVaKNINgar Nýja-ÍslaNs
tryggVI Þór herbertssoN
þingmaður
Var ráðgjafi ríkisstjórnarinnar síðustu mánuðina áður en allt
fór hér í kaldakol. Kannski var ástandinu ekki við bjargandi þá
en hvergi sjást alla vega teikn um að ráðgjöf Tryggva hafi hjálp-
að ríkisstjórninni eða þjóðinni nokkurn skapaðan hlut. Hann
sagði sig frá ráðgjafarstörfunum korteri eftir hrun og fór í fram-
boð. Seinna kom í ljós að Tryggvi hafði verið einn af kúlulána-
körlunum alræmdu í góðærinu með bakland sitt í Milestone
og Askar Capital.
ÞórlINdur KjartaNssoN
fyrrverandi frambjóðandi
Vann við að selja Bretum og Hollendingum snilldina
sem þekkt er undir nafninu Icesave. Fór í framboð fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn eftir hrunið til að reyna að verða
fulltrúi fólksins á Alþingi. Hafði ekki erindi sem erfiði.
erla ósK ÁsgeIrsdóttIr
fyrrverandi frambjóðandi
Sjá Þórlind Kjartansson.
uPPreIsNarseggIr Nýja-ÍslaNds
björN mIKaelssoN
Sennilega mest áberandi uppreisnarseggur
síðari ára. Það vakti óneitanlega athygli þegar
Björn leigði sér skurðgröfu og rústaði húsi sínu,
bíl og lóð á örfáum mínútum til þess að mót-
mæla ástandinu og því úrræðaleysi sem fólk í
hans stöð lifði við. Skilaboðin komust svo sann-
arlega til skila og Björn virtist tilbúinn að taka
afleiðingunum. Enda hvort sem er búinn að
tapa öllu.
Seinna kom þó ljós að vandræði hans hófust
fyrir hrun og þó nokkrir höfðu farið illa út úr
viðskiptum við Björn.
sVaNberg hjelm
Steig fram í Kastljósi og síðar DV og tal-
aði opinskátt um að hann væri hættur að
borga af lánum sínum. Hann þyrfti hrein-
lega að velja á milli þess eða að fæða fjöl-
skyldu sína. Svanberg sveið undan því að
hafa verið duglegur allt sitt líf og unnið
baki brotnu en eiga nú ekkert eftir sökum
ástandsins.
stÚlKaN Í KjörKlefaNum
Það er ekki hægt að segja annað en að unga stúlkan sem
skeindi sér á kjörseðlinum í kosningunum í vor hafi verið
uppreisnarseggur. Myndband af atvikinu fóru sem eldur
um sinu á internetinu og stúlkan var nefnd „Kjörklefa-
kúkarinn“ af bloggurum og sumum miðlum. Við nánari
athugun kom í ljós að stúlkan hafði skeint sér lóðrétt á
Borgarahreyfinguna á meðan aðrir flokkar sluppu pent á
seðlinum. Kannski gaf það tóninn fyrir örlög flokksins?
jóhaNNa sIgurðardóttIr
forsætisráðherra
fallNar hetjur Nýja-ÍslaNds
borgarahreyfINgIN
Upp úr búsáhaldabyltingunni varð Borgarahreyfingin til. Þjóð-
in tók þessari nýju rödd í kosningabaráttunni vel og fékk hreyf-
ingin fjóra menn kjörna á þing. Innanbúðarskærur, hjaðninga-
víg og misheppnaðar tölvupóstsendingar leiddu til þess að
einn þingmaðurinn, Þráinn Bertelsson, sagði sig úr þingflokki
Borgarahreyfingarinnar og formaðurinn sagði af sér um miðj-
an ágúst. Á dögunum stofnuðu svo þingmennirnir þrír sem
eftir voru nýtt stjórnmálaafl sem þeir kalla Hreyfinguna.
jóhaNNa sIgurðardóttIr
forsætisráðherra
Alvarleg stjórnarkreppa var í landinu eftir stjórnarslitin í jan-
úar síðastliðnum. Þá setti Samfylkingin út tromp sem kom aft-
an að öllum svartsýnisrausurum landsins: að Jóhanna Sigurð-
ardóttir yrði gerð að forsætisráðherra. Ímynd Jóhönnu er að
hún sé óumdeildur hugsjónapólitíkus sem er inni á þingi til
að vinna sleitulaust að bættum hag þeirra sem minnst hafa á
milli handanna. Margir bundu því miklar vonir við hana eft-
ir að hún settist í stól hæstráðanda, vonir sem Jóhanna hef-
ur engan veginn staðið undir. Hún er í felum á meðan þjóðin
snýst í hringi af skorti á vitneskju um hvað muni verða um þá
og eigur þeirra í kreppunni.
Stóð keikur sem fulltrúi Samfylkingarinnar við hlið Geirs H.
Haarde fyrstu vikurnar eftir hrunið þar sem Ingibjörg Sólrún
var í veikindaleyfi og Össur Skarphéðinsson hafði vit á að hafa
sig hægan. Viðskiptaráðherrann þáverandi hafði yfirbragð
þess sem veit upp á hár hvað hann er að gera og röddin dimma
og ómþýða kom þar að góðu gagni. Annað kom á daginn og
Björgvin sagði af sér ráðherradómi korteri áður en stjórnar-
samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sprakk í janúar.
björgVIN g. sIgurðssoN
fyrrverandi viðskiptaráðherra
PoPParar Nýja-ÍslaNds
hagfrÆðINgar
Ágætis starfstétt sem hefur haldið sig innan-
dyra og reiknað fyrir hinar og þessar stofnanir
landsins, eins og nám hennar gerir ráð fyrir. En
eftir hrunið urðu hagfræðingar jafneftirsóttir og
Land og synir fyrir tíu árum. Fjölmiðlar landsins
kepptust við að finna nýja og nýja hagfræðinga
til að láta í ljós álit sitt á aðdraganda hrunsins,
hruninu á meðan það átti sér stað og eftirmálum
þess. Sumir hagfræðingar voru orðnir svo mikl-
ir fastagestir á skjánum að fólk var farið að and-
varpa: „Nei, ekki þessi aftur.“ Alveg eins og þegar
þreytt hljómsveit gefur út nýtt lag.slÁtur
Það hefur ekki beint þótt töff að taka slátur í seinni tíð þó að
það hafi verið og sé enn mikil hefð fyrir því hér á landi. En
í kreppunni fer alls konar tíska að koma aftur og allt í einu
var það orðið svaka hipp og kúl að geta tekið slátur. Slátur-
námskeið skutu upp kollinum um allan bæ. Takið afgang-
ana af kindunum, troðið þeim kepp, saumið, sjóðið og étið.
Fólkið í sveitinni sem útbýr slátur er ekkert að biðja um að
vera kallað töff. Fyrir því er þetta bara íslenskur siður.
Var talinn klikkaður í mörg ár. „Hvernig nenn-
ir hann að mótmæla endalaust?“ spurði fólk sig.
En síðan hrundi Ísland og þá urðu mótmælendur
sannar poppstjörnur. Það var ekki sá dagur sem nýj-
ar poppstjörnur fundust ekki inni á milli mótmæl-
enda sem kveiktu í rusli og börðu allt sem hægt var
að berja fyrir utan Alþingi. Hörður Torfason var auð-
vitað Bubbi mótmælendanna þar sem hann hreif
allt fólkið með sér á hverjum laugardegi í ömurlegu
vetrarveðri. Sumir mótmælendur urðu svo alþingis-
menn en þeir hefðu betur haldið sig utandyra.
helgI hóseassoN