Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Síða 33
helgarblað 25. september 2009 föstudagur 33
gangi því við vildum að fólk fengi
meira út úr tónleikunum en bara
músíkina. Til að það gæti ekki bara
lokað augunum og hlustað vildum
við reyna að hafa hið sjónræna jafn
ríkt og skemmtilegt. Hver uppák-
oma var uppákoma með látum.“
Óheilsusamlegt líferni fylgir oft
ungum mönnum í tónlistargeiran-
um. Átti það við um ykkur?
„Nei. Við erum prúðasta hljóm-
sveit sem uppi hefur verið,“ segir
Daníel og brosir óræðu brosi.
Varð gagntekinn
af tölVutónlist
Daníel hætti í Nýdönsk að nafninu
til á tíu ára afmæli hljómsveitar-
innar árið 1997. Í raun hætti hann
í bili þremur árum áður eftir síð-
ustu breiðskífuna sem hljómsveitin
gerði með Daníel innanborðs.
„Þarna var ég nýbúinn að upp-
götva tónlist með tölvum. Að það
væri hægt að búa til tónlist í því
vinnuumhverfi. Það var mjög fram-
andi og skrítið fyrir mér fyrst því ég
hélt að tónlist og tölvur ættu illa
saman en komst að raun um ann-
að, sérstaklega eftir að hafa unn-
ið með Bubbleflies og stjórnað
upptökum á plötunni þeirra, Pin-
occhio. Þannig komst ég að því að
maður getur notað tölvuna eins og
hljóðfæri og hún býður upp á mjög
marga möguleika.
Á þessum tíma varð ég fyrir mjög
sterkum áhrifum frá tripphoppi,
Massive Attack, Tricky og fleirum,
og var eiginlega búinn að ákveða
að snúa mér að öðruvísi tónsmíð-
um en ég hafði verið að vinna að
með Nýdönsk. Mér fannst ég vera
búinn að fullreyna það vinnuum-
hverfi, alla vega í bili,“ segir Daní-
el og bætir við aðspurður að aldrei
hafi komið til tals að færa Nýdönsk
inn á þessa línu.
„Ég sá það ekki gerast að Nýd-
önsk yrði tripphopp hljómsveit. En
ég var forvitinn, og miklu forvitn-
ari en félagar mínir í Nýdönsk, um
þessa nálgun á tónlistarsköpun. Ég
var því búinn að fá mér tölvu og
byrjaður að fikta í þessum tónlist-
arheimi.“
rótlaus eftir flakkið
Í framhaldinu stofnaði Daníel Gus-
Gus ásamt nokkrum félögum sín-
um sem í upphafi kallaði sig fjöl-
listahóp. „Það er kannski helst fyrir
mína tilstuðlan að tónlistarhliðin
á GusGus varð til. Fyrst var þetta
bara kvikmyndafélag sem Sigurð-
ur Kjartansson, Stefán Árni Þor-
geirsson og Baldur Stefánsson voru
að sýsla með. Þeir voru að búa til
stuttmynd sem heitir Nautn og ég
kom upphaflega inn í það sem leik-
ari. Upptökunum á stuttmyndinni
var svo frestað en þar sem þeir voru
búnir að hóa saman fjölbreyttum
hópi listafólks, og flestir með ein-
hvers konar tónlistarbakgrunn,
mæltist ég til þess að við gerðum
músík. Það var slegið til og þannig
varð þetta fyrirbæri til, svona eigin-
lega óvart.“
Á næstu fimm árum gerði Daní-
el þrjár plötur með GusGus. Eftir að
hafa fylgt þeirri síðustu eftir fannst
honum að hann þyrfti á pásu að
halda.
„Ég man að ég var orðinn mjög
rótlaus og var einhvern veginn
fljótandi í lausu lofti eftir löng og
ströng tónleikaferðalög. Ég var orð-
inn svolítið þreyttur og vildi fara að
gera öðruvísi músík sem ég sá ekki
fyrir mér að GusGus myndi gera.
Meira klassísk-ættaða. Þá urðu
mannabreytingar, ég og fleiri hætt-
um og Maggi Legó, Biggi og Stebbi
Steph urðu eftir og stuttu seinna
kom Urður inn. Þetta gerðist á
mjög eðlilegan hátt og engin átök
í kringum það. Það var ekkert stórt
uppgjör sem átti sér stað. Ég átti til
að mynda lög sem voru á næstu
tveimur plötum GusGus sem komu
út,“ segir Daníel og stingur upp í sig
sushi-bita.
synti umkringdur
neon-sVifi á ÍtalÍu
Í kjölfarið kúplaði Daníel sig frá líf-
inu á Íslandi. Hann segist meðal
annars hafa búið á Ítalíu í nokkra
mánuði með þáverandi eiginkonu
sinni, Gabríelu Friðriksdóttur.
„Okkur langaði að prófa að búa
annars staðar. Við bjuggum í litlu
fjallaþorpi við Norðvesturströnd-
Ítalíu. Þetta er það lítið að þú finn-
ur það örugglega ekki á korti, svona
200-300 manna þorp,“ segir hann
og glottir. „Það var mjög skemmti-
legt. Þar synti ég í sjónum með sjálf-
lýsandi svifi að nóttu til. Því gleymi
ég aldrei. Þetta var einhvers kon-
ar neon-svif. Ótrúlegt! Eina nótt-
ina svaf ég svo undir berum himni
og horfði á óteljandi stjörnuhröp.
Þetta var eins og flugeldasýning.“
Á Ítalíu samdi Daníel efni á
fyrstu sólóplötuna sína, Swallowed
a Star. Þegar hann var langt kom-
inn með hana fékk hann vilyrði
frá bresku útgáfunni 4AD, sem var
með GusGus á sínum snærum, um
að gefa plötuna út.
„Þeir drógu svo í land eftir að
þeirra hagur fór á verri veg en þeir
ætluðu. Allt umhverfið var þarna
að breytast í plötuútgáfu vegna nið-
urhals og slíks. Þarna var ég kom-
inn með beinagrindina og nokkuð
af kjöti en átti eftir að útsetja öll lög-
in fyrir það umhverfi sem mig lang-
aði að hafa tónlistina í, það er fyrir
strengjahljóðfæri.
Á endanum urðu þessi straum-
Daníel Ágúst HaralDsson
tónlistarmaður
fæðingardagur: 26. ágúst 1969
fæðingarstaður: Reykjavík
sambýliskona: Kitty von Sometime
Börn: Daníela, 20 ára,
Lilja Constance, tveggja vikna
ferill: Nýdönsk 1987-1997 og 2007-
GusGus 1995-2001 og 2007-
Esja 2006-
Daníel hefur komið að útgáfu fjölda
platna með öðrum en þeim hljóm-
sveitum sem getið er hér að ofan, til
dæmis með Megasi, Bubbleflies og
Rafni Jónssyni (Rabba trommara).
Hann gaf út sólóplötu árið 2006
og hefur kom við sögu í söngleikj-
unum Súperstar og Stonefree í
Borgarleikhúsinu og Gauragangi í
Þjóðleikhúsinu.
Á meðal verðlauna sem Daníel
hefur fengið eru „Söngvari ársins“ á
Íslensku tónlistarverðlaununum árið
1993 og 1998.
ánægður með glerferlíkið „Það er
stærsti og fallegasti skúlptúr sem ég hef
barið augum og ég er mjög hamingjusamur
með að fá að lifa í návist hans,“ segir Daníel
um glerferlíkið Höfðatorg sem stendur í
grennd við heimili hans. mynd sigtryggur ari