Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 34
34 Föstudagur 25. september 2009 helgarblað hvörf, þessi höfnun eða hvað sem á að kalla þetta, til þess að ég samdi fullt af fleiri lögum og einsetti mér að út- setja strengjaútsetningarnar sjálfur. Ég hafði enga menntun í því en tölv- an gerði mér kleift að fikta í því og ná þannig upp nokkru valdi á því. Ég gat þannig, með aðstoð nótnafróðra manna, komið lögunum í þann bún- ing sem ég vildi.“ One Little Indian gaf plötuna að lokum út í Bretlandi og Bandaríkjun- um en Daníel er ekki alveg sáttur við hvernig því var fylgt eftir. „Það fór nú ekki mikið fyrir útgáfunni hjá þeim. Ég er náttúrlega mjög þakklátur fyrir að þeir gáfu hana út en markaðssetn- ingin var ekki upp á marga fiska.“ Plat- an var einnig gefin út hér á landi undir merkjum Smekkleysu. Heilaskurðlæknir og öndunarfæralæknir Daníel gekk til liðs við GusGus á nýjan leik árið 2007 eftir að hafa fylgt Swall- owed a Star eftir í tvö ár með tónleika- haldi víða um heim. „Sú tegund af orku sem er í gangi í GusGus er allt öðruvísi en sú orka sem er í gangi þeg- ar ég er einn að spila á kassagítar og mig langaði bara aftur að upplifa þá orku. Það sem er líka svo skemmtilegt við danstónlist er að þú getur týnt þér bæði andlega og líkamlega. Þetta er ekki bara eitthvað guðlegt sem kem- ur að ofan heldur kemur þetta líka í gegnum kynið, mjaðmirnar og iðr- in. Þetta sambland er mjög sterkt. Þú getur líka upplifað þetta við rokktón- list en aðallega í gegnum danstónlist því hún er sérstaklega gerð til þess að sameina þetta tvennt.“ Á svipuðum tíma tók Daníel líka upp þráðinn með Nýdönsk sem kom líklega fleirum á óvart en endurfund- irnir við GusGus. „Það kviknaði bara löngun í mér til að rifja upp gamla takta og finna þá orku sem er inn- an Nýdanskrar. Eins og með GusGus er sérstök tegund af orku og spennu sem verður þar til. Við vorum að fylgja eftir útgáfu á diski í tengslum við tut- tugu ára afmæli hljómsveitarinnar og í kjölfarið ákvað ég að slá til og fara að spila með gömlu félögunum. Þetta er bara „easy going“, við tökum tónleika og böll endrum og sinnum og ég hef mjög gaman af þessu.“ Daníel segir það ganga vel upp að skipta sér á milli GusGus, Nýdanskr- ar og Esju. „Ætli þetta sé ekki eins og að vera sérfræðingur á mörgum svið- um innan einhverrar greinar. Eins og að vera heilaskurðlæknir og öndun- arfæralæknir eða eitthvað álíka. Ef tónlist er einn líkami þá hef ég skap- að mér frelsi til að mega flakka á milli og það eru sjúkleg forréttindi að geta gert það vegna þess að það er ekkert sjálfsagt.“ Hvernig er það fjárhagslega að vera tónlistarmaður á Íslandi kreppu- árið 2009 ? „Ég lifi engu kóngalífi en ég kvarta ekki. Það er alltaf eitthvað sem dettur inn og svo sem alveg nóg að gera.“ eurovision besti skólinn Einn „atburður“ á ferli Daníels hef- ur ekki komið til tals enn í viðtalinu. Blaðamanni er hálfilla við að spyrja tónlistarmanninn fjölhæfa út í hann þar sem hann gerði ráð fyrir að Dan- íel væri löngu orðinn þreyttur á því að kommenta á það ævintýri – nánar til- tekið Eurovision-ævintýrið árið 1989. Daníel segist reyndar eiginlega aldrei hafa talað um þetta og blaðamaður lætur því vaða eftir að hafa verið með böggum hildar við að vekja máls á þessu. Daníel segist síður en svo sjá eft- ir því að hafa tekið að sér flutning- inn á lagi Valgeirs Guðjónssonar, Það sem enginn sér. „Þetta var stórkost- leg reynsla! Besti skóli sem ég hef ver- ið í. Miklu betri en MR,“ segir Daní- el en lokakeppnin úti í Sviss fór fram á svipuðum tíma og stúdentsprófin stóðu yfir hjá honum. „Þetta kom að- eins niður á stúdentsprófunum. En ég náði samt.“ Daníel segir dagana í Sviss hafa verið ógleymanlega. „Þetta var æðis- legt. Þetta var eitt stórt, geggjað partí og rosa gaman. Ég held að ég hafi aldrei hlegið jafn mikið á ævinni. Við ferðuðumst líka um sveitir Sviss, fór- um á búgarð og fengum að smakka sýnishorn af víni, ostum og fleiru og kynntumst þannig svolítið landi og þjóð. Og Valgeir Guðjónsson er ekki beint leiðinlegur maður þannig að þetta var standandi fjör.“ vildi ekki komast áfram En hvernig ætli það hafi verið fyrir óharðnaðan ungling að standa uppi á sviði fyrir framan þúsundir áhorf- enda, og tugmilljónir að horfa á í sjón- varpinu, og hafa einungis þrjár mínút- ur til að heilla fjöldann? „Það er ekkert mikið öðruvísi en að syngja í Kastljósi. Eða bara í stofunni heima. Þú finnur ekkert fyrir einhverj- um milljónum þegar myndavélarnar eru á þér. Maður syngur bara lagið,“ segir Daníel kokhraustur. Og ekki stendur á svari þegar blaðamaður spyr hvernig það sé að fá svo núll stig og vera þar með sá íslenski þátttakandi í þessari keppni sem stát- ar af versta árangrinum frá upphafi, árangri sem verður ekki „toppaður“. „Ég var dauðfeginn vegna þess að ég hef ekki hátt álit á þessari keppni. Mér fannst þetta mjög klént fyrirbæri og ekki mikil músík í gangi. Ég tók þátt í undankeppninni hérna heima vegna þess að mig langaði til að vinna með Valgeiri. Hann bað mig um að syngja þetta lag og ég samþykkti það sam- stundis. Ákvörðunin byggði þannig á þessari löngun minni til að vinna með honum, og það tókst alltof vel til.“ Þú vildir sem sagt aldrei komast áfram? „Nei, ég hafði engan áhuga á því. En ég gerði gott úr því og naut þess algjörlega. En ég var frekar hikandi og tvístígandi yfir þessum frábæra árangri hérna heima. Ég hafði engan áhuga eða metnað fyrir því að fara í þessa lokakeppni.“ Daníel kveðst þrátt fyrir það ekki hafa reynt að bakka út eftir að sigur- inn var í höfn í undankeppninni. „Nei, mér datt það ekki einu sinni í hug því ég sá hvílík reynsla og upplifun þetta yrði fyrir mig. Sem þetta svo varð. Fylgistu eitthvað með keppninni núna? „Kannski með öðru, þreyttu auga. Og hálfu eyra. Það eru oft skemmti- leg hallærislegheit í gangi sem er bara gaman og sprenghlægilegt að sjá. En ég fylgist ekki með fyrir tónlistarsakir.“ faðir í annað sinn Eins og einhverjir hafa kannski les- ið um í fjölmiðlum nýlega varð Dan- íel faðir í annað sinn þann 11. sept- ember síðastliðinn. Þá eignaðist hann hrausta og fallega dóttur með sam- býliskonu sinni, Kitty von Somtime. Stúlkan hefur fengið nafnið Lilja Con- stance en fyrir átti Daníel, sem varð fertugur í ágúst, dótturina Daníelu sem er að verða tvítug. „Þetta var stórkostlegt. Maður er orðinn þroskaðri og finnur meiri tíma fyrir barnið sitt núna en þegar ég varð faðir í fyrra skiptið. Ég held að ég eigi auðveldara með að helga mig föð- urhlutverkinu í dag en fyrir tuttugu árum. Ég var mjög ungur í fyrra skipt- ið og var því reyndar mjög aðlögunar- hæfur, gat því aðlagað mig þeim að- stæðum að verða faðir, en það var ekki endilega númer eitt á forgangslistan- um. Núna er það efst á listanum.“ Var föðurhlutverkið þá fyrir neð- an tónlistina á listanum fyrir tuttugu árum? „Maður horfði ekki endilega á það þannig þá en ég sé það svolítið þannig í dag. Sé hvernig ég gaf mér meira svigrúm til að sinna starfsframanum og öllu því tengdu.“ Daníel varð líka afi fyrir tveimur árum. „Það var ólýsanlega frábært. Maður elskar barnið jafn mikið og börnin sín en maður axlar ekki jafn mikla ábyrgð. Maður er meira til hlið- ar þegar kemur að uppeldishlutverk- inu og getur meira notið þess að eiga gæðastundir með afkvæmi afkvæmis síns,“ segir Daníel og hamingjan skín af andliti hans. Hann kveðst alveg geta kvitt- að undir að það sé svolítið skrítið að verða afi og svo aftur pabbi eftir allan þennan tíma. „Jú, ég veit ekki hverjum datt í hug að hafa þetta svona. Þetta er bara ein af ótrúlegum birtingarmynd- um lífsins. Maður er bara undrandi og ánægður með allar þessar uppákom- ur.“ sjómennska í skugga fjármálaHverfis Daníela og dóttir hennar, Una, búa hjá Daníel, Kitty og Lilju litlu í Sam- túninu í Reykjavík. Húsbóndinn á heimilinu segir þau una hag sínum þar afskaplega vel. „Já, í skugga fjár- málahverfisins. Það væsir ekki um okkur þar. Þetta er mjög fallegt hverfi og mig langar líka að minnast á gler- höllina, Höfðatorg. Það er stærsti og fallegasti skúlptúr sem ég hef barið augum og ég er mjög hamingjusam- ur með að fá að lifa í návist hans. Það að byggingin skuli vera tóm og til- gangslaus gerir hana að stærsta lista- verki á landinu, ef ekki í Evrópu,“ seg- ir Daníel í kaldhæðnum tón. „Það er svolítið skemmtilegt að þegar morgunsólin skín kemur hún bæði úr austri og suðri af því að hún endurvarpast í þessu merkilega listaverki. Við fáum því tvöfalda sól í morgunsárið!“ Daníel verður fjarri Kitty og ný- fæddu dótturinni í nokkrar vikur í senn næstu mánuðina á meðan hann fylgir 24/7 eftir víða um heim. Þegar blaðamaður spyr að lokum hvernig hann haldi að það verði segist hann eiginlega ekki vilja fara þangað í hug- anum. „Ég er þó heppinn að vera ekki í vinnu þar sem ég væri ennþá meira í burtu. Sumir eru líka í vinnu þar sem þeir eru í burtu allan daginn og það er ekkert betra. En við ætlum að reyna að halda þessu innan hóf- legra marka og vera ekki lengur en 2-3 vikur í burtu í senn. Þó að þetta sé sjómennska þá er þetta létt og nett sjómennska. En dóttir mín á eftir að þroskast mikið þann tíma sem ég er í burtu.“ Viltu eignast mörg börn og barna- börn í viðbót? „Eigum við ekki bara að leyfa líf- inu að koma til mín? Ég held að það sé erfitt að gera einhver svona plön. Ég hef gaman af börnum og kann að meta sveitalífið með stóra fjölskyldu, og svo kann ég líka að meta stórborg- ina, lætin og næturlífið og það allt. Ég vona alla vega að ég verði áfram um- kringdur þeim sem ég elska þegar lengra líður á ævina.“ kristjanh@dv.is í transi Daníel hefur sungið á ógrynni tónleika með fjölda hljómsveita í rúm tuttugu ár. mYnd sigurjón ragnar í eurovision Daníel fékk núll stig fyrir flutninginn á framlagi Íslands í Eurovison í Sviss árið 1989. sjómaður og faðir „Þó að þetta sé sjó- mennska þá er þetta létt og nett sjómennska. En dóttir mín á eftir að þroskast mikið þann tíma sem ég er í burtu.“ mYnd sigtrYggur ari       
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.