Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 44
Banvæn vinátta Táningsstúlkurnar Constance og Camille voru
óaðskiljanlegar. Þær voru sautján ára, gengu í sama skóla í Rúðuborg í Frakk-
landi, borðuðu saman á heimili Constance í hádegishléum og stóðu í stöðug-
um bloggfærslum sín á milli. En þegar þær urðu ástfangnar af sama drengnum
hrönnuðust upp óveðursský við sjóndeildarhringinn. Vinskapur stúlknanna
stóðst ekki þá prófraun og endaði með morði.
Lesið um banvæna vináttu í næsta helgarblaði DV.
Hrein illska
Ian Peters varð „gjörsamlega niðurbrotinn“ þegar hann fékk tíðindin af morðunum á eiginkonu sinni og
dóttur. Lögregluna grunaði frá upphafi að einhver nákominn Susan Peters hefði farmið ódæðin. Morðing-
inn reyndist vera nákomnari Susan en lögreglan hugði í upphafi.
Lögregluna grunaði að Susan Pet-
ers hefði verið kunnug morðingja
sínum. Í það minnsta nógu vel til að
hleypa honum inn á heimili hennar
í New Brighton á Merseyside á Eng-
landi. Þann 9. janúar 2004 fann lög-
reglumaður, og bróðir Susan, líkið af
henni á annarri hæð íbúðar hennar.
Susan Peters, 29 ára þjónustustúlka,
hafði verið stungin til bana og við
hlið hennar lá Ellen, þriggja ára
dóttir hennar einnig dáin.
Ian Peters, eiginmaður Susan,
var „gjörsamlega niðurbrotinn“
þegar honum voru færð tíðindin
þar sem hann var staddur í herstöð
breska sjóhersins í Portsmouth, en
hann var kokkur í sjóhernum.
Óskiljanlegur glæpur
Í ljósi þess að Susan var hæglætis-
kona og ekki vitað til þess að hún
ætti sér óvildarmenn var erfitt að
geta sér til um ástæður ódæðis-
ins. Það var nánast fyrir tilviljun að
bróðir hennar fann líkin af mæðg-
unum, en hann bjó hinum megin
við götuna og ætlaði að gæta Ellen-
ar á meðan systir hans væri í vinn-
unni.
Að sögn lögreglunnar var mun
verri og meiri áverka að sjá á líki
Susan en Ellenar. Susan hafði ver-
ið stungin ítrekað en hin þriggja ára
Ellen hafði mikla áverka á andliti en
færri stungusár.
Fáar vísbendingar
Þar sem engu virtist hafa verið stolið
og engin merki um innbrot var lög-
reglunni vandi á höndum. En hún
var sannfærð um að sá sem framið
hefði morðin hefði verið boðið inn á
heimili Susan, og að öllum líkindum
ekki verið grunsamlegur í augum
þeirra sem hugsanlega hefðu séð
hann. Morðin höfðu verið framin á
milli klukkan 11 að kvöldi fimmtu-
dags og 11 að morgni föstudags.
Í tengslum við rannsóknina leit-
aði lögreglan að svörtu fjallahjóli
sem stolið hafði verið í nágrenninu
snemma föstudags. Lögreglan taldi
ekki útilokað að stuldurinn tengd-
ist morðunum og morðinginn hefði
notað það til að flýja að loknum
morðunum.
Neydd til að horfa
Þegar leið á rannsóknina upplýsti
lögreglan að sennilega hefði Ellen,
áður en hún var myrt, verið neydd
til að horfa á morðið á móður
sinni. Einnig bar vitni að hróp og
annar hávaði hefði borist frá íbúð
Susan aðfaranótt föstudagsins.
Nágrannar Susan voru furðu
lostnir þegar þeir komust að því
þann 13. janúar að Ian Peters
hefði verið handtekinn. Ian hafði
játað á sig morðin daginn áður, og
þá kom fram að hann hefði haft
kynmök við eiginkonu sína áður
en hann batt enda á líf hennar.
Eftir að hafa stungið Susan marg-
sinnis hafði Ian kyrkt hana og síð-
an barið dóttur sína og kæft.
Lánssamningur í kokinu
Við réttarhöldin kom í ljós að
hjónaband Susan og Ians var í
molum og ástæðan að miklu leyti
slæm skuldastaða Ians. Hann
hafði meðal annars neyðst til að
taka 8.000 sterlingspunda lán um
jólin.
Saksóknarinn, Neil Flewitt,
sagði ljóst að peningar, eða skort-
ur á þeim, hefði verið ástæð-
an fyrir morðunum. Máli sínu til
stuðnings sagði hann að saman-
undnum 500 punda lánssamningi
hefði verið troðið niður í kokið á
hinni þriggja ára Ellen.
Svikin sorg
Þann 8. janúar hafði Ian tilkynnt
félögum sínum í Portsmouth að
hann hygðist ganga til náða. En
þess í stað fór hann með lest til
Merseyside og myrti eiginkonu
sína og dóttur. Susan náði að klóra
Ian í átökunum og sýni sem tekið
var undan nöglum hennar sam-
svaraði erfðaefni hans.
Þegar herpresturinn síðar sagði
Ian af dauða mægnanna gróf hann
andlitið í höndum sér og sagði:
„Ég trúi þessu ekki.“ En herprest-
urinn var ekki fæddur í gær og ef-
aðist um að sorg eiginmannsins
væri fölskvalaus.
Ian Peters staðfesti grun
herprestsins því þegar hann fór
til Merseyside eyddi hann tveim-
ur dögum í verslunarleiðangra
og ræddi knattspyrnu og konur
við félaga sína, áður en hann var
handtekinn. Þá fullyrti hann að
hann myndi ekkert eftir morð-
unum.
Hrein illska
Ian Peters var dæmdur til lífs-
tíðarfangelsis ásamt fyrirmæl-
um um að hann yrði ekki skem-
ur en 27 ár á bak við lás og slá.
Ættingjum Susan fannst hann
sleppa of vel og lýstu drápun-
um sem „hreinni ilsku“, og töldu
ennfremur að hann hefði ein-
ungis játað til að fá vægari dóm
en ella.
Peter Currie, rannsóknarlög-
reglumaður sem vann að rann-
sókninni, sagði að Ian hefði átt
kærustu í Portsmout og hugs-
anlega fundist Susan og Ellen
vera honum Þrándur í götu. Cur-
rie sagði ennfremur að Ian hefði
aldrei á meðan rannsókn stóð
sýnt nokkur merki iðrunar.
Umsjón: koLbEinn ÞoRsTEinsson, kolbeinn@dv.is
44 föstudagur 25. september 2009 sakamál
auglýsingasíminn er
512
70
50
Ian Peters neyddi dóttur
sína til að horfa á þegar
hann myrti móður hennar.